Morgunblaðið - 05.03.2020, Qupperneq 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Þriðjudag-urinn stóri“reyndist
vissulega sögu-
legur viðburður í
prófkjörsatgangi
demókrata í
Bandaríkjunum.
Fjölmiðlar vestra geta með
réttu lesið margar sögulegar
fréttir og stjórnmálalegar út-
listanir úr úrslitunum.
Það er sagt að Bandaríkja-
menn elski „comeback kids“
og í pólitíkinni hefur Bill
Clinton verið talinn frægt
dæmi um það fyrirbæri. Og
þótt „kid“ falli ekki vel að Joe
Biden þá verður því ekki neit-
að að varaforsetinn fyrrver-
andi, sem oft hefur barist í
prófkjörum vegna framboðs
til forseta og aldrei unnið eitt
einasta fylki, er óvæntur sig-
urvegari dagsins, þótt hann
virtist telja að þriðjudaginn
bæri upp á fimmtudag að
þessu sinni.
Það var almennt mat fyrir
örfáum vikum að Biden væri
orðinn pólitísk innstæða sem
einungis ætti eftir að afskrifa
formsins vegna.
Og lungi allra skýrenda sá
ekki betur en að Bernie Sand-
ers myndi koma frá stóra
deginum með flesta kjörmenn
í sínum sekk, þótt töluvert
myndi þó vanta upp á að hann
hefði tryggt sér að verða
frambjóðandi gegn Trump.
En eftir nóttina blasti sú
niðurstaða við að Sanders
hefði tapað baráttu sinni,
vegna þess að ráðandi öfl í
Demókrataflokknum hefðu í
annað sinn ákveðið að það
væri óhjákvæmilegt. Þau
höfðu lengi byggt áætlanir
sínar á að Bloomberg auð-
manni myndi takast að kaupa
sigurinn.
Svo viss var Bloomberg um
afl auranna, ekki síst væru
þeir óþrjótandi, að hann lof-
aði því opinberlega að færi
svo, þvert á vonir sínar, að
einhver annar yrði frambjóð-
andi fyrir sinn nýja flokk, þá
myndi hann kosta baráttu
hans eins og hann væri sjálf-
ur í framboði.
En Bloomberg fór illlega út
af sinni borguðu braut strax í
fyrstu kappræðunni sem
hann tók þátt í. Og tveimur
vikum síðar ákvað flokkseig-
endafélag demókrata loks að
gefa Bloomberg upp á bátinn
og gera Joe Biden að fram-
bjóðanda þrátt fyrir þekkta
skavanka og vaxandi áhyggj-
ur um að hann „gengi ekki á
öllum sem frambjóðandi“.
Margir almennir demókrat-
ar telja að flokkurinn hafi
ekki átt annan kost í þessari
undarlegu stöðu. Bloomberg-
braskið var beisk-
ur biti, sem
reyndist að auki
ótyggjanlegur. Og
þessum trygga
hópi flokksmanna
þótti augljóst að
Sanders myndi
ekki hafa roð við Trump,
enda sýndu kannanir að al-
mennir kjósendur voru ekki
tilbúnir að kjósa yfirlýstan
sósíalista sem forseta. Það
var eins og augu fjöldans
opnuðust þegar Sanders fór
að bera blak af Fidel Castro
og réttlæta óhugnaðar-
stjórnarfar hans með því að
margir krakkar hefðu lært að
lesa í stjórnartíð hans. „Þar
með gulltryggði hann Flórida
fyrir Trump,“ sögðu þeir.
Það var einnig skoðun
þessa hóps að Sanders myndi
ekki aðeins sem frambjóðandi
leggja beina braut fyrir
Trump inn í Hvíta húsið á ný,
heldur gæti skaðinn orðið
miklu meiri. Því að almennir
kjósendur myndu einnig, af
ótta við Sanders sem forseta,
telja öryggismál að tryggja
repúblikönum ríflegan meiri-
hluta í báðum deildum til að
draga tennur úr Sanders sósí-
alista.
En helstu handlangarar
demókrata eru augljóslega
ekki algjörlega sannfærðir
um að Biden komist klakk-
laust í gegnum síðasta hluta
prófkjörsins. Þess vegna
dynja nú háværar kröfur á
Bernie Sanders um að hann
hætti nú þegar við framboð
sitt, enda hafi staða hans
snarveikst við það að Mike
Bloomberg hafi nú hætt við
sitt brölt eftir lélegan árang-
ur á þriðjudag.
Varla verður um það deilt
að langmestur þróttur, áhugi,
svo ekki sé talað um hug-
sjónaeldinn, hefur aug-
ljóslega brunnið hjá stuðn-
ingsmönnum Sanders. Það er
því hætt við að margur á
þeim bæ verði reiður og
svekktur vegna meðferð-
arinnar á leiðtoganum, nú
þegar aftur er höggvið í sama
knérunn.
Það þyrfti hins vegar mikið
ímyndunarafl til að ætla eða
vona að margir af hinum
heitu stuðningsmönnum
Sanders muni í svekkelsi sínu
beina atkvæðum sínum og afli
í þágu Trumps forseta.
