Morgunblaðið - 28.01.2020, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.01.2020, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2020 Sími 555 2992 og 698 7999 Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra Gott fyrir: • Maga- og þarmastarfsemi • Hjarta og æðar • Ónæmiskerfið • Kolesterol • Liðina Læknar mæla með selaolíunni Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð Óblönduð – meiri virkni Selaolía Égheyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni bætta líðan og heilsu. Guðfinna Sigurgeirsdóttir. „Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“ Fyrsta dauðsfallið í Peking  Staðfest að 82 eru látnir af völdum lungnabólgufaraldursins  Frakkar og Japanir flytja þegna sína burt frá Wuhan  WHO lýsir yfir „háu“ hættustigi Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Kínversk stjórnvöld staðfestu í gær að 82 væru látnir af völdum lungna- bólgufaraldursins sem skekið hefur Kína undanfarnar vikur. Þar á meðal var fyrsta skrásetta andlátið af völd- um veikinnar í höfuðborginni Peking. Þá hafa meira en 2.700 manns fengið veikina samkvæmt opinberum tölum stjórnvalda, en talið er að margfalt fleiri gætu hafa sýkst. Frakkland og Japan tilkynntu í gær að þau hygðust flytja þegna sína heim frá borginni Wuhan, þar sem veikin kom fyrst upp, í samráði við kínversk stjórnvöld og fleiri ríki íhuga slíkan brottflutning. Wuhan hefur verið í sóttkví síð- ustu daga ásamt öðrum borgum í Hubei-héraði og hefur engum verið hleypt til eða frá borginni sem ekki hefur átt þangað brýnt erindi. Þrátt fyrir það er talið að um fimm milljón manns hafi ferðast til og frá Wuhan áður en sóttkvíin komst á, en kín- verska nýárið er mikill ferðatími í Kína. Loka landamærum fyrir bílum Stjórnvöld í Mongólíu ákváðu í gær að loka landamærum sínum að Kína fyrir bílaumferð og Malasía hef- ur ákveðið að meina fólki frá Hubei- héraði Kína að koma til landsins. Stjórnvöld í Frakklandi tilkynntu að þau hygðust flytja franska ríkis- borgara heim frá Wuhan í samráði við kínversk stjórnvöld. Mun fólkið þurfa að bíða í einangrun í tvær vikur við komuna til Frakklands. Stjórn- völd í Japan ætla að grípa til sama ráðs, og Bandaríkjamenn hafa þegar gert ráðstafanir til að flytja opinbera starfsmenn heim frá þeim svæðum sem verst hafa orðið úti í faraldr- inum. Þá ætla stjórnvöld í Suður- Kóreu að gera könnun meðal landa sinna í Hubei-héraði til að athuga hvort almennur vilji sé fyrir því að flytja þá aftur heim. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO tilkynnti í fyrradag að alþjóðlegt hættustig vegna kórónaveirunnar væri nú „hátt“ á alheimsvísu, en í fyrri skýrslum stofnunarinnar hefur hættustigið verið metið „miðlungs- hátt“. Sagðist stofnunin í tilkynningu sinni hafa metið hættustigið of lágt. Stofnunin hefur hins vegar enn ekki lýst yfir neyðarástandi á al- heimsvísu, en talsmenn hennar segja ástandið vera í stöðugri skoðun. AFP Faraldur Lögreglan í Wuhan mælir hér hita ökumanns vegna veikinnar. Donald Trump Bandaríkjaforseti hafnaði í gær ásökunum þess efnis að hann hefði sagt við John Bolton, þáverandi þjóðaröryggis- ráðgjafa sinn, að hann vildi halda eftir fjármunum sem ætlaðir voru í hernaðaraðstoð til Úkraínu- manna nema þar- lend stjórnvöld féllust á að hefja rannsóknir á demókrötum, en dagblaðið New York Times hélt því fram á sunnu- daginn og sagðist hafa undir hönd- um uppkast að bók sem Bolton væri að skrifa um tíma sinn í Hvíta hús- inu. Trump sagði frásögnina hins veg- ar ranga og bætti við að ef Bolton hefði skrifað þetta hefði það verið í þeim eina tilgangi að selja bókina sína. Demókratar reyndu að nota frá- sögn New York Times til að þrýsta á um að John Bolton yrði kallaður fyr- ir öldungadeildina sem vitni í réttar- höldunum gegn Trump sem nú standa þar yfir. Bolton hefur sagt að hann sé reiðubúinn að bera vitni ef hann verði kallaður fyrir deildina með formlegum hætti. Þingmenn repúblíkana hafa hins vegar ekki vilja ljá máls á því að kalla fyrir vitni fyrr en munnlegum málflutningi lýkur í deildinni á morgun. Þá hafa þeir gefið til kynna að ef kalla eigi Bolton og fleiri til vitnis verði einnig að kalla til önnur vitni, eins og Hunter Biden, son Joe Biden, forsetaframbjóðanda demó- krata, og jafnvel Biden sjálfan til að komast til botns í málinu. Demó- kratar hafa hins vegar verið ófúsir til þess. Saka Hvíta húsið um lekann Lögfræðingar Boltons sögðu að hann væri óánægður með að hand- ritinu hefði verið lekið í dagblöð, og beindu fingri að Hvíta húsinu, sem fékk eintak til þess að kanna hvort einhver mál er vörðuðu þjóðar- öryggi væru í handriti Boltons áður en bókin kæmi út. Það mun skýrast annaðhvort í kvöld eða á morgun hvort öldunga- deildin samþykkir að hefja vitna- leiðslur í málinu gegn Trump, en fjórir þingmenn repúblíkana þurfa þá að kjósa gegn flokkslínum. Falli atkvæði á jöfnu kemur það í hlut Johns Roberts, forseta hæstaréttar, að greiða oddaatkvæði. Hafnar ásökunum Boltons John Bolton  Útdrætti úr bók Boltons lekið Þjóðarleiðtogar komu saman í Auschwitz í gær ásamt um 200 manns sem lifðu af helför nasista gegn gyðingum til að minnast þess að þá voru 75 ár liðin frá því að sovéskir hermenn frelsuðu fangana þar. Lögðu leiðtogarnir kransa við „dauðavegginn“ svonefnda, þar sem margir fangar voru skotnir, og gengu undir hinu al- ræmda skilti við inngang búðanna, sem hét því að vinnan myndi gera fangana þar frjálsa. 75 ár liðin frá frelsun Auschwitz AFP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.