Morgunblaðið - 13.02.2020, Qupperneq 1
27%
56%
Frekar eða mjög
fylgjandi
Frekar eða mjög
andvíg(ur)
Afstaða til innfl utnings
á hráu, ófrosnu kjöti
Heimild: Könnun MMR
fyrir Morgunblaðið
Bæði/og: 17%
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Meirihluti svarenda (56%) í könnun
MMR fyrir Árvakur er mjög eða
frekar andvígur því að leyfður sé
innflutningur til Íslands á hráu,
ófrosnu kjöti. Rúmlega fjórðungur
(27%) er frekar eða mjög fylgjandi.
Fleiri konur (44%) en karlar (32%)
voru mjög andvígar því að slíkur inn-
flutningur sé leyfður. Fleiri karlar
(19%) voru mjög fylgjandi innflutn-
ingnum en konur (6%). Eldra fólk er
á móti innflutningi og voru 60% svar-
enda 68 ára og eldri mjög andvíg og
14% frekar andvíg en aðeins 9% í
þeim aldurshópi mjög fylgjandi.
„Það hefur ekkert komið af hráu,
ófrosnu kjöti eða eggjum það sem af
er árinu,“ sagði Dóra S. Gunnars-
dóttir, forstöðumaður matvælaör-
yggis og neytendamála hjá MAST.
Hún sagði að frá áramótum þyrfti
ekki sérstakt leyfi til að flytja hrátt
og ófrosið kjöt til landsins. Kjötinu
þurfa að fylgja skjöl vegna viðbótar-
trygginga út af salmonellu.
Andstaða við innflutning
Opnað var fyrir innflutning á hráu, ófrosnu kjöti og eggj-
um um áramót Ekkert hefur verið flutt inn það sem af er
MMikil andstaða… »18
F I M M T U D A G U R 1 3. F E B R Ú A R 2 0 2 0
Stofnað 1913 37. tölublað 108. árgangur
Grísakótilettur
Kjötborð
1.169KR/KG
ÁÐUR: 1.799 KR/KG
Nautalundir
Danish Crown
2.999KR/KG
ÁÐUR: 4.999 KR/KG
LJÚFFENGUR HELGARMATUR Í NÆSTU NETTÓVERSLUN
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 13. - 16. febrúar
-50%
-35%KjúklingalundirDanpo - 700 gr
999KR/PK
ÁÐUR: 1.999 KR/PK
-40%
STUÐMANNA-
FÍLINGURINN
ER VIÐVARANDI
SÝNA VERK
SOL LEWITT Í
HAFNARHÚSINU
HÆGT ER AÐ
LÉTTA ÁLAGIÐ Á
LANDSPÍTALA
MENNING 63 HELGA HANSDÓTTIR 20AFMÆLISTÓNLEIKAR 24
Taprekstur síðustu sjö til átta árin skýrir þá
ákvörðun Rio Tinto, eiganda álversins í
Straumsvík, að endurskoða starfsemi sína. Þetta
segir Rannveig Rist, forstjóri álversins. Fyrir-
tækið tapaði 10 milljörðum króna í fyrra. Rann-
veig segir að fyrirtækið hafi gert það sem í þess
valdi standi til að hagræða í rekstri, en eftir
standi „fíllinn í herberginu“, raforkuverðið, sem
sé umtalsvert hærra en önnur fyrirtæki í stór-
iðju borgi. Hörður Arnarson, forstjóri Lands-
virkjunar, segir að Landsvirkjun sýni krefjandi
aðstæðum fyrirtækisins skilning, en að ekki
verði tekin afstaða til þess hvort möguleiki sé að
semja um lægra raforkuverð fyrr en Lands-
virkjun hafi „fengið skýra sín á reksturinn“.
Álverið í Straumsvík kaupir um 23% af orku
Landsvirkjunar. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði
segir ástandið grafalvarlegt. »2, 4 og 8
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alvarleg
staða í
Straumsvík
Tvær milljónir spilara hafa forskráð
sig að nýrri farsímaútgáfu EVE On-
line. Þetta segir Hilmar Veigar Pét-
ursson, forstjóri CCP, í viðtali við
Morgunblaðið í dag. Er þar aðeins
um að ræða spilara sem notast við
síma með Android-stýrikerfinu.
Gera áætlanir fyrirtækisins ráð fyrir
að fleiri notendur iPhone-síma muni
þyrpast að leiknum og að allt að
fimm milljónir spilara verði með að-
gang að leiknum gegnum farsíma
sína áður en árið er úti.
Hilmar Veigar segir að vörum
fyrirtækisins sé afar vel tekið í Asíu
og að í kjölfar þess að fyrirtækið lag-
aði leikinn að þörfum markaðarins í
Suður-Kóreu séu nú 15% allra
þeirra sem spila leikinn þaðan.
Kaupverðið lækkar talsvert
Áætlanir CCP gerðu ráð fyrir því
að vöxturinn á Asíumarkaði yrði að
veruleika á árinu 2019 en ýmsir sam-
verkandi þættir urðu til þess að tafir
urðu á því. Það veldur því að fyrr-
verandi eigendur fyrirtækisins, með
Novator Partners í fararbroddi,
verða af 100 milljóna dollara árang-
urstengdri greiðslu, en hún var hluti
af þeim 425 milljónum dollara sem
kaupandinn, Pearl Abyss, hafði sam-
þykkt að greiða fyrir fyrirtækið.
Hilmar Veigar segir bagalegt að
þessar tafir hafi orðið þess valdandi
að kaupverðið hafi lækkað sem
þessu nemur, eða um 12,7 milljarða
króna. Hins vegar sé mikilvægt að
horfa til framtíðar og að hún sé
björt. Flest bendi til þess að EVE
Echoes verði stærsti farsímaleikur í
heimi. ses@mbl.is »32
Vöxtur Hilmar Veigar Pétursson
segir að vaxtartækifærin séu mikil.
CCP í stór-
sókn um
allan heim
Milljónir vilja spila
farsímaútgáfu EVE