Morgunblaðið - 05.03.2020, Síða 24

Morgunblaðið - 05.03.2020, Síða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Hagsmunir borgarinnar hljóta að vera þeir að verslun og þjónusta við Laugaveginn vaxi og dafni. Því er óskiljanlegt að ráðist skuli vera á rótgróin verslunarsvæði eins og nú á að gera. Stjórnendur Reykjavíkur- borgar eiga ekki að ráða því hvaða verslanir lifi af eða ekki. Ákvörðun þar um eiga viðskiptavinir okkar að taka,“ segir Anna Bára Ólafsdóttir sem rekur verslunina Dún og fiður á Laugavegi 86 í Reykjavík. Framkvæmdir bæti umhverfið Óánægju gætir meðal margra kaupmanna og annarra þeirra sem þjónustu veita í miðborginni með þá ákvörðun borgarvalda að gera Laugaveg, Skólavörðustíg og Vega- mótastíg varanlega að göngugötum. Afmörkun svæðis eru Laugavegur og Bankastræti frá Klapparstíg að Þing- holtsstræti; Skólavörðustígur milli Bergstaðastrætis og Laugavegar og Vegamótastígur frá Laugavegi að Grettisgötu. Til stendur að fara í framkvæmdir á þessum slóðum á næstunni til að bæta umhverfi, það endurnýja yfir- borð, gróður, götugögn og fleira. Framkvæmdir verða unnar í níu litlum áföngum og unnar, skv. til- kynningu frá borginni, í samráði þá sem eiga fasteignir eða eru með starf- semi á þessum slóðum. Haldbær rök skortir „Dún og fiður er á þeim hluta Laugavegar sem er enn opinn, en ef marka má örlög kollega minna er sennilegt að ég þurfi að flytja með til- heyrandi rekstrartruflun, kostnaði og óþægindum fyrir viðskiptavini,“ segir Anna Bára sem bendir á að fleiri en 40 fyrirtæki hafi á síðustu misserum flutt eða lokað vegna lokunar Lauga- vegar. Þá hafi orðið mikill samdráttur í rekstri hjá sumum kaupmönnum sem hyggi því á lokun eða flutninga. „Þróunin er öll í sömu átt. Könnun Miðborgarinnar okkar og Samtaka verslunar og þjónustu leiddi í ljós af- gerandi andstöðu við lokun Lauga- vegar og gatna hér í grenndinni. Á þær er ekki hlustað af hálfu meiri- hlutans í borginni og afstaða til dæm- is kaupmanna er ekki virt. Allar yfir- lýsingar um samráð eru marklausar, segir Anna Bára sem telur það vera skyldu Reykjavíkurborgar að búa íbúum gott umhverfi og fyrirtækjum aðstæður til að lifa og dafna. Þetta tvennt haldist raunar í hendur og annað sé ógn við lífsviðurværi og hagsmuni. „Ef borgin vill okkur ekki við Laugaveg er eðlilegra að skýra frá því heiðarlega og gefa okkur svigrúm til að bregðast við eða bjóða nýjar lausnir,“ segir Anna Bára. „En að bola okkur í burtu þvert ofan í skýrar óskir okkar með því að gera okkur erfiðara fyrir eru eineltistilburðir og valdníðsla. Manni stendur ekki á sama þegar sameiginlegar stofnanir okkar og lýðræðislega kjörnir fulltrú- ar fara fram með þessum hætti. Við höfum ekki fengið nein haldbær rök fyrir lokun Laugavegar – og við- skiptavinir bregðast við þessum ráð- stöfunum borgarinnar og greiða at- kvæði með fótunum og hætta viðskiptum við okkur.“ Útrýma verslun í hjarta borgarinnar „Borgaryfirvöld hafa ekki haft neitt samráð við okkur kaupmenn í mið- borginni vegna lokunar gatna. Vilji þeirra sem ráða för standa til þess að útrýma verslun í hjarta borgarinnar,“ segir Rudiger Þór Seidenfaden sem rekur Gleraugnasöluna 65. Verslunin er gamalgróin og á sér tæplega 60 ára sögu við Laugaveg. „Undanfarin ár hefur Laugaveg- urinn verið lokaður bílaumferð á sumrin og afleiðing þess er að veltan hjá mér hefur dregist saman um 30%. Þessar tölur hafa þau sem eru fylgj- andi lokun gatna vefengt og sagt mér að vera bjartsýnn. Jú, það er ég líka en tölurnar um samdrátt eru alveg skýrar. Tek ég fram að verslun mín er við þann hluta Laugavegar sem hefur verið opinn bílaumferð til þessa en nú verður þar breyting á – og ég óttast afleiðingarnar. Þar bendi ég meðal annars á að margir við- skiptavina minna eru utan af landi og þeir koma ekki fótgangandi í mið- borgina og geyma bílana við Ártúns- brekku,“ segir Rudiger Þór. Kaupmenn Rudiger Þór Seidenfaden í Gleraugnasölunni og Önnu Báru Ólafsdóttur í versluninni Dún og fiður líst ekki á lokun Laugavegar fyrir bílum. Yfirlýsingar um samráð marklausar  Kaupmenn gagnrýna lokun Laugavegar og fleiri gatna fyrir bílaumferð  Gagnrýna borgaryf- irvöld  Verslunum lokað eða þær fluttar  Veltan dregst saman  Eineltistilburðir og valdníðsla Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.