Morgunblaðið - 13.02.2020, Síða 25

Morgunblaðið - 13.02.2020, Síða 25
FRÉTTIR 25Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020 Á hluthafafundum félagsins fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. Atkvæðagreiðslur og kosningar verða einungis skriflegar á fundinum ef einhver atkvæðisbærra fundarmanna krefst þess. Stjórnarkjör skal þó jafnan vera skriflegt, ef tillögur koma fram um fleiri menn en kjósa skal um. Varðandi heimild til að krefjast hlutfalls- eða margfeldiskosningar við kjör stjórnar- manna vísast til 5. mgr. 18. gr. samþykkta félagsins. Krafa um hlutfalls- eða margfeldis- kosningu þarf að hafa borist stjórn að lágmarki fimm sólarhringum fyrir hluthafafund, eða fyrir klukkan 15:00 laugardaginn 7. mars 2020. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Ósk hluthafa um að fá að taka skriflega þátt í atkvæðagreiðslu, og fá þannig sendan atkvæðaseðil, skal hafa borist félaginu eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund. Hægt er að skila atkvæðaseðlum rafrænt til fjárfestatengils eða skila til skrifstofu félagsins á venjulegum opnunartíma (kl. 09:00 til 15:00) til og með miðvikudeginum 11. mars 2020. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á heimasíðu félagsins. Hluthafar eiga rétt á að fá ákveðið mál tekið til meðferðar á hluthafafundi og skal kröfu þar um fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun til stjórnar, sem berast skal skriflega eða rafrænt til fjárfestatengils í síðasta lagi kl. 14:30 þriðjudaginn 2. mars 2020. Hafi hluthafar krafist þess að tiltekið mál eða ályktun verði tekið fyrir verða endanleg dagskrá og tillögur uppfærð á vefsvæði félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfundinn. Hluthafar geta einnig á aðalfundinum sjálfum lagt fram spurningar er varða auglýsta dagskrárliði. Sérstök athygli er vakin á því að samkvæmt samþykktum félagsins ber að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega minnst 5 sólarhringum fyrir fundinn eða fyrir kl. 15:00 laugardaginn 7. mars 2020. Framboðum skal skila á skrifstofu Heimavalla hf. í Lágmúla 6, 108 Reykjavík (b.t. Erlendar Kristjánssonar, fjárfestatengils). Upplýsingar um framboð til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund sbr. 4. mgr. 18. gr. samþykkta félagsins auk þess sem þær verða aðgengilegar á vefsíðu félagsins: www.heimavellir.is/is/fyrir-fjarfesta/hluthafafundur. Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað án tillits til þess hversu margir sækja hann sbr. 12. gr. samþykkta félagsins. Aðalfundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn og atkvæðaseðlar, sem verða afhent á fundarstað, einnig á íslensku. Hluthafar, umboðsmenn og ráðgjafar þeirra hafa rétt til að sækja hluthafafundi í samræmi við reglur hlutafélagalaga. Umboðsmönnum ber að framvísa skriflegu, vottuðu og dagsettu umboði frá hluthafa (sjá umboðsform á heimasíðu Heimavalla www.heimavellir.is/is/fyrir-fjarfesta/hluthafafundur). Slík umboð geta lengst gilt í eitt ár frá dagsetningu þeirra. Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á aðalfundinn á fundarstað frá kl. 14:30 á fundardegi. Tilkynningar um framboð til stjórnar eða óskir um að fá ákveðin mál tekin til meðferðar skal senda á fjárfestatengil Heimavalla, Erlendur@Heimavellir.is. Framboðseyðublað má finna á vefsíðu félagsins www.heimavellir.is/is/fyrir-fjarfesta/hluthafafundur. Gögn vegna fundarins eru aðgengileg á skrifstofu félagsins í Lágmúla 6, 108 Reykjavík og á vefsvæði tengdu aðalfundi á heimasíðu félagsins: www.heimavellir.is/is/fyrir-fjarfesta/hluthafafundur, en endanleg dagskrá, tillögur og eyðublöð verða aðgengileg a.m.k. 14 dögum fyrir aðalfund. Reykjavík 13. febrúar 2020 Stjórn Heimavalla hf. Aðalfundur Dagskrá Drög að dagskrá fundarins er svohljóðandi, sbr. 14. gr. samþykkta félagsins: 1. Skýrsla stjórnar um rekstur félagsins sl. starfsár 2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt athugasemdum endur- skoðanda lagður fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um meðferð hagnaðar eða taps á liðnu reikningsári. 4. Tillaga stjórnar um starfskjara- stefnu lögð fram til staðfestingar. 5. Stjórnarkjör 6. Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags. 7. Tillaga um þóknun til stjórnar- manna og undirnefndar stjórnar fyrir komandi starfsár. 