Morgunblaðið - 05.03.2020, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020
@icelandsymphony / #sinfó
FIMMTUDAGUR 5.MARS 19:30
2020
70ÁRA
AFMÆLISTÓNLEIKAR
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sala á handspritti hefur margfald-
ast undanfarna daga og vikur. Um
leið og tilkynnt var um fyrstu kór-
ónuveirutilfellið hér á landi, sl.
föstudag, kláruðust birgðir í mörg-
um apótekum og verslunum. Þeir
sem framleiða handspritt hér á
landi settu aukinn kraft í fram-
leiðsluna og í gær var verið að
dreifa spritti í verslanir.
„Við héldum að við hefðum
brugðist vel við í febrúar en þá
seldum við 40 þúsund brúsa af
handspritti sem svarar til meðal-
sölu á tveimur og hálfu ári. Héldum
að kúfurinn væri farinn. Á mánu-
dag fengum við svo pantanir á 27
þúsund brúsum,“ segir Richard
Kristinsson, framkvæmdastjóri hjá
hreinlætisfyrirtækinu Mjöll Frigg,
sem framleiðir handspritt fyrir ís-
lenska markaðinn. Hann taldi í gær
að fyrirtækinu væri að takast að
framleiða upp í megnið af pönt-
unum sem þá lágu fyrir. Eitthvað
færi í verslanir og apótek en einnig
mikið í heilbrigðisstofnanir.
Birgðir fyrir heilbrigðiskerfið
Mjöll Frigg hefur ekki fengið
dælur á handbrúsana. Í staðinn
voru settir smellutappar á brúsana
sem fyllt hefur verið á í vikunni,
eins og er á brúsum með upp-
þvottalegi. „Það er hörgull á hrá-
efni úti um alla Evrópu. Allir eiga í
erfiðleikum með að fá aðföng,“ seg-
ir Richard. „Við vorum búin að
byggja upp góðan öryggislager fyr-
ir Landspítala, heilsugæslustöðvar,
lögreglu og Keflavíkurflugvöll og
aðra þá sem eru í fremstu víglínu í
þessum málum. Við höldum lager
fyrir þá og þær eru allar tryggar
enda byrjuðum við á því að stækka
þann lager fljótlega í janúar,“ segir
Einar Kristjánsson, framkvæmda-
stjóri hjá Rekstrarvörum.
Hann segir að öðru máli gegni
um handspritt í neytendapakkning-
um. Almenningur hafi tekið við sér
þegar fréttir fóru að berast af
greiningu veirunnar hér. „Það er
skortur hjá okkur eins og er. Við
erum að taka inn gám og hann er
allur farinn út.“
Eftirspurnin hefur ekki aðeins
aukist á Íslandi, sama staða er úti
um allan heim. Einar segir að
sprittið sé skammtað og þess vegna
hafi það klárast hjá fyrirtæki hans
en von sé á nýrri sendingu.
Mikið álag á starfsfólki
„Við höfum rekið þetta fyrirtæki
í 35 ár og aldrei fengið jafn stóra
holskeflu yfir okkur. Mikið álag er
á starfsfólki við framleiðslu á hrein-
lætisvörum, meðal annars hand-
spritti og vörum tengdum sótt-
hreinsun snertiflata, og á starfsfólki
við afgreiðslu og birgðahaldi,“ segir
Guðmundur Gylfi Guðmundsson,
framkvæmdastjóri hjá Tandri hf.
Guðmundur hefur eftir sam-
starfsaðilum í Evrópu að birgðir af
handspritti og tengdum vörum séu
að hreinsast upp í allri álfunni.
Þessi mikla eftirspurn er að leiða til
hækkunar á hráefnum.
„Hættið að hringja“
Sömu sögu er að segja af andlits-
grímum. Guðmundur segir að þær
séu búnar og ekki fáist fleiri vegna
gífurlegrar umframeftirspurnar á
mörkuðum og ástandinu í Kína.
„Sumir framleiðendur segja stopp,
hættið að hringja. Þeir hafa ekki
undan að framleiða,“ segir Einar
hjá Rekstrarvörum um kaup á and-
litsgrímum. Vonast hann þó til að fá
30 þúsund grímur í næstu viku.
Hann segir að vegna mikillar eft-
irspurnar séu grímurnar nánast á
uppboðsmarkaði. Það þýði verð-
hækkun og miklar sveiflur á inn-
kaupsverði.
Betur hefur gengið að útvega
hanska og fleiri vörur sem eru eft-
irsóttar í kórónufaraldrinum.
Sprittsalar hafa ekki undan
Eftirspurn almennings eftir handspritti hefur margfaldast eftir að kórónuveiran fór að greinast hér
Fyrirtækin láta heilbrigðiskerfið ganga fyrir en almenningur fær sinn skammt þessa dagana
Kórónuveira: handþvottur
Heimild:
WakeMed
Svæði
sem oft-
ast verða
útundan
Oft út-
undan
Síst út-
undan Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Varnir Handspritt er staðalbúnaður á blaðamannafundum sóttvarnalæknis í
samhæfingarmiðstöð almannavarna vegna kórónuvírussins.
