Morgunblaðið - 31.03.2020, Blaðsíða 26
FRÉTTASKÝRING
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Með þeirri tilkynningu IOC, Al-
þjóðaólympíunefndarinnar, og fram-
kvæmdanefndar ÓL 2020 í Tókýó í
gær um að Ólympíuleikarnir fari
fram 23. júlí til 8. ágúst 2021 og Ól-
ympíumót fatlaðra, Paralympics, í
kjölfarið, er ákveðin keðjuverkun
komin í gang.
Með frestuninni er kominn fastur
punktur á dagskrá íþróttamóta á
heimsvísu fyrir árið 2021 sem aðrir
þurfa að laga sig að.
Heimsmeistaramótið í frjáls-
íþróttum átti að fara fram í Eugene í
Bandaríkjunum í ágústmánuði 2021.
Alþjóðafrjálsíþróttasambandið til-
kynnti strax og ÓL-dagsetningarnar
lágu fyrir í gær að ákvörðun IOC
nyti fulls stuðnings og nú væri vinn-
an komin í gang við að finna dag-
setningar fyrir HM í frjálsum á
árinu 2022.
Lokakeppni Evrópumóts karla í
fótbolta hafði þegar verið frestað um
eitt ár en hún á að fara fram sumarið
2021 og standa yfir frá 11. júní til 11.
júlí. Mánuði síðar átti lokakeppni
EM kvenna að hefjast og standa til
1. ágúst. Hugmyndir voru uppi um
að hnika aðeins til dagsetningum
þannig að um yrði að ræða eitt stórt
EM-sumar fyrir bæði karla og kon-
ur.
Nú er ljóst að af því getur ekki
orðið. EM karla rekst ekki svo mjög
á Ólympíuleika því þar leika lið U23
ára í karlaflokki í fótboltanum. Ann-
að gildir um konurnar þar sem á Ól-
ympíuleikum eru A-landslið kvenna
og þar með er væntanlega óumflýj-
anlegt að færa EM kvenna til sum-
arsins 2022.
Frakklandshjólreiðarnar 2021,
Tour de France, áttu að hefjast í
Kaupmannahöfn 25. júní en þaðan
yrði hjólað áleiðis til Frakklands og
þrjár fyrstu leiðirnar innan Dan-
merkur. Keppninni átti að ljúka 18.
júlí en þar sem hjólreiðar eru ein af
ólympíugreinunum er ljóst að færa
þarf hana til.
Endanlega klárt hjá Ásdísi
Tilkynning IOC þýðir jafnframt
að nú er endanlega á hreinu að það
íþróttafólk sem stendur við fyrri
ákvörðun um að hætta keppni að
loknu tímabilinu 2020 er ekki á leið á
Ólympíuleikana. Í þeim hópi er
spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir
sem hefur keppt á þrennum Ólymp-
íuleikum en skýrði frá því á dög-
unum að hún væri ekki á leið á leik-
ana, svo framarlega sem þeim yrði
frestað til 2021.
Hefur keðjuverkandi áhrif
AFP
479 Ólympíuklukkan í miðborg Tókýó hóf nýja niðurtalningu í gær þegar
dagsetningar Ólympíuleikanna sumarið 2021 lágu endanlega fyrir.
Nýjar dagsetningar Ólympíuleikanna kalla á ýmsar breytingar hjá öðrum
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2020
31. mars 1962
Morgunblaðið segir frá mikl-
um áformum hjá Körfuknatt-
leikssambandi Íslands: „… og
má nánast kalla fyrirhugaða
starfsemi byltingu í starfi
þessa yngsta sérsambands
innan vébanda ísl. íþrótta“.
KKÍ hefur m.a. samið við
bandarískan þjálfara, John
Wood, um að starfa fyrir sam-
bandið í þrjá mánuði og ætlar
um haustið með landslið karla
á norrænt meistaramót, Polar-
Cup, í fyrsta skipti. Þetta á
m.a. að fjármagna með bingói
í Háskólabíói þar sem Fiat-
bifreið er í verðlaun.
