Morgunblaðið - 13.02.2020, Qupperneq 32
32 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020
Verndum
Elliðaárdalinn
Tryggjum íbúakosningu – Farið inn á
www.ellidaardalur.is
-Hollvinasamtök Elliðaárdalsins
VIÐTAL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Sautján ár eru liðin frá því að tölvu-
leiknum Eve Online var hleypt af
stokkunum. Hann er enn í sókn og
flest bendir til þess að notendafjöld-
inn muni springa út á þessu ári.
Margt leggst þar á árarnar en opn-
un Kínamarkaðar skiptir miklu máli
að sögn Hilmars Veigars Péturs-
sonar, forstjóra fyrirtækisins, og
einnig sú staðreynd að nú hillir und-
ir að EVE Echoes, farsímaútgáfa af
leiknum, verði gerð aðgengileg spil-
urum um heim allan.
„Við erum að setja stefnuna á
Kína. Við byrjuðum þar árið 2006
með einföldu útgáfuna af EVE og
þar vorum við langt á undan okkar
samtíð. En það þarf sérstakt leyfi
fyrir þessa starfsemi í Kína og í
kjölfar þess að við skiptum um sam-
starfsaðila árið 2017 þar höfum við
þurft að bíða eftir því að fá nýtt
leyfi. Það átti að koma í fyrra en
mitt í ferlinu ákváðu stjórnvöld í
Kína að stokka allt leyfisveitingar-
ferlið upp og því hefur þetta
dregist.“
Öflugur samstarfsaðili í Kína
Nýja samstarfsfyrirtækið sem
Hilmar Veigar vísar til heitir Ne-
tease og er annað stærsta fyrirtækið
á þessum markaði í Kína.
„Það var gríðarlega mikilvægt að
landa samstarfinu við þá enda búa
þeir yfir gríðarlegri þekkingu á því
að taka leiki eins og okkar og koma
þeim á rétt form fyrir farsíma. Það
er ekki einfalt mál enda einfaldleik-
inn oft miklu flóknari en það sem
virðist flókið í fyrstu.“
Hilmar Veigar segir það hafa ver-
ið mjög skemmtilegt að kynnast
Kínverjunum í þessu samstarfi, en
Netease er jafn gamalt og CCP.
„Það er í raun ótrúlegt að tala við
sérfræðingana þeirra. Það liggur við
að þeir þekki EVE Online betur en
ég. Það kemur ekki síst til af því að
þeir voru margir hverjir að spila
þennan leik þegar þeir voru enn í
háskóla sjálfir. Það yljar manni bara
um hjartarætur að sjá hvað þessi
leikur hefur víða haft áhrif og
lengi.“
En innreið CCP á Kínamarkað
snýr ekki bara að símaútgáfunni.
Þar verður borðtölvuútgáfan einnig
markaðssett.
„Við gerum ráð fyrir því að mán-
aðarlegum notendum borðtölvu-
útgáfunnar fjölgi úr u.þ.b. 300 þús-
und í 500 þúsund til milljón. Það mat
er ekki úr lausu lofti gripið. Kín-
verski tölvuleikjamarkaðurinn er nú
orðinn mun stærri en sá banda-
ríski.“
Þá segir Hilmar Veigar að EVE
Online sé í ótrúlegri sókn, ekki síst
þegar litið er til þess hversu lengi
leikurinn hefur verið á markaðnum.
Tölur frá janúarmánuði yfir nýja
notendur vitna um þá grósku sem er
í „EVE-samfélaginu“ eins og það er
stundum kallað.
„Við sáum 100 þúsund nýja spil-
ara bætast við í spilarahópinn á
fyrsta mánuði ársins. Það er tvöföld-
un milli ára og raunar er það sjötti
besti mánuður í sautján ára sögu
leiksins þegar litið er til nýliðunar,“
segir Hilmar Veigar.
Þessi nýliðun bætist við talsverða
landvinninga sem urðu í kjölfar þess
að CCP staðfærði leikinn á síðasta
fjórðungi nýliðins árs fyrir sam-
félagið í Suður-Kóreu.
„Sú ákvörðun og nálgun á leikinn
hefur valdið því að 15% allra dag-
legra virkra notenda sem spila EVE
Online eru frá Suður-Kóreu. Það er
líka magnað að sjá hvað Kór-
eumennirnir taka vel í leikinn og
þeir helga sig honum meira en aðrir.
Hlutfall þeirra sem klára kennslu-
efni leiksins er næstum 20% hærra
þar en að meðaltali á heimsvísu.“
Segir Hilmar Veigar að þessar
tölur vitni um að sala fyrrverandi
eigenda CCP til Pearl Abyss í
Suður-Kóreu hafi verið hárrétt.
Síminn ryður nýjar brautir
Nú þegar CCP hefur ákveðið að
nema lönd í farsímaheiminum gæti
dreifing leiksins margfaldast frá því
sem áður var. Hilmar Veigar segir
raunar ótrúlegt að sjá viðtökurnar
sem EVE Echoes hafi fengið.
„Það hafa um tvær milljónir
manna forskráð sig að leiknum og
það er bara fyrir Android-símana.
