Morgunblaðið - 05.03.2020, Page 48

Morgunblaðið - 05.03.2020, Page 48
48 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020 ✝ Tómasína Sól-veig Magnús- dóttir fæddist 2. apríl 1932 í Ný- lendu í Miðnes- hreppi. Hún lést á dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Grund 15. febrúar 2020. Sólveig var yngst af sjö börn- um hjónanna Magnúsar Bjarna Há- konarsonar, útvegsbónda í Ný- lendu, og eiginkonu hans Guð- rúnar Hansínu Steingrímsdóttur. Eldri systkini Sólveigar voru: Steinunn Guðný, f. 14. ágúst 1917, d. 12. okt. 1997; Ólafur Hákon, f. 5. júní 1919, d. 25. okt. 2010; Björg Magnea, f. 18. des. 1921, d. 10. júlí 1980; Einar Marinó, f. 4. feb. 1924, d. 21. des. 2017; Gunnar Reynir, f. 8. nóv. 1925, d. 5. des. 2012; Hólmfríður Bára, f. 12. maí 1929, d. 19. mars 2014. Sólveig hóf störf hjá Strætisvögnum Reykjavíkur árið 1947, aðeins fimmtán ára að aldri. Hún lauk þar störfum árið 2002 eftir 55 ára starfs- feril. Hún var ógift og barnlaus. Sólveig verður jarðsungin frá Neskirkju 5. mars 2020 kl. 11. Jarðsett verður í Hvalsnes- kirkjugarði kl. 14 sama dag. Allt mitt líf hef ég verið elsk- uð skilyrðislaust af guðmóður minni, ömmusystur og frænku Tómasínu Sólveigu Magnúsdótt- ur. Hún sagði mér það aldrei en allt sem hún gerði gerði það að verkum að ég efaðist aldrei um það. Mig langaði til þess að kalla hana ömmu mína en þá fékk ég að heyra að rétt skal vera rétt, „ég er ekki amma þín, ég er ömmusystir þín“. Það breytir því ekki að ef ég var lyklalaus gat hún hleypt mér inn, ef ég var veik kom hún með kók og ban- ana, ef ég þurfti að fara eitthvað var hún mætt til að skutla mér. Ég lærði að reikna á skrifstofu hennar á strætó, búa til dúkku- lísur við matarborðið hennar og gróðursetja tré í Sólveigarlundi. Hennar andi gerði líf mitt öruggt og áhyggjulaust. Hún var steypustyrktarjárnið sem var hægt að treysta á sama hvað. Á þriðjudagseftirmiðdögum fórum við í Sólveigarlund saman. Hún kom beint úr vinnunni í fínu heimasaumuðu dragtinni sinni og á hælaháu skónum sín- um, með svarta leðurhanska í stíl við leðurtöskuna sína. Í bíln- um beið allt það sem foreldr- arnir leyfðu ekki á heimilinu, súkkulaðikex, appelsín súkku- laðikaka og snakk. Þegar við komum í Sólveigarlund löbbuð- um við með veitingarnar í gegn- um lystigarðinn sem hún hafði skapað á klöppunum í Hvalsnes- hverfi og inn í litla dúkkuhúsið í miðjum garðinum. Í þrönga and- dyrinu skipti hún um föt og fór úr dragtinni og hælaháu skónum í þægilegar buxur og ullarpeysu og eyrnaband eða klútur var settur um vel krullaða ljósa hár- ið. Það var alltaf eitthvað sem þurfti að huga að. Það þurfti að reyta arfa og kerfil, rífa upp lúp- ínu áður en hún náði að blómstra, gróðursetja margs- konar tré í sandinum, byggja bekki úr gömlum Moggablöðum og endurhlaða vegginn þar sem steinarnir höfðu dottið. Allt sem hún gerði gerði hún af ást og natni. Hún bjó til öruggt rými fyrir sig þar sem hún get verið hún sjálf. Hún hleypti mér inn í það rými án nokkurra kvaða eða tilætlana. Þegar ferðin suður fór að vera henni of erfið fórum við í göngutúra saman um Grandann og Ánanaust. Það var ekki fyrr en seinustu árin að við gátum hist og setið saman og spjallað án þess að hafa eitthvað fyrir stafni. Nammið var samt ekki langt undan. Ég mætti með súkkulaðistykki og svo keppt- umst við um að bjóða hinni sein- asta bitann. Seinustu árin bjó hún í góðu yfirlæti á dvalarheimilinu Grund. Hún var umkringd góðu fólki sem henni leið vel