Morgunblaðið - 31.03.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2020
AÐALFUNDUR
AðalfundurBrims hf. verður haldinn í dag,
31.mars 2020og hefst hann klukkan17:00
Fundurinn fer framá íslensku.
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. gr. 4.11 í samþykktum félagsins.
2. Tillaga umheimild til félagsstjórnar um kaup á eigin hlutum
skv. 55. gr. hlutafélagalaga.
3. Skýrsla stjórnar um kosti og galla tilnefningarnefnda skv. samþykkt síðasta
aðalfundar.
4. Tillaga stjórnar vegna samþykktar á hluthafafundi 12. desember2019 umað fela
stjórn félagsins að leggja fram til samþykktar eða synjunar tillögur semmiða að því að
aukamöguleika erlendra aðila til óbeinnar fjárfestingar í félaginu.
5. Önnurmál.
Þar sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið, í samræmi við tillögu sóttvarnarlæknis, að
takmarka samkomur vegna útbreiðslu Covid-19 veirunnar hefur verið lagt bann við því að
halda fjölmennan fund. Í ljósi þess og ábendingum frá hluthöfum félagsins beinir stjórnin því
til hluthafa aðmæta ekki á aðalfundinn heldur kjósa fyrirfram skriflega um tillögur fundarins
og fela fundarstjóra umboð til að kjósa á fundinum fyrir sína hönd. Gert er ráð fyrir að einungis
mæti á fundarstað starfsmenn fundarins, forstjóri og stjórnarformaður.
SKRIFLEG KOSNING
Eyðublað fyrir skriflega kosningu og leiðbeiningar
er að finna á heimasíðu félagsins: https://www.
brim.is/brim/fjarfestar/adalfundur2020/
Skulu hluthafar senda útfyllt eyðublöð á netfangið:
adalfundur@brim.is og verður tekið við þeim þar til
fundurinn hefst kl. 17:00 á aðalfundardaginn.
SKRIFLEGTUMBOÐ
Jafnframt má senda þeim sem koma til með að
sitja fundinn umboð með saman hætti og greinir
hér að framan. Eyðublað og leiðbeiningar um það er
að finna á heimasíðu félagsins: https://www.brim.
is/brim/fjarfestar/adalfundur2020/
Frestur hluthafa til að senda félaginu umboð og
skrifleg atkvæði er þar til fundurinn hefst kl. 17:00
á aðalfundardaginn á netfangið:
adalfundur@brim.is
Fundurinn verður sendur út gegnum heimasíðu
félagsins: https://www.brim.is/brim/fjarfestar/
adalfundur2020/ Þar verður útbúinn sérstakur
hlekkur áður en fundur hefst. Aðgangsorð inn á
fundinn verður sent við móttöku atkvæðaseðils
með umboði.
Nánari upplýsingar veita:
Inga Jóna Friðgeirsdóttir, fjármálastjóri í síma
858-1170 eða á netfangið ingajona@brim.is
Jón Þór Andrésson í síma 858-1030 eða á
netfangið jonthor@brim.is
Aðrar upplýsingar
Dagskrá og öll skjöl sem lögð verða fyrir
aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins
og tillögur eru hluthöfum tiltæk á íslensku, á
heimasíðu félagsins.
Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn er að finna
á vefsíðu félagsins, www.brim.is
Stjórn Brims hf.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Hundruð Íslendinga lögðu leið sína
til Þingvalla um helgina og mátti
sjá talsverðan fjölda fólks í Al-
mannagjá, við Öxarárfoss eða á
gönguskíðum um Þingvallahraun.
Einar Á.E. Sæmundsen þjóðgarðs-
vörður segir þetta hafa verið mjög
gleðilegt en vill ítreka við fólk að
virða samkomubann og tveggja
metra fjarlægð. Heimsóknir er-
lendra ferðamanna í þjóðgarðinn
hafa hinsvegar hrunið í faraldrin-
um og segir Einar það áhyggjuefni
því um leið hrynji sértekjur þjóð-
garðsins.
Rætt við ráðuneytið
Í fyrra voru þessar sértekjur um
hálfur milljarður króna sem fara til
rekstrar þjóðgarðsins og komu þær
einkum með innheimtu gjalda fyrir
bílastæði, sölu tjald- og veiðileyfa
og af starfsemi í Silfru. „Hér hefur
ekki sést erlendur ferðamaður í
marga daga en bæði í fyrra og
hittifyrra komu hingað um 1,3
milljónir gesta, erlendir ferðamenn
að langstærstum hluta. Það segir
sig sjálft að það er mikið högg fyrir
starfsemina ef þessar tekjur hverfa
í nokkra mánuði,“ segir Einar.
Í kjölfar samkomubanns var
gestastofunni á Hakinu lokað
mánudaginn 16. mars en salerni ut-
an við gestastofu eru opin og þrifin
ásamt salernum við þjónustumið-
stöðina. Til stóð að opna þjónustu-
miðstöðina á Leirum nú í byrjun
apríl, en því hefur verið frestað þar
til óvissu um samkomubann er
eytt.
Einar segir að viðræður séu í
gangi við umhverfisráðuneytið um
starfsemi þjóðgarðsins og þá
óvæntu stöðu sem sé uppi og
hvernig hægt sé að bregðast við.
Þetta eigi til dæmis við um hag-
ræðingu í rekstri, einstaka minni
framkvæmdir, sem fjármagna átti
af sértekjum, og annað samkomu-
hald, en þjóðgarðurinn á 90 ára af-
mæli í ár. Um 25 manns starfa hjá
Þjóðgarðinum á Þingvöllum.
