Morgunblaðið - 05.03.2020, Page 43

Morgunblaðið - 05.03.2020, Page 43
UMRÆÐAN 43 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020 SÉRSMÍÐI Fanntófell hefur sérhæft sig í framleiðslu á borðplötum og sólbekkjum síðan 1987. Fanntófell ehf. | Gylfaflöt 6-8 | 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is Sérsmíðum eftir óskum hvers og eins. Þú kemur með hugmyndina og við látum hana verða að veruleika með vandaðri sérsmíði og flottri hönnun. Aðalfundur Eimskipafélags Íslands hf. verður haldinn fimmtudaginn 26. mars 2020 kl. 16:00 í höfuðstöðvum félagsins að Korngörðum 2, 104 Reykjavík. Hluthafar eiga rétt á að fá mál sett á dagskrá, leggja fram ályktunartillögur og spyrja spurninga, með skriflegum eða rafrænum hætti. Kröfu þar um skal fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun sem berast skal stjórn félagsins eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, fyrir kl. 16:00 þann 16. mars 2020. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á vefsíðu félagsins: www.eimskip.com/investors Eitt atkvæði fylgir hverjum hlut í félaginu að frádregnum eigin hlutum sem eru án atkvæðisréttar. Aðgöngumiðar, atkvæða- seðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað. Hlut- höfum sem ekki sækja aðalfund stendur til boða að kjósa um dagskrármál með skriflegum hætti eða veita umboð. Ekki verður unnt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund þarf beiðni hluthafa um að kjósa með skriflegum hætti að berast félaginu. Hluthafar geta fengið atkvæðaseðla senda til sín, en einnig má nálgast þá í höfuðstöðvum félagsins þar sem greiða má atkvæði alla virka daga milli kl. 9:00 og 16:30. Atkvæðin skulu berast félaginu fyrir aðalfundinn. Hluthafar geta veitt skrifleg umboð að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Slík umboð skulu berast félaginu áður en aðalfundur hefst eða við skráningu á fundarstað. Nánari upp- lýsingar um atkvæðareglur og notkun umboða er að finna á vefsíðu félagsins: www.eimskip.com/investors 1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess á liðnu starfsári 2. Staðfesting ársreiknings fyrir síðastliðið reikningsár 3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar á reikningsárinu 2019 4. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutum 5. Tillaga um lækkun hlutafjár vegna kaupa á eigin hlutum skv. endurkaupaáætlun 6. Tillaga um heimild til lækkunar hlutafjár AÐALFUNDUR EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS HF. drög að dagskrá reglur um þátttöku og atkvæðagreiðslu á fundinum Skjöl sem lögð verða fyrir aðalfund er að finna á vefsíðu félagsins: www.eimskip.com/investors Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í höfuð- stöðvum félagsins að Korngörðum 2, 104 Reykjavík, virka daga milli kl. 9:00 og 16:30. Endanleg dagskrá og tillögur stjórnar verða birtar tveimur vikum fyrir fundinn. Berist tillögur frá hluthöfum verða þær birtar a.m.k. þremur dögum fyrir fundinn ásamt uppfærðri dagskrá. Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 má tilkynna um framboð til stjórnar skriflega minnst fimm dögum fyrir aðalfund. Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá kl. 15:30 á aðalfundardegi. Reykjavík, 4. mars 2020 Stjórn Eimskipafélags Íslands hf. aðrar upplýsingar Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | 525 7000 | eimskip.is 7. Tillaga um skipun og starfsreglur tilnefningarnefndar 8. Tillaga um starfskjarastefnu félagsins 9. Kosning stjórnar félagsins 10. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna, varamanna og undirnefnda stjórnar 11. Kosning endurskoðenda 12. Önnur mál, löglega upp borin Frétt um að loka ætti Nýsköpunar- miðstöð Íslands hélt ég fyrst að væri misskiln- ingur í fréttaflutningi en komið hefur í ljós að misskilningurinn var ekki hjá fréttaflytj- endum, það er hug- myndin um að loka sem greinilega er byggð á misskilningi. Það er ekki nýtt að einhver hagsmunaöfl í landinu séu andsnúin Nýsköpunar- miðstöðinni (áður Iðntæknistofnun og Rannsóknastofnun byggingariðn- aðarins sem komu frá atvinnudeild Háskólans). Ekki vegna haldbærra raka heldur illa grundaðra skoðana og vanþekkingar. Meira að segja ráð- herrar málaflokksins hafa ekki alltaf í gegnum árin staðið með stofnunun- um, núverandi ráðherra vill loka. Stofnanir tækni og nýsköpunar þurftu alltaf að berjast harðri baráttu fyrir lífi sínu. Skemmst er frá að segja að Ný- sköpunarmiðstöð hefur sinnt og sinnir mikil- vægum verkefnum fyrir marga aðila í landinu. Stofnunin hefur