Morgunblaðið - 28.01.2020, Side 27
GOLF
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir,
25 ára, er fjórða íslenska konan til þess að tryggja
sér þátttökurétt á Evrópumótaröðinni í golfi,
þeirri næststerkustu í heimi á eftir þeirri banda-
rísku. Íslandsmeistarinn vann sér inn keppnisrétt
á Evrópumótaröðinni með góðum árangri á
lokaúrtökumótinu á La Manga-golfsvæðinu á
Spáni um síðustu helgi þar sem hún lék hringina
fimm á samtals þremur höggum yfir pari og endaði
í 10.-17. sæti af 120 keppendum. Valdís Þóra Jóns-
dóttir er einnig með keppnisrétt á Evrópumóta-
röðinni en hún var þriðji kylfingurinn til þess að
tryggja sér þátttökurétt á mótaröðinni, á eftir
þeim Ólöfu Maríu Jónsdóttur og Ólafíu Þórunni
Kristinsdóttur.
„Ég er alveg dauðþreytt eftir þessa helgi ef ég á
að vera alveg hreinskilin,“ sagði Guðrún Brá í sam-
tali við Morgunblaðið í gær. „Ég áttaði mig ekki al-
veg á því í fyrstu að ég hefði tryggt mér sæti á Evr-
ópumótaröðinni en þetta er aðeins byrjað að síast
inn í kollinn á mér núna. Markmiðið fyrir árið 2020
var að tryggja sér sæti á Evrópumótaröðinni og
það tókst. Þetta var skrítið því ég gat í raun ekki
sett mér nein önnur markmið fyrr en ég var búin
með lokaúrtökumótið, þar sem ég hafði ekki hug-
mynd um hvar ég væri að fara spila og hvenær. Ég
spilaði svo mjög stöðugt golf alla fimm dagana á
lokaúrtökumótinu. Ég sló mjög vel í mótinu, heilt
yfir, og lenti í litlum vandræðum. Pútterinn hefði
kannski mátt vera aðeins heitari og ef það hefði
gengið betur upp hefði ég endað ofar á skorlist-
anum. Markmiðið náðist hins vegar og ég geng sátt
frá borði.“
Leið vel á átjándu braut
Guðrún Brá hélt út til Spánar eftir áramót til
þess að æfa fyrir lokaúrtökumótið. Hún hafði tví-
vegis reynt að vinna sér inn keppnisrétt á Evrópu-
mótaröðinni og komst ansi nálægt því á síðasta
keppnistímabili.
„Tímabilið kláraðist hjá mér í október og ég tók
mér mánaðarfrí. Ég byrjaði svo að æfa af fullum
krafti hérna heima en einbeitti mér aðallega að
tækniæfingum og öðru slíku. Ég var mestmegnis
innanhúss að æfa en stax eftir áramót fór ég til
Spánar og æfði af fullum krafti þar alveg fram að
lokaúrtökumótinu. Það var mikilvægt fyrir mig að
spila á alvörugrasi í aðdraganda mótsins og hjálp-
aði mér að finna taktinn. Undirbúningurinn fyrir
þetta mót var í sjálfu sér ekkert öðruvísi en fyrir
hin tvö. Ég var reynslunni ríkari núna auðvitað og
vissi betur út á hvað þetta gekk allt saman. Ég var
auðvitað áhugamanneskja fyrst þegar ég reyndi
við Evrópumótaröðina. Ég var kannski að reyna of
mikið þá en í fyrra var ég ansi nálægt því að kom-
ast áfram. Það gaf mér aukatrú fyrir mótið núna
og hjálpaði mér mikið þegar á hólminn var komið.“
Kylfingurinn var í vænlegri stöðu fyrir fimmta
og síðasta daginn á lokaúrtökumótinu á samtals
einu höggi yfir pari og henni leið vel á golfvellinum
á lokadeginum. Árangurinn á La Manga-
golfsvæðinu tryggði Guðrúnu keppnisrétt í flokki
9b á Evrópumótaröðinni en það ætti að tryggja
henni þátttökurétt á meirihluta mótanna, sem
verða alls 24 á næsta keppnistímabili.
