Morgunblaðið - 13.02.2020, Síða 62
62 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Í rúman mánuð hefur fjölmennur
hópur fólks, yfir tuttugu manns,
unnið að uppsetningu á verkum eftir
bandaríska myndlistarmanninn Sol
LeWitt í Listasafni Reykjavíkur –
Hafnarhúsi. Afraksturinn má sjá á
fyrstu sýningu með verkum lista-
mannsins sem sett er upp hér á landi
og verður opnuð í kvöld, fimmtudag,
klukkan 20.
Sol LeWitt hefur undanfarna ára-
tugi verið afar vinsæll og áhrifamik-
ill listamaður og verk hans verið sett
upp víða í hinum ýmsu og ólíkum
söfnum og stofnunum, ýmist á tíma-
bundnum sýningum eða varanlega.
LeWitt lést fyrir þrettán árum, nær
áttræður, en þá höfðu verk hans ár-
um saman verið sett upp af öðrum,
eftir nákvæmum leiðbeiningum og
formúlum listamannsins.
Við opnun sýningarinnar mun
sýningarstjórinn Lindsay Aveilhé
segja gestum frá listamanninum og
ræða við teiknara um sköpunarferli
sýningarinnar.
Áhrifamikil frumkvöðull
Sol LeWitt (1928-2007) er þekktur
fyrir einstakar veggteikningar,
skúlptúra, grafík- og bókverk. Hann
telst á meðal frumkvöðla hugmynda-
listar og mínímalisma. Hugmyndir
hans og vinnuaðferðir hafa haft mik-
il áhrif á samtímamyndlist.
Í Hafnarhúsinu eru veggteikn-
ingar í tveimur sölum og líka verk
unnin á pappír. Hinar yfirleitt um-
fangsmiklu veggteikningar LeWitt
hafa verið listheiminum áskorun frá
því á sjöunda áratug síðustu aldar.
Þá hóf hann að vinna verk byggð á
teikningum sem síðan voru útfærðar
á hverjum sýningarstað fyrir sig
samkvæmt nákvæmum útreikn-
ingum. Þau byggðu á samstarfi hans
við aðra listamenn, þar sem stærð og
umfang verkanna er langt umfram
það sem einn maður getur afkastað.
Við uppsetninguna hér hefur
fimm manna teymi, sem setur upp
verk listamannsins víða um lönd,
haft aðsetur í Reykjavík um mán-
aðarskeið og með því unnu fimmtán
starfsnemar sem komu úr ýmsum
áttum til þess að taka þátt.
Hópurinn vann sleitulaust að upp-
setningu sýningarinnar og notaði til
þess ýmsar aðferðir og allra handa
verkfæri, eins og blýanta, blek, tusk-
ur og vaxliti. Í tilkynningu frá safn-
inu er afraksturinn sagður „áhrifa-
mikil upplifun af einstökum verkum
sem unnin eru eftir nákvæmum leið-
beiningum listamannsins sjálfs.
Áhrif sýningarinnar eru marg-
slungin og eitt af því sem gerir hana
ekki hvað síst áhugaverða er sú
mikla vinna sem lögð er í verkin,
áhrifamikil upplifun rýmisins og síð-
an hverfulleiki þeirrar orku sem
lögð var í sköpunina þar sem verkin
hverfa að sýningartíma loknum.
Verk Sol LeWitt lifa í teikningum og
fyrirmælum, fyrirmælum sem
stundum eru sýnileg í verkunum“.
Áhugaverð tenging
Ólöf K. Sigurðardóttir, safnstjóri
Listasafns Reykjavíkur, segist hafa
gengið með þá hugmynd í nokkur ár
að setja upp sýningu með verkum
LeWitts. „Það má sjá spor banda-
rísku mínimalistanna LeWitts,
Donalds Judd, Dans Flavin og Carls
Andre í verkum ýmissa íslenskra
myndlistarmanna, einkum af kyn-
slóð sem steig fram upp úr 1980, fólk
á svipuðum aldri og þeir sem að-
hylltust „nýja málverkið“ en fór aðra
leið, sækir í annan brunn, menn eins
og Ingólfur
Arnarson,“ segir
Ólöf. Hún bætir
við að alltaf sé
mikilvægt að
sýna mikilvæga
alþjóðlega mynd-
list en einkum þó
ef hún er í
tengslum við það
sem hefur gerst
og er að gerast
hér. „Verk eftir
hina sem ég nefndi hafa verið sýnd
hér á landi en ekki verk eftir Sol Le-
Witt. Í þeim birtist líka mjög áhuga-
verð tenging milli mínimalismans og
konseptlistarinnar, tveggja list-
hreyfinga sem höfðu mikil áhrif hér
eins og svo víða.
