Morgunblaðið - 28.01.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 28.01.2020, Blaðsíða 26
Á AKUREYRI Einar Sigtryggsson sport@mbl.is Þór og KR spiluðu margfrestaðan leik sinn úr 11. umferð Dominos-deildar karla í körfubolta í gærkvöld. KR- ingar mættu fáliðaðir, einungis með átta menn á leikskýrslu. Jón Arnór Stefánsson var í leikbanni og þeir Dino Cinac og Eyjólfur Ásberg Halldórsson voru ekki komnir með leikheimild þegar leikurinn átti að fara fram í desember. Leikurinn var skemmtilegur fyrir heimamenn, sem leiddu frá byrjun og keyrðu hreinlega yfir KR í fyrri hálf- leiknum og eftir hann var staðan 66:42. Í seinni hálfleik snerist taflið við og KR minnkaði bilið smám saman þar til engu munaði í lokasóknunum. Þór hélt haus og innbyrti 102:100- sigur eftir svakalega endurkomu KR og nagandi spennu á lokakaflanum. KR fékk m.a.s. lokaskotið í leiknum en þriggja stiga tilraun frá Brynjari Þór Björnssyni rataði ekki í körfuna. Þórsarar voru í svaka stuði lengst- um í leiknum og voru þeir Hansel Atencia og Jamal Marcel Palmer baneitraðir. Heimamenn leituðu mik- ið undir körfuna og röðuðu svo niður þristum á milli. KR-vörnin var gal- opnuð og átti engin svör. Það segir ákveðna sögu að Þór skoraði 66 stig í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik náði KR að bíta hressilega frá sér. Áður en varði var munurinn kominn niður í tíu stig, 70:60 og KR var að skila öllu ofan í körfuna. Munurinn varð minnstur sjö stig en Þór hélt haus út leikhlutann og opnaði bilið aftur. Staðan fyrir lokaleikhlutann var 88:75 og gríðar- leg spenna í leiknum. Þór var svo með leikinn í höndum sér og munurinn var 14 stig þegar fjórar mínútur lifðu. Á lokakaflanum sýndu KR-ingar einu sinni enn hversu klókir og grimmir þeir eru. Þór skoraði aðeins eina körfu á með- an KR minnkaði muninn jafnt og þétt, minnst í eitt stig, 101:100. Þór setti eitt víti í lokasókn sinni og svo kom lokaskot Brynjars. Þór fór upp um eitt sæti með sigrinum. Liðið er með tíu stig ásamt Grindavík og Val en Valur er í fallsæti með verstan innbyrðisárangur liðanna þriggja. Svart og hvítt hjá KR-ingum  Fimmti sigur Þórs í sjö síðustu leikjum Ljósmynd/Þórir Tryggvason Karfa KR-ingar réðu illa við Hansel Atencia á Akureyri í gærkvöldi. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2020 England Bikarkeppnin, 4. umferð: Bournemouth – Arsenal .......................... 1:2  Arsenal mætir Portsmouth á útivelli í sextán liða úrslitum. Þar mætast einnig: Sheffield Wednesday – Manchester City Reading eða Cardiff – Sheffield United Chelsea – Shrewsbury eða Liverpool West Brom – Newcastle eða Oxford Leicester – Coventry eða Birmingham Southampton eða Tottenham – Norwich Northampton eða Derby – Man. Utd Grikkland PAOK – Volos .......................................... 1:0  Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn með PAOK.  Efstu lið: PAOK 52, Olympiakos 51, AEK Aþena 38, Panathinaikos 34, Aris 29, OFI Krít 27, Xanthi 27, Atromitos 26. Holland B-deild: Jong PSV – Excelsior.............................. 2:1  Elías Már Ómarsson lék allan leikinn með Excelsior. Þýskaland C-deild: Kaiserslautern – Grossaspach............... 0:0  Andri Rúnar Bjarnason var ekki í leik- mannahópi Kaiserslautern.    Grill 66 deild kvenna Fram U – Stjarnan U........................... 36:25 ÍBV U – Fjölnir .................................... 