Morgunblaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 61
ÍÞRÓTTIR 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020
„And now you‘re gonna be-
lieve us, were gonna win the
league,“ sungu stuðningsmenn
Liverpool eftir 2:0-sigur liðsins
gegn Manchester United á An-
field í Liverpool 19. janúar síðast-
liðinn. Með sigrinum fór Liver-
pool í 64 stig á toppi deildar-
innar og var með 16 stiga forskot
á Manchester City sem var í öðru
sæti deildarinnar en átti reyndar
leik til góða á Liverpool.
Tímabilið 2013-14 komst
Liverpool ansi nálægt því að
vinna deildina. Stuðningsmenn
Liverpool misstu sig í gleðinni
nokkuð snemma á því tímabili og
voru byrjaðir að kyrja „We‘re
gonna win the league“ í kringum
hátíðarnar. Liverpool vann 5:0-
útisigur gegn Tottenham á úti-
velli 15. desember 2013 og eftir
þann sigur ómaði söngur stuðn-
ingsmannanna út allt tímabilið.
Liverpool var í efsta sæti
deildarinnar eftir þann sigur,
ásamt Arsenal, en bæði lið voru
þá með 36 stig. Liverpool missti
hins vegar forskotið stuttu síðar
og var í fjórða sæti deildarinnar
um miðjan febrúar. 6. apríl 2014
vann Liverpool hins vegar 2:1-
útisigur á West Ham og skaust
upp fyrir Chelsea í efsta sæti
deildarinnar í 71 stig.
Þegar þrír leikir voru eftir af
tímabilinu var forskot Liverpool
fimm stig á Chelsea og sex stig á
Manchester City. Stuðnings-
menn Liverpool byrjuðu að fagna
en þeir fögnuðu allt of snemma
því á endanum vann City deildina
með tveggja stiga mun eftir
ótrúlegt hrun Liverpool-liðsins í
lokaleikjum tímabilsins.
Stuðningsmenn Liverpool
ákváðu greinilega í sameiningu
að „jinxa“ þetta ekki aftur og ég
held að þeim sé nokkuð óhætt
að syngja og fagna Englands-
meistaratitlinum í dag.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
KÖRFUBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Í kvöld skýrist hvaða lið mætast í
úrslitum Geysisbikars kvenna í
körfuknattleik í Laugardalshöllinni
á laugardaginn. Undanúrslitaleik-
irnir fara þar fram í dag og í kvöld.
Nú háttar svo til að fjögur efstu liðin
á Íslandsmótinu mætast í undan-
úrslitum bikarkeppninnar en slík
staða er fremur sjaldgæf.
Tvö efstu liðin mætast í fyrri leik
dagsins en það eru Valur og KR en
Valur á titil að verja í keppninni. Sex
stigum munar á þeim í Dominos-
deildinni og Morgunblaðið spjallaði
við landsliðskonurnar Guðbjörgu
Sverrisdóttur hjá Val og Hildi
Björgu Kjartansdóttur hjá KR á
blaðamannafundi í vikunni.
Ljúfar minningar
Guðbjörg segir að mæta þurfi
bestu liðunum á einhverjum tíma-
punkti í slíkum keppnum.
„Mér líst mjög vel á þetta og það
er skemmtilegt að spila svona leiki.
Er ekki talað um að maður þurfi að
mæta bestu liðunum til að verða
bestur?“
Tímamót urðu hjá Val fyrir ári
þegar Guðbjörg og samherjar henn-
ar urðu bikarmeistarar. Ekki var
það einungis fyrsti bikarmeistaratit-
ill kvennaliðs Vals í körfuknattleik
heldur fyrsti stóri sigur kvennaliðs
Vals í íþróttinni. Þegar uppi var
staðið átti liðið eftir að vinna þrefalt
eins og frægt varð. Minningarnar í
fyrra kveikja neista hjá leikmönnum
Vals í aðdraganda leiksins gegn KR.
„Jú, svo sannarlega. Þessi tilfinn-
ing er með þeim betri sem þú getur
upplifað og erfitt að lýsa henni öðru-
vísi en sem fullkominni hamingju.
Þegar maður er með sigurinn í fyrra
á bak við eyrað, og sér bikarinn
núna á blaðamannafundi, þá fær
maður kitl í puttana,“ sagði Guð-
björg, sem á ekki von á öðru en að
liðið fái góðan stuðning í Höllinni í
dag.
„Já, ég held að við megum búast
við fullt af Völsurum uppi í stúku.
