Morgunblaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 05.03.2020, Blaðsíða 59
DÆGRADVÖL 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020 www.gilbert.is VERÐ frá: 29.900,- arc-tic Retro GÆÐA ÚR Á GÓÐU VERÐI Svissnesk quartz gangverk ÍSLENSK HÖNNUN „ÉG VAR BÚINN AÐ SEGJA YKKUR AÐ HRINGJA EKKI Í MIG. ÉG ER Í FRÍI.” „ÞÚ SKALT GIFTAST BIFVÉLAVIRKJA ÞEGAR ÞÚ ERT ORÐIN STÓR.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að sitja þétt saman. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ÉG HEF VERIÐ AÐ FARA Í RÆKTINA! FRÁBÆRT FIMMU!? Í DAG VAR HANN AÐ LYFTA GET ÞAÐ EKKI VITRINGUR, STUNDUM BER ÉG UGG Í BRJÓSTI! HVAÐ ÓTTAÐIST ÞÚ?ÞÚ ERT EKKI EINN! ÞAÐ VAR ÓTTINN SEM KOM MÉR HINGAÐ Á ÞENNAN AFSKEKKTA FJALLSTOPP! ÉG GISKA Á RAKARA! nesbæ. Axel á sjö barnabörn og eitt langafabarn. Barnabörnin eru: Axel Jónsson, f. 1997, Davíð Þór Elvars- son, f. 1997, Þórunn Fríða Unnars- dóttir, f. 2005, Ívar Snorri Jónsson, f. 2005, Jón Ágúst Jónsson, f. 2007, Matthías Bjarndal Unnarsson, f. 2009, Hildur Nanna Jónsdóttir, f. 2013. Langafabarnið er Kolbrún Júlía Davíðsdóttir, f. 2017. Systkini Axels eru Guðmundur Friðrik Sigurðsson, f. 28.6. 1946, Guðmundur Jóelsson, f. 30.11. 1948, Valgerður Guðmunda Sigurðar- dóttir, f. 31.7. 1951, Ragnheiður Sig- urðardóttir, f. 24.5. 1953, Björg Sig- urðardóttir, f. 25.6. 1954, Vignir Ljósálfur Jónsson, f. 5.5. 1956, Þor- steinn Jónsson, f. 4.1. 1958, Íris Jóns- dóttir, f. 25.3. 1963, og AðalHeiður Dóra Sigurðardóttir, f. 4.1. 1964. Foreldrar Axels voru Jón Axels- son, kaupmaður í Nonna og Bubba, f. 14.6. 1922 í Sandgerði, d. 19.8. 2003. Bjó í Sandgerði og Keflavík. Eigin- kona hans var Bergþóra Þorbergs- dóttir, f. í Garði 1.5. 1925, d. 22.9. 2008; og Jóna Sigríður Gísladóttir, húsmóðir í Hafnarfirði, f. 24.6. 1923 í Hafnarfirði, d. 27.1. 2020. Eigin- maður hennar var Sigurður Magnús Guðmundsson skrifstofumaður hjá Esso, f. í Hafnarfirði 30.11. 1923, d. 8.8. 2010. Axel Jónsson Guðrún Eiríksdóttir húsfreyja í Nýjabæ Jón Jónsson bóndi í Nýjabæ í Grindavík Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði Gísli Gíslason bakari í Hafnarfirði Jóna Sigríður Gísladóttir húsmóðir í Hafnarfirði Halldóra Ögmundsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði Gísli Sveinsson verkamaður í Hafnarfirði Jón Örn Stefánsson eigandi Kjötkompanís Sigríður Vilhjálmsdóttir hótelstjóri Hótels Geysis í Haukadal Gróa Axelsdóttir húsfreyja í Sandgerði Stefán Jónsson húsgagnasm. í Hafnarfirði Friðrik Gíslason fv. skólastjóri Hótel- og veitingaskólans Katrín Gísladóttir húsmóðir í Hafnarfirði Anna Soffía Jósafatsdóttir húsfreyja í Sandgerði Einar Jónsson verkamaður í Sandgerði Þorbjörg Ágústa Einarsdóttir húsfreyja í Sandgerði Axel Jónsson skrifstofumaður og kaupmaður í Sandgerði Gróa Jónsdóttir húsfr. á Akranesi Jón Guðmundsson skósmiður á Akranesi Úr frændgarði Axels Jónssonar Jón Axelsson kaupmaður í Nonna og Bubba Guðmundur Arnfinnsson orti áBoðnarmiði á sunnudag og kallaði „Óáran á Fróni“: Sólskinið í Suðurlöndum sífellt eru menn að þrá, norpandi á nyrstu ströndum nánast enga glætu sjá. Skapillir á skeri búa, skuldum vafðir alla tíð, yfirvöldin að þeim ljúga, einskis meta þennan lýð. Svífa á gullnu gróðaskýi, glæsihallir byggja sér, lifá í sukki og svínaríi, og svo er allt í rusli hér. Guð er orðinn ansi leiður, öllu hérna fyrir rest eytt hann gæti ofsareiður í eldgosum og veirupest. Natan Ketilsson orti: Ég er þrotinn alls konar yndisnotum farsældar, elfum flotinn angistar, örvum skotinn bölvunar. „Raunsæi“ segir Gústi Mar og kveður á leir: Vondar herja veirur á en veturinn má þreyja. Allra líf mun enda fá eitt sinn skal hver deyja. Ármann Þorgrímsson spyr: „Sala á upprunavottorðum raforku?“ Og svarar sér síðan: „Mér sýnist þetta vera það sem kallast á venjulegri ís- lensku að bera ljúgvitni og fá greitt fyrir það:“ Af því fréttum enn á ný íslensk græðgi heiminn blekki þetta er svindl og svínarí svona gera bændur ekki. Á dögunum sagði Jón Giss- urarson af veðrinu fyrir norðan: Krenkir hóla, keldur, börð, kuldagjóla býsna hörð. Vetrarfól er vítt um jörð. Vantar sól í Skagafjörð. Skáldkonan Guðfinna Þorsteins- dóttir sem tók sér skáldaheitið Erla orti margt vel. Hér eru þrjár stökur eftir hana: Enginn getur meinað mér minning þína að geyma; kringum höll, sem hrunin er, hugann læt ég sveima. Lán vort allt að láni er líka getan veika. Enginn tók hjá sjálfum sér sína hæfileika. Tækifærið tefur ei, taktu það í skyndi, annars berst það frá sem fley fyrir hvössum vindi. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Óáran á Fróni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.