Morgunblaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020 Ekkert bendir til þess að gæludýr hafi sýkst af kórónuveirunni eða veikst. Alþjóðadýraheilbrigðisstofn- unin og Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unin hafa ekki breytt leiðbeiningum sínum varðandi smitvarnir þótt veir- an hafi greinst í hundi í Hong Kong. Auður L. Arnþórsdóttir, sérgreina- dýralæknir faraldsfræði hjá Mat- vælastofnun, segir að tilkynning um hundinn í Hong Kong sé eina tilfellið sem tilkynnt hafi verið til Alþjóða- dýraheilbrigðisstofnunarinnar. Þar er um að ræða gæludýr manns sem sýktist af kórónuveirunni. Veiran greindist í stroksýnum úr munni og nefi hundsins en hann var ekki veik- ur. Ekki þarf sóttkví Auður segir að gæludýr geti borið smitið eins og hlutir en ekkert bendi til að veiran fjölgi sér í dýrum. Hún segir að fólk ætti að gæta al- mennra smitvarna í samskiptum við gæludýr, eins og gagnvart öðru sem getur borið smit, til dæmis að þvo sér vel um hendur. Hún segir ekki hægt að útiloka að önnur dýr beri smitið með sama hætti og hundurinn í Hong Kong. Að svo stöddu er ekki talin ástæða til að fólk í sóttkví komi gæludýr- unum sínum í gæslu annars staðar, að sögn Auðar, en ef fólk kýs að gera það þurfa þeir sem taka þau að sér að gæta almennra smitvarna, svo sem að þvo hendur eftir snertingu við dýrin og forðast að þau sleiki andlit fólks. Matvælastofnun er að undirbúa upplýsingar um kórónuveiruna fyrir gæludýraeigendur sem settar verða á heimasíðu stofnunarinnar. Það verð- ur gert í samvinnu við sóttvarna- lækni. helgi@mbl.is Gæludýr geta borið veiruna á milli fólks  Gæludýraeig- endum ráðlagt að huga að smitvörnum Gælur Fólk þarf að viðhafa gott hreinlæti í samskiptum við dýrin. Kórónuveirusmit á Íslandi Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Verði einhverju landsvæði hér á landi, smáu eða stóru, lokað vegna heimsfaraldurs, t.d. af völdum kór- ónuveirunnar, verður öllum flutningi úrgangs frá því svæði hætt og hann urðaður óflokkaður innan svæðisins. Þetta kemur fram í áætlun sem Um- hverfisstofnun hefur birt á vef sínum um meðhöndlun og smithættu af úr- gangi vegna heimsfaraldurs. Áætl- unin er gerð í samræmi við fyr- irmæli í nýendurskoðaðri landsáætlun ríkislögreglustjóra og sóttvarnalæknis vegna heimsfarald- urs. Samkvæmt landsáætluninni eru háskastig almannavarna þrjú, óvissustig, hættustig og neyðarstig. Við fyrstnefndu stigin tvö fer sorp- hirða, flutningur og förgun úrgangs fram með venjubundnum hætti. Ef til neyðarstigs kemur fer það eftir aðstæðum hvernig brugðist verður við. Ef um verður að ræða fjölda til- fella í heimahúsum verður flokkun á heimilissorpi á móttökustöðvum á sýktum sóttvarnarsvæðum hætt og unnið eftir sérstökum verklags- reglum. Ef einhverju einu svæði verður lokað verður sem fyrr segir öllum flutningi úrgangs frá svæðinu hætt og hann urðaður óflokkaður. Urðun fer fram á urðunarstað til- nefndum af Umhverfisstofnun í sam- ráði við rekstraraðila urðunarstaða. Þegar um lokun fleiri svæða eða alls- herjarlokun er að ræða verður unnið á sama hátt innan hvers svæðis. Reglur fyrir starfsfólk Umhverfisstofnun hefur einnig sett verklagsreglur fyrir starfsmenn sem vinna við meðhöndlun úrgangs í heimsfaraldri. Reglurnar taka gildi þegar sýkingar eru orðnar almennar í heimahúsum eða þegar stofnunin gefur út tilmæli um að vinna eftir þeim. Í reglunum er m.a. fjallað um notkun persónuhlífa (svo sem ein- nota fatnaðar), meðhöndlun úrgangs og frágang. Segir þar m.a. að sorpí- lát skuli ekki opnuð heldur flutt beint í sorphirðubíl og forðast beri að snerta sorp