Morgunblaðið - 28.01.2020, Side 14

Morgunblaðið - 28.01.2020, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Kosið verðurtil íranskaþingsins í næsta mánuði. Bú- ið er að birta hverj- ir eru í framboði, en þó að íslamska lýðveldið vilji gjarnan skreyta sig með fjöðr- um lýðræðisins er nú þegar bú- ið að búa svo um hnútana að nær öruggt er að harðlínumenn muni vinna þar góðan sigur. Fyrsti þröskuldurinn sem frambjóðendur þurfa að yfir- stíga er sérstök kjörnefnd, sem skipuð er af klerkunum sem hafa alla þræði valdsins í hendi sér. Sú nefnd ákveður hverjir mega bjóða sig fram. Í ár ákvað nefndin að skera niður um 9.500 frambjóðendur af þeim 14.500 sem gefið höfðu kost á sér, en þeir þóttu ekki uppfylla skilyrði nefndarinnar um þingsetu. Það væri svo sem ekki í frá- sögur færandi í þessu „lýðræð- isríki“, en af þeim 9.500 sem ekki komust í gegnum nálar- augað voru 92 sitjandi þing- menn, sem nú mega ekki freista þess að verja þingsæti sín. Þeir koma nær allir úr flokki Hass- ans Rouhani Íransforseta, sem þótt hefur vera í hópi hinna „hófsömu“ í írönskum stjórn- málum. Nær öruggt er talið að bandamenn Rouhanis muni tapa í kosningunum, en forset- inn hefur mátt glíma við óvin- sældir heima fyrir, sér í lagi eftir að Bandaríkjastjórn sagði sig frá kjarnorkusamkomulag- inu sem Rouhani talaði fyrir. Aðkoma fulltrúa klerkanna í kjörnefndinni hefur líklega endanlega gengið frá vonum Rouhanis um að fylking hans geti haldið völdum. Rouhani kvart- aði enda í gær um að ákvörðun kjör- nefndarinnar gæti vakið áhyggjur um að Íran væri í raun eins flokks ríki, og að tilgangs- lítið væri að fara á kjörstað. Bætti hann við að lýðræðið væri í hættu ef kosningar yrðu að formsatriði einu. Þetta er hárrétt mat hjá Rouhani. Það er hins vegar fyr- ir löngu orðið ljóst að lýðræðið í Íran er ekki nema í orði, þar sem þess er vandlega gætt að ekkert geti haggað ógnarstjórn klerkanna. Hvort „hófsamir“ eða „íhaldssamir“ fá fleiri þing- menn skiptir litlu máli fyrir al- menning í Íran. Klerkarnir ráða áfram för og stjórnvöld munu enn eyða milljörðum í að ýta undir öfgahópa á erlendri grundu og í rándýra kjarnorku- áætlun. Sú staðreynd að litlu virðist skipta hvort hinir „hófsömu“ eða harðlínumennirnir fara með meirihluta á þingi eða for- setaembættið hefur því líklega meiri áhrif á það að óánægja með írönsk stjórnvöld hefur magnast svo mjög að mótmæli gegn þeim eru nú reglulegur viðburður. Sá dagur rennur líklega seint upp að klerkastjórnin sam- þykki sjálfviljug að láta af kjarnorkuáætlun sinni, láti af heimsveldisdraumum sínum í Mið-Austurlöndum eða sleppi hendinni af því hverjir fá að bjóða sig fram til kosninga. Þegar og ef það gerðist væri von um bjartari tíð í Íran og þá yrði ríkinu eflaust tekið fagn- andi í hóp lýðræðisríkja heims- ins. Klerkastjórnin í Íran sýnir sitt rétta andlit enn og aftur} Lýðræðið fótum troðið Íslendingar eruháðari sam- göngum í lofti og á legi en flestar aðr- ar þjóðir. Íslend- ingar hafa þess vegna frá upphafi verið miklir sæfarendur, en á liðinni öld urðu þeir einnig umsvifamiklir loftfarendur, ef svo má segja. Ný skýrsla Alþjóðasambands flugfélaga, IATA, varpar áhugaverðu ljósi á þýðingu flugs fyrir Ísland. Þar kemur fram að hlutfall flugrekstrar og afleiddrar starfsemi nemi 38% af landsframleiðslu hér á landi, sem er gríðarlega hátt hlutfall. Nú er það svo að slíkir útreikn- ingar verða alltaf umdeilan- legir, en á ýmsa aðra mæli- kvarða er einnig staðfest að fáar þjóðir ef nokkrar eru jafn háð flugi og Íslendingar. Icelandair er augljóslega af- ar þýðingarmikið í þessu sam- bandi og ekki að undra að Ís- lendingar hafi alla tíð haft mikinn áhuga á fé- laginu, og raunar einnig öðrum ís- lenskum flug- félögum sem skotið hafa upp kollinum í gegnum tíðina. Þá er það umhugsunarvert sem forstjóri Icelandair benti á í samtali við mbl.is í gær að þrátt fyrir mikinn