„Ég vil ekki ganga svo langt að segja að ég hafi
verið alveg pressulaus fyrir lokadaginn. Ég ákvað
að fylgjast ekkert með skorinu hjá öðrum leik-
mönnum yfir daginn en ég vissi að niðurskurður-
inn, ef svo má segja, miðaðist við fjögur högg yfir
pari fyrir lokadaginn. Ég hálfpartinn gaf mér það
þess vegna að ef ég yrði á samtals þremur höggum
yfir pari myndi það duga til þess að komast áfram.
Ég var þess vegna róleg þegar ég labbaði upp
átjándu holuna á síðasta hringnum á tveimur högg-
um yfir pari og leið vel. Ég fór beint út á flugvöll
eftir mótið og er búin að vera á ferðalagi síðan. Ég
hef þess vegna ekkert náð að sofa og markmiðið
þegar ég kemst loksins heim í Hafnarfjörð er að
leggja mig. Næstu dagar fara svo í það að skoða
hvernig dagskráin er fyrir keppnistímabilið. Ég
held að þessi árangur eigi að koma mér inn í flest
mót í mótaröðinni. Ég er á leiðinni til Ástralíu í
næsta mánuði og það er það eina sem er á hreinu á
þessum tímapunkti.“
Titilvörnin í óvissu
Guðrún Brá er ríkjandi Íslandsmeistari kvenna
eftir að hafa fagnað sigri á Íslandsmótinu undan-
farin tvö ár. Hún segir hins vegar óráðið hvort hún
skrái sig til leiks á Íslandsmótinu 2020 í Mos-
fellsbæ.
„Ég er bara ekki komin svo langt á þessum tíma-
punkti. Að sjálfsögðu er alltaf gaman spila hérna
heima en mótin úti hafa forgang núna á þessu stigi.
Ég sleppti LET-móti í fyrra fyrir Íslandsmótið
heima en ég er ekki tilbúin að sleppa Evróputúrs-
móti fyrir Íslandsmótið. Eins og staðan er samt
núna þá er þetta bara í lausu lofti; ég hef ekki tekið
neinar stórar ákvarðanir og við sjáum bara hvern-
ig tímabilið púslast saman hjá mér.“
Björgvin Sigurbergsson, faðir Guðrúnar, er fjór-
faldur Íslandsmeistari í golfi en hann var kylfu-
sveinn Guðrúnar á lokaúrtökumótinu. Guðrún seg-
ir mjög gott að hafa föður sinn nálægt sér á
golfvellinum og ítrekar að hann og fleiri í kringum
sig hafi alla tíð staðið þétt við bakið á sér.
„Það var frábært að hafa pabba með sér þarna
úti, bæði innan og utan vallar. Það er alltaf gott að
vera með einhvern sem maður treystir, getur
skemmt sér með og allt þar á milli. Við tölum mikið
saman á golfvellinum og skiptumst á skoðunum,
sem er jákvætt. Á endanum eru ákvarðanirnar
undir mér sjálfri komnar en það er alltaf gott að
hafa hann nálægt. Ég er gríðarlega þakklát öllum
þeim sem hafa stutt við bakið á mér að undanförnu
og Forskot, afrekssjóður kylfinga, hefur staðið
mjög þétt við bakið á mér. Golfið er fyrst og fremst
vinnan mín en þetta er mikið hark líka. Það er hell-
ings vinna á bak við þennan árangur og það þarf
allt að vera í röð og reglu ef þetta á að ganga. Eins
er mikið af fólki á bak við tjöldin sem hefur staðið
þétt við bakið á mér og án þess væri ég ekki á þeim
stað sem ég er í dag,“ sagði Guðrún Brá í samtali
við Morgunblaðið.
