Morgunblaðið - 13.02.2020, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 13.02.2020, Qupperneq 4
BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Miklar breytingar á álmarkaði eiga þátt í versnandi samkeppnisstöðu ál- vers Rio Tinto í Straumsvík. Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls, Samtaka álframleiðenda, segir fleiri þætti en heimsmarkaðs- verð á áli skýra þessa breyttu stöðu. Álverin þrjú framleiddu um 900 þúsund tonn af áli árið 2018 og var hlutur álversins í Straumsvík 212 þúsund tonn, eða sem samsvarar 23,6% hlutdeild af álframleiðslunni. Lokun álvers- ins í Straumsvík hefði því mikil áhrif á íslenskan áliðnað en út- flutningsverð- mæti framleiðsl- unnar nam um 60 milljörðum 2018. Til samanburðar var útflutnings- verðmæti álveranna þriggja þá sam- tals 228 milljarðar. Þá nam innlend- ur kostnaður þeirra 86 milljörðum. Pétur rifjar upp erindi Martin Jackson, álsérfræðings hjá breska ráðgjafarfyrirtækinu CRU, á morgunverðarfundi Landsvirkjunar á dögunum, en þar hafi komið fram að 7% álvera í heiminum séu rekin með tapi, þar af helmingur í Kína. Af því megi leiða að þótt heims- markaðsverð á áli sé lágt í sögulegu samhengi virðist það almennt ekki leiða til tapreksturs hjá álverum. Tímabilið 2002-2007 var lengsta samfellda hækkunarskeið á heims- markaðsverði á áli. Það fór hæst í 3.270 dali í júlí 2008 en er nú um 1.750 dalir. Mikið framboð og óvissa í efnahagsmálum heimsins hafa haft áhrif á verðþróunina. Gríðarlegir styrkir í Kína Pétur bendir jafnframt á að í skýrslu Efnahags- og framfarastofn- unarinnar (OECD), sem kom út í ársbyrjun í fyrra, hafi komið fram að rekstur álvera njóti ríkisstuðnings nánast hvarvetna í heiminum, nema á Íslandi. Það muni mest um slíka styrki í Kína, sem numið hafi 17 milljörðum dollara bara árin 2013- 2017, en þar af hafi 85% runnið til fimm kínverskra álfyrirtækja. Þá njóti álver í Mið-Austurlöndum, Kanada og víðast hvar í Evrópu styrkja. Má í þessu efni rifja upp þá stefnu kínverska kommúnistaflokks- ins að Kína verði leiðandi í áliðnaði. Pétur segir breytingar á raforku- markaði í Evrópu líka hafa haft áhrif á samkeppnisstöðu íslenskrar ál- framleiðslu á síðustu árum. Ál sé á kolefnislekalista ESB, en á þeim lista sé iðnaður sem hætt sé við að flytjist annað ef samkeppnishæfni greinarinnar sé ógnað. Þess vegna hafi ríki á sameiginlegum orkumark- aði ESB fengið heimild til að niður- greiða raforku til álvera og hafi þau nýtt sér þá heimild, m.a. í Noregi, Þýskalandi og Frakklandi. „Þetta er nauðsynlegt að hafa í huga þegar orkuverð er borið saman í Evrópu. Sá samanburður segir ekki alla söguna því síðan er orkuverðið niðurgreitt umtalsvert, m.a. í Noregi sem við berum okkur gjarnan saman við, enda er Noregur stærsti álfram- leiðandi í Evrópu,“ segir Pétur. Fimmfaldast í verði frá 2017 Að sögn Péturs kom það fram á raforkufundi Samtaka iðnaðarins í október síðastliðnum að niður- greiðslurnar gætu numið allt að 9,5 evrum á megavattstund. Til saman- burðar má geta þess að meðalverð Landsvirkjunar til iðnaðar skv. árs- reikningi félagsins er 28,3 dollarar og er flutningsgjald þá að hluta inni- falið. Jafnframt segir Pétur að það sé liður í versnandi samkeppnisstöðu álvera í Evrópu að losunarheimildir innan viðskiptakerfis ETS hafi fimmfaldast í verði frá 2017. „Ef horft er til meðalverðs á los- unarheimildum í fyrra má áætla að álver á Íslandi hafi greitt um milljarð fyrir þær, en þeir fjármunir renna að lokum í ríkissjóð og Samál hefur beitt sér fyrir því að þeir renni til loftslagsvænna verkefna. Þessi gjöld leggjast ekki á álframleiðslu utan Evrópu, þó að kolefnisfótsporið þar sé mun óhagstæðara. Skýrslur sem hafa