fjölda ferða- manna er afkoma margra ferðaþjónustufyrirtækja ekki góð. Auka þurfi framleiðni í greininni, sem sé verkefni greinarinnar og hið opinbera þurfi að vinna með henni að þessu markmiði. Spurður út í þær aðgerðir sem hið opinbera þyrfti að grípa til segir for- stjórinn að fyrst og fremst verði að lækka skatta og gjöld á greinina og einfalda reglu- verkið. Þetta er þörf ábending, sem á raunar við um mun fleiri greinar en flug og ferðaþjón- ustu hér á landi. Þýðing flugs er meiri hér á landi en víðast annars staðar} Flugþjóð A lþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur lækkað hagvaxtarspá sína lítils- háttar á heimsvísu árin 2020- 2021 og spáir nú rúmlega 3% hagvexti. Lækkunin á einkum við um evrusvæðið en einnig hefur hægt á hagvexti í þróuðum hagkerfum í Asíu. Í Kína hefur hagvöxtur ekki mælst minni í langan tíma, ekki síst vegna viðskiptadeilna milli Bandaríkjanna og Kína. Á árinu verða þrír meginstraumar ráðandi í alþjóðahagkerfinu. Í fyrsta lagi verður fyrir- komulag og umgjörð heimsviðskipta áfram háð nokkurri óvissu, þrátt fyrir tollasam- komulag sem Kínverjar og Bandaríkjamenn gerðu um miðjan mánuðinn. Í öðru lagi munu þjóðir heims áfram þurfa að laga sig að lág- vaxtaumhverfi vegna minnkandi hagvaxtar og í þriðja lagi munu tækniframfarir og sjálfvirknivæðing hafa mikil áhrif á vinnumarkaði. Straumarnir vega hver annan að einhverju leyti upp, því á sama tíma og við- skiptadeilur drógu úr þrótti hagkerfa á síðasta ári ýttu lágir stýrivextir undir hagvöxt. Þá hafa tækniframfarir dregið úr kostnaði og verðbólga verið tiltölulega lág, jafn- vel í hagkerfum sem hafa notið mikils vaxtar. Ísland er gott dæmi um þjóðríki sem hefur notið góðs af greiðum viðskiptum á milli þjóða. Það er skylda okkar að greiða fyrir frjálsum viðskiptum og hlúa í leiðinni að hags- munum þjóðarinnar. Að undanförnu hefur dregið úr hag- vexti í mörgum lykilviðskiptaríkjum Íslands. Iðnfram- leiðsla í Þýskalandi hefur dregist saman og hagvöxtur hefur minnkað í Frakklandi og Ítalíu. Þannig hafa viðskiptakjör Íslands versn- að vegna minnkandi hagvaxtar. Hins vegar brugðust fjármálamarkaðir vel við fréttum um tímabundið samkomulag bandarískra og kín- verskra stjórnvalda. Áhættuálag á skuldabréfa- mörkuðum lækkaði og verð á hlutabréfamörk- uðum hækkaði. Það eru góðar fréttir fyrir Ísland, sem nýtur góðs af auknum fyrirsjáan- leika um umgjörð heimsviðskipta. Staðan í alþjóðakerfinu er án fordæma í nú- tímahagsögunni, þar sem hátt atvinnustig hefur jafnan verið ávísun á aukna verðbólgu. Víðast hvar eru stjórnvöld mjög meðvituð um stöðuna og líklega verður hagstjórn í auknum mæli í höndum þeirra, þar sem hagkerfi verða örvuð í niðursveiflu. Mikilvægt er að halda áfram að fjárfesta í mannauði. Sú verður a.m.k. raunin á Íslandi, þar sem hagstjórn mun taka mið af aðstæðum og innviða- fjárfestingar munu aukast. Skýrari leikreglur í sam- skiptum viðskiptastórveldanna munu hafa jákvæð gáru- áhrif um allan heim, sem og framkvæmd löngu boðaðrar útgöngu Breta úr Evrópusambandinu nú um mánaða- mótin. Óvissa er óvinur bæði þjóða og fyrirtækja en um leið og aðstæður breytast til hins betra taka þau fljótt við sér. Það er mikilvægt fyrir almenning hvar í heiminum sem er. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Jákvæð gáruáhrif í hagkerfinu Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Samningar eru í gildi á milliÍslendinga og annarraþjóða um veiðar á loðnu ogákvörðun um „lítinn loðnu- kvóta“ til að viðhalda mörkuðum yrði flóknari fyrir vikið. