Morgunblaðið - 28.01.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 28.01.2020, Blaðsíða 8
Hættur Guðmundur Gunnarsson er hættur sem bæjarstjóri á Ísafirði. Guðmundur Gunnarsson lét í gær af störfum sem bæjarstjóri Ísa- fjarðarbæjar. Í sameiginlegri yfir- lýsingu kemur fram að það sé vegna ólíkrar sýnar á verkefni á vettvangi sveitarfélagsins. Telji meirihluti bæjarstjórnar og Guð- mundur það sveitarfélaginu fyrir bestu að leiðir skilji. Meirihlutinn í bæjarstjórn, sem skipaður er fulltrúum Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks, ákvað að ráða Guðmund sem bæjarstjóra eftir síðustu kosningar. Starfið hafði verið auglýst og hann var meðal umsækjenda. Ákvörðunin „sameiginleg“ Hvorki Guðmundur né Kristján Þór Kristjánsson, forseti bæjar- stjórnar, vilja greina frá ágreinings- atriðum. Spurðir um frumkvæði að starfslokum bæjarstjórans segja báðir að ákvörðunin hafi verið sam- eiginleg. Guðmundur segir að þetta hafi gerst um helgina þegar ljóst var orðið hversu mikið bar á milli. Guðmundur átti fund með helstu samstarfsmönnum sínum í gær- morgun og ávarpaði síðan starfsfólk bæjarskrifstofa. Eftir að tilkynning hafði verið send til alls starfsfólks bæjarins yfirgaf hann bæjarskrif- stofurnar. Ekki liggur fyrir hvað tekur við hjá Guðmundi en hann tekur fram að starf bæjarstjóra Ísafjarðar- bæjar sé skemmtilegasta starf sem hann hafi sinnt. Bæjarritari er staðgengill bæjar- stjóra og mun hann gegna starfinu þar til nýr bæjarstjóri verður ráð- inn. Kristján Þór segir að ekki hafi verið ákveðið hvort ráðið verður í starfið með eða án opinberrrar aug- lýsingar. helgi@mbl.is Bæjarstjóri hættir vegna ágreinings  Ekki ákveðið hver tekur við á Ísafirði 8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2020 SMÁRALIND www.skornirthinir.is ÚTSÖLULOK Inniskór úr mjúku leðri Útsöluverð 3.000 erð áður 11.995 Stærðir 36-42 Þrjú verð 2.000.- 5.000.-3.000.- Land íss og elda hefur sannar-lega minnt á sig að undan- förnu. Ofsaveður í desember setti allt úr skorðum og í janúar hlupu snjóflóð fram með ógnarkrafti og eyðileggingu, þrátt fyrir varn- argarða. Þetta var vægast sagt ónotalegt fyr- ir íbúa þeirra staða sem fyrir urðu, en einnig fyrir aðra sem búa við svipaðar aðstæður. Þess vegna er eðlilegt að fram hafi komið spurningar um það hvers vegna stór hluti þess fjár sem eyrnamerkt hafði verið snjóflóða- görðum hefur runnið annað.    Úr því verður að bæta.    En landsmenn voru varla búnirað ná andanum eftir snjóflóð- in þegar fregnir bárust af því að fjallið Þorbjörn væri farið að þenja sig, líklega vegna kvikusöfnunar. Ekki er að undra að íbúar og starfs- menn í nágrenninu, einkum Grind- víkingar, hafi orðið uggandi við þessar fréttir. Fjöldi manns fundaði um málið í Grindavík í gær og eru íbúar við öllu búnir.    Magnús Tumi Guðmundssonjarðeðlisfræðingur sagði á íbúafundi að eldgos rétt við Grinda- vík yrði ekki með hættulegri gosum sem geti orðið á Íslandi. Hann hafði bersýnilega ekki heldur trú á að skammt væri í gos og sagði kviku- söfnunina oftast enda með öðrum hætti en eldgosi, auk þess sem ekki væri öruggt að um kvikusöfnun væri að ræða.    Þetta kann allt að vera rétt, eneins og hann benti líka á er nauðsynlegt að vera við öllu búinn. Á Íslandi leynast víða hættur og þær ber að taka alvarlega. Þorbjörn þenur sig STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Umboðsmaður Alþingis óskaði í lið- inni viku eftir upplýsingum frá dómsmálaráðherra um hvort ráðu- neytið ætlaði eða hefði gripið til að- gerða til að bregðast við vanda í sambandi við meðferð fjölskyldu- mála hjá embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu. Tilefni fyrirspurnarinnar er kvörtun vegna máls sem sýslu- maðurinn hefur haft til meðferðar síðan 28. júní 2017, eða í yfir tvö og hálft ár. Í bréfi sýslumanns til um- boðsmanns komi fram að óviðunandi bið sé eftir því að ágreiningsmál fái umfjöllun hjá embættinu. „Þessi málaflokkur varðar mannréttindi og verulega persónulega hagsmuni barna og foreldra,“ segir meðal ann- ars í bréfi umboðsmanns, sem birt er á heimasíðu hans. Miklar tafir á af- greiðslu mála, sem t.d. varði um- gengni, geti falið í sér brot á rétti til fjölskyldulífs. Bregðist ráðuneytið ekki við vandanum óskar umboðsmaður skýringa og að ráðuneytið „lýsi af- stöðu sinni til þess hvort það sam- rýmist yfirstjórnar- og eftirlits- hlutverki ráðherra gagnvart sýslu- manninum á höfuðborgarsvæðinu“. Einnig er þess óskað að upplýst verði hvort ráðuneytið hafi brugðist við töfum á þinglýsingum og skrán- ingu skjala hjá embættinu. Óskað er svara ekki síðar en 7. febrúar nk. Óviðunandi bið hjá sýslumanninum  Umboðsmaður Alþingis óskar eftir skýringum hjá dómsmálaráðherra Morgunblaðið/Hari Fyrirspurn Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir upplýsingum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.