Morgunblaðið - 05.03.2020, Qupperneq 62

Morgunblaðið - 05.03.2020, Qupperneq 62
62 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2020 VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Það er mér mikill heiður að stjórna þessum afmælistónleikum,“ segir finnski hljómsveitarstjórinn Eva Ollikainen um tónleika Sinfóníu- hljómsveitar Íslands (SÍ) í Eldborg Hörpu í kvöld kl. 19.30 þar sem 70 ára afmæli sveitarinnar er fagnað. Uppselt er á tónleikana, en þeir verða sendir út í beinni útsendingu á Rás 1 auk þess að vera teknir upp í mynd og streymt beint á vef hljóm- sveitarinnar, sinfonia.is. Á efnisskrá kvöldsins er sjald- heyrt verk eftir Pál Ísólfsson sem nefnist Úr myndabók Jónasar Hall- grímssonar. Páll var frumkvöðull í íslensku tónlistarlífi og einn helsti hvatamaður þess að SÍ var stofnuð á sínum tíma. Grammy-verðlaunahaf- inn Augustin Hadelich leikur einleik í Fiðlukonsert eftir Jean Sibelius og loks leikur hljómsveitin Sinfóníu nr. 1 eftir Gustav Mahler. „Fiðlukonsertinum hef ég stjórn- að margoft, en þetta er í fyrsta sinn sem ég stjórna 1. sinfóníu Mahlers sem og verki Páls,“ segir Ollikainen, en blaðamaður settist niður með henni eftir æfingu fyrr í vikunni. „Verk Páls er einstaklega heillandi og fallegt. Það er uppfullt af þjóð- lagastefjum sem útfærð eru með rómantískum hætti á sama tíma og hljómsetningin minnir um margt á Bartók. Eins og þetta,“ segir Ollikai- nen og grípur nóturnar sínar og syngur dæmi fyrir blaðamann. Gaman að láta koma sér á óvart „Fiðlukonsert Sibeliusar er einn sá besti sem skrifaður hefur verið. Tæknilega séð er þetta frábærlega saman sett verk á sama tíma og það býr yfir ótrúlegri tilfinningalegri dýpt. Svo spillir ekki fyrir hversu skemmtilegt verkið er fyrir hljóm- sveitina, því hún er ekki aðeins í hlutverki undirleikara fyrir einleik- arann heldur fremur meðleikari,“ segir Ollikainen og tekur fram að sér finnist mjög viðeigandi að 1. sin- fónía Mahlers sé flutt í kvöld. „Auðvelt er að sjá þessa sinfóníu sem fallega táknsögu fyrir SÍ sem hefst með þróttmiklum æskuárum og fer gegnum ýmsar áskoranir áður en sæluríkið finnst að lokum. Þetta er því fullkomið verk til að flytja á þessum merku tímamótum.“ Í framhaldinu berst talið að kost- um þess og ókostum að heims- þekktir tónlistarflytjendur séu bók- aðir nokkur ár fram í tímann. „Það felst auðvitað ákveðið öryggi í því að vita hvaða verkefni bíða, sem auð- veldar allt annað skipulag. En ég sakna þess aftur á móti að geta ekki brugðist hraðar við og sett verk fljótt á dagskrá sem heilla mig hér og nú. Hvernig á ég að vita í dag hvaða verki mig langar að stjórna eftir tvö ár?“ spyr Ollikainen og bendir á að fyrir vikið velji hún sér verkefni sem hún viti fyrir víst að hún muni alltaf vilja stjórna. Nefnir hún í því samhengi sinfóníur eftir Mahler, Bruckner, Strauss, Beet- hoven og Brahms. „Ég held að þetta sé ein ástæða þess að margir stjórnendur halda sig við takmarkaðan fjölda meistara- verka – því við vitum að þetta eru verk sem munu alltaf höfða til okk- ar,“ segir Ollikainen og tekur fram að sig dreymi hins vegar um að geta árlega boðið upp á „carte blanche“ eða óskrifað blað á tónleikum. „Það væri spennandi áskorun jafnt fyrir mig og hljómsveitina