Morgunblaðið - 13.02.2020, Side 24
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Lýðræðið gilti þegar Stuðmenn
völdu þau 30 lög sem er á efnisskrá
50 ára afmælistónleika sveitarinnar
sem haldnir verða í Hörpu nú á
laugardaginn, 15. febrúar. Kosning
var meðal liðsmanna hljómsveitar-
innar um hvaða lög skyldu flutt auk
þess sem söngvararnir fengu hver að
velja sín tvö lög. Útkoman úr þessu
er mikill bálkur; sannkölluð söngbók
Íslendinga svo vel þekkir þjóðin lög-
in eftir langa samfylgd með þessari
ástsælu hljómsveit. Tónleikarnir á
laugardag eru tvennir; hinir fyrri
hefjast kl. 17 og þeir síðari kl. 21.
Yfirskriftin er 50 frábær hár.
Gleði Tómasar lifir
Stuðmenn komu fyrst fram sem
hljómsveit í Menntaskólanum í
Hamrahlíð og upphafsdagurinn er
15. febrúar 1970. Sveitina í þeirri
mynd skipuðu þeir Jakob Frímann
Magnússon, Valgeir Guðjónsson,
Gylfi Kristinsson og Ragnar Daniel-
sen. Þeir tveir síðastnefndu hættu
fljótlega og í staðinn kom Þórður
Árnason. Á afmælistónleikunum eru
þeir Jakob, Valgeir og Þórður í
sveitinni og svo Egill Ólafsson,
Ragnhildur Gísladóttir, Bryndís
Jakobsdóttir, Ásgeir Óskarsson, Ey-
þór Gunnarsson, Guðmundur Pét-
ursson, Ingibjörg Elsa Turchi og
Kristofer Rodriguez.
„Hópurinn þekkist vel, svo ekki
þarf að hrista neitt saman,“ segir
Jakob Frímann Magnússon. „Stuð-
mannafílingurinn er viðvarandi og
fólk er með sitt á hreinu, svona í
stórum dráttum. Húmorinn er alltaf
til staðar og yfir svífur andi bassa-
leikarans Tómasar Tómassonar sem
nú er horfinn í aðra vídd. Á æfingum
og giggum tryggði hann jafnan gleði
og hlátur og færði okkur á ákveðna
bylgjulengd. Í því liggur galdurinn
meðal annars.“
Talið í og tónninn gefinn
Hálf öld er langur tími, hvað þá í
lífi hljómsveita sem fæstar starfa
nema í fá ár eða misseri. „Fimmtíu
ár upp á hár,“ segir Egill Ólafsson.
„Svo getum við líka sagt um fimmtíu
bláa skugga, 50 sumur á Sýrlandi,
fimmtíu hreindýr, svín og endur og
svo framvegis. Það má leika sér með
ýmsa titla og stef.“
Talið var í og tóninn gefinn fyrir
afmæli Stuðmanna á Rás 2 fyrir
helgina þar sem hljómsveitin tók
nokkur lög sem og í sjónvarpsþætt-
inum Vikan með Gísla Marteini
Baldurssyni á RÚV síðastliðið föstu-
dagskvöld. Þar var meðal annars
flutt lagið Elsku vinur eftir þá Auð-
un Lúthersson upptökustjóra, Egil
og Jakob, við texta Þórðar Árnason.
Segja má að ferill Stuðmanna hafi
byrjað fyrst af alvöru með plötunni
Sumar á Sýrlandi sem út kom árið
1975. Lögin Úti á Stoppistöð, Strax í
dag, Tætum og tryllum, Í bláum
skugga og Söngur dýranna í Týról
náðu strax flugi sem haldist hefur til
þessa. Árið eftir kom svo platan Tí-
volí. Árið 1982 náðu Stuðmenn svo
heldur betur flugi með bíómyndinni
Með allt á hreinu; meistarastykki
sem hvert einasta mannsbarn af
mörgum kynslóðum hefur séð og
haft gaman af.
Kalda stríðið fjaraði út
Nokkrum árum síðar gerðu Stuð-
menn svo kvikmyndina Hvítir
mávar, sem rétt eins og fyrri mynd
hafði sterkan pólitískan undirtón. Í
Mávamyndinni voru í brennidepli
bandaríski herinn og kalda stríðið –
sem Stuðmenn áttu síðan sinn þátt í
að brjóta á bak aftur.
Einstætt þótti þegar sendiherrar
Bandaríkjanna og Sovétmanna, þeir
Marshall Brement og Evgeníj Koss-
arov, komu fram með Stuðmönnum
á skemmtun á nýársnótt 1986. Am-
bassadorarnir sungu lagið Nótt í
Moskvu og þótti framganga þeirra
vitna um þíðu í samskiptum þjóða,
enda fór svo að fáum mánuðum eftir
söngatriði sendiherranna komu leið-
togar austurs og vesturs til fundar í
Reykjavík. Leið svo ekki á löngu að
kalda stríðið fjaraði svo út.
