Morgunblaðið - 31.03.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2020
PON er umboðsaðili
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður
Sími 580 0110 | pon.is
Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna!
GÆÐI OG ÞJÓNUSTA
MorgunblaðiðHádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóraSigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.isÁgúst Ingi Jónsson aij@mbl.is FréttirGuðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.isMenning Einar Falur Ingólfssonmenning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningarmbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Eigendur ökutækja, utan rekstrar,
munu geta fengið endurgreiddan
virðisaukaskatt að fullu vegna við-
gerða á ökutækjum sínum ef reikn-
ingurinn hljóðar upp á að lágmarki 25
þús. kr. fyrir vinnuna. Breytingartil-
laga efnahags- og viðskiptanefndar
var samþykkt í gærkvöldi þegar að-
gerðapakki ríkisstjórnarinnar vegna
kórónuveirufaraldursins varð að lög-
um. Reikningar við allar viðgerðir
sem kosta að lágmarki 25 þúsund kr.
falla hér undir þessa heimild til end-
urgreiðslu virðisaukaskattsins en
ákveðið var að heimildin nái ekki til
smáviðgerða, smurþjónustu og hjól-
barðaviðgerða, sem kosta minna.
Þingnefndin lagði m.a. þessa breyt-
ingu til fyrir hvatningu Bílgreinasam-
bandsins en önnur og þriðja umræða
um frumvarpið fóru fram Alþingi í
gær.
Bifreiðaeigendur ættu eftir lögfest-
ingu frumvarpsins að geta sótt um
endurgreiðslu vegna almennra þjón-
ustuskoðana á bílum sínum ef þær
kosta meira en 25 þús kr. án virðis-
aukaskatts. Einnig verður hægt að fá
endurgreitt vegna vinnu við viðgerð-
ir, bílamálun og bílaréttingar.
Fari ekki út í svarta hagkerfið
Bílgreinasambandið hvatti eins og
áður segir þingnefndina til að lögfesta
þessa heimild með sama hætti og
heimilaðar endurgreiðslur á virðis-
aukaskatti vegna vinnu við íbúðar- og
frístundahúsnæði til að tryggja að
sem mest verði að gera á bílaverk-
stæðum næstu mánuðina og komist
verði hjá uppsögnum. Skv. upplýsing-
um sambandsins starfa yfir 4.000 ein-
staklingar í bílgreinum hér á landi og
allt að 75% starfsmanna innan bíla-
umboða vinna við þjónustu, varahluti
og viðgerðir ökutækja.
,,Við viljum ekki sjá bílaviðgerðir
fara út í svarta hagkerfið eins og
gerðist 2008-2010 þegar spruttu upp
bílskúrar og heimaviðgerðir,“ segir
m.a. í umsögn Bílgreinsambandsins
til þingnefndarinnar.
„Við erum mjög ánægð með að
þetta sé komið svona langt og vonandi
verður þetta samþykkt svo það fari í
gegn,“ sagði María Jóna Magnúsdótt-
ir, framkvæmdastjóri Bílgreinasam-
bandsins, í samtali við Morgunblaðið í
gærdag aður en breytingin var lög-
fest. Spurð um útlitið í bílgreinum í
þessu ástandi sem uppi er vegna
veirufaraldursins segir María að líkt
og aðrir sjái menn fram á erfiða tíma.
,,Við erum að reyna að gera allt og
benda á hvað hægt er að gera betur
og teljum að þessi aðgerð að bílgrein-
ar fái að komast inn í verkefnið „Allir
vinna“ geti aðstoðað okkur gríðarlega
mikið.“
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri FÍB, tekur í sama streng og
segir aðgerðirnar mikilvægar í því
ástandi sem uppi er sem hafi víðtæk
áhrif. Fólk sé þegar farið að halda aft-
ur af sér á þessum óvissutímum og
þetta muni hjálpa til við að halda
dampi í greininni og rekstur og við-
hald ökutækja sé stór útgjaldaliður.
Endurgreitt ef upphæðin nær 25 þús.
Endurgreiðsla virðisaukaskatts
vegna bílaviðgerða skiptir marga máli
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Bílaviðgerð Í lagabreytingunni felst heimild til endurgreiðslu virðisauka-
skatts vegna bílaviðgerða frá 1. mars og til 31. desember nk.
Hestar og menn hafa gott af því að viðra sig reglulega,
og alveg sérstaklega þegar kórónuveirufaraldur geng-
ur yfir landið.
Harpa Hrönn Hilmarsdóttir á Blönduósi var í útreið-
artúr á sínum hesti, með bros á vör, er hún varð á vegi
fréttaritara blaðsins.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Riðið út í faraldri með bros á vör
Allir starfsmenn skóla- og frí-
stundasviðs Reykjavíkurborgar
fengu skeyti á föstudaginn þess efnis
að þeir fái páskaegg nr. 4 frá Nóa Sí-
ríus sem þakklætisvott fyrir frábært
starf við krefjandi aðstæður und-
anfarnar vikur og væntanlega áfram
fram að páskum. Á sviðinu starfa
tæplega 5.600 starfsmenn í grunn-
skólum, leikskólum, frístundaheim-
ilum og félagsmiðstöðvum. Yfirskrift
skeytisins var: Hjartans þakkir.
