Morgunblaðið - 28.01.2020, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2020
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:30-12:30, nóg pláss - Hreyfisalu-
rinn er opinn milli 9:30-11:30, líkamsræktartæki, lóð og teygjur -
Boccia kl.10:15 - Bíó í miðrými kl.13:00 - Tálgað í tré kl.13:00 -
Postulínsmálun kl.13:00 - Kaffi kl.14:30-15:20 -
Nánari upplýsingar í síma 411-2702 - Allir velkomnir
Árskógar Smíðar, útskurður með leiðb. kl. 9-16. Boccia með
Guðmundi kl. 10. Leshringur kl. 11. Bridge kl. 12. Handavinnuhópur kl.
12-16. Kóræfing. Kátir karlar kl. 12:45. MS-fræðslu- og félagsstarf kl.
14-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl.
14:45-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. s: 535-2700.
Áskirkja Við spilum Félagsvist í kvöld í Dal, neðra safnaðarheimili
kirkjunnar, klukkan 20. Allir velkomnir Safnaðarfélag Áskirkju
Boðinn Leikfimi kl.10.30, Fuglatálgun kl.13.00, Bridge kl.13.00,
Kanasta k.13.00
Borgir Listmálun með Marteini kl. 9 í Borgum, postulínsmálun kl.
9:30 í Borgum og Boccia kl 10 og 15:00 í Borgum. Helgistund kl. 10:30
í Borgum og leikfimishópur Korpúlfa kl. 11:00 í dag í Egilshöll.
Spjallhópur í listamiðju Borgum kl. 13:00 og sundleikfimi í Grafar-
vogssundlaug kl. 13:30 í dag.
Allir hjartanlega velkomnir í Borgir, þar sem gleðin býr.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Saumastofan kl.
10:30, ýmislegt í farvatninu. Morgunkaffi kl. 10-10:30. Boccia 10:40-
11:20. Leshópur kl. 13:00. Opið kaffihús kl. 14:30-15:15.
Leikfimi með Silju kl. 13-13:40. Qi-gong kl. 17:00-18:00.
Dalbraut 27 Samverustund með djákna í setustofu 2.hæð.
Bænastund í bókaherbergi.
Fella og Hólakirkja Þorrablót Félagsstarf eldriborgara, við byrjum
með kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12.00 og færum okkur síðan inn í
safnaðarsal þar sem þorramatur bíður okkar. Við munum syngja og
hafa gaman saman.
Skráning í kirkjunni. s. 5573280 Hlökkum til að sjá ykkur
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Við hringborðið kl. 8:50.
Myndlistarnámskeið kl. 9. Thai Chi kl. 9. Hádegismatur kl. 11:30.
Salatbar kl. 11:30-12:15. Kríur myndlistarhópur kl. 13. Bridge kl. 13.
Tölvur kl. 13:10. Síðdegiskaffi kl. 14:30. U3A kl. 16:30. Komdu að púsla
kl. 9-16. Allir velkomnir óháð aldri.
Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Glerlist kl. 9:00. Bútasaumshópur hittist
kl. 9:00. Hópþjálfun með sjúkraþjálfara kl. 10:30. Bókband kl. 13:00.
Frjáls spilamennska kl. 13:00. Opin handverkstofa kl. 13:00-16:00.
Söngstund kl. 13:30. Bókaklúbbur kl. 15:00. Heitt á könnunni fyrir
hádegi. Verið velkomin á Vitatorg.
Garðabæ Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Bónusrúta fer frá
Jónshúsi kl. 14:45. Vatnsleikf. kl.7:30/15:15. Qi-Gong í Sjál. kl. 9:00.
Liðstyrkur Ásg. kl. 11:15. Karlaleikf. Ásg. kl.12:00. Boccia í Ásg. kl.
12:45. Línudans. Sjál kl. 13:30/14:30. Nemendur í FG verða með
skemmtidagskrá í Jónshúsi kl. 14:30 – 15:30
Gerðuberg 3-5 111 RVK Þriðjudagur Opin handavinnustofa
kl.08:30-16:00. Keramik málun kl.09:00-12:00. Leikfimi gönguhóps kl.
10:00-10:30. Gönguhópur um hverfið kl. 10:30-. Leikfimi Maríu 10:30-
11:15. Glervinnustofa m/leiðb. kl 13:00-16:00 Allir velkomnir.
Gjábakki kl. 9.00 Handavinna, kl. 9.45 Stólaleikfimi, kl. 13.30 Alkort,
kl. 16.30 Kynningarfundur v/orlofsferða húsmæðra - orlofsnefnd.
Grafarvogskirkja Þorragleði eldri borgara í Grafarvogskirkju kl.