og jafnframt að forð- ast snertingu við augu, nef og munn. Morgunblaðið/Sigurgeir S. Úrgangur Sorp verður urðað óflokkað ef neyðarstig heimsfaraldurs verður virkjað. Settar hafa verið reglur um meðhöndlun þess við slíkar aðstæður. Myndu urða úr- gang óflokkaðan  Sorphirða yrði öðruvísi við neyðarstig Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Í nýuppfærðri viðbragðsáætlun Al- mannavarna vegna heimsfaraldurs, sem t.d. gæti verið hrint í framkvæmd ef útbreiðsla kórónuveirunnar magn- ast alvarlega, er m.a. að finna lista yfir æskilegt birgðahald heimila við slíkar aðstæður. Er það tekið saman af Emb- ætti landlæknis. Lagt er til að heimilin komi sér upp birgðum af matvælum með langt geymsluþol. Vörulistinn er þessi: Nið- ursuðuvörur tilbúnar til neyslu, kjöt- réttir, fiskréttir; grænmeti, ávextir, baunir og súpur; grænmetissúpur og kartöflumús í pakka; G-mjólk og ávaxtasafi með langt geymsluþol; kornvörur, pasta og hrísgrjón; morg- unkorn, múslí og haframjöl; hrökk- brauð og kex; þurrkaðir ávextir; hnetusmjör, hnetur; matarolía; ung- barnafæða í krukkum, ungbarna- grautar og ungbarnamjólk, ef ungbarn er á heimilinu; önnur matvara með langt geymsluþol. Þá er talað um gæludýrafóður ef gæludýr er á heim- ilinu. Fram kemur að í öllum tilfellum er gert ráð fyrir rafmagni og rennandi vatni á heimilum landsmanna í sam- bandi við þetta birgðahald. Viðbragðsáætlunin er rúmlega hundrað síðna rit með áætlun fyrir landið allt og er það aðgengilegt á vef almannavarna. Áætluninni er ætlað að segja fyrir um skipulag og stjórn að- gerða vegna hvers kyns heimsfarald- urs og styðst hún við gildandi lög um almannavarnir og sóttvarnalög. Áætl- unin gerir ráð fyrir því að atvinnulíf í landinu verði skert í ákveðinn tíma, hluti þjóðarinnar verði rúmfastur vegna veikinda og dánartíðnin verði umfram það sem búast má við í venju- legu árferði. Hún tekur jafnt til Íslend- inga sem ferðamanna sem staddir eru á landinu. Markmiðið er að tryggja skipulögð og samhæfð viðbrögð aðila sem hlut eiga að máli þegar til heims- faraldurs kemur. Ekki er um endanleg fyrirmæli að ræða og geta sóttvarna- læknir og ríkislögreglustjóri ákveðið breytta starfstilhögun með tilliti til ástands og aðstæðna hverju sinni. Eigi matvæli með langt geymsluþol  Viðbragðsáætlun vegna heimsfaraldurs uppfærð Kórónuveirusmit Heimildir: Johns Hopkins-háskólinnTölur voru sóttar kl. 21.30 í gær ÍTALÍA Smitaðir: 3.089 Látnir: 107 ÍRAN Smitaðir: 2.922 Látnir: 92 ÍSLAND Smitaðir: 26 Látnir: 0 Í sóttkví: um 400 200 KÍNA Smitaðir: 80.270 Látnir: 2.981 Þar af 67.332 smitaðir og 2.871 látnir í Hubei-héraði SUÐUR-KÓREA Smitaðir: 5.621 Látnir: 35 SPÁNN Smitaðir: 222 Látnir: 2 ÞÝSKALAND Smitaðir: 262 Látnir: 0 BRETLAND Smitaðir: 85 Látnir: 0 DANMÖRK Smitaðir: 10 Látnir: 0 SVÍÞJÓÐ Smitaðir: 35 Látnir: 0 NOREGUR Smitaðir: 56 Látnir: 0 FRAKKLAND Smitaðir: 285 Látnir: 4 BANDARÍKIN Smitaðir: 153 Látnir: 11 SAMTALS Á HEIMSVÍSU Smitaðir: 95.120 Hafa náð bata: 51.156 Látnir: 3.254 Morgunblaðið/Júlíus Heimsfaraldur Heimilin þurfa að eiga matarbirgðir í neyðarástandi. SVALALOKANIR Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar og falla vel að straumum og stefnum nútímahönnunar. Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við. Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er. Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun. Glerborg Mörkinni 4 108 Reykjavík 565 0000 glerborg@glerborg.is www.glerborg.is 2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG FÁÐU TILBOÐÞÉR AÐKOSTNAÐAR-LAUSU
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.