með. Seinustu vikurnar sátum við saman og skoðuðum myndir af systurdóttur minni, langömmu- systurdóttur hennar, af allri þeirri ást sem bjó í brjósti okk- ar. Þessar stundir voru verð- mætar. Við leiddumst og ég mal- aði og hún hlustaði eins og í gamla daga. Meira að segja í seinustu heimsókninni minni var hún að passa upp á að mér liði vel. Ef ég fæ að búa til samband við mín systkinabörn sem svipar á einhvern hátt til sambands míns við Veigu þá lifir andi hennar með okkur. Til heiðurs Veigu mun ég elska þessar litlu verur og ég vona að ég geti hjálpað til við að búa til jafn öruggan og skemmtilegan heim og Veiga skapaði fyrir mig. Þórhildur Heimisdóttir. Veiga. Nú þegar þinn lífsins strætó er að nálgast sína endastöð þá er kominn tími til að kveðja. Erfitt að fá ekki að strjúka þér um vangann og kyssa þig á ennið og þakka þér fyrir samfylgdina. Ég er afar þakklát að hafa fengið að vera farþegi og ferðast með þér alla mína tíð. Erfitt finnst mér að leiðir ykkar Móu minnar hafi ekki skorist en hún mun fá að heyra endalaust af sögum um þig. Ég hlakka til að fara með Móu í Sólveigarlund og sýna henni Undraland, hlaupa um klappirnar og tína blóðberg. Hlaupa í grasinu á tánum og kveikja upp í kamínunni og hrjúfra okkur undir súð. Sýna henni þennan stað sem þú skap- aðir og hleyptir okkur inn í. Þú hefur verið mér afar dýr- mæt, mín tenging við ömmu Björgu og gengið mér í ömmu stað. Þú leyfðir mér líka að vera góð við þig. Eins og í ófáu bíltúr- unum okkar minntirðu mig á að ég ætti ekki að reyna að vera of góð við þig, ís í brauðformi væri nóg, óþarfi að flækja það með einhverju gúmmelaði. Þú vildir hafa hlutina einfalda. Ég veit ekki hversu mörgum klukkutím- um við höfum eytt saman í bíl, fyrst þú við stýrið og svo ég. Fyrst þú að viðra mig og svo ég að viðra þig. Þú að kaupa handa mér ís og svo ég handa þér. Takk fyrir allt elsku Veiga mín. Takk fyrir kexið, kökurnar, gosið og snakkið. Takk fyrir að vera til staðar, veita mér öryggi, hlýju og félagsskap. Takk fyrir að kenna mér að spila, teikna og prjóna. Takk fyrir að sýna mér þol- inmæði og veita mér pláss fyrir dundið mitt. Takk fyrir að kenna mér að það er í lagi að sitja sam- an í þögn. Takk fyrir alla fimmtudagana, bílferðirnar og strunsið. Takk fyrir að vera mér svona góð. Skál í appelsíni og perubrjóst- sykri. Ásgerður Heimisdóttir. Sólveig, alltaf kölluð Veiga, var yngst móðursystkina minna. Hún kynntist mér þegar ég var sendur í sveit á æskuheimili hennar Nýlendu á Miðnesi til ömmu og afa, þá 19 mánaða að aldri. Hún hefur þá verið sjö ára. Eldri systir Veigu, Björg, alltaf kölluð Bugga, gekk mér í móð- urstað þetta fyrsta sumar í Ný- lendu en Veiga varð mér sem stórasystir. Mamma var þá upp- tekin við að eignast barn númer tvö, mína elskulegu systur Unnu, sem bættist síðan í sveit- ina ásamt ört stækkandi hópi barnabarna afa og ömmu sem voru sumarlangt á bænum. Veiga varð líka eins og stóra systir systur minnar og gætti okkar yfirleitt vel. Henni tókst hins vegar ekki að koma í veg fyrir að ég bryti stofugluggann í Nýlendu með því að sparka bolta þar í gegn en hún fór snarlega með mig niður í fjöru og faldi mig þar vendilega. Það þótti vissara á meðan afi jafnaði sig á afrekum nafna síns en hann var nokkuð bráðlyndur en rann samt reiðin jafnskjótt og á hann rann. Efir veru mína í Nýlendu héldust kynni okkar Veigu til æviloka en hún var mér alltaf jafnkær og það var svo sann- arlega gagnkvæmt. Hún var tíð- ur gestur á