Áætlanir okkar gera ráð fyrir því að
iPhone-notendurnir verði fleiri. Því
er sennilegt að notendur EVE
Echoes verði orðnir um fimm millj-
ónir áður en þetta ár er úti.“
Hilmar Veigar vill ekki nefna ná-
kvæma tölu þegar spurt er út í
mögulegar tekjur af útbreiðslu af
þessu tagi. Hann segir hins vegar að
þetta geti aukið arðsemi starfsem-
innar umtalsvert og að það muni
haldast í hendur við opnun mark-
aðarins í Kína. Gera megi ráð fyrir
að þróunarkostnaðurinn við far-
símaútgáfuna hlaupi á 30 til 40 millj-
ónum dollara.
Urðu af 12,7 milljörðum
Í september 2018 var tilkynnt að
leikjaframleiðandinn Pearl Abyss
hefði keypt CCP fyrir 425 milljónir
dollara eða jafnvirði 54 milljarða
króna miðað við gengi dollara gagn-
vart krónu nú. Leiðandi fjárfestir í
félaginu fram að sölunni var Nova-
tor Partners, sem hélt á 27,2% hlut,
og sjóðirnir General Catalyst Part-
ners og New Enterprise Associates.
Umtalsverður hluti söluandvirðis-
ins var bundinn árangri félagsins á
árunum 2019 og 2020. Þannig voru
100 milljónir dollara tengdar hvoru
ári. Hilmar Veigar segir að þær tafir
sem hafi orðið á innreið fyrir-
tækisins á markaðinn valdi því að
árangurstengda greiðslan fyrir ný-
liðið ár falli niður. Hins vegar geti
góður árangur í ár skilað allt að 100
milljónum dollara. Með því verði
söluvirði félagsins 325 milljónir doll-
ara.
„Það er auðvitað mjög dapurlegt
að þetta hafi farið svona en það sem
við erum að sjá í kortunum núna
bendir til þess að við getum tryggt
árangurstengdu greiðsluna fyrir
yfirstandandi ár og það skiptir
mestu máli.“ Gangi þær áætlanir
eftir verður söluverðið á CCP 41,3
milljarðar króna, eða 12,7 millj-
örðum lægra en lagt var upp með
þegar viðskiptin gengu í gegn.
Kórónuveiran hefur áhrif
Hilmar Veigar segir að CCP hafi
orðið fyrir áhrifum af hinni skæðu
veiru sem nú hefur lamað stóran
hluta Kína. Þannig hafi starfsmenn
fyrirtækisins í Kína unnið að mestu
heiman frá sér eftir að kunnugt varð
um útbreiðslu veirunnar. Þá sé ljóst
að meiri hægagangur sé í stjórn-
kerfinu þar í landi, sem aftur hafi
áhrif á fyrrnefnda leyfisveitingu
starfseminnar þar í landi.
Flytja í Grósku í mars
Hann segir þó að fyrirtækið sé í
miklum sóknarhug.
„CCP mun loksins flytja starf-
semi sína og um 200 starfsmenn hér
heima í sérhannaðar höfuðstöðvar í
Vatnsmýri í lok marsmánaðar.
Húsið Gróska er mitt á milli Ís-
lenskrar erfðagreiningar og Há-
skóla Íslands og það er sérhannað
með þarfir skapandi greina í huga.
Það er mikil eftirvænting hjá okkur
að komast þangað inn.“
Skömmu eftir flutninginn í
Grósku, eða 2. apríl, verður Fanfest-
hátíðin haldin í Hörpu í sextánda
sinn. Hilmar Veigar segir að hátíðin
snúi nú aftur til Reykjavíkur eftir að
henni var valinn staður í Las Vegas í
fyrra.
„Við búumst við þúsundum EVE
Online-spilara á staðinn og alls stað-
ar að úr heiminum.“
Stórir viðburðir fram undan
En fleiri stór verkefni bíða Hilm-
ars Veigars. Hann mun m.a. í vor
ávarpa nýtt EVE festival í Moskvu,
en markaðurinn þar í landi er mjög
vaxandi þegar kemur að fjölspil-
unarleikjum á borð við EVE Online.
Þá mun hann einnig flytja erindi á
London Games Festival þar sem
hann mun fjalla um „Eve-áhrifin“
svokölluðu. Rannsóknir fræðimanna
hafa leitt í ljós að sögn Hilmars
Veigars að hæfnin sem fólk öðlist
við að spila leikinn geti hjálpað því
að þróa áfram starfsferil sinn í raun-
heimum. Hilmar Veigar hefur staðið
vaktina lengi hjá CCP. Því er ekki
úr vegi að spyrja hvort hann sé ekki
farinn að hugsa sér til hreyfings.
Svarið við spurningunni er stutt og
laggott, eins og nafn leiksins góða.
„Nei.“
Gæti orðið stærsti símatölvuleikurinn
CCP fær gríðarleg viðbrögð við nýrri símaútgáfu af EVE Online Risamarkaður að opnast í Kína
100.000 nýir spilarar bættust við í janúar Söluandvirðið frá 2018 lækkar um 100 milljónir dollara
Uppbygging Hilmar Veigar Pétursson hefur lengi staðið í brúnni hjá CCP. Hann segir spennandi tíma fram undan.