Morgunblaðið - 05.03.2020, Síða 36
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Bílaleiguflotinn í landinu dróst saman
á síðasta ári í fyrsta skipti síðan árið
2006, samkvæmt samantekt fjár-
mögnunarfyrirtækisins Ergo, dóttur-
fyrirtækis Íslandsbanka.
Í samantektinni kemur fram að
flotinn hafi dregist saman um sex pró-
sent, en sem dæmi óx hann um tvö
prósent árið 2018, 20% árið 2017, 35%
árið 2016 og 26% árið 2015.
24.182 bílaleigubílar voru á landinu
í fyrra, en árið á undan var fjöldinn
25.591 bíll. Þess má geta að frá árinu
2006 hefur fjöldi bílaleigubíla aukist
úr 4.756 bílum upp í 25.591 bíl þegar
hæst stóð árið 2018, eins og fyrr sagði,
en það er rúmlega fimmföldun. Á
sama tíma hefur fjöldi ferðamanna í
landinu margfaldast. Þeir voru 460
þúsund árið 2006, tæpar tvær millj-
ónir í fyrra og rúmlega 2,3 milljónir er
mest lét árið 2018.
Rekstraraðilum fækkar
Einnig segir í samantekt Ergo að
1,22 bílar hafi verið á hverja 100
ferðamenn á landinu í fyrra, sem er
aukning frá árinu 2006 þegar 1,19
bílar voru á hverja 100 ferðamenn.
Þegar litið er til fjölda rekstrar-
aðila bílaleiga á landinu á síðustu ár-
um kemur í ljós að þeim hefur fækk-
að. Á síðasta ári voru rekstraraðilar
sjötíu og sex talsins, en árið á undan
voru þeir 79. Árið 2017 voru þeir hins-
vegar mun fleiri eða 113 talsins. Í
fyrra voru 34 bílaleigur með 50 bíla
eða fleiri í rekstri, 29 bílaleigur voru
með 10-49 bíla og 13 leigur voru með
1-9 bíla í rekstri.
Stærsta bílaleiga landsins er Höld-
ur, en undir henni eru bílaleigurnar
Bílaleiga Akureyrar og Europecar.
Leigan var með 4.779 bíla í sínum
flota á síðasta ári, eða tæplega 20% af
heildarfjölda bílaleigubíla á landinu.
Jókst fjöldi bíla í flota leigunnar um
fimm prósent milli áranna 2018 og
2019. Næstu sjö bílaleigur á lista yfir
stærstu bílaleigur landsins drógu
hinsvegar allar úr framboði sínu á síð-
asta ári. Samtals búa fimm stærstu
leigur landsins yfir 58,5% af heildar-
fjölda bílaleigubíla á landinu, og þær
tíu stærstu eru með 76,6% flotans.
Þegar horft er til mesta vaxtar ein-
stakra bílaleiga kemur í ljós að bíla-
leigan Lotus, sem er 16. stærsta bíla-
leiga landsins, með 324 bíla, óx mest á
milli áranna 2018 og 2019, eða um
53%. Í öðru sæti hvað vöxt varðar var
bílaleigan Lava CarRental með 42%
vöxt, en hún er með 240 bíla í sinni
þjónustu.
Í greiningu Ergo er einnig getið
um hvaða fjármögnunaraðilar séu at-
kvæðamestir á íslenska markaðinum.
Þar má sjá að Ergo er með 46,1%
markaðarins í bílalánum, en næst á
eftir kemur Landsbankainn með
32,8%. Lykill er með 5,7%, Arion
banki er með 1,5% og aðrir eru með
14%.