31. mars 1967
Morgunblaðið ræðir við
nokkra þekkta aðila um mögu-
leika á atvinnu-
mennsku í ís-
lenskum íþrótt-
um. Einn þeirra
er Jóhannes
Sæmundsson
íþróttakennari
sem er hlynntur
henni og segir: „Ríki og bæj-
arfélög verða að hlaupa undir
bagga og auka til muna fram-
lag sitt til íþróttahreyfing-
arinnar, til þess að íslenzkir
íþróttamenn geti verði sjálfum
sér og landi sínu til sóma hvar
sem þeir keppa.“
31. mars 1972
Íslenska karlalandsliðið í
körfuknattleik sigrar Noreg,
102:100, í fyrsta leik sínum á
Norðurlandamótinu í Svíþjóð.
Þórir Magnússon á stórleik og
skorar 27 stig fyrir Ísland en
þetta reyndist síðan eini sig-
urleikur liðsins í mótinu.
31. mars 1978
Fjallað er í Morgunblaðinu um
einstakan árangur Íþrótta-
félags Stúdenta sem verður
bikarmeistari í körfubolta,
bæði í karla- og kvennaflokki
með sigrum á Val og KR í úr-
slitaleikjum kvöldið áður. Hjá
karlaliði ÍS var eini stóri tit-
ilinn í sögu félagsins.
31. mars 1984
Morgunblaðið birtir mynd af
forsíðu íþróttablaðs Los Ang-
eles Times sem
skartar stórri
mynd af Einari
Vilhjálmssyni
spjótkastara.
Einar hafði þá
sigrað heims-
methafann
Tom Petranoff á fyrsta utan-
hússmóti tímabilsins og kastað
85,78 metra.
31. mars 1999
Íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu nær óvæntu jafn-
tefli, 1:1, gegn Úkra-
ínumönnum í Kiev, í und-
ankeppni Evrópumótsins.
Lárus Orri Sigurðsson jafnar
metin um miðjan síðari hálf-
leik. Ísland er þar með tap-
laust í fyrstu fimm leikjum sín-
um og er tveimur stigum á
eftir Úkraínu og Frakklandi í
toppbaráttu riðilsins.
31. mars 2010
Kvennalandslið Íslands í
knattspyrnu sigrar Króata,
3:0, í Zagreb í
undankeppni
heimsmeist-
aramótsins.
Katrín Jóns-
dóttir, Margrét
Lára Viðars-
dóttir og Rakel
Logadóttir skora mörk Íslands
sem er í slag við Frakka um að
komast áfram úr riðlinum.
Á ÞESSUM DEGI
KÖRFUBOLTI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
„Samningurinn minn er búinn. Hann
var út tímabilið og tímabilið er auð-
vitað búið, þannig að ég er samn-
ingslaus,“ sagði körfuknattleiksmað-
urinn Jakob Örn Sigurðarson í
samtali við Morgunblaðið.
Jakob gekk í raðir KR fyrir tíma-
bilið eftir áratug með Borås og
Sundsvall í Svíþjóð. Hann er óviss
með framhaldið hjá sér og hvað tek-
ur við á meðan óvissa ríkir í sam-
félaginu.
„Það er allt í biðstöðu hjá öllum og
deildinni. Ég er aðeins að bíða og sjá
hvað gerist. Þetta er rosalegt högg
fjárhagslega fyrir marga klúbba og
þeir eru að reyna að komast í gegn-
um þennan tíma áður en þeir fara að
huga að næsta tímabili. Maður er í
sömu stöðu sjálfur,“ sagði Jakob.
Jakob, sem verður 38 ára næst-
komandi laugardag, útilokar ekki að
leggja skóna á hilluna á þessum
tímapunkti, en hann hefur ekki tekið
ákvörðun enn. „Ég er opinn fyrir því
að halda áfram en hvort ég mun
spila eða hvar er eitthvað sem ég hef
ekki tekið ákvörðun um enn þá. Ég
er alveg rólegur eins og er,“ sagði
Jakob, sem lék sinn síðasta landsleik
fyrir tveimur árum. Hann var að
glíma við bakmeiðsli í lok síðasta
árs, en segist við góða heilsu nú.