æskuheimili mínu á Bakkastíg enda eins og ein af fjölskyldunni. Engan hef ég vit- að sem nennt hefur að sauma handa mér náttföt og sængurföt en það gerði einmitt Veiga ár eftir ár. Svo ekki sé minnst á all- ar hinar gjafirnar sem hún færði mér, en gjafmild og hugulsöm var hún með afbrigðum. Það var mér því sérstök ánægja þegar ég gat gert eitt- hvað fyrir hana annað en að vera til. Mér er minnisstætt hvað hún var ánægð með eldhúsinnrétt- inguna sem ég teiknaði fyrir hana í nýju íbúðina sem hún eignaðist úti á Meistaravöllum en sérstök ánægja var að vinna að teikningum og byggingu sum- arbústaðar með henni í námunda við æskustöðvarnar í gömlum kartöflu- og rófugörðum sem nefndust þá Kjartansgarðar, steinsnar frá Hvalsneskirkju. Veiga hafði eignast reitinn og hafið þar trjá- og blómarækt áð- ur en húsið var byggt. Hún hafði mjög ákveðnar skoðanir um gerð þess; það skyldi falla að umhverfinu og ekki síst kirkj- unni. Um það varð ekki ágrein- ingur nema síður sé. Þessi stað- ur, nú nefndur Sólveigarlundur, varð að sælureit innan um alda- gamla grjótgarða þar sem hún undi sér alla tíð meðan heilsan leyfði. Veiga var búin að vera slöpp síðustu árin en þó aldrei svo að ekki fengi maður smábros við innlit hjá henni. Fyrir alla hennar tryggð og vináttu vil ég þakka innilega. Magnús Skúlason. Sólveig bjó lengstan hluta ævi sinnar í Reykjavík. Samt má vel segja að hún hafi verið Suður- nesjamaður. Ólst upp hjá sínu fólki í Nýlendu í Hvalsneshverfi. Þar stunduðu menn jöfnum höndum sjósókn og landbúnað. Umhverfið bauð upp á fiskmeti, mjólk og jarðargróða. Hraust fólk, einstaklega sjálfbjarga og vinnusamt. Sólveig gekk til skóla í Sandgerði. Ung fór hún að vinna hjá SVR sem nú heitir Strætó. Vann þar langan dag í trúnaðarstörfum. Sinnti öllu af einstakri alúð og afli. Það var mikið verðmæti fyrir SVR að njóta umhyggju Sólveig- ar. Bar krefjandi trúnaðarstörf af fágætri trúfestu og samvisku- semi. Sinnti á 50 ára starfstíma almennum skrifstofustörfum, launaumsjón, farmiðagæslu og gjaldkerastörfum. Þótt Sólveig væri lengst af einstæð var hún mikil fjölskyldukona. Ættingjar og aðrir í umhverf- inu nutu umhyggju hennar og væntumþykju. Það fór vel á því öllu. Og þegar nafna hennar og systurdóttir Sólveig Ólafsdóttir missti ung foreldra sína kom Sólveig í það skarð eins og hægt var. Svo bar hún Morgunblaðið í hús í Vesturbænum lengi. Sól- veig sló ekki feilhögg með sinn tíma. Tryggð við heimahaga kom fram í því að á miðjum aldri fékk hún systurson sinn til að teikna fyrir sig stórt og fallegt hús í hlaðvarpanum heima í Hvals- nesi. Vinnufélagi hjá SVR ók byggingarefni suður á eldgamla Studebaker-vörubílnum sínum. Sólveig hlóð upp gamla grjót- garða í kring um fallega sum- arhúsið sitt, ræktaði blóm og tré og lét grimma vestanáttina með sjóroki ekkert ná yfirhöndinni. Sólveigarlundur heitir þar. Og á melnum, örfoka landi utan garðs, notaði hún Morgunblöð sem voru umfram úr útburðin- um til landgræðslu. Hún var í því og allri framgöngu á undan sinni samtíð í nýtni með sínu líf- erni. Það eru gæði að hafa fengið að kynnast Sólveigu sem starfs- félaga um langt skeið. Nú er hennar lífshlaupi hér lokið. Megi heiðurskonan Sólveig Magnús- dóttir í friði fara og verðug verk- efni bíða hennar á nýjum lend- um. Hörður Gíslason. Tómasína Sólveig Magnúsdóttir ✝ Ólafur Þór-arinsson fædd- ist 26. október 1923 á Ríp í Hegranesi og ólst þar upp. Hann lést 24. febrúar 2020 á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Foreldrar