Morgunblaðið - 31.03.2020, Síða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2020
70 ára Guðni er Reyk-
víkingur, ólst upp í
Sundunum og Heim-
unum og býr á Laug-
arásvegi. Hann er við-
skiptafræðingur að
mennt frá Háskóla Ís-
lands og er fram-
kvæmdastjóri húsgagnasviðs Pennans.
Börn: Jarþrúður, f. 1971, Jón, f. 1976, og
Hekla Brá, f. 2000. Barnabörnin eru
Hugrún Líf, f. 2000, og tvíburarnir Anton
Guðni og Kjartan Pétur, f. 2006, börn
Jarþrúðar.
Foreldrar: Jón Guðnason, f. 1920, d.
2010, múrarameistari og mælinga-
fulltrúi, og Stefanía Sigurjónsdóttir, f.
1918, d. 2010, húsmóðir. Þau voru búsett
í Reykjavík.
Guðni
Jónsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu vaða, þú hefur engu að
tapa. Einhver fylgist með þér úr fjarlægð.
Leyndur hæfileiki skýtur upp kollinum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þið sambýlingar ættuð að setjast
niður og gera fjárhagsáætlun sem þið far-
ið svo eftir. Það er allt í jafnvægi í lífi þínu
núna, þakkaðu fyrir það.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Gera peningar og starfsframi
þig hamingjusama/n eða ertu að leita að
einhverju öðru? Leggstu í naflaskoðun.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Að hjálpa einhverjum úr klípu læt-
ur þér líða mjög vel. Vinir munu skilja þig
og styðja ef þú talar við þá. Ekki forðast
að mæta vissri persónu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það getur eyðilagt góða vináttu ef
menn reyna að þröngva sínu fram án
nokkurs tillits til annarra. Fólk virðist ein-
staklega samvinnuþýtt.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Nú á dögum eru svo margir visku-
brunnar að leita í að menn standa oft ráð-
þrota. Treystu þínu innsæi. Fylgist vel með
heilsunni.
23. sept. - 22. okt.
Vog Reyndu að eyða eins miklum tíma til
útivistar og þú mögulega getur. Taktu
enga ákvörðun fyrr en þú hefur skoðað
allar hliðar málsins gaumgæfilega.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er ekki nóg að geta sett
mál sitt fram með skemmtilegum hætti,
þú þarft að hafa staðreyndir á hreinu.
Búðu þig undir smá átök við nágranna.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Maður hræðist bara það sem
maður þekkir ekki og hefur ekki prófað.
Þú ættir að láta slag standa. Þér finnst
vont að hafa ekki alltaf rétt fyrir þér.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er engin skömm að því að
leita sér aðstoðar þegar byrðarnar verða
manni ofviða. Þú átt góða vini að.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Gefðu þér tíma til þess að
virða fyrir þér gang hlutanna áður en þú
ræðst til atlögu við þá. Leyfðu þér að setja
markið hærra en þú hefur gert und-
anfarið.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Peningarnir virðast fljúga út af
reikningnum, en það er ekki hægt að
verðleggja reynslu. Létt lund þín smitar út
frá sér. Verið samtaka í uppeldinu.
iss konar fróðleikur, og ferðir Gísla-
vinafélagsins. Hann er Gíslinn í
Gíslavinafélaginu en í félaginu er
áhugafólk um ferðalög innanlands
sumar og vetur. „Félagið byrjaði
þannig að þegar ég var að fara í ferðir
þá fannst mér vera skylt að segja frá
því að ég ætlaði að fara í þessar ferðir
G
ísli Ólafur Pétursson
fæddist 31. mars 1940 í
Reykjavík. Hann ólst
upp á Eyrarbakka til
fjögurra ára aldurs en
síðan í Reykjavík. Hann var í sveit á
Stórumörk undir Eyjafjöllum, Ljót-
unnarstöðum við Hrútafjörð og frá 10
ára aldri í Árkvörn í Fljótshlíð og var
þar í sex sumur.
Gísli gekk í Austurbæjarskóla og
tók landspróf frá Héraðsskólanum á
Laugarvatni. Hann varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1959,
lauk Cand.mag.-prófi í uppeldis- og
kennslufræði, sálarfræði og stærð-
fræði við Háskólann í Ósló 1978, var í
framhaldsnámi í tölvunarfræðum við
Háskólann í Ósló 1988-89 og hefur
sótt fjölda kennaranámskeiða.