„Ég ég fékk smá bólgur í bakið í
kringum jólin en ég var ekki lengi
frá. Ég missti af tveimur leikjum og
það hefur ekki verið vesen á því síð-
an þá. Mér líður rosalega vel.“
Jakob kom til KR fyrir tímabilið
ásamt bróður sínum Matthíasi Orra
Sigurðarsyni og Brynjari Þór
Björnssyni. Þar hitti hann fyrir jafn-
aldra sinn Jón Arnór Stefánsson og
var leikmannahópur KR-inga spenn-
andi. Það gekk hins vegar illa fram-
an af og var KR um miðja deild
stærstan hlusta tímabilsins. Mikið
var um meiðsli í herbúðum félagsins,
en eftir sigur í síðustu fjórum leikj-
um áður en tímabilinu var aflýst,
enduðu KR-ingar í fjórða sæti Dom-
inos-deildarinnar.
Skemmtilegt en erfitt
„Þetta var skemmtilegt og á sama
tíma mikil áskorun. Við KR-ingarnir
lentum í ýmsu. Það var mikið um
meiðsli og við náðum ekki neinum
stöðuleika fannst mér. Það var rétt í
lokin áður en mótinu var aflýst, en
það vita allir að þetta var frekar erf-
itt tímabil hjá okkur. Við áttum al-
veg mjög slaka leiki inni á milli. Það
var mjög pirrandi og fékk á mann.
Stemningin og mórallinn innan
hópsins var samt mjög góður yfir
tímabilið. Það var fúlt að loksins
þegar við vorum að komast í gír var
mótinu aflýst en ég skil þá ákvörðun
vel,“ sagði Jakob, sem viðurkenndi
að hann hefði ekki ímyndað sér að
mögulega sinn síðasti leikur væri
deildarleikur gegn Val.
„Það var ekki þannig sem maður
hugsaði það þegar ég flutti heim fyr-
ir tímabilið eftir langan tíma erlend-
is. Ég fylgdist vel með úrslitakeppn-
inni og það var mikil löngun að taka
þátt í þeirri stemningu allavega einu
sinni áður en maður hættir. Þetta
var ekki alveg eins og ég ímyndaði
mér; að enda á deildarleik á móti Val
sem eiginlega enginn var að horfa á
því samkomubannið var eiginlega
komið,“ sagði Jakob Örn.
Ekki eins og ég
ímyndaði mér
Jakob samningslaus og óviss með
næsta skref Útilokar ekki að hætta
Morgunblaðið/Hari
Heimkoma Jakob Örn Sigurðarson sneri aftur heim fyrir tímabilið.
Lionel Messi hefur staðfest að hann
og aðrir leikmenn Barcelona hafi
tekið á sig 70 prósenta lækkun
launa á meðan leikir í spænska fót-
boltanum liggi niðri af völdum kór-
ónuveirunnar. Sú ákvörðun Barce-
lona að lækka allt sitt íþróttafólk í
launum um 70 prósent var kynnt
fyrir helgina. Messi sagði á Insta-
gram að málið væri frágengið og
skýrði jafnframt frá því að með
þessu væri tryggt að annað starfs-
fólk félagsins en leikmennirnir
myndi halda öllum sínum launum
þótt enginn fótbolti væri spilaður.
Starfsfólkið
heldur laununum
AFP
70% Launalækkun hjá Lionel Messi
auðveldar Barcelona margt.
Danir ætla að ljúka sínu keppn-
istímabili í fótboltanum 2019-20,
sama hvaða tafir kunna að verða á
því á næstu vikum og mánuðum en
formaður deildakeppninnar til-
kynnti það í gær. Meistarar verði
krýndir og klárt verði hvaða lið
færist á milli deilda þannig að ekki
verði setið uppi á næsta tímabili
með afleiðingar af hléinu sem gera
þurfti vegna kórónuveirunnar.
Þrjár sviðsmyndir hafa verið settar
upp, eftir því hvenær keppni hefst,
og allar miða við að öllum leikjum í
deild og bikar verði lokið.
Danir ætla að
ljúka tímabilinu
Morgunblaðið/Eggert
Danmörk Mikael Anderson leikur
með toppliðinu Midtjylland.