Morgunblaðið - 28.01.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 28.01.2020, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2020 ✝ Elisabeth Rich-ter f. Pontoppi- dan fæddist 30. september 1920 í Nyköbing á Falstri í Danmörku. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Hömrum 14. janúar 2020. Foreldrar hennar voru Svend Pont- oppidan, bóksali í Nyköbing, Falstri, f. 6.6. 1886, d. 15.1. 1939, og Anne Margrethe Pontoppidan bóksali, f. 18.4. 1893, d. 8.1. 1976. Hjónin ráku bókaverslun- ina Mackeprangs boghandel, 131 árs fjölskyldufyrirtæki. Systkini hennar voru Erik Pontoppidan bóksali sem starf- aði við fjölskyldufyrirtækið í Nyköbing og systirin Gerda Pontoppidan sem rak bóka- verslun í Bogense á Fjóni. Þau eru bæði látin. Hinn 29.12. 1945 giftist Elisa- beth Aðalsteini M. Richter, f. 31.10. 1912, d. 16.2. 2007. For- eldrar hans voru Ingibjörg Magnúsdóttir frá Krossanesi í Strandasýslu, f. 3.11. 1884, d. 25.7. 1975, og Stefán J. Richter frá Naustavík í Strandasýslu, f. Frey. b) Árni Þór, f. 16.9. 1979, kvæntur Hildi Aðalbjörgu Inga- dóttur. Börn þeirra eru: Ár- mann Ingi og Steinunn Val- gerður. Fyrir átti Árni með Tinnu Steindórsdóttur börnin Önnu Valgerði og Arnór Dag. c) Helga Björk f. 22.9. 1982, gift Frank Slowig. Börn þeirra eru Lilja Björk, Elva Björk og Dag- ur Örn. Áður var Aðalsteinn kvæntur Ólöfu Kristínu Ólafsdóttur og sonur þeirra er Kristján Rich- ter, kvæntur Kristbjörgu Ólafs- dóttur. Börn þeirra eru Linda Björk, Aðalsteinn Rafn og Sig- rún Heiða. Elisabeth lærði fóstrunám og starfaði við það uns hún giftist Aðalsteini, en hann var í námi í arkitektúr í Kaupmannahöfn. Þau bjuggu um hríð í Stokk- hólmi en fluttust til Íslands 1946 og bjuggu lengst af í Nökkva- vogi 52. Hún var virk í félags- starfi danskra kvenna, um ára- bil í stjórn Dansk kvindeklub og formaður um hríð. Um skeið var hún sjálfboðaliði Rauða krossins í verslun Landspítalans. Þau hjónin voru virk í starfi Sjálf- stæðisflokksins. Þau ferðuðust mikið bæði innanlands og utan. Útför Elisabethar verður gerð frá Fossvogskapellu í dag, 28. janúar 2020, og hefst athöfn- in klukkan 13. 27.9. 1879, d. 15.7. 1963. Börn Elisa- bethar og Aðal- steins eru: 1) Svend Richter, f. 29.8. 1947, kvæntur Björgu Yrsu Bjarnadóttur, f. 28.11. 1948. Börn þeirra eru: a) Pétur Örn, f. 24.5. 1971, sambýliskona Steinunn Ragnars- dóttir, fyrr var Pétur kvæntur Helgu Dröfn Þórarinsdóttur, en synir þeirra eru Anton Óli, Róbert Aron og Mikael Nói. b) Margrét Yrsa, f. 22.2. 1974, gift Þóri Steinþórssyni. Börn þeirra eru: Yrsa Rós, Þráinn Leó og Sindri Svend. c) Guðrún Yrsa, f. 8.9. 1981, gift Marinó Erni Tryggvasyni. Börn Þeirra eru Björg Yrsa, Tryggvi Týr og Bjarni þór. 2) Anna Gerður Richter, f. 27.4. 1953, gift Erni Á. Jónssyni, f. 28.7. 1950. Börn þeirra eru: a) Elísabet, f. 5.5. 1969, gift Þorfinni Andreasen. Börn þeirra eru: Arnar Bjarki, Anna Karen og Aðalsteinn Bjarni. Fyrir átti hún með Heimi Sverrissyni Daníel Örn og fyrir átti Þorfinnur Anton Elskuleg móðir mín, Elisabeth Richter, er fallin frá, 99 ára að aldri. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Hömrum 14. janúar sl. Þegar litið er í baksýnisspegilinn finnst mér að lífsgleði, væntumþykja og hjálpsemi hafi einkennt þessa glæsilegu konu. Þó ég muni helst gleðina í fari hennar er ljóst að líf- ið hefur ekki verið alltaf dans á rósum. Hún kynntist föður mín- um Aðalsteini Richter á stríðsár- unum, en hann var í arkitekt- anámi í Kaupmannahöfn. Dan- mörk var hersetin, en lífið örugglega spennandi hjá ung- mennum sem reyktu lélegt tóbak vafið í síður sálmabóka. Hann var í