Morgunblaðið - 05.03.2020, Side 59
DÆGRADVÖL 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020
www.gilbert.is
VERÐ frá:
29.900,-
arc-tic Retro
GÆÐA ÚR Á GÓÐU VERÐI
Svissnesk quartz gangverk
ÍSLENSK HÖNNUN
„ÉG VAR BÚINN AÐ SEGJA YKKUR AÐ
HRINGJA EKKI Í MIG. ÉG ER Í FRÍI.”
„ÞÚ SKALT GIFTAST BIFVÉLAVIRKJA
ÞEGAR ÞÚ ERT ORÐIN STÓR.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sitja þétt saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG HEF VERIÐ AÐ
FARA Í RÆKTINA! FRÁBÆRT
FIMMU!? Í DAG VAR HANN
AÐ LYFTA
GET ÞAÐ
EKKI
VITRINGUR, STUNDUM
BER ÉG UGG Í
BRJÓSTI!
HVAÐ ÓTTAÐIST ÞÚ?ÞÚ ERT EKKI
EINN! ÞAÐ
VAR ÓTTINN
SEM KOM
MÉR HINGAÐ
Á ÞENNAN
AFSKEKKTA
FJALLSTOPP!
ÉG GISKA Á RAKARA!
nesbæ. Axel á sjö barnabörn og eitt
langafabarn. Barnabörnin eru: Axel
Jónsson, f. 1997, Davíð Þór Elvars-
son, f. 1997, Þórunn Fríða Unnars-
dóttir, f. 2005, Ívar Snorri Jónsson, f.
2005, Jón Ágúst Jónsson, f. 2007,
Matthías Bjarndal Unnarsson, f.
2009, Hildur Nanna Jónsdóttir, f.
2013. Langafabarnið er Kolbrún
Júlía Davíðsdóttir, f. 2017.
Systkini Axels eru Guðmundur
Friðrik Sigurðsson, f. 28.6. 1946,
Guðmundur Jóelsson, f. 30.11. 1948,
Valgerður Guðmunda Sigurðar-
dóttir, f. 31.7. 1951, Ragnheiður Sig-
urðardóttir, f. 24.5. 1953, Björg Sig-
urðardóttir, f. 25.6. 1954, Vignir
Ljósálfur Jónsson, f. 5.5. 1956, Þor-
steinn Jónsson, f. 4.1. 1958, Íris Jóns-
dóttir, f. 25.3. 1963, og AðalHeiður
Dóra Sigurðardóttir, f. 4.1. 1964.
Foreldrar Axels voru Jón Axels-
son, kaupmaður í Nonna og Bubba, f.
14.6. 1922 í Sandgerði, d. 19.8. 2003.
Bjó í Sandgerði og Keflavík. Eigin-
kona hans var Bergþóra Þorbergs-
dóttir, f. í Garði 1.5. 1925, d. 22.9.
2008; og Jóna Sigríður Gísladóttir,
húsmóðir í Hafnarfirði, f. 24.6. 1923 í
Hafnarfirði, d. 27.1. 2020. Eigin-
maður hennar var Sigurður Magnús
Guðmundsson skrifstofumaður hjá
Esso, f. í Hafnarfirði 30.11. 1923, d.
8.8. 2010.
Axel Jónsson
Guðrún Eiríksdóttir
húsfreyja í Nýjabæ
Jón Jónsson
bóndi í Nýjabæ í Grindavík
Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir
húsfreyja í Hafnarfirði
Gísli Gíslason
bakari í Hafnarfirði
Jóna Sigríður Gísladóttir
húsmóðir í Hafnarfirði
Halldóra Ögmundsdóttir
húsfreyja í Hafnarfirði
Gísli Sveinsson
verkamaður í Hafnarfirði
Jón Örn
Stefánsson
eigandi
Kjötkompanís
Sigríður Vilhjálmsdóttir
hótelstjóri Hótels
Geysis í Haukadal
Gróa Axelsdóttir
húsfreyja í Sandgerði
Stefán
Jónsson
húsgagnasm.
í Hafnarfirði
Friðrik Gíslason fv.
skólastjóri Hótel- og
veitingaskólans
Katrín
Gísladóttir
húsmóðir í
Hafnarfirði
Anna Soffía Jósafatsdóttir
húsfreyja í Sandgerði
Einar Jónsson
verkamaður í Sandgerði
Þorbjörg Ágústa
Einarsdóttir
húsfreyja í Sandgerði
Axel Jónsson
skrifstofumaður og
kaupmaður í Sandgerði
Gróa Jónsdóttir
húsfr. á Akranesi
Jón Guðmundsson
skósmiður á Akranesi
Úr frændgarði Axels Jónssonar
Jón Axelsson
kaupmaður
í Nonna og Bubba
Guðmundur Arnfinnsson orti áBoðnarmiði á sunnudag og
kallaði „Óáran á Fróni“:
Sólskinið í Suðurlöndum
sífellt eru menn að þrá,
norpandi á nyrstu ströndum
nánast enga glætu sjá.
Skapillir á skeri búa,
skuldum vafðir alla tíð,
yfirvöldin að þeim ljúga,
einskis meta þennan lýð.
Svífa á gullnu gróðaskýi,
glæsihallir byggja sér,
lifá í sukki og svínaríi,
og svo er allt í rusli hér.
Guð er orðinn ansi leiður,
öllu hérna fyrir rest
eytt hann gæti ofsareiður
í eldgosum og veirupest.
Natan Ketilsson orti:
Ég er þrotinn alls konar
yndisnotum farsældar,
elfum flotinn angistar,
örvum skotinn bölvunar.
„Raunsæi“ segir Gústi Mar og
kveður á leir:
Vondar herja veirur á
en veturinn má þreyja.
Allra líf mun enda fá
eitt sinn skal hver deyja.
Ármann Þorgrímsson spyr: „Sala
á upprunavottorðum raforku?“ Og
svarar sér síðan: „Mér sýnist þetta
vera það sem kallast á venjulegri ís-
lensku að bera ljúgvitni og fá greitt
fyrir það:“
Af því fréttum enn á ný
íslensk græðgi heiminn blekki
þetta er svindl og svínarí
svona gera bændur ekki.
Á dögunum sagði Jón Giss-
urarson af veðrinu fyrir norðan:
Krenkir hóla, keldur, börð,
kuldagjóla býsna hörð.
Vetrarfól er vítt um jörð.
Vantar sól í Skagafjörð.
Skáldkonan Guðfinna Þorsteins-
dóttir sem tók sér skáldaheitið Erla
orti margt vel. Hér eru þrjár stökur
eftir hana:
Enginn getur meinað mér
minning þína að geyma;
kringum höll, sem hrunin er,
hugann læt ég sveima.
Lán vort allt að láni er
líka getan veika.
Enginn tók hjá sjálfum sér
sína hæfileika.
Tækifærið tefur ei,
taktu það í skyndi,
annars berst það frá sem fley
fyrir hvössum vindi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Óáran á Fróni