Allt er þegar þrennt er
Fjórða íslenska konan sem tryggir sér þátttökurétt á Evrópumótaröðinni
Reynslunni ríkari eftir tvær tilraunir Golfið getur verið mikið hark
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Fjórða Guðrún Brá Björgvinsdóttir spilaði af ör-
yggi og skynsemi á lokaúrtökumótinu á Spáni.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2020
Kobe Bryant hefur alla tíð
verið einn af uppáhalds-
íþróttamönnum mínum. Ég byrj-
aði ungur að halda með Los Ang-
eles Lakers og fylgdist með
þegar Kobe og Shaq voru
óstöðvandi tvíeyki.
Ég þóttist vera Kobe þegar
ég lék mér á körfuboltavellinum
fyrir utan Fossvogsskóla á æsku-
árunum. Þegar ég kom heim
skoraði ég þriggja stiga körfur
með Kobe í NBA-tölvuleiknum
mínum í PlayStation.
Ég ætlaði ekki að trúa því
þegar fréttir fóru að berast af
andláti hans í gærkvöldi. Þetta
hlaut að vera eitthvert sjúkt
grín. Kobe getur ekki verið dá-
inn. Ekki möguleiki. Hægt og ró-
lega áttaði ég mig hins vegar á
að þetta var ekkert grín. Kobe
var allur.
Mér leið eins og ég væri að
missa einhvern sem ég hefði
þekkt persónulega. Slík var
sorgin. Gianna, 13 ára dóttir
hans, fórst með honum. Þau
sáust oft á tíðum saman á körfu-
boltaleikjum. Að sjá myndir af
þeim saman í stúkunni að ræða
málin og deila ástríðu sinni á
körfubolta var fallegt. Kobe var
ekki bara einn besti körfubolta-
maður allra tíma, heldur mikil
fyrirmynd utan vallar.
Ég var svo heppinn að fara á
tvo leiki með Lakers í Staples
Center fyrir tveimur árum. Þá
var Kobe vissulega hættur, en
hann var samt aðalstjarnan.
Alveg sama hvert litið var sáust
stuðningsmenn í Lakers-treyju
með Bryant á bakinu, eða í sér-
stökum Kobe-bolum. Kobe var
ennþá maðurinn.
Uppi í rjáfri eru svo tvær
treyjur; númer 8 og 24 með
Bryant á bakinu. Hann mun svo
sannarlega lifa áfram í Staples-
höllinni og hjá aðdáendum um
ókomna tíð.
BAKVÖRÐUR
Jóhann Ingi
Hafþórsson
johanningi@mbl.isHandknattleiksdeild Vals hefur
framlengt samninga Snorra Steins
Guðjónssonar og Ágústs Jóhanns-
sonar til þriggja ára, en þeir þjálfa
meistaraflokka félagsins. Komu þeir
báðir til Vals árið 2017. Snorri Steinn
tók við karlaliðinu og stýrði því með
Guðlaugi Arnarssyni fyrstu tvö árin.
Guðlaugur hvarf á braut eftir síðustu
leiktíð og er Snorri því einn með liðið
á þessari leiktíð. Ágúst tók við
kvennaliði félagsins og gerði það að
deildarmeistari á fyrsta tímabili. Á
síðasta tímabili varð Valur svo Ís-
lands-, bikar- og deildarmeistari.
Þjálfararnir fá
nýja samninga
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þrefalt Ágúst Jóhannsson vann
þrefalt með Val á síðustu leiktíð.
Andrea Mist Pálsdóttir, knatt-
spyrnukona úr Þór/KA, er gengin
til liðs við ítalska félagið Orobica og
leikur með því út þetta tímabil. Hún
er 21 árs og hefur skorað 14 mörk í
97 leikjum Þórs/KA í efstu deild og
spilað þrjá A-landsleiki. Andrea var
í láni hjá Vorderland í Austurríki
seinnipart síðasta vetrar og skoraði
þar fjögur mörk í fimm leikjum.
Orobica, sem er frá borginni Ber-
gamo á Norður-Ítalíu, 60 km frá
Mílanó, er neðst í A-deildinni með
aðeins eitt stig úr 13 leikjum og er
átta stigum á eftir næstu liðum.
Andrea Mist
komin til Ítalíu
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Ítalía Andrea Mist Pálsdóttir er
gengin til liðs við Orobica.