En hitt er talið líklegra að
unga fólkið sem flykktist um
Sanders sósíalista muni lítt
finna sig í því að gera af eld-
móði upp á milli Bidens og
Trumps. Það er ekki með öllu
útilokað að sé það rétt kunni
það að reynast demókrötum
dýrkeypt.
Það er uppi gjör-
breytt staða eftir
stóra slaginn í próf-
kjöri bandarískra
demókrata}
Þriðjudagurinn mikli
S
amband Íslands og Póllands er
sterkt og vaxandi. Viðtökurnar í
opinberri heimsókn forseta Íslands
til Póllands eru merki um það, en
heimsókninni lýkur í dag. Saga
þjóðanna er afar ólík, þar sem pólsk menning
hefur mótast af landfræðilegri stöðu og átök-
um á meginlandi Evrópu í árhundruð. Íslensk
menning á rætur í hnattstöðu landsins, mikilli
einangrun um aldir og smæð þjóðar. Engu að
síður eru þjóðirnar um margt líkar og við deil-
um mörgum gildum. Það kann að vera ein
ástæða þess, að þeir ríflega 21 þúsund Pól-
verjar sem búa á Íslandi hafa komið sér vel
fyrir í nýju landi, gerst virkir þátttakendur í
samfélaginu og auðgað íslenska menningu.
Það á ekki að koma neinum á óvart að þjóð
sem alið hefur af sér vísinda- og listamenn á
borð við Chopin, Kópernikus og Marie Curie skuli stolt
af uppruna sínum og menningu. Menningarsamband Ís-
lands og Póllands hefur sjaldan verið jafn gæfuríkt og
nú. Á 50 ára afmæli Listahátíðar í Reykjavík verður lögð
sérstök áhersla á pólska listamenn og samfélag fólks af
pólskum uppruna á Íslandi. Á sviði tónlistar, kvikmynda
og sviðslista hafa myndast sterk tengsl milli Íslands og
Póllands og meðal annars leitt til samstarfs Íslensku óp-
erunnar og Pólsku þjóðaróperunnar. Það sama hefur
gerst í heimi bókmenntanna og var Ísland heiðursland á
stórri bókamessu í Gdansk í fyrra – þeirri fallegu hafn-
arborg, sem geymir ómælda þekkingu á skipasmíðum og
því sögu sem tengist íslenskum sjávarútvegi.
Þá hefur Íslensk-pólsk veforðabók orðið til og
mætir brýnni þörf pólskumælandi fólks á Ís-
landi, nemenda og kennara á öllum skólastig-
um, þýðenda og túlka. Grunnskólanemendur
með erlent móðurmál hafa aldrei verið fleiri
en nú. Um 3.000 pólskumælandi börn eru í ís-
lenskum skólum og það er brýnt að þeim séu
tryggð sömu réttindi og tækifæri og börnum
íslenskumælandi foreldra. Skólarnir eru mis-
vel búnir til að mæta þörfum þeirra. Það
skiptir sköpum fyrir framtíð þeirra og sam-
félagið allt að vel takist til á þessu sviði. Ís-
lensk og pólsk menntamálayfirvöld hafa und-
irritað samstarfsyfirlýsingu um að efla enn
frekar samstarf landanna á sviði menntunar.
Lögð verður áhersla á að nemendur af pólsk-
um uppruna hafi aðgang að menntun á
móðurmáli sínu, hvatt er til aukins samstarfs mennta-
stofnana og samskipta ungmenna, kennara og skóla-
starfsfólks. Jafnframt þarf að efla íslenskukunnáttu
þessara barna. Góð íslenskukunnátta mun tryggja börn-
um af erlendum uppruna betri tækifæri, auka þekkingu
þeirra á samfélaginu, félagsfærni og hjálpa þeim að
blómstra. Í tilefni opinberrar heimsóknar forseta Ís-
lands er vert að staldra við og kanna hvernig efla megi
samvinnu landanna enn frekar. Hún hefur verið farsæl
fyrir báðar þjóðir og mun vonandi verða um alla tíð.
Lilja Dögg
Alfreðsdóttir
Pistill
Bókmenntir, listir og skipasmíðar
Höfundur er menntamálaráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
sem staðið hefur yfir í nær áratug,
Arnarfjörður á miðöldum. Beinist
ransóknin nú aðallega að rústum
fornskála á Auðkúlu sem líklega hef-
ur verið í byggð á tímabilinu frá 900
til 1100.
Sex styrkir eru veittir til frá-
gangs, úrvinnslu og skila á gögnum
frá ýmsum rannsóknum, þar á meðal
rannsókn á Bessastöðum sem hófst
fyrir meira en 30 árum. Fara sam-
tals tæpar þrettán milljónir króna úr
sjóðnum í þetta og auk þess er veitt-
ur styrkur að upphæð 1,3 milljón
króna til að halda úti Árbók Forn-
leifafélagsins. Ennfremur fá sam-
tökin Björgum Magna áfram styrk
til viðhalds og viðgerða á þessum
fræga dráttarbát, fyrsta stálskipinu
sem smíðað var hér á landi.
