Morgunblaðið - 28.01.2020, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 28.01.2020, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2020 Vetrarveröld Snjóþekja vetrarins umbreytir landslagi og kallast þá hvít jörðin á við bláma himinsins. Mannfólkið á skíðasvæðinu í Skálafelli virðist heldur smátt þótt það skilji eftir spor víða. Árni Sæberg Ísland á að taka for- ystu í sjálfbærni og umhverfisvernd á heimsvísu og vera fyrirmynd annarra ríkja í þessum tveimur mikilvægustu mála- flokkum þessarar ald- ar. Sjálfbærni í rekstri er verðmætasköpun til hluthafa og þjóðfélags- ins í heild með jákvæðum hætti. Gildismat fyrirtækja hefur mikil áhrif á hversu vel tekst til við að inn- leiða sjálfbærni í viðskiptamódel sem getur náð hámarksárangri. Alþjóð- leg fyrirtæki sem ná mestum árangri leggja áherslu á góða stjórnarhætti, viðskiptahætti og sjálfbærni með efnahagslegan árangur sem mæli- kvarða. Fjárfestingarfyrirtæki og fjárfestar um allan heim leggja nú mat á fjárfestingavalkosti með áherslu á sjálfbærni og umhverf- ismál til aukinnar verðmætasköp- unar. Erlendis er algengt að fjár- festar og fjárfestingaraðilar hafi vegvísi til leiðsagnar við fjárfest- ingar þar sem sjálfbærni er skoðuð m.t.t. til kostgæfni. Sjálfbærni, staf- rænar lausnir og gildismat eru þeir þættir sem munu hafa mest áhrif á fyrir- tækjarekstur og opin- beran rekstur á næstu áratugum. Stafræn tækni, gervigreind og gildismat eru að breyta viðskiptamódelum fyrirtækjareksturs og lifnaðarháttum fólks um allan heim. Fyrir- tækjarekstur sem á ábyrgan hátt skapar verðmæti til langs tíma með sjálfbærum vexti, viðskiptaþróun og hagnaðarmögu- leikum eykur líkur á að ná lang- tímamarkmiðum sínum. Sjálfbærni er leiðandi þáttur í rekstri margra fyrirtækja, m.a. flugfélaga en í nýju tímariti frá Finnair-flugfélaginu kemur m.a. fram að sjálfbærni sé lykildrifkraftur í nýrri framtíðarsýn félagsins. Finnair flýgur á margar borgir í Kína, Japan auk Evrópu og Bandaríkjanna. Eitt af markmiðum félagsins er að minnka einnota notk- un á plasti í veitingasölu um borð í flugvélum félagsins um helming fyr- ir lok árs 2022. Langtímamarkmið Finnair er að minnka árlega plast- notkun um 230 tonn og hefur félag- inu nú þegar tekist að minnka þessa notkun um 34% eða um 80 tonn og þarf því að minnka þessa plast- notkun um 150 tonn á næstu tveimur árum. Minni notkun á plasti er lofs- verð en umbreyting á plastnotkun á snjallan hátt er enn lofsverðari. Al- þjóðlega stórfyrirtækið Adidas er einn af stofnendum „Parley for the Ocean“ sem er vettvangur leiðtoga, hugmyndasmiða og skapandi hugs- uða um allan heim sem vilja finna lausnir á eyðileggingu hafsins og leita leiða til að lágmarka slæm áhrif á umhverfi jarðarinnar. Eins og Captain Paul Watson kemst að orði munu allir jarðarbúar deyja ef hafið í kringum okkur deyr. Umhverfis- vernd, náttúruvernd og snjallar hug- myndir munu verða helstu þættir samkeppnishæfni á 21. öldinni. Ís- land hefur nægt af hreinu vatni, endurnýjanlegri orku, hreinu lofti og náttúrauðlindum sem gera Ísland að einu ríkasta og verðmætasta landi heims horft til 50 ára með tilliti til sjálfbærni og umhverfismála. Al- þjóðleg stórfyrirtæki hafa breytt stefnumörkun sinni verulega á síð- ustu 10 árum sem hefur leitt til auk- innar verðmætasköpunar með því að leggja aukna áherslu á náttúru- og umhverfisvernd. Bandaríska stór- fyrirtækið XYLEM hefur það að markmiði að vernda og varðveita það sem heimurinn getur ekki verið án horft til framtíðar. Markmið vatnstæknifyrirtækisins XYLEM er að koma með lausnir á vatnsvanda vegna flutnings og hreinsunar. Frá og með árinu 2025 er gert ráð fyrir að rúmlega 25% af mannfjölda heimsins eða 1,8 milljarðar manna muni lifa á svæðum þar sem vatns- skortur er viðvarandi. Fyrirtækið hefur þróað hugbúnað sem lágmark- ar skaða á vatni og vinnur hreint vatn úr menguðu vatni og aðstoðar borgir við afleiðingar loftslagsbreyt- inga. Ísland hefur nægt af hreinu vatni en eftirspurn mun eingöngu aukast vegna skorts á vatni í heim- inum á næstu árum og þar af leið- andi mun verð á vatni aðeins hækka. Forysta í sjálfbærni og umhverfisvernd er verð- mætasköpun framtíðar Alþjóðleg stórfyrirtæki leggja nú meiri áherslu í stefnumörkun sinni á að auka hagnað sinn með því að leita leiða sem lágmarka slæm áhrif á umhverfi jarðarinnar. Adidas sem er einn stærsti framleiðandi íþrótta- vara í heiminum hefur t.a.m. selt umtalsvert magn af hlaupaskónum Ultra Boost sem eru framleiddir úr endurnýtingu á plasti úr sjó en eitt par af íþróttaskóm samsvarar um 11 plastflöskum. Aðrar vörur sem eru endurunnar úr plasti sem kemur úr sjó eru boltar og hettur. Þetta eru dæmi um hvernig hægt er að auka hagnað fyrirtækja með umhverfis- vænum hætti og minnka þannig plastnotkun sem ógnar lífríki sjávar um allan heim. Hilton-hótelkeðjan sem er með um 5.400 eignir um allan heim hefur minnkað koltvísýring um 30% og notar 20% minna af vatni og orku pr. fermetra heldur en á árinu 2008. Þessar aðgerðir hafa sparað Hilton- hótelkeðjunni umtalsverðar fjár- hæðir á síðasta áratug með betri nýtingu. Hilton hefur síðan sett stefnuna á að minnka notkun á vatni um 50% og koltvísýringi um 61% fyrir árið 2030. Sjálfbærni og um- hverfisvernd er verðmætasköpun og þess vegna er mikilvægt að fyrir- tæki og stofnanir fari að huga að stefnumarkandi áætlunum sem taka mið af þessum mikilvægu málaflokk- um sem munu snerta allan atvinnu- rekstur á næstu árum. Eftir Albert Þór Jónsson » Sjálfbærni í rekstrier verðmætasköpun til hluthafa og þjóð- félagsins í heild með jákvæðum hætti. Albert Þór Jónsson Höfundur er viðskiptafræðingur með MCF í fjármálum fyrirtækja o g með 30 ára starfsreynslu á fjár- málamarkaði. albertj@simnet.is Sjálfbærni er nýtt viðmið í fjárfestingum og umhverfismálum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.