8. Tillaga stjórnar um lækkun hlutafjár. a. Lækkun hlutafjár með lækkun á eigin hlutum b. Lækkun hlutafjár með greiðslu til hluthafa 9. Heimild stjórnar til að kaupa eigin hluti í félaginu í því skyni að setja upp formlega endurkaupa- áætlun, gera tilboð til hluthafa eða kaupa hluta eigin hlutabréfa í einum viðskiptum. Heimild stjórnar skal að hámarki gilda í 14 mánuði og takmarkast að hámarki við 10% af hlutafé félagsins. 10. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem löglega eru upp borin. heimavellir.is Stjórn Heimavalla hf. boðar til aðalfundar í félaginu og verður hann haldinn á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík fimmtudaginn 12. mars 2020. Fundurinn hefst stundvíslega kl. 15:00 á annarri hæð í sal I og H, húsið opnar kl: 14:30. Heimavellir hf. Opnað hefur verið fyrir umsóknir um sumarstörf hjá Reykjavíkur- borg. Þetta kemur fram í tilkynn- ingu á vef borgarinnar í gær. Ýmis störf eru í boði og eru allir áhuga- samir hvattir til að sækja um. Sumarstörfin eru fyrir 17 ára og eldri en misjafnt getur verið eftir störfum hvaða aldurstakmark á við, segir í tilkynningunni. Almennt þurfa umsækjendur að hafa náð 20 ára aldri til þess að vera ráðnir leiðbeinendur á sumarnám- skeiðum eða við öryggisstörf. Hjá Vinnuskóla Reykjavíkur er lág- marksaldur leiðbeinenda 22 ár en aðstoðarleiðbeinenda 20 ár. Umsóknarfresturinn rennur út 26. febrúar en byrjað verður að vinna með umsóknir eftir að um- sóknarfresti lýkur. Sótt er um störf- in á vef Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is. „Hægt er að sækja um margvísleg störf sem snerta daglegt líf borg- arbúa með ýmsum hætti með það að leiðarljósi að gera Reykjavíkurborg að lifandi og fallegri borg sem veitir borgarbúum á öllum aldri þjónustu,“ segir í tilkynningunni. sisi@mbl.is Opnað fyrir umsóknir um sumarstörf  Ýmis störf eru í boði hjá borginni Morgunblaðið/Eggert Gaman í garðinum Leitað er m.a. eftir leiðbeinendum hjá Vinnuskólanum. Hjá Vegagerðinni hafa verið opnuð tilboð í dýpkunarverkefni á Akur- eyri og á Dalvík. Hafnasamlag Norðurlands og Hafnarsjóður Dalvíkurbyggðar óskuðu eftir til- boðum í verkin. Tvö tilboð bárust. Björgun ehf., Reykjavík, bauðst til að vinna verkin fyrir 86,2 milljónir og Hagtak hf., Hafnarfirði bauð 157,4 milljónir. Áætlaður verktakakostnaður var 87.8 milljónir króna. Á Akureyri felst verkið í dýpkun við Tangarbryggju, alls 18.500 rúm- metrar og efnisvinnslu við ósa Gler- ár, alls 7.300 rúmmetrar. Á Dalvík verður dýpkað innan hafnar, alls 8.816 rúmmetrar. Skip í rekstri Björgunar eru dæluskipin Sóley og Dísa, efnisflutn- ingapramminn Pétur Mikli og gröfu- pramminn Reynir. sisi@mbl.is Morgunblaðið/sisi Dýpkun Pétur Mikli og gröfupramm- inn Reynir vinna í Reykjavíkurhöfn. Björgun átti lægsta tilboð í dýpkun Tilkynnt var nýverið til lögregl- unnar á Suðurnesjum um þjófnað á dósum úr bílakerru á lokuðu bygg- ingarsvæði. Eigandinn, sem var staddur úti á landi, sá í öryggis- myndavélakerfi sem beintengt er við farsíma hans, hvar tveir menn komu með barnakerru, fylltu hana af dósum og höfðu sig síðan á brott. Þetta léku þeir ítrekað. Miklu magni hafði verið safnað á kerruna á löngum tíma og er talið að verðmæti dósanna nemi allt að 40-50 þúsund kr. Lögregla leitar mannanna. Þá var Jameson-viskíflösku stolið úr vínbúð. Sá fingralangi fannst en hann hafði þá ásamt vinum sínum klárað úr flöskunni. Dósir í barnakerru og viskíflösku stolið Norski bankinn DNB hefur sagt upp viðskiptum sínum við Sam- herja. Norska ríkisútvarpið NRK greindi fyrst frá þessu í gær og fjallaði einnig um að efnahags- brotadeild norsku lögreglunnar, Ökokrim, rannsakaði færslur tengdar Samherja. „Það gerðist um áramótin,“ segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Samherja, við mbl.is um ákvörðun DNB. „Við vorum búin að vinna að því að svara spurningum frá þeim í tengslum við þessi viðskipti þannig að við reiknuðum með þessu og undirbjuggum okkur hvað þetta varðaði. Þetta hefur ekki haft nein áhrif á Samherja,“ segir hann. „Það liggur fyrir að að bankinn er til rannsóknar hjá Ökokrim. Ég ímynda mér að það sé vegna ætlaðs peningaþvættis og þeirra ásakana sem hafa komið fram á Samherja í þættinum Kveik og að það hafi haft þessi áhrif og leitt til þessa – án þessi að ég geti fullyrt það,“ segir Björgólfur og bætir við: „En það er hins vegar spaugilegt að Samherji á töluverðan hlut í sjávarútvegsfyrir- tæki í Noregi og þeir hjá DNB hafa nálgast þetta félag með viðskipti í huga. Þannig að maður veltir því fyrir sér hvað þetta ristir djúpt.“ DNB hefur sagt upp viðskiptum sínum við Samherja

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.