Þá fá þrjár fornleifarannsóknir
komandi sumars styrki. Tvær þeirra
eru á vegum Fornleifastofnunar sem
fær 2,3 milljónir króna til að halda
áfram rannsókn á öskuhaugum áður
óþekkts bæjarstæðis í Þjársárdal,
„Bergsstöðum“, og 2,8 milljónir til
björgunarrannsókna á landnáms-
minjum í Sandvík á Ströndum. Þær
uppgötvuðust fyrir tilviljun fyrir
nokkrum árum. Loks fær Minjasafn
Reykjavíkur í þriðja sinn styrk til
verkefnisins „Fornar rætur Árbæj-
ar“ en þar er um að ræða uppgröft á
bæjarstæði hins forna Árbæjar sem
nú er innan girðingar Árbæjarsafns.
Um 40 milljónir í
fornleifarannsóknir
Ljósmynd/Facebook-síða Fornleifafræðistofunnar
Minjar Fornleifafræðistofan heldur í sumar áfram uppgeftri á stórbýli á
Mýrdalssandi sem lagðist í eyði um aldamótin 1400 eftir mörg gos í Kötlu.
FRÉTTASKÝRING
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Úthlutað var úr fornminja-sjóði fyrir þetta ár áþriðjudaginn fyrir 41,3milljónir króna. Alls fá
16 verkefni styrk að þessu sinni. Í
frétt frá Minjastofnun segir að um-
sóknir hafi verið 60 talsins og 49
þeirra styrkhæfar eða 82% um-
sókna. Þrjú verkefni fengu hæstu
einkunn, þau voru öll undir 5 millj-
ónum sem er hámarksupphæð út-
hlutunar og eru því styrkt að fullu.
Átján verkefni hlutu næsthæstu ein-
kunn og varð því að velja úr þeim
umsóknum samkvæmt forgangs-
röðun sjóðsins og hlutu 13 þeirra
styrk að þessu sinni fyrir allt að 80%
af heildarkostnaði verkefnis en að
hámarki 3,5 milljónir kr.
Fimm verkefni fengu styrk að
upphæð 3,5 milljónir króna. Tveir
þeirra fara til Fornleifafræðistof-
unnar sem Bjarni Einarsson forn-
leifafræðingur stýrir. Um er að ræða
framhald fornleifauppgröfts í Stöðv-
arfirði og Arfabót á Mýrdalssandi. Í
Stöðvarfirði hefur komið í ljós skáli
frá landnámsöld og undir honum
annar skáli sem gæti verið frá því
fyrir tíma hefðbundinnar skilgrein-
ingar á landnámi. Arfabót var stór-
býli sem lagðist í eyði um aldamótin
1400 eftir mörg gos í Kötlu, hlaup og
flóð. Hinir þrír stóru styrkirnir fara
til Fornleifastofnunar, Háskóla Ís-
lands og fornleifadeildar Náttúru-
stofu Vestfjarða. Fornleifastofnun
ætlar að halda áfram rannsóknum
og uppgreftri í Ólafsdal við Gilsfjörð.
Mun hugmyndin vera sú að ljúka við
uppgröft á fornskála sem þar er og
hugsanlega grafa einnig upp jarð-
hýsi norðan við hann. Þá hefur verið
rætt um að grafa fleiri könnunar-
skurði í fornlegar rústir sem eru
bæði norðan og sunnan við skálann
og í rústabungu vestan við hann sem
geymir mannvistarleifar. Rannsókn-
irnar í Ólafsdal njóta einnig stuðn-
ings Minjaverndar sem stendur fyr-
ir uppbyggingu gamalla húsa á
þessu sögufræga menntabóli. Há-
skólinn (Orri Vésteinsson prófessor)
er að rannsaka minjar skála frá 10.
öld í Mývatnssveit, innan við 500 m
frá Hofsstöðum þar sem viðamikill
fornleifauppgröftur hefur farið
fram. Loks heldur Náttúrustofa
Vestfjarða áfram með stórt verkefni
Hægt er að fylgjast með mörg-
um íslenskum fornleifarann-
sóknum á Facebook-síðum sem
fornleifafræðingarnir hafa sett
upp. Eru þar yfir sumarið birtar
frásagnir og ljósmyndir af fram-
gangi rannsóknanna. Þar má oft
sjá fréttir sem síðar rata í fjöl-
miðla. Meðal slíkra síðna eru
Fornleifarannsóknin í Ólafsdal,
Arnarfjörður á miðöldum, Land-
námsskáli í Stöð og Fornar ræt-
ur Árbæjar. Auk þess er m.a.
hægt að leita upplýsinga á síð-
um Fornleifafræðistofunnar og
Fornleifastofnunar.
Fylgst með
á Facebook
FORNLEIFARANNSÓKNIR
Ljósmynd/Björn Húnbogi Sveinsson
Uppgröftur Rannsókn í Reykholti í
Borgarfirði fyrir nokkrum árum.