hér að geta rannsakað og flutt tónverk sem höfða til mín hér og nú í stað þess að bíða í tvö ár. Ég held að það væri líka spennandi fyrir áhorfendur að mæta á tónleika og láta koma sér á óvart,“ segir Ollikainen sem tekur, fyrst kvenna, við stöðu aðalhljóm- sveitarstjóra og listræns stjórnanda SÍ í haust. Á ráðningartímanum, næstu fjögur árin, mun hún að jafn- aði stjórna sveitinni í átta vikur á hverju starfsári, auk þess að stýra hljómsveitinni á fyrirhuguðum tón- leikaferðum innanlands sem utan. Tilraunir geta skilað kampavíni Ollikainen kom fyrst til Íslands haustið 2005 og stjórnaði framhalds- skólatónleikum SÍ með nær engum fyrirvara. Hún stjórnaði sveitinni þrisvar á áskriftartónleikum 2007-10 og í fyrsta sinn í Hörpu í febrúar 2019, en skömmu síðar tók hún boði hljómsveitarinnar um að gerast aðalstjórnandi hennar. Spurð hvort hún hafi þurft að hugsa sig um þegar henni bauðst starfið svarar Olli- kainen því neitandi. „Ég heillaðist hreinlega af hljóm- sveitinni og fólkinu sem hér vinnur,“ segir Ollikainen og tekur fram að SÍ búi yfir tveimur sérstökum kostum. „Einbeiting hljómsveitarinnar á æfingum er töfrum líkust. Reynslan hefur kennt mér að því fjær sem við erum ys og þys stórborgarlífsins með öllum þeim hávaða, mannmergð og stressi sem stórum borgum fylgir og því nær sem við erum náttúrunni þeim mun betur eigum við með að einbeita okkur,“ segir Ollikainen og tekur fram að sjálf breytist hún þeg- ar hún komi til Íslands. „Annað sem heillar mig við hljómsveitina hér er samspilið. Hvort sem sveitin spilar barokktónlist eða samtímatónlist þá er samleikurinn alltaf lifandi. Ég held satt að segja að þau séu ófær um að spila „dauðar“ nótur,“ segir Ollikainen og bætir við til útskýr- ingar: „Með „dauðum“ nótum á ég við nótur sem eru réttar og jafnvel fallegar, en skortir allt samhengi. Alltof margar hljómsveitir í heim- inum í dag eru bara uppteknar af fallegu yfirborði en huga lítið sem ekkert að innihaldinu – sem er samt það sem mestu máli skiptir. Inni- haldið fær sjálfkrafa mesta vægið hjá hljómsveitinni hér sem þýðir að það er draumastarf fyrir mig að fá að stjórna henni,“ segir Ollikainen og tekur fram að við bætist síðan að Eldborg sé framúrskarandi tónleikarými og allt utanumhald á skrifstofunni til fyrirmyndar. Í ljósi þess að Ollikainen verður ekki aðeins aðalhljómsveitarstjóri SÍ frá haustinu heldur líka listrænn stjórnandi liggur beint við að spyrja hvort hún hafi sett sér ákveðin markmið á næstu fjórum árum. „Já, ekki spurning. Stór hluti af vinnu minni með hljómsveitinni á sér stað á æfingum. Allar sinfóníuhljóm- sveitir eru settar saman af fram- úrskarandi hljóðfæraleikurum. Hlutverk mitt sem stjórnanda er að fá alla hljóðfæraleik- arana til að verða eitt í tónlistinni og stefna saman í eina átt. Þetta er heillandi áskorun, en jafn- framt krefjandi. Samtímis langar mig að þroska hljóm sveitarinnar og hlakka mjög til þess. Þetta er eitthvað sem allir hljómsveitarstjórar þurfa að gera og stundum skila tilraunir óvæntum niðurstöðum – líkt og gerðist með kampavínið á sínum tíma sem varð til fyrir mistök en vakti óvænt mikla hrifningu,“ segir Ollikainen kímin. „Þannig er maður sífellt að prófa sig áfram og læra nýja hluti, sem er spennandi