Morgunblaðið - 13.02.2020, Side 24

Morgunblaðið - 13.02.2020, Side 24
SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Lýðræðið gilti þegar Stuðmenn völdu þau 30 lög sem er á efnisskrá 50 ára afmælistónleika sveitarinnar sem haldnir verða í Hörpu nú á laugardaginn, 15. febrúar. Kosning var meðal liðsmanna hljómsveitar- innar um hvaða lög skyldu flutt auk þess sem söngvararnir fengu hver að velja sín tvö lög. Útkoman úr þessu er mikill bálkur; sannkölluð söngbók Íslendinga svo vel þekkir þjóðin lög- in eftir langa samfylgd með þessari ástsælu hljómsveit. Tónleikarnir á laugardag eru tvennir; hinir fyrri hefjast kl. 17 og þeir síðari kl. 21. Yfirskriftin er 50 frábær hár. Gleði Tómasar lifir Stuðmenn komu fyrst fram sem hljómsveit í Menntaskólanum í Hamrahlíð og upphafsdagurinn er 15. febrúar 1970. Sveitina í þeirri mynd skipuðu þeir Jakob Frímann Magnússon, Valgeir Guðjónsson, Gylfi Kristinsson og Ragnar Daniel- sen. Þeir tveir síðastnefndu hættu fljótlega og í staðinn kom Þórður Árnason. Á afmælistónleikunum eru þeir Jakob, Valgeir og Þórður í sveitinni og svo Egill Ólafsson, Ragnhildur Gísladóttir, Bryndís Jakobsdóttir, Ásgeir Óskarsson, Ey- þór Gunnarsson, Guðmundur Pét- ursson, Ingibjörg Elsa Turchi og Kristofer Rodriguez. „Hópurinn þekkist vel, svo ekki þarf að hrista neitt saman,“ segir Jakob Frímann Magnússon. „Stuð- mannafílingurinn er viðvarandi og fólk er með sitt á hreinu, svona í stórum dráttum. Húmorinn er alltaf til staðar og yfir svífur andi bassa- leikarans Tómasar Tómassonar sem nú er horfinn í aðra vídd. Á æfingum og giggum tryggði hann jafnan gleði og hlátur og færði okkur á ákveðna bylgjulengd. Í því liggur galdurinn meðal annars.“ Talið í og tónninn gefinn Hálf öld er langur tími, hvað þá í lífi hljómsveita sem fæstar starfa nema í fá ár eða misseri. „Fimmtíu ár upp á hár,“ segir Egill Ólafsson. „Svo getum við líka sagt um fimmtíu bláa skugga, 50 sumur á Sýrlandi, fimmtíu hreindýr, svín og endur og svo framvegis. Það má leika sér með ýmsa titla og stef.“ Talið var í og tóninn gefinn fyrir afmæli Stuðmanna á Rás 2 fyrir helgina þar sem hljómsveitin tók nokkur lög sem og í sjónvarpsþætt- inum Vikan með Gísla Marteini Baldurssyni á RÚV síðastliðið föstu- dagskvöld. Þar var meðal annars flutt lagið Elsku vinur eftir þá Auð- un Lúthersson upptökustjóra, Egil og Jakob, við texta Þórðar Árnason. Segja má að ferill Stuðmanna hafi byrjað fyrst af alvöru með plötunni Sumar á Sýrlandi sem út kom árið 1975. Lögin Úti á Stoppistöð, Strax í dag, Tætum og tryllum, Í bláum skugga og Söngur dýranna í Týról náðu strax flugi sem haldist hefur til þessa. Árið eftir kom svo platan Tí- volí. Árið 1982 náðu Stuðmenn svo heldur betur flugi með bíómyndinni Með allt á hreinu; meistarastykki sem hvert einasta mannsbarn af mörgum kynslóðum hefur séð og haft gaman af. Kalda stríðið fjaraði út Nokkrum árum síðar gerðu Stuð- menn svo kvikmyndina Hvítir mávar, sem rétt eins og fyrri mynd hafði sterkan pólitískan undirtón. Í Mávamyndinni voru í brennidepli bandaríski herinn og kalda stríðið – sem Stuðmenn áttu síðan sinn þátt í að brjóta á bak aftur. Einstætt þótti þegar sendiherrar Bandaríkjanna og Sovétmanna, þeir Marshall Brement og Evgeníj Koss- arov, komu fram með Stuðmönnum á skemmtun á nýársnótt 1986. Am- bassadorarnir sungu lagið Nótt í Moskvu og þótti framganga þeirra vitna um þíðu í samskiptum þjóða, enda fór svo að fáum mánuðum eftir söngatriði sendiherranna komu leið- togar austurs og vesturs til fundar í Reykjavík. Leið svo ekki á löngu að kalda stríðið fjaraði svo út. Áfram