Morgunblaðið - 28.01.2020, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 28.01.2020, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2020 ICQC 2020-2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is LOKAKAFLINN Í SKYWALKER SÖGUNNI SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI 6 ÓSKARSTILNEFNINGAR ÓSKARS TILNEFNINGAR11  Rás 2  FBL LEIKSTÝRÐ AF CLINT EASTWOOD Stjórn Sumartónleika í Skálholti hefur ráðið Ásbjörgu Jónsdóttur og Birgit Djupedal listræna stjórn- endur og framkvæmdastjóra Sumartónleika í Skálholti fyrir 2020 og 2021. Ásbjörg og Birgit starfa báðar sjálfstætt sem tón- skáld, flytjendur og kórstjórn- endur. Þær kynntust í meistara- námi við Listaháskóla Íslands árið 2016 og hafa síðan unnið að marg- víslegum verkefnum saman, bæði skapandi og stjórnunartengdum. Næstu Sumartónleikar fara fram 1. til 12. júlí í sumar. Nýráðnar Ásbjörg Jónsdóttir og Birgit Djupedal stýra hátíðinni næstu tvö ár. Stýra Sumartón- leikum í Skálholti Kristín Scheving hefur verið ráðin í starf forstöðu- manns Listasafns Árnesinga. Tekur hún við af Ingu Jónsdóttur sem hefur gegnt stöðunni í tólf ár. Kristín nam myndlist í Strasbourg 1996-1999 og lauk svo BA- og MA-gráðu í sjónlistum frá Manchester Metropolitan Univers- ity. Hún var framkvæmdastjóri Menningarmiðstöðvar Fljótsdals- héraðs 2005-2011, var þá verk- efnastjóri hjá Listahátíð í Reykja- vík og Norræna húsinu og árin 2013-2017 deildarstjóri Vasulka- stofu hjá Listasafni Íslands. Kristín Scheving mun stýra LÁ Kristín Scheving Bandarísku tónlistarverðlaunin Grammy voru afhent í fyrrakvöld og braut bandaríska tónlistarkonan Bill- ie Eilish blað í sögu þeirra. Hún er aðeins 18 ára og hlaut fimm verðlaun og þar af fern af þeim eftirsóttustu: verðlaun sem besti nýliðinn, fyrir breiðskífu ársins (When we all fall asleep where do we go?), smáskífu og lag ársins („Bad Guy“) og fyrir best sungnu poppplötuna. Aldrei hefur svo ungur tónlistarmaður hlotið verðlaun fyrir breiðskífu ársins en Taylor Swift átti það met, var tvítug þegar hún hlaut verðlaunin fyrir plötuna Fearless. Og ekki er nóg með það því Eilish er bæði fyrsta konan og önnur manneskjan í Grammy-sögunni sem hlýtur fyrrnefnda verðlaunafernu sama árið. Bryants minnst Verðlaunin voru afhent í Staples Center-íþróttahöllinni í Los Angeles, heimavelli körfuboltaliðsins Lakers, og fréttist skömmu fyrir upphaf há- tíðarinnar af andláti körfuboltagoð- sagnarinnar Kobes Bryants sem lék með Lakers í rúm 20 ár. Var hans minnst um kvöldið sem og dóttur hans, Giönnu, sem var 13 ára og fórst með föður sínum í þyrluslysi ásamt sjö öðrum. Tónlistarkonan Alicia Keys var ein þeirra kynna kvöldsins sem minntust Bryants og sagði hún fólk miður sín yfir andláti hans. Ein í viðbót Eins og fjallað var um í Morgun- blaðinu í gær hlaut Hildur Guðna- dóttir enn ein verðlaunin fyrir tón- smíðar sínar, að þessu sinni fyrir þættina Chernobyl sem hún hlaut Emmy-verðlaun fyrir í fyrra. Sigurganga Hildar er orðin lyginni líkust því eins og flestir vita hefur hún líka hlotið fjölda verðlauna fyrir tónlist sína við kvikmyndina Joker, m.a. Golden Globe-verðlaunin. Bafta- og Óskarsverðlaunin eru næst en Hildur er tilnefnd til hvorra tveggja. helgisnaer@mbl.is AFP 18 ára Billie Eilish er yngsti tónlistarmaðurinn sem hlotið hefur Grammy- verðlaun fyrir breiðskífu ársins og eina konan sem hlotið hefur verðlauna- fernuna besti nýliðinn og breiðskífa, smáskífa og lag ársins. Eilish braut blað í sögu Grammy  Sú yngsta til að fá verðlaun fyrir bestu breiðskífu  Hildur verðlaunuð AFP Hæfileikarík Hildur Guðnadóttir bætti Grammy-verðlaunum í verð- launagripasafnið sem orðið er stórt. Hver verðlaunahátíðin tekur nú við af annarri í upphafi árs og um helgina voru ekki aðeins veitt Grammy-verðlaun vestanhafs held- ur einnig verðlaun samtaka leik- stjóra, Directors’ Guild Awards. Verðlaun fyrir bestu leikstjórn hlaut enski leikstjórinn Sam Mendes fyrir kvikmyndina 1917 sem þykir nú orðin enn sigur- stranglegri á Óskarsverðlaununum sem veitt verða 9. febrúar. Í frétt Deadline um verðlaunin segir að aðeins hafi það sjö sinnum gerst í sögu verðlaunanna, frá árinu 1949, að annar leikstjóri hljóti Óskarsverðlaunin en sá sem hlaut DGA-verðlaunin. Verðlaun fyrir bestu leikstjórn fyrstu kvikmyndar í fullri lengd hlaut Alma Har’el fyrir kvikmynd- ina Honey Boy. Verðlaun fyrir bestu leikstjórn heimildarmyndar hlutu Steven Bognar og Julia Reichert fyrir American Factory. Af öðrum verðlaunum má nefna að í flokki sjónvarpsþátta var það Bill Hader sem hlaut verðlaunin fyrir bestu leikstjórn gamanþátta- raðar, Barry, og Johan Renck hlaut verðlaunin í flokki stuttra þátta- raða fyrir Chernobyl. Mendes sá besti AFP Margverðlaunaður Sam Mendes hlaut DGA-verðlaunin í ár fyrir 1917.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.