Fyrstu leikir kvennalandsliðs Ís-
lands í knattspyrnu á árinu 2020
liggja nú fyrir en liðið tekur þátt í
fjögurra þjóða alþjóðlegu móti á
Spáni, Pinatar-bikarnum, dagana 4.
til 10. mars. Þar mætir liðið Norð-
ur-Írlandi, Skotlandi og Úkraínu.
Leikirnir fara fram í íþrótta-
miðstöðinni Pinatar Arena, skammt
frá Murcia á suðausturströnd Spán-
ar, en það er vinsæll staður fyrir
æfingabúðir og vetrarleiki knatt-
spyrnuliða úr norðurhluta Evrópu.
Á mótinu fær Jón Þór Hauksson
landsliðsþjálfari tækifæri til að
undirbúa liðið fyrir útileikina gegn
Ungverjalandi og Slóvakíu í und-
ankeppni Evrópumótsins en þeir
fara fram dagana 10. og 14. apríl.
Ísland er með níu stig eftir þrjá
fyrstu leikina, eins og Svíar, og
stendur því ágætlega að vígi í riðl-
inum.
Mótið á Spáni kemur í staðinn
fyrir Algarve-bikarinn í Portúgal
þar sem íslenska landsliðið hefur
leikið þrettán ár í röð í byrjun mars
en liðum þar var fækkað og Íslandi
var fyrir vikið ekki boðin þátttaka
að þessu sinni.
Ísland er í 18. sætinu á nýjasta
heimslista FIFA, Skotland í 22.
sæti, Úkraína í 27. sæti og Norður-
Írland í 56. sæti. vs@mbl.is
Þrír lands-
leikir á
Spáni í mars
Arsenal, sigursælasta félag-
ið í sögu ensku bikar-
keppninnar í fótbolta, er
komið áfram í 16-liða úrslit
keppninnar eftir 2:1-sigur á
Bournemouth á útivelli í
gærkvöld. Ungir strákar
sáu um að skora mörk Ars-
enal í leiknum. Hinn 18 ára
gamli Bukayo Saka kom lið-
inu yfir strax á fimmtu mín-
útu og rétt rúmum 20 mín-
útum síðar bætti hinn tvítugi Eddie Nketiah við
öðru markinu. Staðan var 2:0 fram í uppbót-
artíma er varamaðurinn Sam Surridge minnk-
aði muninn fyrir Bournemouth og þar við sat.
Arsenal mætir Portsmouth úr C-deildinni í
næstu umferð, en Portsmouth hefur tvisvar
unnið keppina, síðast árið 2008 með Hermann
Hreiðarsson í lykilhlutverki. Arsenal hefur
þrettán sinnum unnið bikarinn, einu sinni oftar
en Manchester United. Arsenal vann keppnina
m.a í þrígang á árunum 2014 til 2017.
Dregið var í 16-liða úrslitin í gær. Takist
Derby að vinna Northampton mætir liðið Man-
chester United. Wayne Rooney, sem lék í ára-
raðir með Manchester-liðinu, leikur nú með
Derby. Þá mætast Chelsea og Liverpool, vinni
síðarnefnda liðið endurtekinn leik við Shrews-
bury.
Sigursælasta liðið áfram í bikarnum
Bukayo
Saka
Körfuknattleiksdeild Grinda-
víkur hefur gengið frá samningi
við Bandaríkjamanninn Seth
LeDay. Kemur hann í stað Jamal
Olasewere, sem var sendur heim
á dögunum. LeDay er 24 ára og
201 sentímetri. Hann kemur frá
East Carolina úr bandaríska há-
skólaboltanum. Grindvíkingar
eru vongóðir um að hann verði
löglegur fyrir leik liðsins gegn
Fjölni á föstudaginn kemur.
Grindavík er í níunda sæti Dominos-deildarinnar
með 10 stig eftir 15 leiki. Hefur liðið tapað fimm
deildarleikjum í röð.
Grindavík styrkir sig
Daníel Guðni
Guðmundsson