Morgunblaðið - 13.02.2020, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 13.02.2020, Qupperneq 28
Klippt og beygt fyrirminni og stærri verk ÍSHELLU 1 | HAFNARFIRÐI | S. 534 1500 | KAMBSTAL.IS 28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020 ÚR BÆJARLÍFINU Margrét Þóra Þórsdóttir Eyjafirði „Þegar verið er að skoða mögu- leika á nýrri atvinnuuppbyggingu þurfa þessi mál að vera klár,“ segir Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri í Grýtubakkahreppi, en sveitarstjórn hefur falið honum að senda erindi til Norðurorku vegna hitaveitu en fé- lagið rekur hitaveitu í hreppnum. Sveitarfélagið sjálft hefur umsjón með rekstri vatnsveitu. Fjallað var um málefni vatns- og hitaveitu á fundi sveitarstjórnar Grýtubakka- hrepps á dögunum þar sem fram kom að það væri óviðunandi að vatnsskortur hamli atvinnu- uppbyggingu, en einnig að sveitar- stjórn reikni með að Norðurorka muni sinna þörfum atvinnulífs í hreppnum til framtíðar.    Vatnsból hafa verið byggð upp á liðnum árum í Grýtubakkahreppi en þrátt fyrir það gæti þurft frekari öfl- un neysluvatns komi til verulegrar atvinnuuppbyggingar. Sveitarstjóra hefur verið falið að skoða möguleika á frekari vatnsöflun. Þröstur segir samfélagið ekki búa við vatnsskort um þessar mund- ir, þó bæði hita- og vatnsveita standi tæpt einhverja daga á ári. Hitaveita þegar kaldast er að vetri en vatns- veita getur orðið tæp síðla vetrar ef tíðarfar hvað úrkomu varðar hefur verið óhagstætt um haust og vetur. „Við erum að horfa til fram- tíðar. Þetta hefur ekki verið vanda- mál til þessa en þegar verið er að skoða möguleika á nýrri atvinnu- uppbyggingu þurfa þessi mál að vera klár. Bókun sveitarstjórnar má því líta á sem eðlilega vinnu við að undirbyggja og tryggja framtíðina,“ segir Þröstur.    Veitingahúsið Kontorinn á Grenivík hætti starfsemi síðastliðið haust og leita heimamenn nú að ein- hverjum áhugasömum til að reka það. „Aðstaðan fyrir þann sem lang- ar að prófa er fín, húsnæðið klárt með húsgögnum og vel búnu eldhúsi. Það eru ýmsir möguleikar fyrir hendi fyrir duglegt og útsjónarsamt fólk,“ segir Þröstur sveitarstjóri í Grýtubakkahreppi. Húsið sem um ræðir er 138 fermetrar að stærð og stendur við Túngötu 1-3.    Innar í Eyjafirði, nánar til tekið á Öngulsstöðum í Eyjafjarðarsveit, hefur ferðaþjónusta verið rekin um árabil, bæði gisting og veitinga- staður. Þar eru breytingar fram- undan. Fjölskylda Jóhannesar Geirs Sigurgeirssonar hefur haldið á spöð- unum fram til þessa, en í vor eru væntanleg bandarísk hjón, Auroru og Matthew Wickstrom, sem ætla að sjá um reksturinn. Þau koma frá Portland, Oregon í Bandaríkjunum þar sem þau eru virk í veitingahúsa- bransanum, reka veitingaþjónustu, hafa unnið á toppveitingastöðum og hlotið fjölda viðurkenninga. Veitingareksturinn verður tví- skiptur, þ.e. annars vegar veitinga- og kaffihús með nafninu Lamb Inn Fimbul Kaffi og hins vegar Lamb Inn Nanna sem einbeitir sér að margrétta matarupplifun og skipu- lagningu slíkra viðburða. Staðurinn er nefndur eftir Nönnu Rögnvald- ardóttur, matgæðingi og höfundi fjölda bóka um mat og matarmenn- ingu. Aurora og Matt eru Íslands- vinir miklir og hafa verið tíðir gestir í Eyjafirði undanfarin ár. Þau bjuggu um tíma í Reykjavík og Matt starfaði á Dill þegar staðurinn fékk hina eftirsóttu Michelin-stjörnu. Til marks um ástfóstur þeirra á landinu heitir veitingastaður þeirra í Port- land íslensku nafni, Fimbul, og sömuleiðis tveggja ára dóttir þeirra, Freyja.    Ferðaþjónustuaðilar í Eyja- fjarðarsveit stefna að því að koma á fót svonefndum Matarstíg í sveitar- félaginu og stefnt að því að efna til stofnfundar í byrjun mars. „Okkar markmið er að búa til mataráfangastað í hæsta gæðaflokki þar sem matvælaframleiðendur og veitingaaðilar í Eyjafjarðarsveit leiða saman hesta sína,“ segir Karl Jónsson, einn þeirra sem eru í undir- búningshópi vegna Matarstígsins. Nokkrir ferðaþjónustuaðilar í Eyja- fjarðarsveit fóru til Skotlands fyrir fáum misserum og kynntu sér starf- semi matarstígs þar í landi og segir Karl að eyfirski matarstígurinn sé að stórum hluta að fyrirmynd Skota. Um er að ræða stíginn Mull and Iona Food Trail en hann liggur um samliggjandi eyjar undan vestur- strönd Skotlands.    Fæstir íbúar Hörgársveitar búa svo vel að hafa hitaveitu í húsum sín- um. Gjöful hola með heitu vatni er við Hjalteyri og hefur síðustu tvö ár verið unnið við að leggja lögn frá Akureyri og að henni. Sú vinna stendur enn yfir. Orkustofnun ósk- aði eftir umsögn sveitarstjórnar Hörgársveitar vegna umsóknar Norðurorku sem stendur fyrir fram- kvæmdunum um nýtingarleyfi fyrir jarðhitasvæðið á Hjalteyri. „Hörgársveit telur óviðunandi að íbúar sveitarfélagsins þurfi að sæta svo löku hlutskipti þegar gjöful jarðhitasvæði eru innan sveitar- félagsmarkanna,“ segir í umsögn sveitarstjórnar og því er beint til rétthafa nýtingarleyfisins að það vatn sem unnið er við Hjalteyri sé í auknum mæli nýtt til að mæta þörf innan sveitarfélagsins, svo sem í Hörgárdal og Öxnadal.    Félagar í Lionsklúbbnum Hræ- reki og Kvenfélaginu Hvöt hafa fært Félagsheimilinu Árskógi í Dalvík- urbyggð rausnarlega gjöf, hjarta- stuðtæki. Því verður komið fyrir í fé- lagsheimilinu og er tilgangur þess að unnt sé að bregðast við strax fái ein- staklingur hjartastopp og á meðan beðið er eftir aðstoð frá viðbragðs- aðilum. Tilkoma tækisins eykur öryggi bæði fyrir starfsfólk og eins nem- endur í Árskógsskóla auk þeirra sem sækja hina ýmsu viðburði í Ár- skógi. Morgunblaðið/Margrét Þóra Grenivík Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps segir óviðunandi að vatnsskortur hamli atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Heitt vatn og kalt, matur, matarupp- lifun og matarstígur Matarupplifun Karl Jónsson hjá Lamb inn þjónar hér Steingrími Birgissyni og Þorvaldi Lúðvík. 595 1000 . heimsferdir.is NÁNAR Á HEIMSFERDIR.IS Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. Birgitte Bengtsson Fararstjóri er Verð frá kr. 168.995 BENIDORM60+ 19. APRÍL Í 16 EÐA 19 NÆTUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.