Gísli kenndi við Barna- og ung-
lingaskólann í Grindavík 1960-62, við
Víghólaskóla í Kópavogi 1963-69,
heimavistarskólann í Hlaðgerðarkoti
1971-72, menntadeild Víghólaskóla
1972-73, við Menntaskólann í Kópa-
vogi 1973-2000 og var aðstoðarskóla-
meistari þar 1982-87, og kenndi við
Tækniskólann 2000-2002.
Gísli hefur skrifað og gefið út
kennslubækur í forritun og í notkun
forrita og nokkrar fleiri. Þar má nefna
Nýju stóru söngbókina og ljóðabókina
Í erli dægranna eftir Pétur Sumar-
liðason og bækur með smásögum,
ljóðum og lögum eftir Högna Egils-
son fyrrverandi skólastjóra.
Gísli var Þórsmerkurvörður fyrir
Ferðafélag Íslands og Skógrækt rík-
isins sumrin 1966-73 nema sumarið
1967 þegar hann vann við vatnamæl-
ingar í Jökulheimum þar sem
Tungnaá kemur undan Vatnajökli.
Hann sat í skólanefnd Kópavogs
1974-76, fræðsluráði Reykjanesum-
dæmis 1974-76, í stjórn Félags raun-
greinakennara 1979-30, í ritstjórn
Kennarablaðsins, málgagns Hins ís-
lenska kennarafélags 1979-84, í hags-
muna- og samninganefnd HÍK 1980-
88 og formaður hennar 1982-88, í
stjórn BHMR 1981-85, í stjórn HÍK
1985-89, í stjórn BK 1985-88, formað-
ur stjórnar Orlofssjóðs BHMR 1984-
90 og var formaður Félags kennara á
eftirlaunum 2004-2005. Gísli vann
meistaraflokk á Skákþingi Íslands
1961 og tefldi í landsliðsflokki á Ís-
landsmeistaramótinu 1962.
Helstu áhugamál Gísla eru vef-
urinn GOPfrettir.net, þar sem er ým-
og þannig varð hópurinn til. Fastar
ferðir hafa verið Þórsmerkurferð á
þrettándanum og sumarferðir, síð-
sumarferðir og haustferðir, gjarnan
um hálendið en líka um Vestfirði,
Austfirði og Norðurland. Ég hef einn-
ig næstum öll sumur frá 2003 verið í
leit að hinu heilaga grali í Kerlingar-
fjöllum með ítalska verkfræðingnum
og dulmálssérfræðingnum Giancarlo
Gianazza, en við fórum ekki síðasta
sumar. Ég hef nú aðallega verið öku-
maður í þeim ferðum.“
Fjölskylda
Eiginkona Gísla er Ragna Freyja
Karlsdóttir, f. 6.6. 1940, sérkennari og
fyrrverandi skólastjóri Dalbrautar-
skóla. Heiðursfélagi Sérkennara-
félagsins og sérstaklega heiðruð af
ADHD-samtökunum. Þau gengu í
hjónaband 31.3. 1959 og eru búsett í
Kópavogi. Foreldrar Rögnu voru
hjónin Karl Sæmundarson, f. 15.7.
1919, d. 20.2. 1996, húsgagnasmiður á
Siglufirði og í Kópavogi, og Katrín
Gamalíelsdóttir, f. 23.8. 1919, d. 11.4.
1980, húsfreyja.
Börn Gísla og Rögnu eru 1) Ólafur
Gísli Ólafur Pétursson kennari – 80 ára
Gíslinn í Gíslavinafélaginu
Brúðhjónin Ragna og Gísli 1959.
Afmælisbarnið Gísli Ólafur.
Gíslavinafélagið Hópurinn á
ferðalagi í Þórsmörk árið 2011.
50 ára Ragnar ólst
upp á Akureyri og býr
þar. Hann er með dokt-
orsgráðu í eðlisfræði
frá Háskólanum í
Lundi, Svíþjóð, og er
framkvæmdastjóri
Varmalausna ehf.
Maki: Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir, f.
1970, forstöðumaður RHA, Rann-
sóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri.
Börn: Ásmundur Smári, f. 1999, Þór-
steinn Atli, f. 2004, Elín Rósa, f. 2006, og
Magni Rafn, f. 2010.
Foreldrar: Ásmundur Jónsson, f. 1940,
fv. enskukennari við Menntaskólann á Ak-
ureyri og Ragnheiður Kjærnested, f. 1947,
fv. forstöðumaður fagbókasafns Sjúkra-
hússins á Akureyri, búsett á Akureyri.
Ragnar Kjærnested
Ásmundsson
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Við erum sérfræðingar
í malbikun