Kórónuveirusmit á Íslandi
Ríkislögreglustjóri, sóttvarnalæknir
og landlæknir lýstu áhyggjum sínum í
gær vegna yfirstandandi og yfirvof-
andi verkfalla á vinnumarkaði. Þetta
kom fram í sameiginlegu minnisblaði
frá embættunum. Þar segir m.a. að í
uppsiglingu sé faraldur af völdum
nýju kórónuveirunnar sem veldur
sjúkdómnum COVID-19.
Nú er í gildi hættustig almanna-
varna. Bent er á að vegna yfirvofandi
farsóttar þurfi að auka viðbúnað og
aðrar sóttvarnarráðstafanir. Fjöl-
margar opinberar stofnanir gegni
lykilhlutverki í viðbragðsáætlun al-
mannavarna við að hefta útbreiðslu
veirunnar. Þar á meðal eru sjúkra-
stofnanir, öldrunarstofnanir, lög-
regla, Neyðarlínan, slökkvilið, sjúkra-
flutningar o.fl.
„Þegar starfað er á hættustigi við
aðstæður og vegna atburða sem þess-
ara, hafa verkföll veruleg áhrif á mátt
þeirra aðgerða sem grípa verður til,“
segir í minnisblaðinu. Afar mikilvægt
er að starfsemi stofnana og fyrir-
tækja verði eins órofin og framast er
unnt. „Þegar unnið er eftir viðbragðs-
áætlun sóttvarnalæknis og almanna-
varna til að koma í veg fyrir og hægja
á frekari útbreiðslu COVID-19 veir-
unnar, er hver einasti hlekkur í keðj-
unni mikilvægur.“ Bent er á að ríkir
almannahagsmunir standi til þess að
störf til að mynda á heilbrigðisstofn-
unum, hjúkrunarheimilum, hjá við-
bragðsaðilum og öðrum stofnunum og
þjónustuaðilum hjá ríki og sveitar-
félögum verði sem eðlilegust.
„Við biðlum til aðila að afstýra yf-
irstandandi og fyrirhuguðum verk-
föllum,“ sagði Þórólfur Guðnason
sóttvarnalæknir, sem skrifaði undir
minnisblaðið ásamt Ölmu D. Möller
landlækni og Kjartani Þorkelssyni,
settum ríkislögreglustjóra. „Þetta er
grafalvarleg staða sem við stöndum
frammi fyrir,“ sagði Sandra B.
Franks, formaður Sjúkraliðafélags
Íslands. „Við munum skoða alvarlega
hver okkar staða er í þessum viðræð-
um. Við eigum eftir að semja um laun-
in okkar og erum ekki tilbúin að fara
frá samningaborðinu og eiga eftir að
semja um kaup og kjör.“
Sandra segir að minnisblaðið
undirstriki mikilvægi starfa sjúkra-
liða sem vinna mjög nálægt sjúkling-
um alla daga. Vonandi verði horft til
þess við gerð nýs kjarasamnings.
Viðar Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri Eflingar, segir að þau muni
fjalla um efni minnisblaðsins á reglu-
legum fundum sínum.
Hann bendir á að staða Eflingar sé
frábrugðin stöðu t.d. BSRB-félag-
anna því Efling sé búin að vera í verk-
föllum. „Við leituðum að fyrra bragði
eftir áliti almannavarna ríkislögreglu-
stjóra og höfum síðan tekið tillit til
þess. Við höfum gert það t.d. í gegn-
um mjög útvíkkaðar undanþágur,“
sagði Viðar. Hann nefndi undanþágur
vegna sorphirðu og vegna starfa á
velferðarsviði Reykjavíkurborgar.
Þær undanþágur ná meðal annars til
þrifa hjá stofnunum velferðarsviðs og
persónulegrar umhirðu íbúa stofnan-
anna. gudni@mbl.is
Lýsa áhyggjum sín-
um vegna verkfalla
Afar mikilvægt er að starfsemi lykilstofnana verði órofin
Morgunblaðið/Eggert
Faraldur Margar stofnanir taka
þátt í baráttunni gegn veirunni.
Þórólfur Guðnason sótt-
varnalæknir sagði aðspurður að
opinberir aðilar hefðu ekki sett
á samkomubann. Þeir sem
hefðu fellt niður viðburði und-
anfarið hefðu gert það að eigin
frumkvæði.
„Það eru ekki komin nein
staðfest innlend smit,“ sagði
Þórólfur. Hann segir að komi
þau upp verði dreifing skoðuð
og áhætta metin. Í framhaldi af
því verði athugað hvort ástæða
sé til að takmarka samkomur
eða samgöngur á einhvern hátt.
„En við erum ekkert komin
þangað og það er ekkert inni í
myndinni núna,“ sagði Þórólfur.
Hann segir mikilvægast til
varnar smiti að fólk gæti al-
menns hreinlætis og beiti þeim
aðferðum sem almennt eru not-
aðar við sýkingavarnir, eins og
góðum handþvotti.
Ekkert sam-
komubann
VARNIR GEGN VEIRU