andspyrnuhreyfingunni og þurfti að flýja í kolalest skips til Svíþjóðar, þau nýgift og hann með prófskírteinið inni á sér. Hún fluttist til Stokkhólms til hans að stríði loknu þar sem þau bjuggu uns þau fluttu heim 1946. Hún hefur örugglega alist upp við nokkurn munað á æskuheimili sínu í Nyköbing á Falstri. Ljóst er að Ísland eftir stríð hefur verið henni framandi og hún ekki tal- andi á íslensku. Kjörin hafa verið kröpp, þau fluttu inn á bróður Að- alsteins uns þau stofnuðu sitt heimili á leigumarkaði. Þau byggðu sér hús í Nökkvavogi 52 sem varð æskuheimili mitt. Ég átti góða æsku og þar var móðir mín fremst eins og oft vill verða. Ég minnist þess þegar hún var að hlýða mér yfir stafsetningaræf- ingar í 3. bekk MR. Á mennta- skólaárum voru bekkjarfélagar alltaf velkomnir heim. Eftir að ég flutti að heiman og eignaðist eigin fjölskyldu áttum við alltaf sama- stað hjá foreldrum mínum. Börn hændust að henni og nutu börnin okkar góðs af. Ég held að konur á þessum árum hafi verið háðari eiginmönnum sínum en nú tíðk- ast. Þegar móðir mín var sextug ákvað hún að tími væri kominn að taka bílpróf enda hún háð karli sínum og strætisvögnum til að komast leiðar sinnar. Þetta hafð- ist eftir mikinn barning, hún fékk eigin bíl og ég tel að hún hafi öðl- ast nýtt frelsi. Hún dáði að aka bíl sínum allt fram í háa elli og þótti ýmsum nóg um. Áhugamaður um akstur aldraðra hafði reglulega samband til að spyrja hvort hún væri enn akandi og taldi hana elsta kvenna í umferðinni. Eftir fráfall Aðalsteins fyrir þrettán ár- um fluttist hún í þjónustuíbúð að Hlaðhömrum og undi sér þar vel um árabil. Eftir að heilsunni hrak- aði fluttist hún á hjúkrunarheim- ilið Hamra, eftir að hafa tekið rúnt á Landakoti og hjúkrunar- heimili á Akranesi. Á Hömrum naut hún afburðaþjónustu og vel- vildar. Hún sat gjarnan í hæg- indastól sínum og fylgdist með danska sjónvarpinu. Er öllu starfsfólki þakkað innilega fyrir. Eftir að heilsan versnaði ný- lega fannst henni nóg komið og ég held að hún hafi kvatt æviskeið sitt með þakklæti og væntum- þykju, en með glæsibrag eins og hennar var von og vísa. Á þessum tímamótum kveð ég elskulega móður mína og þakka henni sam- fylgdina. Það er svo að maður á bara eina móður og sakna ég hennar innilega. Svend Richter. Látin er kær tengdamóðir mín, Elisabeth Richter. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum 14. janúar sl. 99 ára að aldri eftir til- tölulega skamma banalegu. Ég kynntist henni fyrst fyrir 55 árum þegar við Svend vorum kærustu- par, nánast börn að aldri, en hann varð síðar eiginmaður minn. Við bjuggum um hríð í Nökkvavogi 52 á heimili tengdaforeldra minna uns við stofnuðum okkar eigið heimili. Það var margt öðruvísi á heimili Lisbethar, eins og við köll- uðum hana, en á æskuheimili mínu. Þannig var mataræðið með öðrum hætti og bar svip af upp- runa hennar í Danmörku, en hún var listakokkur. Þar kynntist ég fuglakjöti fyrst, kjúklingar og hænur voru þar á borðum og frek- ar vildi hún þorsk en ýsu í matinn. Svínasultu úr svínshausum, salt- aða nautatungu og lifrarkæfu gerði hún að veislumat. Ákveðnar hefðir í kringum jól og páska flutt- um við með okkur, sem börn okk- ar og tengdabörn hafa tekið upp og jafnvel fleiri. Henni var margt til lista lagt. Hún var mikil hann- yrðakona, prjónaði, heklaði og saumaði. Hún saumaði brúðarkjól á mig og þegar yngri dóttir okkar giftist 45 árum síðar var hún í sama kjól. Þetta var tilkynnt í kirkjunni og gladdi það Lisbeth mikið. Lisbeth og Aðalsteinn ferð- uðust mikið bæði innanlands og erlendis. Þannig fóru þau á sólar- strendur Suður-Evrópu löngu áð- ur en það varð hluti af