12:30.
Grensáskirkja Kl. 12 á þriðjudögum er boðið upp á kyrrðarstund í
Grensáskirkju. Stundin hefst með orgelleik og síðan er nærandi orð
og kyrrðarbæn. Eftir samveruna í kirkjunni er samfélag yfir léttri
máltíð gegn vægu gjaldi.
Grænamörk 5 kl. 09:00 Glerlist. Kl. 09:30 Postulínsmálun. Kl. 10:00
Stólaleikfimi. Kl. 10:00 Pútt hjá Golfklúbbi Selfoss. Kl. 12:00 Bridge. Kl.
13:00 Postulínsmálun. Kl. 13:00 Tálgað í tré. Kl. 13:00 Félagsvist. Kl.
13:00 Glerlist. Kl. 16:00 Sumba (munið að skrá ykkur) Kl. 16:30
Útskurður í Vallholti 7
Gullsmára Myndlistarhópur kl. 9.00. Boccia kl. 9.30. Málm- og
silfursmíði, Canasta og Tréskurður kl. 13.00.
Hraunbæ 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-11:30. Hádegismatur kl. 11:30.
Félagsvist kl. 13:15. Kaffi kl. 14:15.
Hraunsel Ganga í Kaplakrika alla daga kl 8.00 - 12.00 Dansleikfimi kl
9.00 Qi-gong kl 10.00 Bridge kl 13.00 Leikfimi Hjallabraut kl 10.45
Leikfimi Bjarkarhús kl.11.30. Vatnsleikfimi í Ásvallarlaug kl 14.40
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30.
Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Zumba með Carynu kl. 10:00. Bridge í hand-
avinnustofu 13:00. Helgistund, prestur frá Grensáskirkju þjónar kl.
14:00.
Korpúlfar Listmálun kl. 9 í Borgum, frjáls postulínsmálun kl. 9:30 í
Borgum. Boccia kl. 10 og 15 í Borgum í dag. Helgistund kl. 10:30 og
leikfimishópur Korpúlfa í Egilshöll kl. 11:00 í dag. Spjallhópur kl 13 í
Borgum, listamiðja. Sundleikfimi kl. 13:30 í Grafarvogssundlaug.
Allir hjartanlega velkomnir.
Neskirkja Krossgötur kl. 13.00. Steinar J. Lúðvíksson, rithöfundur,
fjallar um Halaveðrið mikla 1925. Söngur og kaffisopi.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja 9-12, Trésmiðja kl. 9-
16, opin listasmiðja kl. 9-16, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl.11,
kaffihúsaferð kl.14, bónusbíllinn kl.15, Hugleiðslan kl.15.30.
Uppl í s. 4112760
Seljakirkja Menningarvaka eldri borgara í Seljakirkju í kvöld og hefst
samveran kl. 18. Að þessu sinni mun Halldór Benjamín Þorbergsson,
frkvstj. Samtaka atvinnulífsins og Breiðhyltingur flytja okkur erindi.
Þá mun hinn góðkunni Reynir Jónasson, flytja okkur ljúfa tóna á har-
monikku og leika undir fjöldasöng. Matur á eftir.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 567 0110.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi kl. 07.10. Kaffispjall í krók kl.10.30. Pútt í
Risinu kl.10.30. Kvennal. í Hreyfilandi kl.11.30. Bridge í Eiðismýri
kl.13.30. Karlakaffi í safnaðarh. kl. 14.00. Minnum á þorragleðina í
safnaðarheimilinu í dag kl.12.30. Nk. fimmtudag 30. jan. kl. 10.00
fáum við gesti frá krílamorgnum í kirkjunni og síðan kl.13.30 verður
erindi hjúkrunarfræðings í salnum á Skólabrabraut kl. 13.30.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10 – 16. Heitt á
könnunni frá kl. 10 – 11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er
frá kl. 11.30 – 12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Bókabíllinn
kemur kl. 13.15 og Bónusbíllinn kl. 14.40. Kaffi og meðlæti er til sölu
frá kl. 14.30 – 15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
ses.xd.is
Samtök eldri
sjálfstæðismanna, SES
Hádegisfundur SES
Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistu, verður
gestur á hádegisfundi SES á morgun,
miðvikudaginn 29. janúar kl. 12:00 í Valhöll,
Háaleitisbraut 1.
Húsið opnar kl. 11:30.
Boðið verður upp á súpu
gegn vægu gjaldi, 1000
krónur.
Allir velkomnir.
Með kveðju,
stjórnin.
