Morgunblaðið - 28.01.2020, Page 28

Morgunblaðið - 28.01.2020, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. JANÚAR 2020 Z-brautir & gluggatjöld Opið mán.-fös. 10-18, lau. 11-15 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is | Mælum, sérsmíðum og setjum upp Úrval - gæði - þjónusta Falleg gluggatjöld fyrir falleg heimili Fjörutíu umsóknir bárust lista- og menningarráði Kópavogs í sjóð sem ráðið úthlutar úr árlega og hlutu þrettán styrk úr sjóðnum. Sjóðurinn hefur yfir að ráða rúmum fimmtíu milljónum kr. og er markmið hans að stuðla að eflingu menningar- og listalífs í Kópavogi. Hæsta styrk ráðsins, fjórar millj- ónir kr. hlaut Midpunkt, listamanna- rými við Hamraborg, sem starfrækt hefur verið með metnaðarfullri dag- skrá í rúmt ár af þeim Ragnheiði Sigurðardóttur Bjarnarson og Snæ- birni Brynjarssyni. Ráðið styrkir einnig djasstónleikaverkefni Leifs Gunnarssonar Myschi fyrir börn og fjölskyldur um eina og hálfa milljón kr. og gerð heimildarmyndar Purks ehf. um aðstæður og baráttu afg- ansks flóttadrengs á Íslandi um eina milljón kr. Þá hlaut Sólfinna 600 þúsund kr. styrk fyrir djassónleika- röð Sunnu Gunnlaugsdóttur í Saln- um og 500 þúsund kr. styrki hlutu Birnir Jón Sigurðsson sem stendur fyrir sviðslistahátíðinni Safe-Fest og Hafsteinn Karlsson til að skrá sögu sumarhúsabyggðar í Suðurhlíðum Kópavogs. Sigurður Unnar Birg- isson hlaut 400 þúsund kr. styrk fyr- ir myndbandsgerð um grasrótar- starf í myndlist í Kópavogi og 340 þúsund kr. styrki hlutu Kór Hjalla- kirkju til að flytja tónverkið Gloria eftir Michael John Trotta og Þórunn Vala Valdimarsdóttir fyrir barokk- tónleika ásamt fleirum í Hjalla- kirkju. 300 þúsund kr. styrki hlutu Afsakið, listhópur sem Sísí Ingólfs- dóttir, Íris Stefanía Skúladóttir og Guðrún Mist Sigfúsdóttir skipa; Marteinn Sigurgeirsson til að full- vinna mynd um bræðurna frá Kópa- vogsbúinu; og Stefán Helgi Stef- ánsson og Margrét Sesselja Magnúsdóttir fyrir tónleikaröð í Sunnuhlíð, Boðaþingi og Kastala- gerði. Milljón kr. styrk hlaut síðan Camerarctica fyrir hina árlegu jóla- tónleika Mozart við kertaljós. Ráðið styrkir einnig samkvæmt sam- þykktum frá síðasta ári Ljóðahópinn Gjábakka, Sögufélag Kópavogs, Samkór Kópavogs, Söngvini – kór aldraðra, Karlakór Kópavogs, Kvennakór Kópavogs og Ritlistar- hóp Kópavogs. Menningarstyrkjum úthlutað í Kópavogi Styrkþegar Frá afhendingu menningarstyrkjanna í Kópavogi. Tríóið Gadus Morhua flytur íslensk og erlend þjóðlög á Tíbrár- tónleikum í Salnum í kvöld kl. 19.30. Tríóið skipa söngvarar og langspilsleikararnir Eyjólfur Eyj- ólfsson og Björk Níelsdóttir en Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir leikur á barokkselló. „Klassísk einsöngslög í nýjum út- setningum og frumsamið efni flétt- ast saman í hljóðheim þar sem bar- okk mætir íslensku baðstofunni og þorrastemningin nær nýjum hæð- um,“ segir um tónleikana í tilkynn- ingu og að boðið verði upp á sófa- spjall fyrir tónleikana frá kl. 18.30 