byggt upp þekkingu og at- vinnu sem skiptir okkur miklu máli. Nýjar hug- myndir og ný þekking koma þaðan. Sérþekk- ing, fagmennska og trúnaður, sem margir nýta sér og treysta, eru höfð þar í heiðri. Ég legg til að starfsmenn nýsköp- unarráðuneytisins kynni sér starf- semi Nýsköpunarmiðstöðvarinnar. Að loka Nýsköpunarmiðstöð Íslands er skemmdarverk. Nýsköpunarmið- stöðina þarf að efla Eftir Friðrik Daníelsson Friðrik Daníelsson » Stofnunin hefur byggt upp þekkingu og atvinnu sem skiptir okkur miklu máli. Höfundur er fyrrverandi starfsmaður Iðntæknistofnunar. Skrif í blöð hafa sjaldnast mikil áhrif. Samt man ég eftir að fyrir 35 árum skrifaði ég grein í Morgunblaðið „Um tónlistarhús“ og í framhaldi af henni voru stofnuð samtök yfir 3.000 greiðandi stuðn- ingsmanna með það markmið að byggja tónlistarhús á Íslandi fyrir fólkið í landinu. Margir hafa tjáð mér að það sé ástæða þess að „Harpa“ sé nú stað- reynd, enda þótt ég sé ekki dómbær á að taka undir það. Ég hef átt afar ánægjulega ævi, ekki síst sökum þess að með störfum mínum í fyrrnefndum samtökum fékk ég tækifæri til að kynnast mörgu af okkar frábæra tón- listarfólki. Mér finnst ég því skulda jafnöldrum mínum að leggja þeim lið með nokkrum orðum. Aldraðir hafa engan samningsrétt og því er troðið á þeim eins og gert var á árum áður fyrir tíma virkrar kjarabaráttu verkalýðsfélaga – en dropinn holar steininn eins og sagt er. Forstöðumenn stjórnarflokkanna lof- uðu því að bæta kjör eldra fólks kæm- ust þeir til valda. Nú þremur árum síðar hefur akkúrat ekkert gerst. Elli- laun eru í dag 225 þúsund kr. og af því tekur ríkið náðarsamlegast 55 þúsund í skatt sem er svívirða (annað orð er ekki yfir það) svo að útborgaðar eru 170 þúsund. Fólkið í landinu veit al- mennt ekki af þessu og vill ekki hafa þetta svona. Sumir eru með lífeyr- issjóði til að bæta þetta um e.t.v. 30-70 þúsund svo að ráðstöfunartekjur eru kannski eitthvað yfir 200 þúsundum. Ég held að flestir viðurkenni að þetta sé undir fátækramörkum í dýrasta landi heims, Íslandi. Fyrir mig sem Íslending sem horfir á þjóð sína úr fjarlægð (nú síðustu 11 ár, þvingaðri ) láta landsmenn nánast allt yfir sig ganga og nöldra bara í barminn. Mörg okkar sem nú erum á áttræðis- aldri greiddum tugi milljóna í skatta á starfstíma okkar en þess sér hvergi merki í eftirlaunum. Okkar kynslóð vann þorskastríðin og tryggði yfirráð yfir fiskmiðum við Ísland. Það átti að tryggja jafna og góða afkomu um allt land. Raunin varð önnur. Sú kynslóð sem nú hefur verið tekin út af vinnu- markaði með valdboði byggði upp þjóðfélag nútímans. Það er vart sann- gjarnt að henni sé nú haldið á hungurmörkum. Það sem gerir eldra fólki nær ógerlegt að komast af er þessi gegndarlausa dýrtíð. Menn hrista bara hausinn, fara í Bónus og kaupa flest á margföldu verði m.v. það sem er í nágrannalöndunum í Evrópu. ASÍ birti inn- kaupakörfu heimilanna og samanburð við ná- grannalöndin um árabil. Af hverju var því hætt? Væri ekki ráð á að taka það upp aft- ur? Fyrir allri þessari dýrtíð á neyslu- vöru eru margar ástæður: Lands- virkjun selur grænmetisræktendum orku á margföldu verði m.v. stóriðju; fákeppni er ríkjandi; laun fólks eru orðin svo miklu hærri en í nálægum löndum að kostnaður við framleiðslu er allt of hár; einokun er á mjólkur- markaði, óstjórn er á sauðfjárafurða- framleiðslu, óhófleg skattlagning á léttvínum og fleira mætti telja. Verð- lag á nýju og notuðu húsnæði er eins og á dýrustu blettum stórkapítalism- ans í heiminum og er bæði græðgi sveitarstjórna og verktaka um að kenna. Ég skora því á þá sem kjörnir eru til forsvars á Íslandi að sýna nú af sér þann manndóm að bæta þessi lúsarlaun án frekari tafa. Í fyrsta lagi með því að afnema skattskyldu elli- og örorkulauna og í öðru lagi með því að hækka þau a.m.k. um 90 þúsund svo að þau nái meðaltali við önnur OECD-lönd þótt ekki nái þau að verða jöfn og á öðrum löndum á Norðurlöndum sem Íslendingar vilja oft miða sig við. Auk þess ber brýna nauðsyn til að ráðast gegn þessari óstjórnlegu dýrtíðarþróun með víð- tækum aðgerðum m.a. til þess að all- ir eldri borgarar neyðist ekki til að yfirgefa landið. Eftir Ármann Örn Ármannsson »Mörg okkar sem nú erum á áttræðisaldri greiddum tugi milljóna í skatta á starfstíma okk- ar en þess sér hvergi merki í eftirlaunum. Höfundur er fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Ármannsfells hf. armann@festival.is Kjör aldraðra og dýrtíð á Íslandi Ármann Örn Ármannsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.