Morgunblaðið - 05.03.2020, Síða 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
CLEVELAND 3JA SÆTA ljósbleikt áklæði. fætur úr furu. L208 cm.
94.900 kr. Nú 69.900 kr.
20-40%
Sparadu-
af öllum sófum,
sófaborðum
hægindastólum
og mottum
5. - 23 mars
25%
Sparadu-
af öllum mottum
JOYE MOTTA
Bómull. Ýmsir litir.
80x250 cm. 8.990 kr.NÚ 6.743 kr.
SPARAÐU 2.247 kr.
80x250 cm
nú6.743
Söngkonan Hildur Vala heldur tón-
leika í Kornhlöðunni í Bankastræti í
kvöld, fimmtudag, og hefjast þeir
klukkan 21. Á tónleikunum syngur
hún lög og texta eftir sjálfa sig og
aðra en hún hefur gefið út þrjár
sólóplötur. Sú síðasta, Geimvísindi,
kom á markað árið 2018. Með henni
leika Jón Ólafsson, Magnús Magn-
ússon, Stefán Már Magnússon og
Andri Ólafsson.
Tónleikar Hildar Völu
í Kornhlöðunni í kvöld
FIMMTUDAGUR 5. MARS 65. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Þrátt fyrir sigur gegn Norður-Írlandi
í fyrsta leiknum á alþjóðlega mótinu
á Spáni í gær var frammistaða ís-
lenska kvennalandsliðsins í knatt-
spyrnu ekkert sérstök og ljóst að
það þarf að taka sig verulega á fyrir
mikilvæga leiki sem eru framundan.
Dagný Brynjarsdóttir tryggði Íslandi
nauman sigur, 1:0. »61
Sigur en frammi-
staðan var ekki góð
ÍÞRÓTTIR MENNING
Kristín Stefánsdóttir söngkona og
Hlynur Þór Agnarsson píanóleikari
standa fyrir tónleikum í Salnum í
Kópavogi í kvöld kl. 20 sem helg-
aðir verða lögum sem Karen Car-
penter flutti. Til að gera tónlistinni
sem best skil hafa þau fengið til
liðs við sig einvala lið tónlistar-
manna, blásara- og strengjasveit.
Einnig mun Skóla-
kór Kársnesskóla
syngja með í lög-
um sem urðu
kunn með The
Carpenters, á
borð við Top
of the world
og Yes-
terday
once
more.
Flytja tónlist Karen
Carpenter í Salnum
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Félag Árneshreppsbúa er með elstu
starfandi átthagafélögum landsins. Í
tilefni 80 ára afmælis þess verður
árshátíðin nú með veglegra móti, en
hún verður haldin í Félagsheimili
Seltjarnarness laugardaginn 14.
mars næstkomandi.
Félagið byrjaði sem átthagafélag í
Reykjavík en varð fljótlega samnefn-
ari fyrir alla brottflutta Árnes-
hreppsbúa. „Við erum rétt um þús-
und félagsmenn,“ segir Kristmundur
Kristmundsson, sem hefur verið
stjórnarmaður félagsins um árabil
og formaður í yfir áratug. Árnes-
hreppur er fámennasta sveitarfélag
landsins með 45 skráða íbúa um sl.
áramót, en um tugur býr þar að stað-
aldri.
Kristmundur er vélstjóri í Reykja-
vík en ólst upp að nokkru leyti á
Finnbogastöðum. Faðir hans fædd-
ist og ólst upp á Gjögri, þar sem fjöl-
skyldan á hús. „Þaðan hef ég stund-
að strandveiðar frá því þær hófust og
verið með annan fótinn í hreppnum,
eins mikið og ég hef haft tök á. Því
finnst mér skemmtilegast að segja
að ég sé trillukarl frá Gjögri.“
Engin félagsgjöld
Tilgangur með stofnun félagsins
var að hittast reglulega og halda
hópinn. „Þetta voru miklar gleði-
samkomur, sem enduðu nánast alltaf
með dansleikjum,“ segir Krist-
mundur. Aðalfundur hafi aldrei fallið
niður, fundir séu haldnir reglulega
og fastar samkomur séu árshátíð og
jólaball auk annarra tilfallinna við-
burða. „Svo komum við gjarnan að
uppákomum fyrir norðan,“ heldur
hann áfram og leggur áherslu á að
félagið hafi alltaf stutt vel við bakið á
félagsmönnum, sem hafi þurft á að-
stoð að halda, til dæmis vegna veik-
inda, og aðstoðað hreppinn eftir
föngum. „Félagið var brautryðjandi í
því að barnaskólinn á Finnboga-
stöðum tölvuvæddist á sínum tíma
og hefur síðan gefið skólanum tölvur
nokkrum sinnum. Þegar íbúðarhúsið
á Finnbogastöðum brann fyrir um 12
árum fór félagið af stað með mikla
landssöfnun og safnaðist nær fyrir
nýju íbúðarhúsi, sem er nýjasta hús
sveitarinnar.“
Eins og gengur hafa íbúar hrepps-
ins ekki alltaf verið sammála um alla
hluti en Kristmundur segir að á öll-
um mannfögnuðum félagsins hafi öll
þrætu- og deilumál verið lögð til
hliðar. Félagið gefi út tvö fréttabréf
árlega og sé auk þess með virka síðu
á Fésbókinni. „Tengsl við íbúa í
sveitinni eru mjög góð og þess má
geta að þegar verslunarfélagið var
stofnað fyrir um ári beitti félagið sér
fyrir því að safna stofnendum auk
þess sem það styrkti verslunar-
félagið.“
Þrátt fyrir töluverð umsvif eru
engin félagsgjöld í átthagafélaginu.
„Félagið hefur verið borið uppi á
gjafafé og öll vinna í þess þágu er
unnin í sjálfboðavinnu,“ segir Krist-
mundur. Bræðurnir Ragnar og Guð-
brandur Torfasynir verða veislu-
stjórar á afmælisfagnaðinum og sjá
um skemmtiatriði ásamt öðru fólki
úr sveitinni. „Við eigum frábært
fólk, drögum ýmislegt upp úr hatt-
inum og vonumst til þess að fylla fé-
lagsheimilið,“ segir formaðurinn, en
forsala verður í Félagsheimili Sel-
tjarnarness klukkan 14 til 16 laug-
ardaginn 7. mars.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Strandamaður Kristmundur Kristmundsson, trillukarl frá Gjögri og formaður Félags Árneshreppsbúa.
Öflugir Strandamenn
Brottfluttir Árneshreppsbúar með 80 ára afmælishátíð