verið unnar í Evrópu sýna fram á að álframleiðsla í álfunni á erfitt uppdráttar, m.a. vegna hás orkuverðs. Fyrir vikið hefur álframleiðsla dregist saman um þriðjung í Evrópu frá árinu 2008. Á Ítalíu hefur álframleiðsla alfarið lagst af, en hún var rúmlega þrefalt meiri en hér á landi,“ segir Pétur. Hlutur Evrópu í álframleiðslu hef- ur því dalað. Samkvæmt áðurnefndu erindi Jacksons er hlutur Kína í ál- framleiðslu kominn í 56% og hefur vaxið úr 11% árið 2004. Til saman- burðar var hlutur Evrópu 19% árið 2000 en 7% í fyrra. Hlutur Norður- Ameríku lækkaði þá úr 25% í 6%. Stofnkostnaðurinn hverfandi Til upprifjunar tók samningur Rio Tinto á Íslandi og Landsvirkjunar um raforkukaup gildi 1. október 2011 og gildir til ársins 2036. Með hliðsjón af ofansögðu má leiða líkur að því að breytta stöðu ál- versins í Straumsvík megi rekja til þeirra breytinga sem orðið hafa orðið á orkumarkaði frá því að fyrir- tækið samdi við Landsvirkjun. Má í þessu efni rifja upp erindi Gunnars Tryggvasonar, stjórnarmanns í Landsvirkjun, á ársfundi Samáls ár- ið 2016 er hann var ráðgjafi hjá KPMG. Þar sagði Gunnar forsendur hafa breyst á orkumarkaði í Evrópu. Spár um hækkanir hefðu ekki gengið eftir og hröð uppbygging grænnar orku haft þar mest áhrif. „Þó að græn raforka sé miklu dýrari í Evr- ópu heldur en gas og kol, þá veldur hún verðlækkun á mörkuðum.“ Ástæðan væri sú að grænir skatt- ar hefðu verið nýttir til að draga úr stofnkostnaði við uppbyggingu endurnýjanlegra orkugjafa. Þar sem hár stofnkostnaður hyrfi þannig úr myndinni og kostnaður við rekstur endurnýjanlegra orkukosta væri af- ar lágur myndaðist þrýstingur til lækkunar orkuverðs í Evrópu eftir því sem hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa væri hærra. Ef til vill er það til marks um þessa þróun, að raforkuverðið á Nord Pool, norrænu kauphöllinni með raforku, var komið niður í rúm- ar 14 evrur á megavattstund í gær og var því í sögulegu lágmarki. Hærri launakostnaður á Íslandi Samkvæmt Eurostat, hagstofu ESB, eru laun á Íslandi orðin með þeim hæstu í Evrópu. Samkvæmt greiningu Eurostat, sem stjórnar- ráðið vakti athygli á, var launakostn- aður á hverja vinnustund í evrum talið 74% hærri á Íslandi árið 2017 en að meðaltali í löndum ESB. Spurður um áhrif launakostnaðar á samkeppnishæfni álversins í Straumsvík segir Pétur að fram hafi komið að fyrirtækið hafi greitt um 5 milljarða í laun og launatengd gjöld árið 2018. Almennt hafi launakjör í íslenskum álverum verið vel yfir því sem gengur og gerist á almennum vinnumarkaði og starfskjörin góð. Hins vegar sé ljóst að kostnaður við kaup á raforku sé stærsti ein- staki útgjaldaliður álvera. Má í þessu efni rifja upp að fram kom í Morgunblaðinu 25. janúar sl. að vegna minni raforkunotkunar í Straumsvík í ár yrði fyrirtækið af 20 milljóna dollara tekjum, jafnvirði 2,5 milljarða króna. Út frá því að fram- leiðslan dragist saman um 15% í ár vegna erfiðra aðstæðna hefur því verið áætlað að Landsvirkjun selji álverinu orku fyrir 16,7 milljarða. Hlutur Straumsvíkur um 40% Til að setja það í samhengi má áætla að álverin hafi alls keypt raf- orku fyrir um 40 milljarða árið 2018, samkvæmt upplýsingum frá Samáli, en þá er horft til orkunotkunar ál- vera og meðalverðs Landsvirkjunar til iðnaðar. Má því ætla að hlutur ál- versins í Straumsvík sé um 40%. Á það hefur verið bent að álverið í Straumsvík greiði hærra raforku- verð en álverin á Grundartanga og Reyðarfirði. Miðað við forsendur sem Hagfræðistofnun hefur gefið sér má áætla að álverið í Straumsvík skapi um 1.250 bein og óbein störf. Að jafnaði starfa um 500 manns í Straumsvík, að meðtöldum um 150 starfsmönnum verktaka. Höggið af lokun þess