Bílaleigubílum fækkaði
í fyrsta sinn síðan 2006
Fjöldi bílaleigubíla 2006-2019 og breyting milli ára
30
25
20
15
10
5
0
1,8
1,5
1,2
0,9
0,6
0,3
0
Fjöldi bílaleigubíla, þúsundir
Fjöldi bíla á hverja 100 ferðamenn
2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019
4,8 4,8
5,6 5,7
6,6
7,9
9,6
11,4
12,2
15,4
20,8
25,1 25,6
24,2
Þúsundir bíla
Fjöldi á hverja
100 ferðamenn
1,19
1,22
+26%
+35%
+20% +2%
-6%
Sjö stærstu
bílaleigurnar árið 2019
» Höldur/Bílaleiga Akureyrar/
Europecar
» Alp/Avis/Budget/Payless/
Zipcar
» Bílaleiga Flugleiða/Hertz/
Firefly
» Blue Car Rental/Goldcar
» Bílaleigan Berg/Sixt
» Brimborg/Dollar-Thrifty
» Bílaleigan Geysir
1,22 bílar á hverja 100 ferðamenn Rekstraraðilar 113 árið 2017 en eru núna 76
36 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020
5. mars 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 128.24 128.86 128.55
Sterlingspund 164.06 164.86 164.46
Kanadadalur 95.98 96.54 96.26
Dönsk króna 19.067 19.179 19.123
Norsk króna 13.806 13.888 13.847
Sænsk króna 13.5 13.58 13.54
Svissn. franki 133.81 134.55 134.18
Japanskt jen 1.1873 1.1943 1.1908
SDR 176.66 177.72 177.19
Evra 142.5 143.3 142.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.3158
Hrávöruverð
Gull 1599.05 ($/únsa)
Ál 1684.0 ($/tonn) LME
Hráolía 53.47 ($/fatið) Brent
● Arion banki hef-
ur ákveðið að
bjóða nýja tegund
húsnæðislána sem
viðskiptavinir
bankans geta tek-
ið til viðbótar
þeim lánum sem
tekin eru hjá
lífeyrissjóðum.
Bankinn bendir í
tilkynningu á að
ýmsir, einkum þeir
sem ekki eiga mik-
ið eigið fé til fast-
eignakaupa, hafi
ekki átt þess kost að nýta sér hús-
næðislán lífeyrissjóða sökum þess að
sjóðirnir bjóða almennt lægri láns-
hlutföll en bankastofnanir hafa gert.
Það geri sjóðirnir á sama tíma og þeir
bjóði almennt hagstæða vexti til þeirra
sem kost hafa haft á að taka lán hjá
þeim.
Með viðbótarlánum Arion banka
verður fólki kleift að taka lán fyrir allt
að 80% af kaupverði en allt að 85%
ef um fyrstu kaup er að ræða. Í þeim
tilvikum þar sem fólk endurfjármagnar
eldri húsnæðislán verður lánshlutfallið
einnig 80%. Að sögn bankans geta
lánin bæði verið verðtryggð og óverð-
tryggð og þau beri breytilega vexti og
lánstími geti verið á bilinu 5 til 25 ár.
Arion býður ný viðbótar-
lán við lán lífeyrissjóða
Arion Býður nýj-
ung á lánamarkaði.
STUTT
● Hlutabréf sjávarútvegsfyrirtækisins
Brims hækkuðu mest í viðskiptum í
Kauphöll Íslands í gær og nam hækk-
unin 1,75%. Þá hækkuðu bréf fast-
eignafélagsins Regins um ríflega 1%.
Önnur félög hækkuðu minna.
Mesta lækkunin varð á bréfum
fasteignafélagsins Reita og nam hún
2,14%. Þá lækkuðu bréf trygginga-
félagsins VÍS um 1,72%. Festi lækk-
aði um 1,56% en félagið á og rekur
verslanir Krónunnar og bensínstöðvar
N1.
Mest var velta með bréf Arion
banka eða 433 mlljónir. Þá nam velta
með bréf Festar 337 milljónum króna.
Bréf Icelandair lækkuðu um 1,34% í
viðskiptum gærdagsins og nam velta
með bréf félagsins tæpum 250 millj-
ónum króna. Úrvalsvísitalan lækkaði
lítillega í gær eða um 0,14% og hefur
því lækkað um 8,6% frá áramótum.
Brim hækkaði mest en Reitir lækkuðu mest
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646