Morgunblaðið - 05.03.2020, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020
Golf
S. 552 2018 • info@tasport.is
Keflavík – Barcelona Barcelona – Keflavík
- 31. mars
- 2. apríl
- 9. apríl
- 16. apríl
- 23. apríl
- 2. maí
- 6. apríl
- 9. apríl
- 18. apríl
- 23. apríl
- 11. maí
Verð frá kr. 15.000 önnur leiðin
Innifalið: Allir skattar, 20 kg. innrituð taska og 10 kg. handfarangur.
Sjá allar okkar
ferðir og meiri
upplýsingar á
tasport.isFlug til Barcelona
á völdumdagsetningum ímars, apríl ogmaí
Tvíbýli 9. til 18. apríl 199.800
Barcelona Golf Resort & Spa
Það er ef til vill að bera íbakkafullan lækinn aðræða um Covid-19 en lát-um okkur hafa það. Þessi
veirusjúkdómur sem SARS-CoV-2
veiran veldur, hefur valdið miklum
usla mjög víða. Heimsfaraldur sjúk-
dóms sem engin lækning er til við og
enginn hefur ónæmi fyrir, er alvar-
legur. Ekki af því að í þessu tilviki sé
sjúkdómurinn svo alvarlegur heldur
vegna þess að svo margir geta veikst
á sama tíma að það lami þjóðfélagið
og geri okkur ókleift að sinna þeim
5% sem verða alvarlega veik. Þetta
er ástæðan fyrir því að reynt er eftir
fremsta megni að hefta útbreiðsluna
og tefja hana.
80% tilvika eru ekki alvarleg
Á þessum tíma má einu gilda
hvort fólk er smitað af Sars-CoV-2
eða öðrum kvefveirum, fólk á að
halda sig heima þar til það hefur náð
heilsu og gera það sem hægt er til að
forðast að smita aðra.
Í 80% tilvika eru veikindi ekki al-
varleg en um 20% þeirra sem veikj-
ast fá alvarlegri einkenni oftast á 4.
til 8. degi veikinda. Þá getur fólk
fengið lungnabólgu með öndunarerf-
iðleikum sem þurft getur að með-
höndla á sjúkrahúsi. Af því að marg-
ir veikjast vægt og miklar líkur eru á
að margir þeirra leiti ekki til heil-
brigðiskerfisins í sínu landi er öll
talnaleikfimi erfið í þessu tilviki því
menn vita hreinlega ekki hversu
margir hafa smitast
á heimsvísu. Menn
vita aðeins hvað
margir hafa verið
greindir. Vitað er að
meiri líkur eru á að
fólk eldra en 60 ára
og þeir sem veikir
eru fyrir, sér í lagi
fólk með hjarta-
sjúkdóma og syk-
ursýki, veikist alvar-
lega. Börn virðast
veikjast vægt af
SARS-CoV-2 veirunni.
Einkenni og greining
Helstu einkenni Covid-19 sjúk-
dómsins eru í byrjun eins og í venju-
legri kvefpest, hósti, hiti, bein- og
vöðvaverkir og þreyta og slappleiki.
Til þess að ganga úr skugga um
hvort um SARS-CoV-2 veiruna er að
ræða þarf að taka strok úr nefi eða
hálsi þess sem hefur einkenni.
Svo spara megi tíma, sóttvarna-
búnað og draga úr smithættu eru
þessi sýni tekin í bíl viðkomandi fyr-
ir utan heilsugæslustöðvar eða í vitj-
unum heima hjá þeim sem ekki kom-
ast á heilsugæslustöð. Fólk kemur
þá á umsömdum tíma og heilbrigð-
isstarfsmaður kemur út og tekur
strokið í gegnum bílglugga.
Ekki er hægt að greina smit í ein-
kennalausum einstaklingi. Farið er
eftir leiðbeiningum sóttvarnalæknis
um hverjir þeirra sem eru með ofan-
greind einkenni eru prófaðir en þar
eru um að ræða fólk sem hefur verið
á skilgreindum áhættusvæðum eða í
tengslum við smitaða einstaklinga.
Greining og meðhöndlun er fólki að
kostnaðarlausu þar
sem um skráning-
arskyldan sjúkdóm
er að ræða.
Góð hand-
hreinsun er mik-
ilvægasta ráðið fyrir
heilbrigða til að
forðast smit. Hand-
þvottur með vatni
og sápu er æskileg-
astur ef hendur eru
óhreinar, en hendur
sem virðast hreinar
en hafa komið við sameiginlega
snertifleti s.s. hurðarhúna, eða tekið
við hlutum úr annarra höndum svo
sem peningum eða greiðslukortum
má hreinsa með handspritti.
Rétt er að forðast náið samneyti
við fólk sem er með almenn kvef-
einkenni, hnerra eða hósta.
Allir kynni sér leiðbeiningar
Allir ættu að kynna sér efni um
Covid-19 á vef Embættis land-
læknis, landlaeknir.is . Þar eru góð-
ar leiðbeiningar til almennings.
Einnig má lesa nánar um veiruna og
sjúkdóminn sem hún veldur á heilsu-
vera.is. Á netspjalli á heilsuvera.is
er einnig svarað fyrirspurnum.
