Morgunblaðið - 05.03.2020, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ríflega 50 þúsund verslanir í Japan
munu taka Ísey skyr í sölu strax í
upphafi skyrframleiðslu þar í landi.
Sala á Ísey skyri hefst þar í landi í
lok mánaðarins.
Ísey útflutningur, dótturfélag
MS, samdi við japanska fyrirtækið
Nippon Luna um framleiðslu og sölu
á Ísey skyri í Japan. Hefur fyrir-
tækið unnið að verkefninu með vax-
andi afli síðustu mánuði og ár. Með-
al annars var skyrið kynnt á árlegri
vörusýningu sem móðurfélagið,
stórfyrirtækið Nippon Ham, hélt í
Osaka í janúar og um 20 þúsund við-
skiptavinir þess sóttu. Ari Edwald,
forstjóri MS, segir að þar hafi komið
fram mikill áhugi á vörunni og
fjallað hafi verið um íslenska skyrið
í fjölmiðlum.
Verslanirnar sem taka Ísey skyr í
sölu eru af öllum stærðum og gerð-
um og dreifðar um allt landið. Í
þeim hópi eru jafnt verslanakeðjur
með fjölda smáverslana innan sinna
vébanda, stórmarkaðir á vestræna
vísu og lúxusverslanir.
Gætu þurft að auka framleiðslu
Ari hefur helst áhyggjur af því að
sá fjöldi verslana sem taka vöruna
til sölu í upphafi og áhuginn sem
hefur verið vakinn verði til þess að
sprengja áætlanir og framleiðslu-
geta mjólkursamlagsins verði ekki
næg.
Hann segir að stjórnendur Nip-
pon Luna séu meðvitaðir um þetta
en þeir muni ekki taka ákvarðanir
um að auka framleiðslugetu fyrr en
að tilteknum tíma liðnum.
„Við erum ákaflega heppin með
samstarfsaðila í Japan, getum ekki
verið ánægðari með þá. Þeir leysa
öll mál af fagmennsku,“ segir Ari.
Skyr á Ólympíuleikum
Söluherferð hefst þegar skyrið fer
til verslana í lok þessa mánaðar. Ari
telur ekki að kórónuveiran sem
grasserar í Asíu hafi áhrif á það.
Hins vegar verður ekki efnt til
blaðamannafundar í íslenska sendi-
ráðinu í Tókýó að sinni, eins og
stefnt hafði verið að, og fulltrúar
MS telja ekki ráðlegt að ferðast til
Asíu nú. Segir Ari hugsanlegt að
síðar verði efnt til samkomu af
þessu tilefni. „Þetta mun engin áhrif
hafa á markaðsherferðina, hún hefst
á tilsettum tíma.“
Ólympíuleikarnir verða að
óbreyttu haldnir í Tókýó í sumar.
Ísey skyr verður þar í framlínunni
hjá japönsku fyrirtækjunum sem
MS er í samstarfi við.
Ljósmynd/aðsend
Auglýsing Japanskir kvikmyndagerðarmenn voru í gær við Herjólfsgötu í Hafnarfirði að taka upp efni í auglýsingu
fyrir Ísey skyr. Fjallar hún um ævintýri japanskrar stúlku sem kemur til Íslands til að leita að Ísey skyri.
50 þúsund verslanir í
Japan hefja sölu á skyri
Markaðsherferð og sala á Ísey skyri hefst í lok mánaðarins
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Leggja ætti helming hlutafjár í Ís-
landsbanka inn í nýjan innviðasjóð á
vegum ríkisins. Þetta segir Óli
Björn Kárason,
alþingismaður og
formaður efna-
hags- og við-
skiptanefndar, í
samtali við Við-
skiptapúlsinn,
hlaðvarp
Viðskipta-
Moggans.
„Sjóðurinn get-
ur svo nýtt þessi
bréf til þess að
fjármagna sig á lánamarkaði. Lagt
bréfin til tryggingar,“ segir Óli
Björn og telur ekkert því til fyr-
irstöðu að sjóður af þessu tagi geti
efnt til samstarfs við stofnanafjár-
festa ýmiss konar um smærri og
stærri fjárfestingarverkefni.