Hjá félaginu er verið að gera vel og
ég á ekki von á öðru en að Valsarar
mæti og styðji við okkur.“
Snýr aftur eftir sex ára hlé
Hildur Björg Kjartansdóttir hefur
styrkt lið KR verulega í vetur en
hún snéri síðasta sumar eftir sex ára
dvöl erlendis. KR náði að veita Val
ágæta keppni í úrslitakeppni Ís-
landsmótsins í fyrra og með Hildi
innanborðs virðist styrkleika-
munurinn á liðunum hafa minnkað.
„Við höfum spilað skemmtilega
leiki við Val í vetur þótt okkur hafi
ekki tekist að klára dæmið í þeim
leikjum. Mér líst því mjög vel á að
mæta Val og held að þetta verði góð-
ur leikur,“ sagði Hildur þegar
Morgunblaðið tók hana tali.
„Við höfum spilað þrisvar á móti
þeim og höfum áttað okkur betur á
því hvað hentar okkur vel og hvað
hentar ekki á móti Val. Við erum að
vinna í þeim þáttum en aðalatriðið er
að okkur takist að spila okkar besta
leik í 40 mínútur. Ef það tekst hef ég
trú á því að úrslitin verði góð.“
Hildur hefur ekki leikið með fé-
lagsliði í Laugardalshöllinni í langan
tíma en hefur látið þar að sér kveða í
landsleikjum. Hildur lék með Snæ-
felli á sínum tíma en hélt þaðan til
Bandaríkjanna í háskóla og lék á
Spáni í tvö ár.
„Ég er mjög spennt enda spilaði
ég sennilega síðast með félagsliði í
Höllinni árið 2014. Maður fylgist
alltaf vel með bikarhelginni, jafnvel
þótt maður búi erlendis. Stemningin
er alltaf mikil og margt í gangi. Ég
hlakka því mikið til að upplifa bikar-
stemninguna aftur.“
Tveimur stigum munar
á Haukum og Skallagrími
Haukar og Skallagrímur eru þau
lið sem koma næst á eftir Val og KR
í Dominos-deildinni. Haukar eru í 3.
sæti og Skallagrímur í 4. sæti en að-
eins munar tveimur stigum á lið-
unum. Sú viðureign gæti því orðið
mjög jöfn og spennandi.
Liðin mættust síðast hinn 8. jan-
úar í Borgarnesi og Skallagrímur
vann 73:59. Skallagrímur vann stór-
sigur á Ásvöllum 22. nóvember 83:55
en Haukar unnu fyrsta leik liðanna í
vetur 72:66. Báðum þessum liðum er
stjórnað af konum en það gerist ekki
á hverjum degi að tvær konur mæt-
ist sem þjálfarar í undanúrslita-
leikjum í bikarkeppnum á Íslandi.
Ólöf Helga Pálsdóttir er þjálfari
Hauka og Guðrún Ósk Ámunda-
dóttir þjálfar Skallagrím.
Lið Hauka hefur leikið vel í upp-
hafi nýs árs og er á mun betra róli en
þegar liðið tapaði illa fyrir Skalla-
grími í nóvember. Liðið hefur unnið
fimm af sjö leikjum sínum í deildinni
á árinu. Skallagrímur hefur unnið
fjóra af síðustu sex leikjum sínum í
deildinni og bæði liðin því í ágætum
málum.
Fjögur efstu liðin eru eftir
Undanúrslitin í bikarkeppni kvenna í kvöld Konur mætast sem þjálfarar liða
Hauka og Skallagríms Slagur toppliðanna og erkifjendanna í höfuðborginni
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stórleikur Valskonan Kiana Johnson og KR-ingurinn Hildur Björg Kjart-
ansdóttir mætast í fyrri undanúrslitaleik dagsins í Laugardalshöllinni.
Knattspyrnudeild Selfoss hefur
samið við bandaríska leikmanninn
Tiffany McCarty og mun hún leika
með kvennaliði félagsins í sumar.
McCarty er 29 ára framherji sem
hefur stærstan hluta ferilsins leikið
í bandarísku atvinnumannadeild-
inni, með Washington Spirit, Hou-
ston Dash og Kansas City. Þá hefur
hún einnig leikið með Albirex
Ladies í japönsku úrvalsdeildinni
og Medkila í efstu deild í Noregi.
McCarty á að baki landsleiki með
yngri landsliðum Bandaríkjanna,
síðast með U23 ára liðinu árið 2013.
Reyndur fram-
herji til Selfoss
Reynd Tiffany McCarty hefur leikið
með sterkum liðum vestanhafs.