hans voru bændahjónin á Ríp Þórarinn Jó- hannsson, f. 1891, d. 1985, og Ólöfu Guðmunds- dóttur, f. 1896, d. 1985. Ólafur kvæntist 1952 Sigurveigu Rögnvaldsdóttur í Flugumýr- arhvammi, f. 1933. Þau slitu samvistum. Börn þeirra eru: Rögnvald- ur, f. 1952, Þórarinn Guð- mundur, f. 1954, Halldór Bragi, f. 1957, Sólveig Ebba, f. 1959, Sigurður Örn, f. 1961, og Ásta Berghildur, f. 1963. Barnabörn- in urðu 17 og barnabarnabörn- in eru orðin 19. Ólafur var einn vetur í Héraðsskól- anum á Laugum en varð að hverfa frá frekara námi þar vegna heilsubrests föður síns. Hann vann síðan búi for- eldra sinna auk til- fallandi vinnu utan heimilis. Lengst var hann gröf- umaður hjá Ræktunarsambandi Skagfirðinga og hélt áfram að grípa í gröfuvinnu fyrsta ára- tuginn eftir að hann gerðist bóndi. Hann var bóndi í Flugu- mýrarhvammi 1952-1987. Starfsmaður Mjólkursamlags K.S. 1987 til starfsloka 1993. Hann var búsettur á Sauð- árkróki 1987 til æviloka. Ólafur verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju í dag, 5. mars 2020, klukkan 14. Elsku afi hefur kvatt okkur 96 ára að aldri. Það fylgir því alltaf mikill söknuður og tóm- leiki þegar fólk sem hefur fylgt okkur ævilangt kveður í hinsta sinn. Afi var nú líka þannig persóna. Hann lá ekki á skoð- unum sínum og var áhugasam- ur um fólkið í kringum sig. Hann var tæplega sextugur þegar ég fæddist og því hægt að ímynda sér að við ættum ekki margt sameiginlegt. Og þó, sennilega hárlitinn eða að minnsta kosti hef ég alltaf rak- ið rauða hárið að mestu til hans. Og bæði áttum við for- eldra sem heita Þórarinn og Ólöf sem mér þykir ansi merki- leg staðreynd. Að auki þótti okkur mikið vænt um þennan fjörð sem hann bjó mestan hluta ævi sinnar í, Skagafjörðinn. Ekki vorum við alveg sammála um ágæti Framsóknarflokksins, Kaupfélagsins eða hrafnsins en það var líka mjög sjaldan um- ræðuefni í okkar samtölum. Það skorti reyndar aldrei um- ræðuefni þegar afi var annars vegar. Hann bjó, þrátt fyrir stutta formlega skólagöngu, yf- ir mjög yfirgripsmikilli þekk- ingu á til dæmis Íslendingasög- unum, íslenskum bókmenntum og landafræði. Hann var fróðleiksfús og las mikið. Hann kunni mikið af kvæðum og hafði mjög gott minni sem hann viðhélt fram til síðasta dags með til dæmis lestri. Það var í raun alveg magnað hvað hann var fróður. Jafnvel þótt hann væri kominn langt yfir nírætt, þá var hægt að leita svara við öllum sköp- uðum hlutum hjá honum. Hann var kannski aðeins lengur að hugsa sig um eftir því sem ald- urinn færðist yfir en svarið kom alltaf á endanum, úthugs- að og næstum eins og tekið orðrétt upp úr bók. Í kjölfarið fylgdi gjarnan vel ígrunduð setning sem gaf til kynna hvaða skoðun hann hafði á málinu. Hann hafði mjög gaman af íþróttum og fylgdist með þeim í sjónvarpinu, nánast fram á síð- asta dag. Það var bara nú í janúar sem hann sat marga daga í röð og fylgdist af miklum áhuga með skíðakeppni og handbolta og var með öll úrslit á hreinu. Eitt sinn urðum við fjölskyldan frá að hverfa af tröppunum í Raftahlíðinni eftir að hafa bankað fast, dinglað dyrabjöll- unni nokkrum sinnum og hróp- að inn um eldhúsgluggann án þess að nokkur kæmi til dyra. Þá var afi að horfa á fótbolta- leik í sjónvarpinu og heyrði ekkert í okkur því hljóðið var svo hátt stillt að það fór varla fram hjá nokkrum manni í göt- unni. Enda kannski engin ástæða til þess að stilla lágt þar sem hann bjó einn og gat haft hlutina eins og hann vildi. Það að hann skyldi