Svo er það alltaf hugvíkkandi fyrir
samfélagið að sjá verk eftir lista-
menn sem hafa áhrif í hinu stóra
samhengi hlutanna.“
Verkin eru síný
Það er merkileg staðreynd að
þrátt fyrir að LeWitt hafi verið lát-
inn í á annan áratug eru ný listaverk
eftir fáa, ef nokkra, myndlistarmenn
sett upp víðar í söfnum á Vestur-
löndum á ári hverju. Ástæðan er sú
að um fyrirmælaverk er að ræða
sem aðrir sjá um að framkvæma.
„Það liggur í eðli verkanna, hann
gerði forskriftir að þeim. Hann gerði
líka skúlptúra, bókverk og prent
sem lúta sömu lögmálum og önnur
verk sömu gerðar,“ segir Ólöf. „En
veggverkin endurnýjast í hvert
skipti sem þau eru sett upp. Verkin
eru varðveitt í forskrift eða teikn-
ingu en á hverjum stað þarf nýja út-
færslu og þá kemur inn skapandi
kraftur þeirra sem vinna við upp-
setninguna og stefnumót við staðinn.
Verkin eru síný,“ segir Ólöf.
„Það er venjulega kostnaðarsamt
að setja upp alþjóðlegar sýningar og
að flytja verk á milli landa. Sú arf-
leifð sem LeWitt skildi eftir sig er
hins vegar sú að virðið er meira í
vinnu þeirra sem setja upp verkið og
við þá myndast ákveðið samtal sem
skiptir miklu máli. Við greiðum til að
mynda enga greiðslu til stofnunar-
innar sem heldur utan um arfleifð
listamannsins; hugsjón hennar er sú
að verkin fari sem víðast.“
Á móti kemur að það er kostn-
aðarsamt og tímafrekt að setja verk-
in upp; hér unnu fimm frá stúdíói
LeWitts að því, auk um tuttugu
sjálfboðaliða sem komu frá ýmsum
löndum auk nokkurra Íslendinga.
„Með vinnu þessa fólks verður til
mikil orka þar sem verkin eru sett
upp,“ segir Ólöf, sem vonar að upp-
skera sjálfboðaliðanna verði ríkuleg
af því að vera þátttakendur í því
náms- og þekkingarferli sem felist
óneitanleg í því að setja upp verk
sem þessi eftir hinn kunna og áhrifa-
mikla listamann.
„Þegar áhorfandinn gengur til
móts við þessi verk finnur hann
sterkt fyrir fólkinu sem tók þátt í því
að skapa þau inn í rýmið. Það er eitt
af því sem gerir verk Sols LeWitt
svo heillandi; við finnum fyrir ná-
kvæmninni og nánast áráttukenndri
vinnunni sem liggur í verkunum,“
segir Ólöf.
„Hugvíkkandi fyrir samfélagið“
Umfangsmikil sýning á verkum hins kunna bandaríska myndlistarmanns Sols LeWitt verður opn-
uð í Hafnarhúsinu í kvöld Fjöldi fólks hefur unnið að því undanfarinn mánuð að setja verkin upp
Morgunblaðið/Kristinn
Listamaðurinn Sol LeWitt (1928-
2007) gaf fyrirmæli að verkunum.
Ljósmynd/Vigfús Birgisson
Margbrotið Unnið að uppsetningu eins verka Sols LeWitt í Hafnarhúsinu, eftir nákvæmum fyrirmælum.
Ljósmynd/Vigfús Birgisson
Teiknað Ólík verk frá ýmsum tímabilum á ferli LeWitts
hafa verið sett hér upp af fjölmennum hópi fólks.
Ljósmynd/Vigfús Birgisson
Bogar Verkin eru ýmist gerð með graffíti, vaxlitum eða
bleki. Hér er horft inn í eitt þeirra, gert með vaxlit.
Ólöf K.
Sigurðardóttir