og verður það Arndís Björk Ás- geirsdóttir sem spjallar við meðlimi tríósins. Sellóleikari Steinunn Arnbjörg. Gadus Morhua á Tíbrártónleikum Tjarnarbíó, heimili sjálf- stæðra sviðslista, fær aukinn stuðning frá Reykjavíkur- borg. Samningur þar að lútandi hefur verið sam- þykktur í menn- ingar-, íþrótta- og tómstunda- ráði og borgarráði, að því er fram kemur í tilkynningu. Framlag Reykjavíkurborgar til reksturs Tjarnarbíós verður 20 milljónir króna á þessu ári og eykst um fimm milljónir frá síðasta ári, segir þar og að nýr samningur gildi til þriggja ára og verður framlagið komið upp í 22 milljónir árið 2022. Í samningnum er kveðið á um að Tjarnarbíó skuli halda áfram að vera einn meginvettvangur nýsköp- unar í íslenskum sviðslistum en í menningarstefnu Reykjavíkur- borgar segir meðal annars að borg- in skuli hlúa að grasrótar- og til- raunastarfsemi í listum og menningu. Í samningnum er einnig lögð áhersla á að Tjarnarbíó sinni listuppeldi barna og unglinga. Reykjavíkurborg hefur stutt við starfsemina í Tjarnarbíói með þriggja ára samningum frá árinu 2013 og hefur starfsemin síðan þá vaxið ár frá ári. Friðrik Friðriksson er framkvæmdastjóri Tjarnarbíós. Tjarnarbíó fær aukinn stuðning Friðrik Friðriksson Úrslitakeppni söngkeppninnar Vox Domini var í Salnum á sunnu- dag en keppnin er haldin af Fé- lagi íslenskra söngkennara og er fyrst og fremst hugsuð fyrir söngvara og nemendur í klassískum söng sem eru að stíga sín fyrstu skref á ferlinum. Keppninni lyktaði með því að söngvarinn Gunnlaugur Bjarnason var valinn „rödd ársins“. Í opnum flokki sigraði Eliska Helikarova, í háskólaflokki sigraði Áslákur Ingvarsson, Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir lenti í 2. sæti og Fredrik Scherve í 3. sæti. Í framhaldsflokki sigraði Gunn- laugur, sem valinn var „rödd árs- ins“, í 2. sæti varð Ólafur Freyr Birkisson og í 3. sæti Tinna Þor- valdsdóttir Önnudóttir. Pétur Ern- ir Svavarsson hreppti áhorf- endaverðlaun, og sérstaka viðurkenningu fyrir flutning á sönglagi eftir tónskáld keppninnar, Gunnstein Ólafsson, hlutu þau Pét- ur Ernir Svavarsson, Gunnlaugur Bjarnason og Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir. Röddin Gunnlaugur Bjarnason sigraði. Gunnlaugur Bjarnason „rödd ársins“ Fyrstu ,rauðu‘ SÍ-tónleikarseinna vetrarmisserisvoru þokkavel sóttir þráttfyrir afleitt veður, eða á að gizka fyrir ¾ setnu húsi. Líkast til einkum fyrir Bartók-konsertinn, er mun enn meðal vinsælustu hljóm- sveitarverka síðustu aldar. S.s. frek- ar en fyrir nafntogaðan einleikara eða stjórnanda, eins og ágerzt hefur í dæmigerðri viðburðastýrðri menn- ingarneyzlu seinni ára. Í því sambandi væri annars for- vitnilegt að fá að vita hvað liggi að baki nýtilkomnum hætti í Hörpu að tölvuskanna aðgöngumiða tónleika- gesta við inngöngu í sal. Manni verður ósjálfrátt við eins og þegar vefsíða lætur mann samþykkja kök- ur eða „cookies“. Hvað er Stóri bróðir að vilja? Vin- sældakönnun? Gæðastýring? Maður