Morgunblaðið - 13.02.2020, Blaðsíða 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2020
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 5175000 | stalogstansar.is
Gott úrval af reimum í
snjósleða, fjórhjól og bíla.
í snjósleða, bíla og fjórhjól
2012
2019
reimar
eru ekki systur heldur vinkonur,
svo því sé nú haldið til haga.
Katla verður 18 ára í júní, er
nemandi við Menntaskólann á Ísa-
firði og var aðeins 14 ára þegar
þær Ásrós fóru með sigur af hólmi
í Músíktilraunum.
Tvískipt
Katla samdi lög og texta frum-
burðar Between Mountains sem
Alda Music gaf út í fyrra. Hún er
spurð út í sköpunarferli plötunnar
og segir lög og texta hafa verið
samin á frekar löngu tímabili. „Ég
held að það sé dálítið oft þannig
með fyrstu plötu því þá er maður
að taka upp efni sem maður hefur
verið að spila mikið. Elstu lögin á
plötunni voru samin þegar við vor-
um tvær og vorum búnar að spila
þau svolítið lengi. Fyrir mér er
þetta svolítið tvískipt plata, í eldra
efnið og nýrra. Hlustendur heyra
það ekki en hún er þannig fyrir
mér. Helmingurinn var í raun sam-
inn mjög stuttu áður en platan var
gefin út, síðustu lögin bara í fyrra-
sumar,“ segir Katla.
„Þetta hefur verið mikil þróun
frá elsta og yngsta laginu, mikið
breyst hvernig ég sem og horfi á
hlutina. Þetta er eins og dagbók yf-
ir það hvernig manni leið og hvað
maður var að gera.“
Æfði sig í klukkstund á fiðlu
Katla segist hafa verið 12 eða 13
ára þegar hún fór að semja lög og
texta og eftir því sem hún varð
eldri fóru textar að verða persónu-
legri.
„Mér finnst það vera aðalbreyt-
ingin á textagerðinni en í lagasmíð-
inni fór ég meira að pródúsera sjálf
og taka upp, tók nýrri lögin meira
upp sjálf og pródúseraði,“ segir
hún.
Á plötunni leikur Katla á gítar,
hljómborð, harmonikku og fiðlu,
auk þess að syngja. Ekki kann hún
á öll þau hljóðfæri? „Ég lærði á pí-
anó og er enn að læra og get spilað
lögin mín á gítar. Ég fann harm-
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Dúettinn Between Mountains,
sigurvegari Músíktilrauna árið
2017, gaf út fyrstu breiðskífu sína
í byrjun vetrar, samnefnda sveit-
inni, en nú er dúettinn ekki lengur
dúett heldur ein ung kona. Be-
tween Mountains skipuðu áður
þær Katla Vigdís Vernharðsdóttir
og Ásrós Helga Guðmundsdóttir
en nú er Ásrós horfin á braut og
Katla með
tögl og
hagldir.
„Ég er í
raun bara
ein með
þetta verk-
efni núna,“
segir hún
og hlær
þegar blaðamaður spyr hvað eigi
að kalla Between Mountains. Er
þetta hljómsveit eða hvað? „Ég er
í smá vandræðum með þetta,“ seg-
ir hún kímin, „en þetta er bara ég.
Ég sem og er með þetta verkefni
en spila eiginlega alltaf með
hljómsveit á giggum nema þau séu
lítil. En jú, jú, ég segi bara „við
erum hljómsveitin Between
Mountains“ þegar við erum að
koma fram.“
Hljómsveitina sem Katla nefnir
skipa Valgeir Skorri, bróðir henn-
ar, Vernharður Jósepsson bassa-
leikari og undanfarið hefur Salóme
Katrín Magnúsdóttir sungið með
og leikið á píanó. Hljómsveitin er
því kvartett alla jafna.
– Má ég spyrja af hverju Ásrós
hætti? Var það allt í góðu?
„Já, já, allt í góðu en það voru
bara ólíkar áherslur, í rauninni.
Hún vildi prófa annað innan tón-
listarinnar, fara meira í klassískan
söng og söngleiki, þá hlið á tónlist-
inni. Það er allt í góðu og ekkert
Gallagher-dæmi,“ segir Katla kím-
in og á þar við bræðurna Liam og
Noel úr Oasis sem löngum hafa
eldað grátt silfur. Katla og Ásrós
onikku heima og bara lærði á hana,
hún er skemmtilegt hljóðfæri og
góð motta undir upptökur,“ svarar
hún. Fiðlu fékk hún svo að láni, fór
heim með hana, æfði sig í klukku-
stund og hélt svo beint í stúdíó.
„Ég hef ekki snert fiðlu síðan þá,“
segir Katla og hlær en fiðluleikur-
inn heppnaðist nógu vel til að hægt
væri að hafa hann með í lögunum á
plötunni.
– Það er nú ekki hlaupið að því
að læra á fiðlu á skömmum tíma?
„Nei, einmitt og ég komst að því
að staccato, stuttar nótur, væru
málið þar,“ svarar Katla kímin.
Hún segist einfaldlega spila á þau
hljóðfæri sem þurfi að spila á en þó
ekki blásturshljóðfæri.
Katla útsetti lögin með Arnari
Guðjónssyni í Aeronaut Studios og
fóru upptökur fram bæði í Reykja-
vík og á Ísafirði. „Arnar er snill-
ingur og heiður að fá að vinna með
honum,“ segir Katla. Hún hafi ekki
gert plötu áður og hafi því lært
réttu vinnubrögðin jafnóðum. „Ég
varð bara að þreifa fyrir mér í
myrkrinu,“ segir hún.
– Ef platan væri landslag, hvern-
ig landslag væri hún?
„Ok, geggjuð spurning,“ segir
Katla kímin. „Væri hún ekki bara
vestfirsku fjöllin og firðirnir, er það
ekki?“
Blaðamaður getur alveg sætt sig
við þá landslagsmynd enda Katla
að vestan og býr á Suðureyri.
„Algjörlega þess virði“
Að vera í forsvari fyrir Between
Mountains, hvort heldur er sóló-
verkefni eða hljómsveit, og gefa út
plötu og fylgja henni eftir er
væntanlega töluverð vinna og við
bætist menntaskólanám hjá Kötlu
sem lýkur senn. Hvernig finnst
henni að standa í þessu öllu saman?
„Það er bara gaman. Mig langar
alla vega ekki að gera neitt annað.
Þetta er auðvitað stundum flókið
og ég hef misst slatta úr skóla út af
þessu en það er algjörlega þess
virði,“ svarar Katla. „Maður þarf
bara að velja og hafna verkefnum.“
– Heldurðu að þú snúir þér alfar-
ið að tónlist eftir útskrift?
„Já, ég ætla alla vega að sækja
um í LHÍ, stefnan er að fara þang-
að. Ég hef alltaf ætlað mér að
vinna við músík og vonandi gengur
það áfram.“
„Þetta er bara ég“
Between Mountains er ekki lengur dúett Fyrsta platan komin út á vegum Öldu Music
Indískotið popp, segir forsprakkinn Katla Vigdís um tónlistina „Þreifa fyrir mér í myrkrinu“
Ljósmynd/Anna Maggý
Dagbók „Þetta hefur verið mikil þróun frá elsta og yngsta laginu, mikið
breyst hvernig ég sem og horfi á hlutina. Þetta er eins og dagbók yfir það
hvernig manni leið og hvað maður var að gera,“ segir Katla Vigdís.
Leikhúslistakonur 50+ sýna tísku-
gjörningurinn „Konur og krínólín“
í Þjóðleikhúskjallaranum í febrúar.
Fyrsta sýning er á laugardag kl. 16.
Sýningin var upphaflega sett upp í
Iðnó sumarið 2017.
„Edda Björgvinsdóttir er sauma-
kona og „dresser“ í Þjóðleikhús-
kjallaranum þar sem gamall tísku-
pallur vaknar til lífsins við það að
glæsilegar og fjölhæfar leikkonur
streyma fram í litríkum klæðum,
dansa og syngja í stjórnlausri
gleði,“ segir í tilkynningu á vef
Þjóðleikhússins.
Edda semur allan texta sýningar-
innar sem er um klukkutími að
lengd og ásamt henni skipa Edda
Þórarinsdóttir og Kolbrún Hall-
dórsdóttir leikstjórateymið. Helga
Björnsson sér um búninga, Elín
Edda Árnadóttir skreytir sviðið og
Ásdís Magnúsdóttir hannar sviðs-
hreyfingar. Leikendur eru Bryndís
Petra Bragadóttir, Guðbjörg Thor-
oddsen, Júlía Hannam, Kolbrún
Halldórsdóttir, Lilja Þórisdóttir,
Ólöf Sverrisdóttir, Rósa Guðný
Þórsdóttir, Salvör Aradóttir og
Vilborg Halldórsdóttir. Miðar fást á
tix.is og leikhusid.is.
Konur og krínólín í Þjóðleikhúskjallara
Saumakona Edda Björgvinsdóttir.
Samsýningin Le
Boudoir / Dyngj-
an verður opnuð
í húsnæði Alli-
ance Française í
Tryggvagötu 8 í
Reykjavík í dag,
fimmtudag,
klukkan 18 og
eru allir vel-
komnir á sýn-
inguna.
Á sýningunni Le Boudoir mætast
verk eftir listamennina Zuzu Knew,
Katrínu I. Jónsdóttur Hjördísar-
dóttur, Serge Comte, Nínu Óskars-
dóttur og Claire Paugam en sú síð-
astnefnda er jafnframt sýningar-
stjóri.
Alliance Française býður upp á
þessa sýningu í tilefni af „Les Fêtes
galantes“-hátíðinni, með atbeina
sendiráðs Frakklands á Íslandi.
Les Fêtes galantes er lítil menn-
ingarhátíð sem er tileinkuð ýmiss
konar miðlunum ástarinnar. Á há-
tíðinni er boðið upp á ástarorðræðu
í gegnum fjölbreytilega atburði,
svo sem myndlistarsýningu, bók-
verk og tónleika.
Verk myndlistarmanna á ástarhátíð
Katrín I. Jónsdóttir
Hjördísardóttir