orlofi Ís- lendinga. Einnig lá leiðin til Florída á seinni árum. Mikilvægt var að þau gistu á sama stað, á sama hóteli og sama herbergi. Ennig fóru þau í orlofshús í Mun- aðarnesi helst tvisvar á ári, í sama orlofshúsið. Lisbeth naut þess að vera í góð- um félagsskap. Framan af átti hún danskar vinkonur sem flutt- ust til Íslands eftir að hafa kynnst mönnum sínum sem gjarnan voru í námi í Danmörku. Hún hafði kynnst eiginmanni sínum Aðal- steini Richter, en hann var í arki- tektanámi í Kaupmannahöfn. Eft- ir stutta búsetu í Stokkhólmi fluttu þau heim 1946. Dönsku konurnar áttu með sér félag, Dansk kvindeklub, en hún var í stjórn þess um árabil og formaður um skeið. Barnabörn og lang- ömmubörn nutu samveru við hana. Hún fyldist með þeim fram á síðustu stundu, mundi afmælis- daga enda hélt hún andlegu at- gervi fram til þess síðasta enda þótt líkamleg heilsa hefði látið á sjá. Hún dvaldi á hjúkrunarheim- ilinu Hömrum um tveggja ára skeið, en áður hafði hún búið í þjónustuíbúð að Hlaðhömrum. Á Hömrum fékk hún mjög góða umönnun sem þakkað er fyrir. Blessuð sé minning yndislegr- ar tengdamóður sem ég var sam- ferða í öll þessi ár. Far þú í friði. Þín tengdadóttir, Björg Yrsa Bjarnadóttir. Í dag kveð ég ástkæra tengda- móður mína, Elisabeth Richter, kölluð Lisbeth. Okkar fyrstu kynni voru fyrir 45 árum þegar ég kynntist dóttur hennar Önnu Gerði. Verðandi tengdaforeldrar tóku mér ákaflega vel. Áður en langt leið var ég fluttur inn á heimili þeirra og ég fann að Lis- beth var umhugað um minn hag. Lisbeth var einstök kona, kom- in af dönsku merkisfólki. Hún hafði til að bera einstaka reisn. Lisbeth fluttist með manni sínum Aðalsteini Richter til Íslands. Þau kynntust á stríðsárunum í Kaup- mannahöfn þar sem hann nam arkitektúr en hún var barnfóstra. Ég get vel ímyndað mér hversu erfitt það hefur verið að koma til Íslands, þekkja engan, kynnast matarvenjum og þola veðráttu og bíða eftir vorinu. Þau bjuggu fyrst í leiguhús- næði en innan nokkurra ára fluttu þau að Nökkvavogi 52 sem Aðal- steinn hafði teiknað og byggt. Með tímanum, eignuðust þau eigin bifreið. Þau ferðuðust um Ís- land og oft var ekið til Ísafjarðar á æskustöðvar Aðalsteins. Þau fóru líka í heimsókn til Danmerkur, og þaðan í fyrstu sól- arlandaferðina til Mallorka 1956. Heimsreisur fóru þau nokkrar. Á Flórída nutu þau sólar marg- sinnis. Á sextugsaldri tók Lisbeth bílpróf. Það varð hennar gæfa og yndi að aka eigin bifreið fram á tí- ræðisaldur. Heimilið á Nökkva- vogi var hennar staður eins og sýndi og sannaðist þeim sem þangað komu. Þau hjónin voru listhneigð og stunduðu leikhús og sinfóníutónleika. Þegar Aðal- steinn féll frá 2007 flutti hún í ör- yggisíbúð á Eirhömrum. Þar átti hún góða daga. Þar var hún í fé- lagsstörfum stundaði postulíns- málun sem af bar. Svalaskjól var hennar ánægja. Það varð hennar gæfa að kom- ast á hjúkrunarheimilið Hamra eftir veikindi fyrir tveimur árum. Þar dvaldi hún í góðu yfirlæti allt til síðasta dags. Þökk sé því góða starfi. Þótt líkamleg geta minnkaði var hún óvenju skýr allt til loka. Blessuð sé minning tengda- móður minnar, Elisabeth Richter, þessarar einstöku konu. Mínar innilegustu þakkir. Örn Ár. Jónsson. Elsku amma mín Lísbet er lát- in 99 ára gömul. Í dag er komið að kveðjustund þegar hún verður lögð til grafar og minningar koma upp í huga minn. Amma mín Lísbet var skvísa, hún var alltaf fín og lekker. Hún var dönsk og kom með afa heitnum Aðalsteini til Íslands eft- ir stríðið. Amma átti danskar vinkonur og á ég minningar um „Dansk Kvindeklub“ þeirra, sérstaklega hinn árlega jólabasar. Amma var þekkt fyrir elda- mennskuna sína, sem