Morgunblaðið - 05.03.2020, Page 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020
ER BROTIÐ Á ÞÉR?
Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan
skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur.
Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst.
Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin
ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn.
HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT.
botarettur.is
BAKSVIÐ
Guðrún Hálfdánardóttir
guna@mbl.is
Góðir kennarar eru gulls ígildi og
geta haft mikil áhrif á allt líf ungs
fólks. Mikilvægt er að athygli sé vakin
á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og
frístundastarfi hér á landi, segir Lilja
Alfreðsdóttir, mennta- og menningar-
málaráðherra. Þetta kom fram í máli
hennar þegar ákvörðun var tekin um
að endurvekja Íslensku mennta-
verðlaunin.
Verðlaun þessi voru veitt í tíð Ólafs
Ragnars Grímssonar, fyrrverandi
forseta, frá árinu 2005 til ársins 2011,
alls í sjö skipti. Nú hefur verið gert
samkomulag um að veita verðlaunin
árlega næstu fimm árin.
Að samkomulaginu standa embætti
forseta Íslands, mennta- og menning-
armálaráðuneyti, samgöngu- og sveit-
arstjórnarráðuneyti, Félag um
menntarannsóknir, Grunnur – félag
fræðslustjóra og stjórnenda skóla-
skrifstofa, kennaradeild Háskólans á
Akureyri, Kennarasamband Íslands,
Listaháskóli Íslands (listkennsludeild
og tónlistardeild), Menntamálastofn-
un, menntavísindasvið Háskóla Ís-
lands, Miðstöð skólaþróunar við Há-
skólann á Akureyri, Samband
íslenskra sveitarfélaga, Samtök
áhugafólks um skólaþróun og skóla-
og frístundasvið Reykjavíkurborgar.
Forseti Íslands skipaði Gerði
Kristnýju Guðjónsdóttur, skáld og
rithöfund, formann viðurkenning-
arráðs, sem heldur utan um fram-
kvæmd verðlaunaveitinganna. Ráð-
gert er að veita verðlaunin í
nóvember en um síðustu mánaðamót
var auglýst eftir tilnefningum frá al-
menningi.
Framúrskarandi
skólastarf verðlaunað
Markmið verðlaunanna er að vekja
athygli á metnaðarfullu og vönduðu
skóla- og frístundastarfi og auka veg
menntaumbótastarfs. Þau verða veitt
í þremur flokkum; ein verðlaun verða
veitt skóla eða annarri mennta-
stofnun fyrir framúrskarandi starf.
Þá verður kennara sem stuðlað hefur
að framúrskarandi menntaumbótum
veitt verðlaun og þau þriðju verða
veitt þróunarverkefni á sviði mennt-
unar sem stenst ýtrustu gæðakröfur.
Að auki verður veitt hvatning til ein-
staklings, hóps eða samtaka sem lagt
hafa af mörkum við að stuðla að
menntaumbótum sem þykja skara
fram úr að sögn Gerðar Kristnýjar.
Hafþór Guðjónsson, kennari sem
situr í viðurkenningarráðinu fyrir
hönd Samtaka áhugafólks um
skólaþróun, segir að hægt sé að til-
nefna kennara, skóla eða alla þá sem
koma að skólastarfi allt frá leik-
skólastigi og til loka framhalds-
skólastigsins. Skilyrði eru sett um að
þeir sem tilnefndir eru til kenn-
araverðlaunanna séu með full réttindi
sem kennari en ekki er gerð krafa um
slíkt í öðrum flokkum enda ná aðrir
flokkarnir til annarra en einstaklinga.
Hulda Dögg Proppé, kennari og
formaður Samtaka áhugafólks um
skólaþróun, segir að þróunarverkefni
sem fái tilnefningar geti verið ein-
staklingar, hópar eða samtök sem
þykja skara fram úr. Þrátt fyrir að
verðlaunin heiti Íslensku mennta-
verðlaunin líkt og forveri þeirra hafa
verið gerðar breytingar á verðlaun-
unum.
Allt frá leikskóla
til framhaldsskóla
„Ein þeirra breytinga er að nú er
hægt að tilnefna fyrir starf á þremur
skólastigum, það er leik-, grunn- og
framhaldsskólastigið en áður voru
verðlaunin bara á grunnskólastig-
inu,“ segir Hulda Dögg.
Sjálandsskóli í Garðabæ fékk Ís-
lensku menntaverðlaunin árið 2011
og voru þau afhent af forseta Íslands,
Ólafi Ragnari Grímssyni. Svo
skemmtilega vildi þá til að athöfnin
fór fram í Sjálandsskóla en það hafði
verið ákveðið áður en ljóst var hvaða
skóli fengi verðlaunin.