31:27 Valur U – Grótta................................... 29:34 Fylkir – Selfoss..................................... 19:23 Staðan: Fram U 14 14 0 0 470:326 28 FH 14 11 1 2 395:308 23 Selfoss 14 10 2 2 332:293 22 Grótta 14 9 1 4 355:335 19 ÍR 14 8 1 5 371:348 17 Valur U 14 6 1 7 380:371 13 ÍBV U 14 6 1 7 337:341 13 Stjarnan U 14 4 1 9 322:367 9 Fjölnir 14 4 1 9 337:379 9 HK U 14 4 1 9 354:407 9 Fylkir 14 3 0 11 279:322 6 Víkingur 14 0 0 14 300:435 0 Asíumót karla 2020 Bronsleikur í Kúveit: Japan – Barein..................................... 27:26  Dagur Sigurðsson þjálfar Japan og Aron Kristjánsson þjálfar Barein. Úrslitaleikur í Kúveit: Suður-Kórea – Katar ........................... 21:33  Þessar fjórar þjóðir verða fulltrúar Asíu á HM 2021 í Egyptalandi. Dominos-deild karla Þór Ak. – KR..................................... 102:100 Staðan: Stjarnan 15 13 2 1371:1218 26 Keflavík 15 11 4 1329:1225 22 Tindastóll 15 9 6 1307:1250 18 Njarðvík 15 9 6 1280:1150 18 KR 15 9 6 1267:1249 18 Haukar 15 9 6 1338:1280 18 ÍR 15 8 7 1259:1316 16 Þór Þ. 15 6 9 1194:1222 12 Grindavik 15 5 10 1255:1340 10 Þór Ak. 15 5 10 1285:1427 10 Valur 15 5 10 1210:1293 10 Fjölnir 15 1 14 1279:1404 2 Þýskaland Alba Berlín – Crailsheim.................... 98:82  Martin Hermannsson skoraði 18 stig, gaf 4 stoðsendingar og tók 2 fráköst hjá Alba á rúmri 21 mínútu. NBA-deildin Atlanta – Washington ...................... 152:133 Memphis – Phoenix .......................... 114:109 New Orleans – Boston ..................... 123:108 New York – Brooklyn ........................ 110:97 Orlando – LA Clippers....................... 97:112 Denver – Houston ............................ 117:110 San Antonio – Toronto ..................... 106:110 Portland – Indiana ........................... 139:129  Efst í Austurdeild: Milwaukee 40/6, Toronto 32/14, Miami 31/14, Boston 30/15, Indiana 30/17, Philadelphia 30/17.  Efst í Vesturdeild: LA Lakers 36/10, Utah 32/13, LA Clippers 33/14, Denver 32/ 14, Dallas 28/17, Houston 28/17.   HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin. Austurberg: ÍR – KA ........................... 18.30 Vestmannaeyjar: ÍBV – Valur ............ 18.30 Kórinn: HK – Selfoss ........................... 19.30 Dalhús: Fjölnir – Stjarnan .................. 19.30 Ásvellir: Haukar – Fram ..................... 19.30 Varmá: Afturelding – FH .................... 20.15 1. deild karla, Grill 66-deildin: Laugardalshöll: Þróttur – Valur U.......... 20 ÍSHOKKÍ Íslandsmót karla, Hertz-deildin: Laugardalur: SR – SA ......................... 19.45 Í KVÖLD! á móti Trabzonspor í deildinni í gær en leiknum var frestað vegna jarðskjálftanna í austurhluta Tyrklands síðasta föstudag þar sem talsverðar skemmdir urðu í Malatya og nágrenni. Upptök stærsta skjálftans voru 45 km frá Malatya og fjórir létust í borginni. Viðar sagði í viðtali við mbl.is í gær að tyrkneska félagið væri bú- ið að reyna að fá sig í tvö ár. Sér litist mjög vel á það og allt í kring- um liðið sem skori mikið af mörk- um og spili sóknarfótbolta sem ætti að henta sér. Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Viðar Örn Kjartansson verður sjötti Íslendingurinn sem spilar í tyrknesku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu en Yeni Malatyaspor fékk hann í gær lánaðan frá Rostov í Rússlandi út þetta keppnistímabil. Á undan Viðari hafa leikið í deildinni þeir Atli Eðvaldsson (Genclerbirligi), Eyjólfur Sverris- son (Besiktas), Grétar Rafn Steins- son (Kayserispor), Gunnar Heiðar Þorvaldsson (Konyaspor) og Ólafur Ingi Skúlason (Genclerbir- ligi og Karabükspor). Þar að auki hefur Theódór Elm- ar Bjarnason leikið í B-deildinni síðustu ár og er núna með Akhisarspor og Kári Árnason lék þar með Genclerbirligi á síðasta tímabili. Frestað vegna jarðskjálfta Viðar getur leikið sinn fyrsta leik á sunnudaginn kemur en þá á lið hans útileik gegn Alanyaspor. Yeni Malatyaspor er í 9. sæti af 18 liðum í deildinni. Liðið átti að taka Viðar sjötti í tyrknesku deildinni Ljósmynd/Yeni Malatyaspor Tyrkland Viðar Örn Kjartansson í búningi Yeni Malatyaspor. Alls létust níu manns í flugslysinu hörmulega í Calabasas í útjaðri Los Angeles á sunnudagskvöld. Þeirra á meðal voru Kobe Bryant, ein skær- asta körfuboltastjarna veraldar, og Gianna, þrettán ára dóttir hans. John Altobelli, sigursæll þjálfari hafnaboltaliðs Orange Coast- menntaskólans, lést einnig í slysinu, sem og eiginkona hans, Keri, og þrettán ára gömul dóttir þeirra, Alyssa. Þá létust mæðgurnar Sarah og Payton Chester í slysinu og flug- maðurinn Ara Zobayan og körfu- boltaþjálfarinn Christina Mauser fórust sömuleiðis. Fólkið var á leið- inni á körfuboltamót í Mamba Sports Academy í Newbury Park, þar sem ungu stúlkurnar áttu að leika á móti. Kobe Bryant þjálfaði stúlkurnar ásamt Mauser og hin for- eldrin ætluðu að fylgjast með. Mótinu var aflýst vegna slyssins. Fékk sérstakt leyfi til að fljúga Aðstæður til flugs voru erfiðar; dimm þoka og slæmt skyggni af völdum hennar. Lögregluyfirvöld í Los Angeles kyrsettu m.a þyrluflota sinn vegna þokunnar. Fékk flug- maður þyrlunnar sérstakt leyfi til að fljúga í aðstæðunum en slysið varð með þeim hætti að þyrlan rakst á bratta brekku í graslendi rétt utan við Calabasas, sem er um 65 kíló- metra norðvestur af miðborg Los Angeles. Einn sjónarvottur lýsti aðstæðum sem mjög erfiðum. „Þokan var mjög þykk og þetta var eins og að synda á kafi í mjólk. Ég sá varla neitt og ég trúði því ekki að einhver væri að fljúga þyrlu í þessum aðstæðum. Fólk átti erfitt með að keyra í þok- unni,“ sagði hinn 61 Scott Daehlin, sem varð vitni að slysinu og hringdi í neyðarlínuna. Alex Villanueva, lögreglustjóri í Los Angeles, var allt annað en sátt- ur við TMZ, sem greindi fyrst frá slysinu og andláti Kobe Bryant. Mið- illinn birti frétt um slysið áður en lögregluyfirvöld gátu látið fjöl- skyldumeðlimi þeirra sem fórust vita. „Að heyra um andlát ástvina í fjölmiðlum er einstaklega skelfilegt og kalt,“ sagði Villanueva pirraður á fjölmiðlafundi. Mikil sorg braust út eftir slysið og kepptust stjörnur úr íþróttaheim- inum og annars staðar frá um að minnast Bryants á samfélags- miðlum og í viðtölum. Bryant spilaði í treyjum númer 8 og 24 á ferlinum og heiðruðu leikmenn í NBA- körfuboltanum fallinn félaga með því að láta 24 sekúndna skotklukku viljandi renna út í upphafi leikja í deildinni. johanningi@mbl.is Dýrkeypt flugferð í erfiðum aðstæðum AFP Táknrænt Þyrla flýgur yfir listaverk af Kobe Bryant í miðbæ Los Angeles. Mikil sorg reið yfir í kjölfar andláts hans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.