Morgunblaðið - 05.03.2020, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 05.03.2020, Qupperneq 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020 VILTU TAKAVIÐ GREIÐSLUMÁNETINU? KORTA býður uppá fjölbreytta þjónustu sem hentar bæði minni og stærri fyrirtækjum. Kannaðu málið. Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, 558 8000 / korta@korta.is / korta.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Tómas Kárason skipstjóri og hans menn á Beiti NK 123 sigldu á um tólf mílum norður Atlantshafið í gær með fullfermi af kolmunna eða um 3.100 tonn. Þegar talað var við Tómas voru þeir ekki langt frá klettinum Rockall um 300 mílur vestur af Skotlandi. Frá miðunum í grennd við Porcupine banka vestur af suðurodda Írlands eru um 830 sjómílur heim til Neskaupstaðar þangað sem ráðgert er að koma í fyrramálið eftir um 70 klukkutíma siglingu. Veiðar gengu vel í þessum túr og veður er búið að vera gott á miðun- um í um vikutíma. Aðeins einu sinni þurfti Beitir að gera hlé á veiðum í um 40 tíma vegna brælu í þessu veðravíti eins og Tómas kall- ar það. Hætta á að sprengja „Þarna var nóg að sjá og þegar best lætur er aðeins togað í nokkr- ar mínútur. Þá er kúnstin að fá ekki of mikið því það er alltaf hætta á að sprengja pokann. 3-500 tonn er mjög fínt, en stærsta holið í þessum túr var 550 tonn eftir að- eins fáeinar mínútur,“ segir Tómas. Beitir er sex ára gamalt skip, 86 metra langt og tæplega 18 metrar á breidd. Síldarvinnslan hf. keypti skipið 2015 og er það eitt af best búnu og afkastamestu uppsjávar- veiðiskipum flotans. Á miðunum á alþjóðlega hafsvæðinu vestur af Ír- landi var Beitir ásamt fjölda ann- arra skipa, m.a. frá Íslandi, Fær- eyjum, Noregi, Rússlandi og Hollandi. Kolmunninn er farinn að nálgast hrygningu, en að henni lokinni „straujar hann norður á bóginn í fæðuleit“ eins og Tómas orðar það. Íslendingar veiða mest af kol- munna á alþjóðlegu hafsvæði vest- ur af Bretlandseyjum og í fær- eyskri lögsögu. Síðan skall á kolbrjálað veður Þó svo að veður hafi verið gott á miðunum síðustu daga hefur tíðin verið erfið síðustu vikur. Á heima- síðu Síldarvinnslunnar mátti lesa eftirfarandi á þriðjudag, en þá var rætt við Gísla Runólfsson, skip- stjóra á Bjarna Ólafssyni AK: „Heimsiglingin tók hvorki meira né minna en fjóra og hálfan sólar- hring. Fyrstu tveir sólarhringarnir voru ágætir en síðan skall á kol- brjálað veður og tíu metra öldu- hæð. Við slóuðum bara í hátt í tvo sólarhringa. Það er ágætis veiði þarna á miðunum þegar viðrar en staðreyndin er sú að þetta er ógeðslegt svæði veðurfarslega. Svei mér þá ef maður er ekki að verða of gamall í þetta,“ segir Gísli. „Kúnstin að fá ekki of mikið“  Góð kolmunnaveiði í góðu veðri síðustu viku vestur af Írlandi  Getur verið sannkallað veðravíti Ljósmyndir/Helgi Freyr Ólason Veðravíti Ótíð hefur oft verið á miðunum vestur af Írlandi í vetur og líka gefið á bátinn á siglingu til og frá Íslandi. Góður afli Vel hefur fiskast á kolmunnamiðum undanfarið og þarna eru um 550 tonn í pokanum á síðunni. Í brúnni Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti NK, á heimstíminu í gær. Kolmunni Noregshaf ÍSLAND ÍRLAND NOREGUR FÆREYJAR Útbreiðslusvæði kolmunna Hrygningarstöðvar Göngur kolmunna á vorin Kolmunna- skipin eru að veiðum vestur af suðurodda Írlands, um 800 mílur suður af Íslandi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.