yrði því mikið. Álmarkaðurinn breyst mikið  Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls, segir lækkandi raforkuverð í Evrópu meðal áhrifaþátta  Spár um hækkandi raforkuverð hafa ekki gengið eftir og heimsmarkaðsverðið lækkað undanfarið Álver ISAL í Straumsvík í 50 ár 200 150 100 50 0 1969 1974 1979 1984 1989 1994 1999 2004 2009 2014 2019 212 þús. tonna ársframleiðsla 2018 1980 40 nýjum kerum bætt við í kerskála 2 1970 40 nýjum kerum bætt við í kerskála 1 1966 Fyrirtækið stofnað af Alusuisse með samningum við ríkisstjórn Íslands 1969 Framleiðsla hefst 1. júlí 1969 með 33 þúsund tonna framleiðslugetu 1969 Framleiðslu- afurðin er barrar 2012 Framleiðsla bolta hefst 1972 Kerskáli 2 tekinn í notkun með 120 kerum 1997 Kerskáli 3 tekinn í notkun 160 ný ker bætast við Heimild: ISAL/Rio Tinto 2020 Um 370 manns starfa hjá álverinu, sumarmenn eru um 140 og þá starfa 143 starfsmenn hjá 19 verktökum sem þjónusta álverið 2007 Hafnfirðingar hafna stækkun álversins í atkvæðagreiðslu 2018 Álverið greiðir 4,96 milljarða í laun og launatengd gjöld Kaup álversins á vörum og þjónustu nema 5,35 milljörðum 2010 Nýr langtíma raforkusamningur við Landsvirkjun sem gildir til 2036 184 þús. tonna áætluð ársframleiðsla 2020 184 þús. tonna ársframleiðsla 2019 Áætlað er að ársfram- leiðslan 2020 verði um 87% af hámarks-framleiðslu álversins árið 2018 Pétur Blöndal 4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020 Notkun: 2 hylki tvisvar á dag við vægum gigtarverkjum. Notist ekki ef í maga eða þörmum er þekkt. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.florealis.is og www.serlyfjaskra.is. Haltu þínu striki! Harpatinum er eina viðurkennda jurtalyfið á Íslandi til að draga úr gigtarverkjum Fæst án lyfseðils í næsta apóteki www.florealis.is o r Hallur Már Hallsson Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Samninganefnd álversins í Straumsvík, ISAL, fær ekki leyfi frá stjórnendum Rio Tinto til að skrifa undir nýja kjarasamninga við starfsfólk álversins. Þetta seg- ir Reinhold Richter, aðaltrúnaðar- maður starfsfólks álversins. Til- kynnt var í gær að ráðist yrði í sérstaka endurskoðun á starfsemi álversins vegna rekstrarvanda þess. „Þetta kemur svolítið óvænt þótt það hafi legið í loftinu að það væri ekki góður rekstur hérna. Við vissum ekki að þetta væri komið á þennan stað,“ segir Rein- hold og bætir við að vandinn sé tvöfaldur. Annars vegar rekstr- arvandi fyrirtækisins og hins veg- ar sá vandi að ekki fáist leyfi til að skrifa undir samning. „Við er- um með drög að samningi á borð- inu, sem á bara eftir að skrifa undir. Hann hefur verið tilbúinn síðan í lok janúar,“ útskýrir Rein- hold. Fordæmalaust sé í íslenskri verkalýðssögu að æðri stjórn- endur erlendis komi í veg fyrir undirritun kjarasamnings sem sátt hafi náðst um innanlands. Kolbeinn Gunnarsson, formaður stéttarfélagsins Hlífar, segir að komið geti til átaka ef ekki takist að semja. Um 350 starfsmenn Rio Tinto og undirverktaka eru fé- lagsmenn Hlífar og hafa þeir verið með lausa kjarasamninga lengi. Aðspurður telur Kolbeinn ekki að fréttir af rekstrarvanda fyrir- tækisins séu útspil í kjara- viðræðum, enda sé launakostnaður of lítill þáttur af rekstarkostnaði fyrirtækisins til þess. Deginum ljósara sé að reksturinn sé þungur og því finnist honum eðlilegt að Landsvirkjun komi til móts við ál- verið á meðan heimsmarkaðsverð á áli sé enn lágt. „Áður fyrr tók raforkuverð mið af álverði, en það datt út úr síðustu samningum við Landsvirkjun.“ ISAL fær ekki leyfi að utan til að skrifa undir kjarasamning Reinhold Richter Kolbeinn Gunnarsson Alvarleg staða í Straumsvík
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.