að sjálf- sögðu var alla tíð með dönskum blæ. Ég er sannfærð um að áhuga minn á mat og eldamennsku hafi ég fengið frá ömmu í gegnum pabba, sem hafði móður sína sem fyrirmynd í eldhúsinu. Amma varði miklum tíma í eld- húsinu á Nökkvavoginum og ég á minningar um Gauksa, græna páfagaukinn í eldhúsinu. Amma kenndi fuglinum alls kyns kúnstir, hreyfingar og orð. Fleiri minningar úr eldhúsinu hennar ömmu á Nökkvavoginum, gamlárskvöld þar sem við barna- börnin stóðum í röð til að smakka árlegu sveppasúpuna hennar og að sjálfsögðu var „fleskestej“ í að- alrétt að hætti Dana. Amma var vön að laga mikið af góðgæti fyrir jólin eins og t.d. appelsínumar- melaði og „leverpåstej“ og geymi ég uppskriftina hennar ömmu vel í uppskriftabókinni minni. Amma var mikill gróðurunn- andi og aftur tel ég að ég hafi fengið þann áhuga beint frá ömmu í gegnum pabba. En sannfærðust er ég að ég hafi erft handavinnuáhuga ömmu. Amma prjónaði og heklaði allt sitt líf. Hún sýndi mér síðast í vor, þá komin á 99. aldursárið, handa- vinnuna sem hún var að vinna að. Amma var sko sannarlega fyrir- mynd mín á svo margan hátt. Minningar um það þegar amma flutti í Hæðarbyggðina til Elisabeth Richter Lífsförunautur okkar, sjómaðurinn og sagnameistarinn, HALLDÓR HERMANNSSON, skipstjóri frá Ísafirði, lést á heimili sínu miðvikudaginn 22. janúar. Hann verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 1. febrúar klukkan 14. Katrín Gísladóttir Bergljót Halldórsdóttir Gunnar Halldórsson Ragnheiður Halldórsdóttir Rannveig Halldórsdóttir Gísli Halldór Halldórsson Hermann Jón Halldórsson Guðmundur Birgir Halldórsson tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Föðurbróðir minn, SÍMON ODDGEIRSSON bóndi, Dalsseli 2, Vestur-Eyjafjöllum, lést á dvalarheimilinu Kirkjuhvoli föstudaginn 17. janúar. Útförin fer fram frá Stóra-Dalskirkju laugardaginn 1. febrúar klukkan 13. Þórunn Ólafsdóttir Systir mín, HILDUR SOLVEIG PÁLSDÓTTIR, Stýrimannastig 6, Reykjavík, lést þriðjudaginn 21. janúar. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 31. janúar klukkan 15. Jóninna Margrét Pálsdóttir Ástkær systir okkar, mágkona og frænka, HREFNA IÐUNN SIGVALDADÓTTIR, fyrrverandi skólastjóri, Snorrabraut 69, Reykjavík, sem lést sunnudaginn 19. janúar, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 29. janúar klukkan 14. Sigrún Sigvaldadóttir Aðalheiður Sigvaldadóttir Gunnar H. Guðjónsson systrabörn og systrabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA SIGFÚSDÓTTIR, áður til heimilis í Árskógum 6, Reykjavík, lést 18. janúar á Hrafnistu Laugarási. Útför hennar fer fram frá Seljakirkju fimmtudaginn 30. janúar klukkan 15. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Félag langveikra barna. Greta Viðars Jónsdóttir Guðjón Jónsson Guðrún Rögn Jónsdóttir Sólbjörg Alda Jónsdóttir Sigfús Kristinn Jónsson Ragnhildur Guðnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁGÚST KARL SIGMUNDSSON, Fossöldu 12, Hellu, andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi föstudaginn 24. janúar. Ágústína Ólafsdóttir Sigmundur Rúnar Karlsson Ásta Brynja Baldursdóttir Ólöf Ásta Karlsdóttir Hermann Þorsteinsson Ingibjörg Lilja Karlsdóttir Jón Ingþór Haraldsson barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA TERESA JOVER, Krókamýri 78, Garðabæ, lést miðvikudaginn 22. janúar. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ásgeir Jósef Guðmundsson Þóra G. Benediktsdóttir Davíð Egill F. Guðmundsson Sólveig Steina Þorleifsdóttir Anna María E. Guðmundsd. Emil Blöndal Kristín Guðmundsdóttir Trausti Þórmundsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.