búa lengi einn held ég að hafi ýtt undir að hann átti það til að ræða tölu- vert við sjálfan sig. Mér er það mjög minnisstætt í eitt skiptið þegar hann gisti hjá mömmu og pabba að ég heyrði hann tala upphátt við sjálfan sig. Hann var að undirbúa sig fyrir svefn- inn hinum megin við vegginn og þuldi upp helstu atburði dagsins. Rétt áður en hann lagðist á koddann endurtók hann í nokkur skipti „þetta var góður dagur“. Á þeim tíma var ég ung og flissaði yfir þessu eintali afa með sjálfri mér. En eftir því sem ég eldist þá hef ég reynt að tileinka mér þessa hefð, að þakka fyrir daginn. Ég gæti nefnilega trúað að þetta sé eitt af lykilatriðunum þegar kemur að góðri andlegri heilsu og langlífi. Elsku afi, þú áttir það til að segja með blik í auga og bros á vör að einhver væri „alveg frá- bær“ og mér finnst viðeigandi að ljúka þessu á sömu nótum. Takk fyrir allt afi minn, þú varst alveg frábær! Sunna Þórarinsdóttir. Elsku afi. Mikið óskaplega mun ég sakna þín. Mikið er ég þakklát ég er fyrir allan þann tíma sem við höfum átt saman. Þú hefur verið svo stór partur af tilveru minni. Takk fyrir allar notalegu stundirnar í Raftahlíðinni og öll ævintýrin okkar saman. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. Þín vinartryggð var traust og föst og tengd því sanna og góða, og djúpa hjartahlýju og ást þú hafðir fram að bjóða. Og hjá þér oft var heillastund, við hryggð varst aldrei kenndur. Þú komst með gleðigull í mund og gafst á báðar hendur. Svo, vinur kæri, vertu sæll, nú vegir skilja að sinni. Þín gæta máttug verndarvöld á vegferð nýrri þinni. Með heitu, bljúgu þeli þér ég þakka kynninguna, um göfugan og góðan dreng ég geymi minninguna. (Höf. ókunnur) Þín Iðunn María. Þegar við minnumst Óla afa eru samverustundirnar í seinni tíð okkur efst í huga ásamt öll- um gullkornunum sem komu frá honum. Afi hafði til dæmis einstakt lag á að „móðga“ okkur systur á dásamlega skemmtilegan hátt. Þannig er okkur minn- isstætt þegar við vorum að fá okkur pönnukökur heima hjá mömmu, en pabbi var í hest- húsinu og afi spurði Sigur- björgu: „Hvað heldur þú að hann pabbi þinn myndi segja ef hann sæi allan sykurinn á pönnukökunni þinni?“ En eins og þeir sem þekktu afa vita þá notaði hann sjálfur alveg ótrúlega mikinn sykur og fannst honum heimabakað bakkelsi, þá sérstaklega kan- ilsnúðar, alveg einstaklega gott. Einhvern tímann vorum við systur eitthvað að fíflast og mamma var búin að biðja okkur að hætta þessum látum og seg- ir svo: „Ólafur, hvernig geta þessar stelpur látið. Finnst þér þær ekki óþekkar?“ Afi hugsar sig um í smástund og segir svo: „Ja, Sólveig mín hefur nú alltaf verið prúð.“ Nú nýverið dvaldi afi hjá mömmu og pabba en Sólveig og Soffía Sólbrá eru tíðir gestir þar eins og gengur og gerist. Afi hafði mjög gaman af börn- um en í síðasta skipti sem við komum í heimsókn þegar afi var hjá þeim segir hann bros- andi: „Nei, eruð þið komnar aftur!“ Afi hafði brennandi áhuga á íþróttum og eru þeir ansi marg- ir leikirnir sem við höfum horft á saman í sjónvarpinu í gegnum tíðina. Afi mundi líka ansi margt og átti það til að þylja upp skemmtilegar vísur. Afi kom alltaf í heimsókn til okkar á að- fangadag og þá var nauðsyn- legt að skála í koníaki við aðra gesti sem komu í heimsókn og oftar en ekki sátu þau mamma og afi og spjölluðu um heima og geima yfir hálfu koníaksstaupi. Þangað til næst, elsku afi. Sólveig og Sigurbjörg. Ólafur Þórarinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.