Netspjallið er opið frá 8 til 22 alla
daga.
Mætum Covid-19 með
skynsemi að leiðljósi
Morgunblaðið/Eggert
Viðbúnaður Gallar, grímur og fleira slíkt er til taks á heilsugæslunni ef sinna þarf fólki með kórónuveiruna.
Heilsuráð
Vitað er að meiri
líkur eru á að fólk
eldra en 60 ára og
þeir sem veikir eru
fyrir, sér í lagi fólk
með hjartasjúk-
dóma og sykursýki,
veikist alvarlega
Margrét Héðinsdóttir
hjúkrunarfræðingur
Sigríður Dóra Magnúsdóttir
framkvæmdastjóri lækninga
hjá Heilsugæslu höfuðborg-
arsvæðisins.
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins
Í vikunni bættist Borgarbyggð í hóp
sveitarfélaga sem innleitt hafa
Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
með stuðningi félagsmálaráðu-
neytisins og UNICEF á Íslandi. Samn-
ingar um þetta voru undirritaðir af
Ásmundi Einari Daðasyni, félags- og
barnamálaráðherra, Bergsteini Jóns-
syni, framkvæmdastjóra UNICEF á
Íslandi, og Magnúsi Smára Snorra-
syni, formanni fræðsluráðs Borgar-
byggðar.
„Eftirspurn eftir stuðningi við inn-
leiðingu Barnasáttmálans hefur verið
mikil og vil ég gera allt sem í mínu
valdi stendur til að svara þeirri eftir-
spurn. Barnasáttmálinn er áttavitinn
sem allt starf með og fyrir börn á að
byggjast á,“ segir Ásmundur Einar.
Það voru nemendur og starfsmenn
Kleppjárnsreykjadeildar Grunnskóla
Borgarfjarðar sem lögðu fram erindi
til sveitarstjórnar fyrr á árinu, þar
sem skorað var á Borgarbyggð að
hefja formlegt innleiðingarferli á
samningi Sameinuðu þjóðanna um
réttindi barnsins. „Þátttaka Borgar-
byggðar í verkefninu byggist á frum-
kvæði barna sem hér búa,“ segir
Magnús Smári Snorrason, formaður
fræðsluráðs Borgarbyggðar.
Þátttaka Borgarbyggðar í Barn-
vænum sveitarfélögum er liður í að
byggja upp breiðfylkingu sveitarfé-
laga á Íslandi sem láta sig mannrétt-
indi barna varða, með Barnasáttmál-
ann að leiðarljósi. Akureyri hóf vinnu
við að verða barnvænt sveitarfélag
árið 2016, fyrst sveitarfélaga á Ís-
landi. Í kjölfarið fylgdu Kópavogur
(2018) og Hafnarfjörður (2019).
Áhugi á þátttöku í verkefninu er mik-
ill og biðlistar myndast, þar sem
UNICEF hefur hingað til ekki getað
annað eftirspurn áhugasamra.
sbs@mbl.is
UNICEF á Íslandi og barnamálaráðuneytið semja
Undirritun Ásmundur Einar Daðason ráðherra, Magnús Smári Snorrason frá
fræðsluráði Borgarbyggðar og Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF.
Borgarbyggð er barnvæn
Alls 276 körfuboltalið frá 25 félögum
eru væntanleg á Nettómótið 2020
sem haldið verður í Reykjanesbæ um
helgina. Mótið er fyrir krakka á aldr-
inum 5-10 ára og hefur verið haldið á
hverju ári síðan 1990. Heildarfjöldi
leikja á mótinu er 701 og verða þeir
spilaðir í íþróttahúsum í Keflavík,
Njarðvík og Garði í Suðurnesjabæ.
Félögin sem taka þátt eru Ármann,
Breiðablik, Fjarðabyggð, Fjölnir,
Grindavík, Hamar, Haukar, Höttur, ÍA,
ÍR, Keflavík, KR, Laugdælir, Njarðvík,
Reykdælir, Selfoss, Sindri, Skalla-
grímur, Snæfell, Stjarnan, Tindastóll,
Valur, Vestri, Þór Akureyri, og Þór
Þorlákshöfn.
Dagskrá mótsins hefst snemma á
laugardagsmorgun og eru leikir spil-
aðir allan þann dag og langt fram á
sunnudaginn. Þá síðdegis liggja úr-
slit fyrir og verðlaun verða afhent.
Jafnhliða er boðið upp á margvíslega
skemmtun, bíósýningar og pítsu-
veislu fyrir keppendur.
Á vefsetri Nettómótsins er áréttað
að engin áform séu um að fella það
niður vegna kórónuveirunnar. Á
mótinu verður þó almennt hreinlæti
brýnt fyrir þátttakendum. Á móts-
stað verður handspritt aðgengilegt
og uppi verða leiðbeiningar með
hvatningu um handþvott og annað
sem því er tengt.
Nettómótið í körfubolta haldið í Reykjanesbæ um helgina
Alls 701 leikur og liðin á keppn-
isvellinum verða samtals 276
Morgunblaðið/Ómar
Körfubolti Hraði og snerpa í fyrir-
rúmi og hér er ekki tomma gefin eftir.