„Ágæti samstarfsmaður,
Eftir helgi færðu páskaegg sem
táknrænan þakklætisvott fyrir störf
þín í þeim krefjandi aðstæðum sem
ríkt hafa að undanförnu í skóla- og
frístundastarfi í Reykjavík. Nú hef-
ur reynt á þolgæði, útsjónarsemi,
frumkvæði, skapandi hugsun og
hlýju. Það styttist í langþráð páska-
leyfi. Ég veit að aðstæður eru ólíkar
og veikindi setja mark sitt á margar
fjölskyldur, en við komumst í gegn-
um þetta saman. Hafðu hugheilar
þakkir fyrir þitt framlag í vinnu fyrir
börnin í borginni!“
Páskaeggjakaupin voru boðin út
og bárust tvö tilboð. Góa bauð 6
milljónir og Nói Síríus rúmar 5,8
milljónir. Kostnaðaráætlun var 4,5
milljónir. Ákveðið var að semja við
lægstbjóðanda. sisi@mbl.is
Fá páskaegg
sem þakk-
lætisvott
Kosta 5,8 milljónir
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Alda uppsagna ríður yfir nú fyrir
mánaðamótin. Í gærkvöldi höfðu 17
fyrirtæki tilkynnt um hópuppsagn-
ir til Vinnumálastofnunar og taka
þær til 695 starfsmanna. Unnur
Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumála-
stofnunar, segir að búast megi við
að fleiri uppsagnir bætist við í dag,
síðasta dag mánaðarins. Slíkar töl-
ur hafa ekki sést í hópuppsögnum
frá því í bankahruninu, að falli
WOW air undanskildu.
Eru þetta að hennar sögn fyrir-
tæki í ferðaþjónustu og alls kyns
annarri þjónustu, meðal annars
verslanir. Sumir sem segja upp
starfsfólki nú um mánaðamótin
nýta sér einnig
hlutastarfaúr-
ræði Vinnumála-
stofnunar og fara
blandaða leið.
Í gær höfðu
rúmlega fjögur
þúsund fyrirtæki
sótt um minnkað
starfshlutfall fyr-
ir rúmlega 20
þúsund starfs-
menn. Að auki hafði á áttunda þús-
und manns sótt um atvinnuleysis-
bætur þannig að greiddar eru
bætur að hluta til eða öllu leyti til
um 28 þúsund manns.
Meðal fyrirtækja sem segja upp
starfsfólki þessa dagana er Isavia
sem tilkynnti í gær um uppsögn
101 starfsmanns auk þess sem 37
starfsmönnum til viðbótar verður
boðið áframhaldandi starf með
minnkuðu starfshlutfalli til fram-
tíðar. Jafnfamt verður dregið úr
ráðningum sumarstarfsfólks. Þetta
gerir Isavia vegna samdráttar í
ferðaþjónustunni. Flestar uppsagn-
irnar verða á Keflavíkurflugvelli.
Advanina og DV segja upp
Advania sagði upp fjórtán starfs-
mönnum fyrir helgi af sömu ástæð-
um og Isavia. Þá fékk hátt í tugur
starfsmanna DV uppsagnarbréf í
gær ásamt fleiri starfsmönnum
Frjálsrar fjölmiðlunar en nýlega
var gengið frá kaupum Torgs, út-
gáfufélags Fréttablaðsins, á fyrir-
tækinu.
Alda uppsagna ríður yfir
17 fyrirtæki segja upp 700 manns Isavia fækkar um 101
27.500 verða á atvinnuleysisbótum eða hlutastarfabótum
Unnur
Sverrisdóttir
Óformlegar samningaumleitanir
hafa verið milli forystu Alþýðu-
sambands Íslands og Samtaka at-
vinnulífsins vegna hugmynda úr við-
skiptalífinu um að fresta launa-
hækkunum sem eiga að koma til
framkvæmda 1. apríl. Drífa Snædal,
forseti ASÍ, segir að engin nið-
urstaða sé komin í það samtal.
Afstaða sambandsins sé þó skýr.
„Við höfum talið það of dramatíska
aðgerð að fara inn í kjarasamn-
ingana þar sem okkar fólk er að taka
á sig gríðarlegar kjaraskerðingar í
alls konar formum, ekki síst það fólk
sem er að fara á hlutaatvinnuleys-
isbætur. Fyrirtækin eru að fá gríð-
arlegan stuðning frá stjórnvöldum
og lífeyrissjóðum reyndar líka,“ seg-
ir Drífa.
Spurð hvort einhugur sé um þett-
an innan ASÍ svarar Drífa: „Við höf-
um komist að þessari niðurstöðu
innan ASÍ.“
Öll laun hækka um 18 þúsund 1.
apríl og taxtalaun um 24 þúsund.
Vilhjálmur Birgisson, 1. varafor-
seti ASÍ, segist hafa viðrað þá hug-
mynd að skerða tímabundið mót-
framlag vinnuveitenda í lífeyrissjóði.
Það myndi koma í sama stað niður.
Frestun er
dramatísk
aðgerð
Hækkanir 1. apríl