„Ef við miðum við að hægt sé að
fjármagna sjóðinn með þessum
hætti upp á 50 milljarða þá er hægt
að þrefalda þessa fjárhæð með sam-
starfi við einkafjármögnunaraðila
eins og lífeyrissjóði og þá erum við
komin upp í 150 milljarða á næsta
ári eða því þarnæsta.“
Margvísleg aðkoma
Spurður hvort þátttaka annarra
fjárfesta myndi felast í því að þeir
kæmu með eigið fé að sjóðnum segir
Óli Björn það ekki endilega nauð-
synlegt. Sjóðurinn geti verið leið-
andi í mörgum verkefnum á sama
tíma en aðrir fjárfestar komið að
þeim að hluta til eða í heild. Ástæða
þess að Óli Björn varpar hugmynd-
inni um innviðasjóðinn fram er að
hans sögn sú að þótt æskilegt sé að
losa um eignarhlut ríkisins í Ís-
landsbanka, sem í dag er að öllu
leyti í eigu þess, þá geti það tekið
langan tíma og ekki sé æskilegt að
bíða með mikilvægar framkvæmdir
eftir því sem sölunni vindi fram.
Betra sé að sjóðurinn geti selt
„bréfin í rólegheitum á næstu fimm,
tíu eða fimmtán árum eftir því
hvernig markaðsaðstæður eru og
verð. Eftir því sem þeir selja bréfin
þá gengur söluverðið inn á útistand-
andi lán sem innviðasjóðurinn hefur
tekið. Þannig má flýta allri þessari
aðgerð.“
Hann segir að ríkið hafi ástæðu
til þess að stíga inn í núverandi að-
stæður í hagkerfinu og auka fjár-
festingu með afgerandi hætti. Slík
skref geti „hleypt súrefni“ til at-
vinnulífsins, jafnt ferðaþjónustunn-
ar sem byggingageirans. Sagði hann
að það gæti aukið „sjálfstraust fyr-
irtækja“.
Arðbærni að leiðarljósi
Þótt Óli Björn segi það markmið í
sjálfu sér að koma framkvæmdum
af stað sem fyrst þurfi einnig að
hafa ströng viðmið um hvers kyns
þær eru.
„Það sem skiptir máli við þessar
aðstæður er í hvernig innviðum þú
fjárfestir. Þú getur fjárfest í ein-
hverri steinsteypu, byggingu, sem
kallar síðan í sjálfu sér á aukin rík-
isútgjöld í framtíðinni. Ég er ekki
þar. Ég vil að við einbeitum okkur
að því að setja fjármuni í að byggja
upp hagræna innviði sem eru arð-
bærir, létta undir með atvinnulífinu,
létta undir með einstökum byggðum
í landinu. Þar horfi ég á samgöng-
urnar fyrst og fremst, fjarskiptin og
flutningskerfi raforku.“
Hlutur í bankan-
um í innviðasjóð
Vill uppbyggingu arðbærra innviða
Morgunblaðið/Eggert
Eignarhlutur Íslenska ríkið á Ís-
landsbanka að öllu leyti.
Óli Björn
Kárason
Karlmaður á fimmtugsaldri hefur
verið ákærður fyrir brot gegn vald-
stjórninni. Er honum gefið að sök
að hafa veist með ofbeldi að lög-
reglumanni og sparkað í andlitið á
honum. Þá er hann einnig sagður
hafa hótað sama lögreglumanni og
þremur starfsfélögum hans ofbeldi.
Í ákæru kemur fram að maður-
inn hafi verið handtekinn í miðbæ
Reykjavíkur í desember árið 2018.
Inni í lögreglubíl sparkaði hann
tvisvar í andlit lögreglumanns með
þeim afleiðingum að sá hlaut heila-
hristing, mar á augnlok og augn-
svæði og áverka á höfði. Þá hótaði
hann lögreglumönnum og konum
þeirra og börnum ofbeldi.
Óður maður hótaði lögreglumönnum
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Fékk bíllinn
ekki skoðun?
Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl
Sameinuð gæði
BJB-Mótorstilling þjónustar
flesta þætti endurskoðunar
anngjörnu verði og að
ki förum við með bílinn
n í endurskoðun, þér
kostnaðarlausu.
á s
au
þin
að
Úrval af lamba- og nautasteikum
Fossháls 27, 110 Reykjavík
Opnunartími 7.30-16.30
Sími 557 8866
pantanir@kjotsmidjan.is
Komdu við
eða sérpantaðu
Gæða
kjötvörur