Ásdís Hjálmsdóttir Annerud var
hársbreidd frá því að slá Íslands-
met sitt í kúluvarpi kvenna innan-
húss í fyrradag þegar hún keppti á
sænsku Grand Prix-móti í Sätra-
höllinni í Stokkhólmi. Ásdís varð í
fimmta sæti í kúluvarpinu og kast-
aði 16,18 metra en hefur áður kast-
að 16,19 metra innanhúss. Íslands-
met hennar utanhúss er 16,53
metrar. Fanny Roos, Evrópumeist-
ari 23 ára og yngri, vann keppnina
með yfirburðum, kastaði 18,19
metra, en Vésteinn Hafsteinsson
þjálfar hana.
Ásdís rétt hjá
Íslandsmetinu
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Kúluvarp Ásdís Hjálmsdóttir kastar
langt þessa dagana.
Patrekur Jóhannesson hefur verið
ráðinn þjálfari Stjörnunnar í hand-
knattleik til næstu þriggja ára. Pat-
rekur tekur formlega við liðinu næsta
sumar en þjálfarinn er uppalinn hjá
Stjörnunni og lék með liðinu á ár-
unum 1989 til 1994. Þá hóf hann þjálf-
araferil sinn í Garðabænum en hann
var aðstoðarþjálfari Stjörnunnar á
árunum 2005 til 2008 og aðalþjálfari
liðsins tímabilið 2009-2010.
„Ég er að koma inn í félag sem ég
þekki líklegast
best af öllum þeim
félögum sem ég
hef þjálfað og spil-
að með. Ég er
uppalinn í Stjörn-
unni, hef þjálfað
hérna og verið að-
stoðarþjálfari hjá
félaginu líka
þannig að ég hef
gengið í gegnum
ýmislegt hérna. Stjarnan er að standa
sig vel þessa stundina, sérstaklega
upp á síðkastið, og þeir eru sem dæmi
komnir í undanúrslit bikarkeppn-
innar sem sýnir manni að það býr
mikið í liðinu. Síðustu ár hafa hins
vegar verið upp og ofan en mark-
miðið mitt er að sjálfsögðu að koma
liðinu á hærri stall. Ég geri mér líka
grein fyrir því að það er verkefni sem
mun taka tíma en markmiðið hjá mér
er og verður alltaf að berjast í og við
toppinn. Eins vil ég hjálpa til þegar
kemur að innviðum Stjörnunnar og
umgjörðinni í kringum félagið. Það
er ekkert launungarmál að mætingin
á leikina, undanfarin ár, hefur verið
dræm og það er eitthvað sem við
þurfum að skoða vel. Ég ætla mér því
að koma inn af miklum krafti þegar
ég tek við liðinu næsta sumar.“ Ítar-
legt viðtal við Patrek má nálgast á
mbl.is/sport/handbolti.
bjarnih@mbl.is
Gengið í gegnum ýmislegt í Garðabæ
Patrekur Jóhannesson snýr aftur til Stjörnunnar næsta sumar eftir tíu ára fjarveru
Patrekur
Jóhannesson
Chelsea hefur
komist að sam-
komulagi við hol-
lenska félagið
Ajax um kaup á
marokkóska
knattspyrnu-
manninum Ha-
kim Ziyech í sum-
ar en talið er að
kaupverðið sé ríf-
lega 40 milljón
evrur, samkvæmt Voetbal Inter-
national í Hollandi.
Sagt er að samningur Ziyechs við
Chelsea sé nánast í höfn, en hann er
26 ára gamall sóknartengiliður sem
hefur vakið mikla athygli fyrir
frammistöðu sína með Ajax. Hann
átti stóran þátt í velgengni liðsins
síðasta vetur þegar það komst
óvænt í undanúrslit Meistaradeildar
og var hársbreidd frá því að komast í
úrslitaleikinn gegn Liverpool.
Ziyech er fæddur í Hollandi og lék
með Heerenveen og Twente áður en
hann kom til Ajax árið 2016. Hann
hefur skorað 38 mörk í 107 leikjum
með Ajax í hollensku úrvalsdeildinni
og alls 47 mörk í 157 mótsleikjum.
Þá hefur hann gert 14 mörk í 32
landsleikjum fyrir Marokkó og lék
með liðinu á HM 2018 í Rússlandi.
Ziyech lék með yngri landsliðum
Hollands en ákvað fyrir fjórum ár-
um að spila fyrir Marokkó.
Chelsea fær
Ziyech frá
Ajax í sumar
Hakim
Ziyech