Áfram má svo tiltaka ýmis þau
ævintýri sem Stuðmenn efndu til
fyrr á árum sem vöktu athygli og
vaka í minni þjóðar, svo sem upp-
setning og framkoma á fjöldamörg-
um tónlistarhátíðum og viðburðum
svo sem á Þjóðhátíð í Eyjum, Atla-
vík, Húsafelli og Húnaveri. Stuð-
menn héldu í víking til Kína árið
1986, fyrst vestrænna hljómsveita
sem þar hélt í alvöru tónleikaför um
landið, sem stóð vikum saman.
Lög sem slógu í gegn
Árið 1987 efndu Stuðmenn til Lá-
túnsbarkakeppninnar frægu þar
sem Bjarni Arason söngvari sigraði
og varð stórstjarna á Íslandi í kjöl-
farið. Fleiri góðir söngvarar komu
fram á sjónarsviðið í kjölfarið. Græni
herinn var stofnaður af Stuðmönn-
um árið 1998 og er enn að í þágu
skógræktar og umhverfismála.
Hljómsveitin sendi frá sér fjölda
platna á níunda og tíunda áratugn-
um með lögum sem slógu í gegn
hvert af öðru. Hver man ekki eftir
lögum á borð við Ofboðslega frægur,
Betri tíð, Popplag G-dúr, Ekkert
jafnast á við jazz og Engergí og trú
svo nokkur lög frá þessum árum séu
nefnd. Árið 2004 kom svo Stuð-
mannamyndin Í takt við tímann, en
brot í þeirri mynd var tekið upp á
tónleikum sveitarinnar í Tívolí í
Kaupmannahöfn árið áður. Aðra
tónleika héldu Stuðmenn svo í Royal
Albert Hall í London árið eftir, þá í
Jazz Philharmonic Hall í Pétursborg
og víðar um veröldina. Má svo lengi
áfram telja sögur og ævintýri af
Stuðmönnum, sem eru hljómsveit án
hliðstæðna.
Hljómsveit
án hliðstæðna
Afmælistónleikar Stuðmanna í
Hörpu 50 frábær hár Söngbók
Íslendinga Hvítir mávar og Betri tíð
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stuðmenn F.v. Kristofer Rodriguez, Ásgeir Óskarsson, Ingibjörg Elsa, Valgeir Guðjóns, Ragnhildur Gísladóttir,
Guðmundur Pétursson, Eyþór Gunnarsson, Bryndís Jakobsdóttir, Jakob Frímann, Þórður Árnason og Egill Ólafs.
Sendiherrar Sovétmaðurinn Evgeníj Kossarov og Marshall Brement frá
Bandaríkjunum syngja með Jakobi Frímanni á skemmtun á nýársnótt 1986.
Kabarett Í góðum gír í gamla daga. Stuðmenn bæta, hressa og kæta.
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020
ÞAÐ TEKUR AÐEINS UM 30 SEK.
AÐ SKIPTA UM POKA
Paxxo Longopac flokkunarkerfið er byltingarkennd lausn
í sjálfbærri flokkun. Paxxo er sænskur framleiðandi
í fremstu röð á sínu sviði í heiminum.
Rekstrarland | Vatnagörðum 10 | 104 Reykjavík | Söluver 515 1100 | rekstrarland.is
COMMERZ
H: 100 cm
B: 107,5 cm
D: 44 cm
MINI BULLET
H: 86 cm
B: 38 cm
D: 20 cm
LONGOSTAND MINI
H: 100 cm
B: 107,5 cm
D: 44 cm
132.230 KR.
VERÐ ÁÐUR
188.900 KR.
27.923 KR.
VERÐ ÁÐUR
39.890 KR.
9.023 KR.
VERÐ ÁÐUR:
12.890 KR.
SJÁLFBÆR FLOKKUN
SORPS ER KRAFA
OPIÐ ALLA
VIRKA DAGA
KL. 8–1730%
AFSLÁTTUR
AF STÖNDUM
Í FEBRÚAR
„Katalógurinn er stór,“ segir
Egill Ólafsson um Stuðmanna-
lögin. Þeim má ef til vill líkja við
risastóran konfektkassa; mol-
arnir eru margir og úr nægu að
velja. Kúnstin er hins vegar að
velja þá sem bragðast best, eins
og verður gert – þó að smekkur
fólks sé auðvitað misjafn.
„Stuðmannalögin eru á fjórða
hundrað og við skulum gefa
okkur að hvert þeirra sé þrjár
mínútur. Það gera að minnsta
kosti 900 mínútur eða fimmtán
klukkustundir. Því var úr nægu
að velja fyrir tónleikana,“ segir
Egill Ólafsson.
Jakob Frímann Magnússon
hefur í áranna rás verið tals-
maður hinnar vinsælu hljóm-
sveitar og hugmyndasmiður að
mörgu í leik hennar og list. „Það
sem knýr Stuðmenn áfram er sú
gleði sem fylgir skapandi sam-
vinnu. Þetta er orðin ansi langlíf
samvinnuhreyfing, eins konar
síðari tíma SÍS. Skapandi ís-
lensk samvinnuhreyfing.“
Stóri konfekt-
kassinn
900 MÍNÚTUR