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, fram- kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, hefur mælst til þess að slíkur kvóti verði gefinn út til að viðhalda mörkuðum, t.d. fyrir hrogn og hrognaloðnu í Asíu, án þess að það feli í sér mikla áhættu fyrir lífríkið. Sigurgeir segist hafa tekið málið upp við sjávarútvegs- ráðherra. Samkvæmt fyrrnefndum samn- ingum er hlutur Íslendinga í loðnu- aflanum 80%, Grænlendingar eru nú með 15% og Norðmenn 5%. Hlutur Norðmanna var til skamms tíma 8%, Íslendinga 81% og Grænlendinga 11%, en vestlæg útbreiðsla loðnunn- ar hefur leitt til aukinnar hlutdeildar Grænlendinga samkvæmt samning- um. Við útgáfu á loðnukvóta ættu þessar þjóðir því tilkall til ákveðins hlutar verði ekki samið um annað. Endurgjald fyrir þorsk Í sérstökum Smugusamningi eða Barentshafssamningi frá 1999, þríhliða samningi Íslands, Noregs og Rússlands, er kveðið á um þorsk- veiðar Íslendinga í norskri lögsögu í Barentshafi gegn loðnu úr íslenskri lögsögu. Árið 2018 var þorskafli Ís- lendinga á þessu hafsvæði 7.055 tonn auk meðafla og áttu 26.950 tonn af loðnu að koma sem endurgjald á fiskveiðiárinu 2018/19, það vill segja á vertíðinni í byrjun árs 2019, sem engin varð. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins eiga stjórnvöld nú í viðræðum við Norðmenn um endur- gjald vegna þorskveiða 2018. Þorskafli Íslendinga í lögsögu Norðmanna í Barentshafi 2019 var 6.592 tonn og endurgjaldið í ár ætti samkvæmt samningum að vera 25.181 tonn af loðnu. Verði ekki loðnuveiðar í vetur verður heldur ekki endurgjald í loðnu til Norð- manna í ár vegna þorskveiða 2019. Norðmenn mega ekki veiða loðnu við landið eftir 22. febrúar, en þá er miðað við að ákvörðun um loðnukvóta liggi fyrir eigi síðar en 5. febrúar og getur Ísland þá veitt það sem eftir stendur án endurgreiðslu. Liggi ákvörðun um loðnukvóta ekki fyrir fyrr en eftir 5. febrúar getur Ísland veitt það sem eftir stendur af kvóta Norðmanna eftir 22. febrúar en verður þá að endurgreiða það magn á næstu vertíð. Bent hefur verið á að þegar Smugusamningarnir voru gerðir fyrir rúmlega 20 árum, til lausnar Smugudeilunni svonefndu, hafi loðnustofninn við Ísland verið mun stærri en hann hefur verið síðustu ár. Þegar kvóti sé lítill taki sá afli sem Norðmenn megi veiða mun meira í en þegar loðnustofninn sé stór. Færeyingar fá á grundvelli tví- hliða samnings milli Íslands og Fær- eyja 5% af heildarafla í loðnu og það magn er tekið af hlut Íslands. Aflaregla og vottun Loks er að nefna aflareglu í loðnu, sem Alþjóðahafrannsókna- ráðið (ICES) hefur viðurkennt. Þar er lögð áhersla á varúðarnálgun og sjálfbærni, nokkuð sem vottunar- fyrirtæki leggja áherslu á, en loðnu- veiðar við landið eru vottaðar. Í samningi Íslendinga við Grænland og Noreg er miðað við þessa afla- reglu. Að óbreyttum samningum gæti niðurstaðan orðið sú að lítið af „litlum loðnukvóta“ kæmi í hlut Ís- lendinga. Bundnir af samningum við aðrar þjóðir um loðnu Morgunblaðið/G.E. Óvissa Ísleifur VE 63, skip Vinnslustöðvarinnar, með makrílafla 2016. Sigurgeir Brynjar segir að vissu- lega séu samningar í gildi við aðr- ar þjóðir um loðnuna. Það sé verk- efni stjórnkerfisins að ræða hvort framkvæmanlegt sé að gefa út einhvern kvóta og sannarlega séu miklir hagsmunir í húfi fyrir allt samfélagið. Hann áætlar að af 20 milljarða útflutningsverðmæti mögulegs loðnuafla komi 6-9 millj- arðar í hlut opinberra aðila með einum eða öðrum hætti. Sigurgeir gagnrýnir skort á grunnrannsóknum á loðnu á sama tíma og miklar breytingar séu að verða í hafinu. Hann nefnir að tvö síðustu ár hafi loðna verið víða í mögum þorsks í marsralli, en þessi ár hafi veiðistofninn ekki verið stór. Sigurgeir segir þetta hafa verið sambærilegt við það sem var þegar árgangarnir voru stórir í kringum aldamót. Þetta gefi miklar vísbendingar. Þá segir hann að talsvert hafi verið af loðnu fyrir norðan land í endaðan mars bæði í fyrra og hitti- fyrra, sem hafi lítið verið rann- sakað. Meðan ekki sé betur fylgst með þróuninni en raun beri vitni geti mikil verðmæti farið for- görðum. Miklir hagsmunir í húfi STJÓRNKERFIÐ SKOÐI HVORT MÖGULEGT SÉ AÐ GEFA ÚT KVÓTA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.