Morgunblaðið - 05.03.2020, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020
Ferðalög á
Þegar flett er í gegnum Ferðaáætlunina er
ljóst að framboðið er feiknarlegt, allt frá ör-
stuttum fræðagöngum innan bæjarmarkanna
yfir í margra daga hálendis- og Horn-
strandaferðir svo að dæmi séu tekin, langt utan
sambands við símafélögin og netið.
„Við höfum úti allar klær, eða réttara sagt
göngum um með skósíð eyru og hlustum á
fólk,“ segir formaður ferðanefndar, Sigrún Val-
bergsdóttir, og skellihlær þegar hún er spurð
um hvernig farið sé að því að safna öllum þess-
um ferðum saman í einn lítinn ritling. Hann er
samt ekkert minna en lunginn úr starfi FÍ yfir
heilt almanaksár, vetur, sumar, vor og haust.
Sigrún leiðir ferðanefndina, sjö öflugar mann-
eskjur og svo tekur starfsfólk skrifstofunnar
virkan þátt.
„Auðvitað eru alltaf vinsælar ferðir inni í
áætluninni ár eftir ár, vegna þess að eft-
irspurnin er stöðug og hálendisskálar félagsins
eru vel í sveit settir fyrir sígildar hálend-
isferðir. En síðan komast landshlutar tíma-
bundið í tísku vegna þess að mikið er um þá
fjallað. Nýjar bækur sem lista upp gönguleiðir
á svæðum, sem ekki hefur mikið verið sinnt,
eru hafðar til hliðsjónar við skipulagið. En fyrst
og fremst er það traustur hópur hug-
myndaríkra fararstjóra sem gjörþekkir sínar
slóðir og getur leitt fólk um þær sem eru kjöl-
festan í áætlunargerðinni.“
Hundrað síður af fótgangandi hamingju
Ferðaáætlunin er í raun ekki bara yfirlit yfir
það sem er í vændum í boði félagsins, þetta er
gagnlegur ritlingur um Ferðafélagið sjálft,
skálana alla með tölu auk þess sem þarna má
finna upplýsingar um allskyns námskeið sem
eru í boði.
Flestar eiga þær þó það sameiginlegt að þess
er krafist að ferðast sé á tveimur jafnfljótum,
eða fæturnir alla vega notaðir til að knýja sig
áfram. Þarna eru nefnilega hjólreiðaferðir og
líka skíðaferðir. Staðirnir eru ólíkir og árstíð-
irnar sömuleiðis. Einnig er hugað að þeim sem
eldri eru en vilja halda áfram að ferðast og upp-
lifa landið. Mikið er um nýjungar og lætur
nærri að þriðjungur allra ferða sé eitthvað sem
aldrei hafi boðist áður.
„Ég held að óhætt sé að fullyrða að áherslan
er á fjölbreytnina.
Hvort sem um er að ræða einstakar ferðir og
erfiðleikastig, eða þá að skrá sig til þátttöku í
einhverjum af þeim fjölmörgu hópum sem
hægt er að fara í. Þeir eru líka með mismun-
andi kröfur til færni. Allt frá einum og upp í
fjóra skó.“
Þarna er Sigrún að tala um fjallaverkefnin
og hreyfihópana. Það eru hundruð kvenna og
karla skráð í þessa hópa. Síðan er mjög mik-
ilvægt starf unnið í Ferðafélagi barnanna og
Ferðafélagi unga fólksins og það er allt listað
upp í bæklingnum.
„Þetta eru blómstrandi hópar þar sem
göngugarpar og náttúruunnendur framtíð-
arinnar verða til. Hér leika líka deildir félags-
ins sem eru mjög virkar út um allt land stórt
hlutverki. Það þarf enginn að ferðast langt frá
heimabyggð til að taka þátt í skemmtilegu úti-
vistarverkefni. Ferðir allra þessara deilda eru
listaðar í áætluninni.“
Hornstrandir kveiktu eldana
Það fer afar vel á því að Sigrún leiði hóp
þeirra sem safna öllum ferðum FÍ í eina hlöðu.
Hún hefur verið í Ferðafélaginu í rétt fjörutíu
ár eða allt frá því að hún flutti heim frá Þýska-
landi í kringum 1980. Hún varð þó ekki virk að
fullu í félaginu fyrr en hún kynntist Horn-
ströndum undir leiðsögn Guðmundar heitins
Hallvarðssonar Hornstrandajarls árið 1993.