Tekjutapið hefur ekki áhrif á
framkvæmdir sem eru fjármagn-
aðar eftir öðrum leiðum t.d. á inn-
viðaáætlun eða með sérstakri fjár-
heimild. Framkvæmdir eru að
hefjast við ný salerni á nokkrum
stöðum og nýjan útsýnispall við
Hrafnagjá við austurjaðar sigdæld-
arinnar á Þingvöllum.
Hrun í tekjum þjóðgarðsins
Gleðilegt að sjá Íslendinga á Þingvöllum Erlendir ferðamenn hafa ekki sést í
marga daga 1,3 milljónir gesta komu í fyrra og hálfur milljarður í sértekjur
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Þingvellir Íslenskir ferðamenn á Hakinu um helgina en hundruð Íslendinga lögðu þá leið sín í þjóðgarðinn.
Magn blautklúta í frárennsliskerfi
Reykjavíkur hefur minnkað en er
enn mikið og veldur vandræðum, að
sögn Ólafar Snæhólm, upplýsinga-
fulltrúa hjá Veitum.
Fyrir um viku var hreinsistöð frá-
veitu við Klettagarða í Reykjavík
óstarfhæf vegna mikils magns af
blautklútum í fráveitukerfinu og fyr-
ir bragðið fór skólp óhreinsað í sjó-
inn. Ólöf segir að nokkra sólarhringa
hafi tekið að hreinsa dælur og annan
búnað stöðvarinnar en hún sé komin
í gagnið á ný.
„Ennþá berst mjög mikið magn af
blautklútum inn í fráveitukerfið og
það eru vinsamleg tilmæli frá okkur
til fólks að setja blautklúta í ruslið,“
segir Ólöf.
Blautklút-
ar eru enn
til trafala
Fólk beðið um að
henda þeim í ruslið
Rusl Blautklútar eiga heima í
ruslinu en ekki í salerninu.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Samkomu- og nálægðarbann hefur
m.a. leitt til lokunar söfnunarkassa
Íslandsspila. Rauði kross Íslands
(RKÍ), Slysavarnafélagið Lands-
björg (SL) og Samtök áhugafólks um
áfengis- og vímuefnavandann (SÁÁ)
missa því af mikilvægum tekjum.
Ágóðinn af rekstri kassanna rennur
til eigenda í hlutfalli við eignarhluti.
RKÍ á 64%, SL 26,5% og SÁÁ 9,5%.
Fram hefur komið að SÁÁ á nú í
vanda vegna þess að stór hluti af
sjálfsaflafé samtakanna hefur horfið.
„Áætlanir fyrir þetta ár standast
engan veginn. Þetta er algjört tekju-
fall. Það kemur sér mjög illa fyrir
Rauða krossinn að missa tekjurnar
af spilakössunum,“ sagði Kristín S.
Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri
RKÍ og formaður stjórnar Íslands-
spila. „Við fjármögnum innanlands-
starfið að stórum hluta með þessum
tekjum. Þar með talið símann 1717
og neyðarvarnir hringinn í kringum
landið. Þessar tekjur hafa dregist
saman undanfarin ár, en nú varð al-
gjört hrun. Við erum að endurskoða
fjárhagsáætlanir og skoða hvað við
getum gert.“
Auk þess að missa tekjurnar af
spilakössunum hefur ekki verið hægt
að hafa verslanir Rauða krossins
opnar. Kristín sagði að þau yrðu því
að treysta á Mannvini Rauða kross-
ins sem styðja félagið með mánaðar-
legum framlögum. Algjör óvissa rík-
ir um hve lengi þetta ástand varir.
„Nú eru ólögleg netspilunarfyrir-
tæki að herða sig í auglýsingum. Ef
spilararnir hafa ekki spilakassana þá
fara þeir eitthvað annað. Það fara
nokkrir milljarðar úr landi á hverju
ári til erlendra fyrirtækja vegna net-
spilamennsku. Fjármunir sem Ís-
landsspil afla fara beint til mannúð-
armála, björgunarsveita og SÁÁ.“
Kristín sagði að Íslandsspil hefðu
sótt um að fá að bjóða upp á spil á
netinu en ekki fengið. Félagið hefði
því dregist aftur úr þróuninni. Einn-
ig gildi þrengri reglur um Íslandsspil
en Happdrætti HÍ sem m.a. getur
samtengt spilakassa og verið með
Gullpott í Gullnámunni.
Stór liður í fjáröflun SL
Jón Svanberg Hjartarson, fram-
kvæmdastjóri SL og stjórnarmaður í
Íslandsspilum, sagði að tekjutap
vegna söfnunarkassanna kæmi illa
við SL. „Þetta er stór fjáröflun hjá
félaginu,“ sagði Jón. Hann var sömu
skoðunar og Kristín að það hefði
staðið Íslandsspilum fyrir þrifum að
fá ekki að bjóða upp á netspilun. Eins
væri mjög skökk samkeppnisstaða
við Gullnámu HHÍ. Jón sagði
ástandið undirstrika að breyta þyrfti
umhverfinu í fjáröflun samtaka sem
starfa í almannaþágu, líkt og þeirra
sem treystu á tekjur frá Íslandsspil-
um.
Hann sagði að tekjur SL frá Ís-
landsspilum hefðu verið tæpar 177
milljónir í fyrra og höfðu þá lækkað
talsvert frá 2018 þegar um 210 millj-
ónir komu í þeirra hlut. Samkvæmt
því greiddu Íslandsspil eigendum um
668 milljónir 2019. RKÍ hefur þá
fengið um 427 milljónir og SÁÁ um
64 milljónir.
Engar tekjur
vegna lokunar
Félög í almannaþágu lenda illa í því
Morgunblaðið/Kristinn
Lokun Rauði krossinn, Slysavarna-
félagið Landsbjörg og SÁÁ tapa.