Menntaverðlaunin eru veitt þeim
skóla sem hefur sinnt vel nýsköpun
eða farsælu samhengi í fræðslustarfi.
Edda Björg Sigurðardóttir er skóla-
stjóri Sjálandsskóla og var að vonum
ánægð með verðlaunin. „Þetta gefur
okkur drifkraft til að halda áfram á
þeirri braut sem við höfum verið að
fara. Þetta eru verðlaun alls starfs-
hópsins, ekki bara kennaranna. Við
höfum öll þjappað okkur saman um
að þróa skólann í þá átt sem hann er
kominn,“ segir Edda.
Flokkarnir voru einnig fjórir áður
en þá voru þau í fyrsta lagi veitt
skóla sem sinnt hafði nýsköpun eða
farsælu samhengi í fræðslustarfi.
Í öðru lagi var kennari heiðraður
sem skilað hafði merku ævistarfi eða
á annan hátt skarað fram úr.
Í þriðja lagi ungum kennara sem í
upphafi kennsluferils hefur sýnt
hæfileika og lagt alúð við starf sitt.
Að síðustu fékk höfundur námsefnis
sem stuðlað hefur að nýjungum í
skólastarfi verðlaun.
Hulda Dögg segir að oft vilji
gleymast það frábæra starf sem unn-
ið er í íslensku skólastarfi og segir
Hafþór sorglegt þegar kennara-
starfið er talað niður og kennarar
njóti ekki þeirrar virðingar sem þeir
eiga svo sannarlega skilið.
„Við höfum átt erfitt með að fá
kennara inn í skólana undanfarin ár
en jákvæð umfjöllun um skólamál, til
að mynda með Íslensku mennta-
verðlaununum, ýtir vonandi undir að
fólk feti þessa leið þegar það velur sér
starfsvettvang. Eitthvað svipað og er
í Finnlandi þar sem kennarastarfið
nýtur mikillar virðingar og keppst er
við að komast í kennaranám,“ segir
Hafþór og bætir við að auðvitað geti
ekki allir unnið til verðlauna en það sé
engu að síður hvetjandi að fá tilnefn-
ingu til verðlauna fyrir starfið.
Stöndum á krossgötum
Gerður Kristný segir að þrjár til
fimm tilnefningar verði í hverjum
flokki. „Við vonum að allir verði dug-
legir að senda inn og við leggjum
áherslu á að það er ekki flókið ferli að
tilnefna,“ segir hún en hægt er að til-
nefna á vef Skólaþróunar
(www.skolathroun.is) auk þess sem
hægt er að senda tilnefningar í pósti.
Ekki er samt nóg að senda inn nöfn á
fólki heldur verður að liggja rök-
stuðningur að baki tilnefningunni.
Hægt verður að senda inn tilnefn-
ingar til 1. júní og eins og áður sagði
verða verðlaunin afhent í nóvember.
„Þetta verður vonandi til þess að
hvetja kennara til að vera óhrædda
við að stíga fram og gera breytingar á
kennsluefni og kennsluháttum. Við
stöndum á ákveðnum krossgötum og
verðlaunin eiga að vera hvatning til
fólks að þora að gera eitthvað nýtt,“
segir Hulda Dögg og vísar þar til
verðlaunanna fyrir þróunarstarf.
Hægt er að tilnefna fyrir kennslu í
öllum greinum skólastarfsins, hvort
heldur sem það fer fram innan skóla-
stofu eða á frístundaheimilum eða
leikskóla sem og þróunar- og mennta-
umbótastarf af öllu tagi. Hvort sem
um er að ræða litla skóla út á landi
eða stóra safnskóla á höfuðborgar-
svæðinu.
Við leitum að kennurum sem þora
að prófa sig áfram, að mistakast, læra
á mistökunum og gæta þess að hlúa
vel að nemendum sínum sem koma úr
ólíkum áttum, segja þau Hulda, Haf-
þór og Gerður.
Góðir kennarar eru gulls ígildi
Íslensku menntaverðlaunin verða afhent í nóvember eftir að hafa legið í dvala í níu ár Verð-
launaflokkarnir eru fjórir Byrjað er að taka við tilnefningum um gott og metnaðarfullt skólastarf
Morgunblaðið/Eggert
Menntaverðlaun Hafþór Guðjónsson, Gerður Kristný Guðjónsdóttir og Hulda Dögg Proppé sitja í viðurkenningarráði Íslensku menntaverðlaunanna.