„Við féllum kylliflöt fyrir Hornströndum í
frábærri ferð með ólýsanlega fjölbreyttri flóru
af skemmtilegu fólki sem elti Guðmund um
heiðar, skörð og skriður. Og sem betur fer urð-
um við strax hluti af þessum hópi og fórum eftir
þetta um Hornstrandir á hverju sumri í mörg
ár. Við fórum auðvitað víðar um landið og
Ferðafélagið varð fastur punktur í tilverunni,“
segir Sigrún.
Forseti félagsins, Ólafur Örn Haraldsson,
bað Sigrúnu svo stuttu síðar að koma í ferða-
nefndina og stýra vinnunni við gerð Ferðaáætl-
unarinnar, sem hún að sjálfsögðu gerði. Og
skömmu síðar var hún svo kosin í stjórn félags-
ins.
„Þar er hreint ótrúleg orka og sköp-
unarkraftur ríkjandi. Það er sama hvort maður
situr á stjórnarfundum eða á fundum ferða-
nefndar; tilfinningin er sú sama. Eins og að
sitja í eldflaug á leið til tunglsins. Stjórnar-
menn og ferðanefndarfólk býr samanlagt yfir
ómetanlegri þekkingu á landinu öllu og alhliða
reynslu af ferðalögum. Þannig er maður stöð-
ugt að læra eitthvað nýtt.“
Mikilvægt öllum að þekkja landið sitt
Sigrún segir að það sé hverri manneskju
mikilvægt að þekkja landið sitt. Bæði nær-
umhverfið en ekki síður fjarlægari staði og
svæði sem ekki er auðvelt að komast um. „Að
kynnast slóðum forfeðranna og aðstæðum sem
aðrir landsmenn búa við eða hafa búið við opn-
ar nýja heima. Ekki skiptir síður máli að þetta
sé gert mögulegt þannig að það sé ekki mun-
aður heldur á færi allra.“
Hún segir að áhugamannafélag eins og FÍ,
sem þurfi ekki að hafa gróðasjónarmið að leið-
arljósi, sé ómetanlegt í þessu samhengi. „Hér
heldur fagfólk um alla uppbyggingu og hugar
að öllu, allt frá fyrsta skrefi og þar til hæsta
tindi er náð. Síðan má ekki gleyma uppbygg-
ingunni í formi gististaða utan alfaraleiða,
þ.e.a.s. skálanna okkar góðu. Og síðast en ekki
síst miðla árbækur FÍ, sem hafa komið út allt
frá stofnun félagsins, áhugaverðum fróðleik um
öll svæði landsins.“
Blessuð sértu sveitin mín
Sigrún ólst upp á mölinni í Vesturbænum í
Reykjavík en hún fæddist í Hafnarfirði. Hún
komst þó í náin kynni við náttúruna óvenju-
snemma í æsku. „Ég var svo heppin að vera
send í sveit þegar ég var fimm ára, alla leið frá
Reykjavík og norður í Svarfaðardal. Þar var ég
öll sumur fram yfir fermingu hjá yndislegu
fólki á bænum Ölduhrygg,“ segir Sigrún en
þessi séríslenski siður að senda börn í sveit
varð í raun til um leið og þéttbýli myndaðist
hérlendis. Flestir sem fengu að fara í sveit hafa
hrósað því sem happi en í slíkri dvöl fengu börn
af mölinni ekki bara að kynnast sveitastörfum
heldur komust þau í snertingu við náttúruna og
lífríkið í sinni tærustu mynd.
Sigrún var síðan við sumarstörf á hóteli sem
móðir hennar rak í Grundarfirði fram yfir stúd-
entspróf. Í Svarfaðardal og á Snæfellsnesinu
norðanverðu eru vissulega fallegar sveitir sem
bjóða upp á endalausa útiveru og magnaðar
fjallgöngur á löngum sumarkvöldum. Reynsla
Sigrúnar af lífinu í sveit hefur gert henni mikið
kappsmál að vera algerlega utan malbiks þegar
fer að vora.
