Morgunblaðið - 13.02.2020, Page 8

Morgunblaðið - 13.02.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020 Forstjóri Landsvirkjunar segir„alveg ótímabært“ að ræða hvaða mögulegu afleiðingar lokun álversins í Straumsvík myndi hafa á rekstur Landsvirkj- unar. Bendir hann á að samtal sé að hefjast á milli orkusal- ans og orkukaupandans um ástæð- ur erfiðleika orkukaupandans og mögulega hefjist viðræður um orkuverð í kjölfarið.    Þá sagði ráðherra iðnaðarmála ígær að of snemmt væri að ræða hvort ríkisstjórnin myndi grípa til einhverra aðgerða færi svo að ákveðið yrði að loka álverinu.    Þessi svör eru varfærin og komaekki á óvart, en óvíst er að þau dugi almenningi.    Líklegt er að almenningur teljieinmitt að nú sé rétti tíminn – og þótt fyrr hefði verið – til að ræða hver áhrif af lokun álversins í Straumsvík yrðu, á Landsvirkjun, starfsmenn fyrirtækisins, þá sem selja því þjónustu, sem og landið í heild sinni.    Hagsmunirnir sem í húfi eruhlaupa á milljarðatugum á ári. Slíkar tölur kalla á að staðan sé tekin alvarlega og rætt hvaða þýð- ingu fyrirtækið hafi og hvaða áhrif það hefði ef þess nyti ekki lengur við.    Hefur Landsvirkjun aðra kaup-endur að þeirri orku sem nú er seld til Straumsvíkur? Bíða önn- ur störf þeirra sem þar starfa? Landsmenn velta fyrir sér spurn- ingum af þessu tagi og fyrirtækið þeirra, Landsvirkjun, og ríkisvaldið geta aldrei orðið stikkfrí í svo stóru máli. Rétti tíminn er nú STAKSTEINAR Glæsilegar danskar innréttingar í öll herbergi heimilisins Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is Mán. – Fim. 10–18 Föstudaga. 10–17 Laugardaga. 11–15 Ferðaáætlun Ferðafélags Íslands 2020 er komin út Ferðafélag Íslands www.fi.is Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Rannsóknaskipið Árni Friðriksson hefur frá því á mánudag mælt loðnu norður með Austfjörðum. Líklegt er að gera þurfi hlé á leitinni við Langanes á morgun, föstudag, vegna slæms veðurútlits. Þátttaka útgerða veiðiskipa í þessari þriðju lotu loðnumælinga á árinu er í undirbúningi, en þau hafa tekið þátt í loðnumælingum ársins. Enn hefur ekki fundist nóg af loðnu til að gefa út veiðikvóta. Í mælingum á loðnustofninum í janúar mældist stærð hrygning- arstofnsins um 64 þúsund tonn. Lota tvö í loðnumælingum hófst 1. febr- úar og lauk henni um síðustu helgi. Talsvert meira fannst þá af loðnu og hafa 200-250 þúsund tonn verið nefnd í því sambandi. aij@mbl.is Frekari loðnumælingar undirbúnar  Árni Friðriksson leitar norður með Austfjörðum  Veðurútlit er slæmt Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Vertíð Loðnuhrogn eru verðmæt afurð, myndin er tekin í Saltveri. Veðurstofan hefur gefið út appels- ínugular viðvaranir vegna austan vonskuveðurs á landinu öllu á morgun, föstudag, er sérlega djúp lægð gengur yfir landið. Lægðin mun fyrst hafa áhrif á sunnanverðu landinu aðfaranótt föstudags, en síðan um allt land er líða fer á morguninn og fram eftir degi. Búast má við víðtækum sam- göngutruflunum á landinu og ekk- ert ferðaveður er á meðan viðvör- unin er í gildi. Við suðurströnd landsins má búast við því að vind- hviður við fjöll verði hættulegar og geti farið yfir 50 metra á sekúndu. Hætta er á foktjóni í öllum lands- hlutum. Appelsínugular viðvaranir vegna veðurs

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.