Fundir/Mannfagnaðir
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir
Miðtún 4, Sveitarfélagið Árborg, fnr. 218-6862, þingl. eig. Hrafnkell
Guðnason, gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á Suðurlandi og Svei-
tarfélagið Árborg, mánudaginn 3. febrúar nk. kl. 09:30.
Valsheiði 29, Hveragerði, , fnr. 228-6161, þingl. eig. Ottó Geir Borg og
Eydís Björk Guðmundsdóttir, gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á
Suðurlandi og Hveragerðisbær og Vörður tryggingar hf. og Arion
banki hf. og Ríkisskattstjóri, mánudaginn 3. febrúar nk. kl. 10:05.
Bláskógar 6, Hveragerði, fnr. 220-9864, þingl. eig. Seyðhús ehf.,
gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á Suðurlandi og Hveragerðisbær og
Ríkisskattstjóri og Íslandsbanki hf., mánudaginn 3. febrúar nk. kl.
10:20.
Bjarnastaðir 2, Sveitarfélagið Ölfus, fnr. 221-1298, þingl. eig. Gunnar
Þór Hjaltason, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Suðurlandi,
mánudaginn 3. febrúar nk. kl. 10:45.
Hjallabraut 18, Sveitarfélagið Ölfus, fnr. 221-2394, þingl. eig. Kári
Geirsson, gerðarbeiðendur Íslandsbanki hf. og Sjóvá-Almennar tryg-
gingar hf., mánudaginn 3. febrúar nk. kl. 11:15.
Merkigarðstún, Sveitarfélagið Árborg, fnr. 234-1292, þingl. eig.
Guðlaugur Magnússon, gerðarbeiðandi Innheimtustofnun svei-
tarfélaga, mánudaginn 3. febrúar nk. kl. 11:50.
Ræktunarland, Sveitarfélagið Árborg, fnr. 234-1288, þingl. eig.
Guðlaugur Magnússon, gerðarbeiðandi Innheimtustofnun svei-
tarfélaga, mánudaginn 3. febrúar nk. kl. 12:00.
Austurvegur 34, Sveitarfélagið Árborg, fnr. 230-6650, þingl. eig. Sean
Aloysius Maríus Bradley, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Svei-
tarfélagið Árborg, mánudaginn 3. febrúar nk. kl. 12:30.
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
27 janúar 2020
Nauðungarsala
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Húsviðhald
Tek að mér
ýmiskonar
húsaviðhald og fl.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
FINNA.is
Elsku Tómas.
Það er sárt að
kveðja en á kveðju-
stundu yljar það
hjartanu að rifja upp góðar minn-
ingar. Ég, Erna, sem aldursfor-
seti okkar systkinabarnanna,
ætla að fá að byrja á að rifja upp
daginn sem þú komst heim til
okkar. Ég man eftirvæntinguna
og gleðina við að fá að hitta þig
eftir langt ferðalag heim. Þá vor-
um við ekki búin að fá neitt snap
né upplýsingar á facebook. Það
eina sem við vissum var að þið
voruð væntanleg heim á tiltekn-
um degi á tilteknum tíma og svo
var beðið. Það var gleðistund að
fá að knúsa þig.
Ég sem elsta frænkan fékk
líka þann heiður að fá að passa
þig þegar mamma þín og pabbi
fóru í sína fyrstu ferð utan. Ég er
þakklát fyrir traustið og hefur
mér ávallt fundist ég eiga smá
auka í þér enda þegar maður fær
að njóta slíkra gæðastunda þá
kynnist maður á einstakan hátt.
Það er alltaf til staðar. Þú tókst
vel á móti mér enda ljúfur, hóg-
vær og brosmildur strákur og við
skemmtum okkur vel. Ég held ég
hafi aldrei sagt mömmu þinni og
pabba allt sem við brösuðum
enda má margt þegar maður er í
pössun. Mögulega var farið að
sofa aðeins seinna en planað var
og jafnvel borðað í sófanum. Þá
fórum við að veiða og grilluðum
nýveiddan fisk, það var upplifun
enda stoltur veiðimaður sem
grillaði. Ekki má gleyma sykur-
púðunum sem ég bauð þér í eft-
irrétt, það reyndar komst upp og
skapaði mikla lukku hjá pabba
þínum. Síðustu minningar mínar
um þig eru álíka ljúfar með
Arnari Breka og þér í fótbolta í
bakgarðinum á Lynghaganum nú
um jólin.