vonar það bezta. Tónleikarnir hófust á Masquer- ade (Grímudansleik) eftir hina brezku Önnu Clyne; stuttu en líf- legu stykki frá 2013, að sögn inn- blásið af almenningstónleikahaldi í Lundúnum á ofanverðri 18. öld, lík- ast til í Vauxhallgörðum. Gekk mik- ið á í oft skemmtilegu samsarpi af liðnu og nýju tónmáli, er minnti ögn á inntak danska jólasöngsins Sikken trængsel og alarm í ágætum flutn- ingi SÍ. Næstur var þríþættur Víólukon- sert Williams Waltons frá 1929. Um það leyti var gizka fátt um einleiks- konserta fyrir þessa frumgerð fiðlu- fjölskyldunnar (orðið lágfiðla kvað nú orðið rétthugsunarbannorð; dæmigerður skyndimisskilningur). Og ekki sökum að spyrja, enda dregur hljómfögur víólan skemur en sauðakallsskræk yngri systir henn- ar, eins og kom í ljós í I. þætti. En eftir það var sem ungi þýzki einleikarinn tæki á sig rögg, því í seinni tveim þáttum heyrðist mun betur í honum, og var einkum gam- an að gáskafullri snerpu miðþáttar, Vivo, con molto preciso. Samstilling hljómsveitar var í bezta lagi, og til- finningarófið fékk að leika lausum hala í lokaþættinum. Nils Mönkemeyer kvaddi svo með aukalagi, Saraböndu úr 2. sellósvítu Bachs (s.s. áttund ofar) af hrífandi yfirvegaðri einlægni, og var honum vel fagnað. Konsert Bela Bartóks fyrir hljómsveit sló strax í gegn við frum- flutninginn í Boston 1. desember 1944 og hefur haldið fullum vinsæld- um síðan. Skyldi engan furða; makalaust fjölbreytt og litrík músík í ómótstæðilegri blöndu af töfrum gamla heimsins (t.a.m. í þjóðlegum Balkan- og Austurlandadönsum) og hins nýja (undir áhrifum af gospl- um, djassi og vestrum Hollywoods) – innan um háhverfa pólýfóníu, forneskjulega miðaldakennd og híf- andi „verbunkos“ skrallirall, svo fátt eitt sé nefnt. Stundum er hlustand- inn staddur í gimsteinaglærum Aladdinshelli (Elegia, III.), stund- um meðal götustráka í París að ulla á „Maxim“-lag þeirra Lehárs og Sjostakovitsj, og gegnir raunar furðu hvernig ungverska tónskáld- inu tekst að mynda samfellda heild úr jafnólíku efni. Úr ,kvikmynda- tónlist án kvikmyndar‘ eins og gár- unginn sagði. Í svona verki þurfa spilarar að taka á öllu sínu, og dugir að sama skapi enginn viðvaningur í stjórn- arpontu. Það kom því vart á óvart hvað Pietara Inkinen tókst vel upp, eða rúmlega á við undanfarin fjögur skipti er maður sá hann stýra SÍ eða ’07, ’12, ’14 og ’15. Skýrleikinn var einatt í fyrirrúmi, og var sérlega hressandi hvað ríkisstrokmenn strengjadeildar gáfu mikið í hross- hárin – og m.a.s. með óvænt sam- taka snerpu. Einleikari Þýski víóluleikarinn Nils Mönkemeyer lék einleik með SÍ. Gimsteinar og gauragangur Sinfóníutónleikar Eldborg í Hörpubbbbn Anna Clyne: Masquerade. William Walt- on: Víólukonsert. Béla Bartók: Konsert fyrir hljómsveit. Nils Mönkemeyer víóla og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hljóm- sveitarstjóri: Pietari Inkinen. Fimmtu- daginn 23. janúar 2020 kl. 19.30. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.