en tek- ur líka dágóðan tíma,“ segir Ollikai- nen. Vill fleiri íslenskar sinfóníur „Starfsárið 2020-2021 var að mestu mótað áður en ég var ráðin til starfa þannig að áherslur mínar í verkefnavali verða ekki greinilegar fyrr en á þarnæsta starfsári. Reynd- ar gat ég haft nokkur áhrif á verk- efnavalið á þeim tónleikum sem ég mun stjórna á næsta starfsári,“ seg- ir Ollikainen og áréttar að hún leggi mikla áherslu á fjölbreytni í verk- efnavali. „Á síðustu árum hefur fjöl- breytni vissulega aukist og sinfóníu- hljómsveitir víðs vegar um heim eru farnar að leika fleiri verk eftir kon- ur, eftir tónskáld með fjölbreyttari bakgrunn og tónskáld sem höfðu gleymst í tónlistarsögunni. Vandinn er hins vegar sá að oftast er um að ræða stutt verk eða konserta sem leiknir eru á fyrri hluta efnisskrár- innar, en ekki stærri sinfónísk verk sem rata á seinni hluta efnisskrár- innar. Á heimsvísu vantar tilfinnan- lega að leiknar séu fleiri samtíma- sinfóníur. Það er líkt og skipu- leggjendur þori ekki að setja slík verk á dagskrá og ég skil ekki hvers vegna. Ég bind miklar vonir við að SÍ muni á næstu árum panta og frumflytja eina nýja sinfóníu eftir íslenskt tónskáld á hverju starfsári. Ég geri mér alveg grein fyrir að það felst ákveðin áhætta í því að panta nýjar sinfóníur og engin trygging fyrir því að öll verkin standist væntingar. En á tíu ára tímabili ætti svona markviss stefna að skila að minnsta kosti þrem- ur til fjórum úrvals- sinfóníum sem muni lifa,“ segir Ollikainen og bendir á að tón- skáld verði líka að fá tækifæri til að þrosk- ast með reynslunni sem felist meðal annars í því að heyra verk sín flutt. Hér grípur blaðamaður tækifærið og spyr Ollikainen hvort það höfði meira til hennar að frumflytja ný verk eða vinna með klassíkina. „Hvort tveggja höfðar jafnsterkt til mín. Mér finnst alltaf jafn frábært að fá tækifæri til að takast á við stóru klassísku meistaraverkin. En á sama tíma finnst mér óhemju- spennandi að flytja ný samtímaverk vegna þess að tónskáld samtímans ná að fanga anda líðandi stundar, oft á tíðum ómeðvitað. Sögulega er líka mikilvægt að samdar séu sinfóníur í dag sem fanga tíðarandann. Með sama hætti og við komumst í beina snertingu við tíma Mahlers þegar við hlustum á sinfóníur hans.“ Stjórnar nýju verki Daníels Þó ekki sé enn búið að kynna næsta starfsár SÍ stenst blaðamaður ekki freistinguna að spyrja Olli- kainen til hvers hún hlakki mest starfsárið 2020-2021. „Ég er mjög spennt fyrir opnunartónleikunum þar sem Íslandsfrumflutt verður From Space I saw Earth eftir Daní- el Bjarnason, en um er að ræða verk Morgunblaðið/Árni Sæberg Fangar tíðarandann „Sögulega er líka mikilvægt að samdar séu sinfóníur í dag sem fanga tíðarandann,“ segir Eva Ollikainen. „Spennandi áskorun“  Eva Ollikainen, verðandi aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, stjórnar 70 ára afmælistónleikum sveitarinnar í kvöld  Var aðeins þriggja ára þegar hún valdi sér framtíðarstarfið Fermingar- myndatökur Einstök minning Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 »Hlutverk mittsem stjórnanda er að fá alla hljóð- færaleikarana til að verða eitt í tón- listinni og stefna saman í eina átt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.