má svo tiltaka ýmis þau ævintýri sem Stuðmenn efndu til fyrr á árum sem vöktu athygli og vaka í minni þjóðar, svo sem upp- setning og framkoma á fjöldamörg- um tónlistarhátíðum og viðburðum svo sem á Þjóðhátíð í Eyjum, Atla- vík, Húsafelli og Húnaveri. Stuð- menn héldu í víking til Kína árið 1986, fyrst vestrænna hljómsveita sem þar hélt í alvöru tónleikaför um landið, sem stóð vikum saman. Lög sem slógu í gegn Árið 1987 efndu Stuðmenn til Lá- túnsbarkakeppninnar frægu þar sem Bjarni Arason söngvari sigraði og varð stórstjarna á Íslandi í kjöl- farið. Fleiri góðir söngvarar komu fram á sjónarsviðið í kjölfarið. Græni herinn var stofnaður af Stuðmönn- um árið 1998 og er enn að í þágu skógræktar og umhverfismála. Hljómsveitin sendi frá sér fjölda platna á níunda og tíunda áratugn- um með lögum sem slógu í gegn hvert af öðru. Hver man ekki eftir lögum á borð við Ofboðslega frægur, Betri tíð, Popplag G-dúr, Ekkert jafnast á við jazz og Engergí og trú svo nokkur lög frá þessum árum séu nefnd. Árið 2004 kom svo Stuð- mannamyndin Í takt við tímann, en brot í þeirri mynd var tekið upp á tónleikum sveitarinnar í Tívolí í Kaupmannahöfn árið áður. Aðra tónleika héldu Stuðmenn svo í Royal Albert Hall í London árið eftir, þá í Jazz Philharmonic Hall í Pétursborg og víðar um veröldina. Má svo lengi áfram telja sögur og ævintýri af Stuðmönnum, sem eru hljómsveit án hliðstæðna. Hljómsveit án hliðstæðna  Afmælistónleikar Stuðmanna í Hörpu  50 frábær hár  Söngbók Íslendinga  Hvítir mávar og Betri tíð Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Stuðmenn F.v. Kristofer Rodriguez, Ásgeir Óskarsson, Ingibjörg Elsa, Valgeir Guðjóns, Ragnhildur Gísladóttir, Guðmundur Pétursson, Eyþór Gunnarsson, Bryndís Jakobsdóttir, Jakob Frímann, Þórður Árnason og Egill Ólafs. Sendiherrar Sovétmaðurinn Evgeníj Kossarov og Marshall Brement frá Bandaríkjunum syngja með Jakobi Frímanni á skemmtun á nýársnótt 1986. Kabarett Í góðum gír í gamla daga. Stuðmenn bæta, hressa og kæta. 24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020 ÞAÐ TEKUR AÐEINS UM 30 SEK. AÐ SKIPTA UM POKA Paxxo Longopac flokkunarkerfið er byltingarkennd lausn í sjálfbærri flokkun. Paxxo er sænskur framleiðandi í fremstu röð á sínu sviði í heiminum. Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | rekstrarland.is COMMERZ H: 100 cm B: 107,5 cm D: 44 cm MINI BULLET H: 86 cm B: 38 cm D: 20 cm LONGOSTAND MINI H: 100 cm B: 107,5 cm D: 44 cm 132.230 KR. VERÐ ÁÐUR 188.900 KR. 27.923 KR. VERÐ ÁÐUR 39.890 KR. 9.023 KR. VERÐ ÁÐUR: 12.890 KR. SJÁLFBÆR FLOKKUN SORPS ER KRAFA OPIÐ ALLA VIRKA DAGA KL. 8–1730% AFSLÁTTUR AF STÖNDUM Í FEBRÚAR „Katalógurinn er stór,“ segir Egill Ólafsson um Stuðmanna- lögin. Þeim má ef til vill líkja við risastóran konfektkassa; mol- arnir eru margir og úr nægu að velja. Kúnstin er hins vegar að velja þá sem bragðast best, eins og verður gert – þó að smekkur fólks sé auðvitað misjafn. „Stuðmannalögin eru á fjórða hundrað og við skulum gefa okkur að hvert þeirra sé þrjár mínútur. Það gera að minnsta kosti 900 mínútur eða fimmtán klukkustundir. Því var úr nægu að velja fyrir tónleikana,“ segir Egill Ólafsson. Jakob Frímann Magnússon hefur í áranna rás verið tals- maður hinnar vinsælu hljóm- sveitar og hugmyndasmiður að mörgu í leik hennar og list. „Það sem knýr Stuðmenn áfram er sú gleði sem fylgir skapandi sam- vinnu. Þetta er orðin ansi langlíf samvinnuhreyfing, eins konar síðari tíma SÍS. Skapandi ís- lensk samvinnuhreyfing.“ Stóri konfekt- kassinn 900 MÍNÚTUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.