„Þetta er nauðsynlegt til að skynja sumarið
og geta andað virkilega djúpt,“ segir hún og
brosir. „Fuglasöngur, flugnasuð, gróður jarð-
ar, móbergskollar, mýrarflákar, fjallahvilftir,
lækir og gil. Allt þetta teymir mig af stað út úr
borginni og ég æði á eftir sumrinu eitthvað upp
á heiðar. Jafnvel þar í haugaroki og slagveð-
ursrigningu er meira sumar en á lognmollu-
kvöldi í borginni.“
Kona sem talar svona skáldlega um sumarið
í skrúðanum, hún unnir landinu. Það er henni
enda kappsmál að vernda náttúruna fyrir
ágangi okkar mannanna, ekki svo að við eigum
bara að horfa á hana út um bílrúðu á ferð, nei
alls ekki, heldur til að njóta hennar í návígi og
af virðingu.
„Það sem að æskunni og einstaklingnum
snýr varðandi vernd á náttúrunni okkar vil ég
nefna þrjú grunnatriði sem kannske eru skilj-
anlegri en lagabókstafir: Upplýsing, þekking
og skilningur. Þetta eru lykilatrið. Fræðsla um
landið. Fræðsluferðir um landið. Útskýring á
fyrirbærum náttúrunnar.“
Sigrún segir að maður verndi það best sem
maður þekkir. „Þetta er sambærilegt við það
að eignast barn. Barnið fær alla umhyggjuna
og maður fylgist með því þroskast og dafna. Ef
það veikist fer enn þá meiri orka í að græða það
og vernda. Það svæði sem maður hefur kynnst
með hjartanu, því maður sér betur með hjart-
anu en augunum, það á maður auðveldara með
að verja og vernda.“
Þurfum að eiga andsvar
við hvunndeginum
Sigrún hefur alltaf gengið mikið en hún seg-
ist ekki eiga auðvelt með að koma orðum að því
hvað það færi henni. „Maður bara er þarna.
Það er oft mikið puð, en alltaf gaman. Það er
nautn að verða líkamlega þreyttur. Það gerist
allt of sjaldan. Maður verður næmur á öll smá-
atriði og lifir í einhverri ofurhægri tilveru.
Breytist í snigil með húsið sitt á bakinu og nýt-
ur naumhyggjunnar.“
Eins og háttar til um marga sem njóta ís-
lenskrar náttúru hefur Sigrún áhyggjur af
framvindunni. Henni finnst miklu skipta að við
sláum skjaldborg utan um víðernin okkar. En
hvað eru þessi víðerni sem margir tala um?
Þetta er það fyrirbæri sem stundum er kallað
öræfi, staðirnir þar sem maðurinn hefur ekki
haft nein áhrif með athöfnum sínum.
„Það skiptir okkur gríðarlega miklu máli og
aldrei meira en nú að vernda víðernin,“ segir
Sigrún og bendir á að óspillt náttúra og víðerni
séu orðin afar fágæt og um leið afar eftirsótt af
milljónum ferðamanna. „Við viljum geta notið
þessarar náttúru og einnig kynnt hana fyrir
áhugasömum ferðalöngum. Við þurfum stöðugt
að hafa í huga að hún er ekki ótæmandi auðlind.
Á öllum tímum hefur það verið nauðsynlegt að
eiga andsvar við hvunndeginum og geta komist
út til að víkka sjóndeildarhringinn. Við eigum
líka svo einstaka mótunarsögu þessa unga
lands sem er eins og opin bók í jarðfræði og
ótrúlega spennandi að lesa í og miðla.“
Uppáhaldssvæði á landinu
Sigrún segir það markmiðið á hverju ári sé
að kynnast einhverjum stað á landinu þar sem
hún hafi aldrei komið áður. „Það tekst næstum
því alltaf, en ég hef eytt flestum göngudögum á
Hornströndum og uppi á Arnarvatnsheiði.
Langt frá alfaraleiðum þar og aldrei mætt
manneskju. Þetta eru gjörólík svæði, annars
vegar Hornstrandir fullar af sögum og sögnum
um lífsbaráttuna og hins vegar vötnin og víð-
ernin á Arnarvatnsheiði með Eiríksjökul yfir
sér – alltaf á hleri – veit allt sem talað er hér!“
Þeir eru margir sem bíða eftir
Ferðaáætlun FÍ ár hvert enda á
þetta litla rit stað í hjörtum
margra. Þetta er ritið sem ófáir
handfjatla í vetrarhríðum á
endalausum skammdegis-
morgnum og láta sig dreyma
um sumar og sól, eða súldar-
vott kannski og svartalogn og
svefnpoka og tjald og prímus
og kvak í lóu eða vellandi spóa
úti í mýrarspildu.
Eins og að sitja
í eldflaug á leið
til tunglsins
Sigrún Valbergsdóttir
hjá Ferðafélagi Íslands.