Ég, Klara, á bara góðar minn-
ingar um elsku Tómas, fékk að
kynnast þínu hlýja hjarta þegar
ég passaði ykkur Ölmu fyrir
nokkrum árum. Þótt þú hafir ver-
ið kominn á unglingsárin þá
fannst þér gaman að sitja og
spjalla um daginn og veginn og
um þína framtíðardrauma, þeir
voru svo margir. Þig langaði að
gera svo margt en tónlistin var
þér efst í huga, þú spurðir mig að
því hvort þessi draumur um
frama í tónlist væri galinn, ég
sagði þér að enginn draumur
væri galinn og þú ættir að fylgja
hjartanu þínu í þeim málum.
Þessar minningar ylja mér um
hjartarætur.
Nú á síðastliðnum árum feng-
um við að fylgja þér í tónlistinni
og verið afar stolt af sköpun
þinni. Þú hafðir hæfileika til að
tjá þig með henni.
Elsku Tómas, þú kveður okkur
snemma en við hefðum svo gjarn-
an viljað fylgja þér lengur í lífinu.
Það er með sorg sem „gæti kallað
fram hundrað þúsund tár“ sem
við kveðjum þig, ást til þín frá
okkur öllum.
Tómas Biplab
Mathiesen
✝ Tómas BiplabMathiesen
fæddist 24. ágúst
2000. Hann lést 18.
janúar 2020.
Útför Tómasar
fór fram 27. jan-
úar 2020.
Svo er því farið:
Sá er eftir lifir
deyr þeim sem deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
Þeir eru himnarnir
honum yfir.
Við minnumst þín í
þessu ljóði Hannesar
Péturssonar og
gleymum þér aldrei.
Þín frændsystkini,
Erna, Erla Rut, Hilmar,
Lára, Tryggvi, Klara,
Einar Karl, Davíð, Daníel,
Anja Dögg, Yrja María,
Aðalheiður og Kristbjörg
María.
Það hefur líklega verið um
helgi. Ég var fjórtán ára og eitt-
hvað að brasa í þvottahúsinu þeg-
ar það var bankað létt á þvotta-
húsdyrnar. Þetta var Óli. Hann
smeygði sér inn og tiplaði á milli
útiskónna sem lágu á víð og dreif
um gólfið. Þetta var hversdags-
inngangur fjölskyldunnar og
þennan dag hékk þvottur á hverri
snúru. Ég var hissa að sjá Óla,
vissi ekki að það væri von á hon-
um. Hann heilsaði og var greini-
lega mikið niðri fyrir þegar hann
spurði á dularfullan hátt: „Eruð
þið öll heima?“ „Já,“ svaraði ég,
og kallaði á mömmu og pabba.
Þau komu hlaupandi niður stig-
ann, með fótataki sem ég þekkti
svo vel. Ég man ekki hvort báðar
systur mínar voru heima. En
þarna hrúguðumst við í kringum
Óla, mamma og pabbi í dyragætt-
inni, og við systurnar. Óli enn
innan um þvottinn og skóhrúgu
fimm manna fjölskyldu. Með
glampa í augunum sagði hann:
„Mig langar svo að kynna ykkur
fyrir nýjasta fjölskyldumeðlimin-
um.“ Við litum hvert á annað,
vissum ekki alveg hvað hann var
að fara. Óli hélt á lítilli skissubók,
eins og svo oft áður, og opnaði
hana varlega. Á milli blaðsíðn-
anna hvíldi lítil svarthvít mynd. Á
myndinni var gullfallegur dreng-
ur sem horfði á okkur með
stórum dökkum augum. Gullfal-
legur drengur sem beið foreldra
sinna í fjarlægu landi.
Þannig kom Tómas Biplab inn
í líf fjölskyldunnar í Þverásnum.
Á stund sem verður fjölskyldunni
ávallt ógleymanleg. Ég og við öll
litum á Tómas sem lítinn frænda.
Í Perú, þar sem ég lærði
spænsku, eru vinir sem eru eins
og hluti af fjölskyldunni kallaðir
frændur og frænkur af ást eða
væntumþykju, primos de cariño,
og það var Tómas, hjartans-
frændi. Hjartansfrændi sem ég
hlakkaði til að fylgjast með
spreyta sig í lífinu með hæfileik-
um sínum og hjartahlýju.
Tómas skrifaði um englana
sem hjálpuðu honum þegar hann
var í mestri neyð. Það kom rifa í
hjarta mitt þegar ég frétti að
englunum hefði fatast flugið. Ég
vona að Tómas sé nú kominn í
himnaríkið sem hann sagði frá í
sama texta, þar sem himinninn er
blár, grasið er grænt og hans bíð-
ur betri heimur.
Hvíl í friði elsku hjartans-
frændi minn.
Halla Ólafsdóttir.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og við-
eigandi liður, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr
felliglugganum. Einnig er hægt
að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en
á hádegi tveimur virkum dögum
fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar