Morgunblaðið - 14.02.2020, Síða 13

Morgunblaðið - 14.02.2020, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2020 Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Samdráttur í sölu nýrra bifreiða í Kína í janúar nam 18 prósentum samkvæmt bráðabirgðatölum sem birtar hafa verið. Ekki er þó kórónu- faraldrinum þar einum um að kenna því sam- kvæmt Reuters-fréttastofunni var janúar nítjándi mánuðurinn í röð sem sölutölur stefna niður á við á kínverskum bílamarkaði. Kínverska nýárið á hér einnig hlut að máli, þar sem frídagar kringum það voru fyrr á ferð en á síðasta ári, og í hinn endann á kórónuveiran sök- ina, þar sem víða um Kína framlengdu vinnu- staðir áramótafríið vegna smithættu. Dregur úr eldsneytisnotkun Mestur varð samdrátturinn í sölu rafmagns- bíla og annarra í flokki svokallaðra nýorkuöku- tækja. Innan þess flokks hrundi salan um 54,4 prósent og var á niðurleið sjöunda mánuðinn í röð. „Við áætlum að fjölgun hátíðarfrídaga og skortur á vinnuafli og varahlutum vegna kórónu- veirunnar muni hafa áhrif á framleiðslu yfir einn- ar milljónar ökutækja,“ sagði Chen Shihua, tals- maður samtaka bifreiðaframleiðenda í Kína, í gær. Tæp níu prósent bifreiðaframleiðslu Kínverja eru í Hubei-héraðinu, þar sem faraldurinn hófst, og hefur framleiðandinn Dongfeng Motor Group, sem Mao Zedong stofnaði árið 1969, sagst ætla að bíða enn um sinn með að hefja starfsemi á ný. Á sama tíma dregur einnig úr eldsneytisnotk- un og hafði AFP-fréttastofan það eftir Alþjóða- orkustofnuninni, IEA, í gær að í fyrsta sinn í rúman áratug drægi úr spurn eftir olíu á fyrsta fjórðungi nýhafins árs. „Reiknað er með að eftir- spurnin minnki um sem nemur 435.000 tunnum,“ sagði í tilkynningu frá stofnuninni. Stofnunin spáir því þó að eftirspurnin aukist þegar litið sé til ársins í heild og þegar tekist hafi að hemja útbreiðslu veirunnar. Spáin fyrir árið er þó hófleg og reiknar stofnunin með að olíunotkun muni nema 825.000 tunnum á dag að meðaltali, sem er minnsta neysluaukning milli ára síðan 2011. IEA telur efnahagsleg áhrif kórónuveirunnar verða mun meiri en SARS-faraldursins árið 2003. Þótt brugðist hafi verið mun hraðar við kórónu- veirunni og ráðstafanir verið gerðar fyrr til að hefta útbreiðslu hennar muni efnahagsþróun heimsins síðan 2003 gera það að verkum að hægagangurinn sem faraldurinn skapar í Kína hafi mun víðtækari áhrif á efnahag heimsins árið 2020. Skera enn frekar niður OPEC, samtök olíuútflutningsríkja, og banda- lagsríki þeirra, þar á meðal Rússland, tóku í lok síðasta árs ákvörðun um að draga úr olíufram- leiðslu sinni vegna aukinnar framleiðslu Banda- ríkjanna og forðast þar með umframbirgðir og verðlækkanir. Ríkin, sem að meðtöldum banda- lagsríkjunum kallast OPEC+, gera nú ráð fyrir að skera framleiðsluna enn frekar niður, um sem nemur 600.000 tunnum á dag, til að mæta minni eftirspurn. Samkvæmt mati IEA fellur spurn eftir hráolíu úr 29,4 milljónum tunna dag hvern á lokafjórð- ungi ársins 2019 niður í 27,2 milljónir á fyrsta fjórðungi þessa árs. Kaupa fimmtungi færri bíla  Sala nýorkuökutækja hrynur í Kína og spurn eftir olíu minnkar í fyrsta sinn í áratug AFP Með grímur Farþegar í neðanjarðarlest í Shanghai í Kína báru andlitsgrímur í gær. Bandaríska geimvísindastofnunin NASA hefur nú hug á að koma fólki til tunglsins á ný eftir 50 ára hlé og í þetta skiptið af báðum kynjum. Stofnunin auglýsir á samfélagsmiðlinum Twitter eftir umsóknum frá áhugasömum tunglförum undir yfirskriftinni „Þarftu rými?“ eða „Need some space?“ og tekur við þeim tímabilið 2. til 31. mars. Auk þess að eiga sér feril tengdan vísindum og hafa lokið minnst þúsund flug- tímum þurfa umsækjendur að vera bandarískir ríkis- borgarar en NASA tekur þó við umsóknum frá fólki með tvöfalt ríkisfang. Áhugasamir tunglfarar óskast Geimferðir NASA er að ráða geimfara. Í dag opnar Guggenheim-lista- safnið í Bilbao á Spáni sýningu á verkum listamannsins Ólafs Elías- sonar undir yfirskriftinni In real life, Í lífsins raun, og verður sýn- ingin opin til 21. júní. Hún er haldin í samstarfi við Tate-nýlistasafnið og verða sýningargripir eftir því sem greint er frá í sýningarskrá 30 verk Ólafs tímabilið 1990 til 2020. Enn fremur segir að verkin 30 gefi „nýja sýn á hvernig við stýrum og skynjum umhverfi okkar sem endurspeglar hin mikilvægu mál- efni samtímans“. Leiðarstefið í list- sköpun Ólafs sé umhyggja hans í garð náttúrunnar, innblásin af tíma hans á Íslandi, rannsóknir hans á sviði rúmfræði og það hvernig við skynjum og mótum umhverfið. Meðal verka á sýningunni verða höggmyndir, ljósmyndir, málverk og innsetningar og á myndinni sést ein slík. AFP Ólafur Elías- son sýnir í Guggenheim Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is „Veist þúað skilgreining áhitabreytist eftir aldri? ThermoScan7eyrnahita- mælirinnminnveit það.“ BraunThermoScan eyrnahitamælar fást í öllum lyfjaverslunum ThermoScan® 7 Tunguhálsi 10 Sími 415 4000 www.kemi.is kemi@kemi.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.