Morgunblaðið - 08.04.2020, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 08.04.2020, Blaðsíða 40
Þóra Sigurðurdóttir thora@mbl.is Áhrifa kórónuveirunnar gætir á Vestfjörðum eins og víðar og því varð úr að hlé verður tekið á kennslu eftir páska en námskeiðin þar á undan voru kennd með fjar- kennslu. Á innibrautinni var ljós- myndarinn Saga Sigurðardóttir með námskeið sem bar yfirskriftina Skapandi ljósmyndun og á útibraut- inni var matreiðslumaðurinn Völ- undur Snær Völundarson með nám- skeið sem kallast Matarkistan Önundarfjörður, þar sem markmiðið var að afla fæðu úr firðinum og matbúa hana. Að sögn Völundar var töluverð áskorun að halda námskeið í gegn- um tölvu. „Námskeiðslýsingin hljóð- aði upp á vettvangsferðir, vinnslu á hráefninu og síðan hvernig á að elda það, þannig að það var hreint ekki sjálfgefið að þetta myndi ganga upp. Þetta gekk samt miklu betur en ég hafði þorað að vona og það er ekki síst þessum frábæra hópi nem- enda að þakka,“ segir Völundur. „Við vorum mikið að vinna með sjávarnytjar eins og fisk, hörpuskel, ígulker og þara. Ég byrjaði á því að senda þau niður í fjöru þar sem þau tíndu nokkrar mismunandi tegundir af þara sem var svo þurrkaður. Við nýttum hann meðal annars í soð fyrir súpu, bjuggum til meðlæti úr honum, þurrkuðum hann og steikt- um í snakk. Í súpugerðinni var horft til asískrar matargerðar en þari er þar undirstöðuhráefni enda státar hann af umami-bragði sem er alla jafna kallað fimmta bragðið. Við unnum mikið með fisk og þá hvern- ig við gátum nýtt allan fiskinn. Beinagarðurinn var nýttur í soð, við þurrkuðum og krydduðum roðið og djúpsteiktum í snakk. Krakkarnir lærðu að búa til sitt eigið salt sem þau gerðu tilraunir með að þróa nánar og bragðbæta. Saltvinnslan felst í því að sjóða niður sjó, sem er nokkuð sem allir geta gert heima hjá sér og prufað sig áfram með. Svo fengum við kafara til að sækja fyrir okkur hörpuskel og ígulker af sjávarbotni sem krakk- arnir borðuðu af bestu lyst. Við færðum okkur upp á land og gerð- um osta en hætt var við heimsókn á bóndabæi þar sem búið er að loka þeim öllum fyrir gestum og gang- andi,“ segir Völundur um hvað hóp- urinn fékkst við á námskeiðinu. Hæg heimatökin „Okkur langaði að gera góðan mjúkost og því höfðum við samband við Mólkurvinnsluna Örnu sem er vestfirsk í húð og hár. Þar var held- ur betur vel tekið í erindið og við fengum alla þá aðstoð sem við þurftum. Þar var fremstur í flokki Sigurður Mikaelsson sem er gríð- arlega fróður um ostagerð og sjálf- ur lærði ég mikið af honum,“ segir Völundur en hópurinn lærði meðal annars að gera mozzarellaost og kotasælu. „Markmiðið var jafnframt að draga athyglina að hráefnunum sem við fáum úr sjónum. Fiskurinn er þekkt stærð en þarinn er minna í umræðunni. Samt er hann eitt það magnaðasta sem fyrirfinnst í nátt- úrunni. Hann er náttúruleg upp- spretta joðs en joðskortur er að verða verulegt vandamál í heim- inum í dag. Simbi kafari, sem reyndist náskyldur mér, kafaði fyrir okkur eftir hörpuskel og ígulkerum. Ég hafði sent vestur lífræna soja- sósu sem er mun bragðmildari en við eigum að venjast og síðan hafði ég samband við Nordic Wasabi sem ræktar alvöru wasabirót hér á landi. Frábært frumkvöðlafyrirtæki sem hikaði ekki við að senda rót og rif- járn vestur svo krakkarnir gætu smakkað alvöruwasabi,“ segir Völ- undur en það eru ekki allir sem gera sér grein fyrir að hefðbundið wasabimauk er í reynd piparrótar- mauk sem búið er að lita grænt. „Mér fannst það líka svo magnað hvað það voru allir viljugir að leggja hönd á plóg þrátt fyrir hamlandi að- stæður. Sleppa og treysta Svona eftir á að hyggja lærðu þau kannski meira af því að hafa mig ekki á svæðinu,“ segir Völ- undur og hlær. „Tilhneigingin er að sýna alltaf hvernig á að gera hlutina en þegar maður er staddur í öðrum landshluta þarf maður að sleppa og treysta,“ segir hann og bætir við að krakkarnir hafi komið sér virkilega á óvart. „Maður veit auðvitað aldrei hvernig svona hóp- ur er en þetta voru þvílíkir snill- ingar og það var frábært að kenna þeim. Það reyndi mikið á þau og þau stóðu undir hverri áskorun. Það sem kom mér ekki síst á óvart er hvað þau voru áhugasöm og úr- ræðagóð þegar á reyndi.“ Frelsi til menntunar Í Lýðskólanum á Flateyri er lögð höfuðáhersla á að gefa nem- Matarkistan Önundarfjörður Á Flateyri við Önundarfjörð er að finna ansi merkilegan skóla. Þar eru engin próf, engar einkunnir og lagt er upp með að skapa nem- andanum aðstæður til að uppgötva eigin styrkleika og áhugasvið. Í skólanum eru tvær námsbrautir, sem oftast eru kallaðar inni- og útibrautin. Námsvetrinum er skipt upp í tveggja viknar lotur þar sem hvert námskeið er kennt í tvær vikur. Þetta fyrirkomulag, skap- ar tækifæri til að fá reynt fólk og fagaðila víðsvegar að úr heiminum til að halda námskeiðin. Ljósmyndir/Haukur Sigurðsson Veisla Það er fátt betra en nýveitt sjávarþang borðað beint upp úr sjónum. Fjarri góðu gamni en samt með Völundur tók þátt í öllum ævintýrum hópsins í gegnum síma eða tölvu. Veisla á bryggjunni Mitchel Rodrigues Jónsson, Sveinbjörn Hjálmarsson kafari, Guðrún Úlfarsdóttir, Arnbjörg Helga Björgvinsdóttir, Helga Brynjarsdóttir, Bjarki Þór Þórisson, Atli Már Heiðarsson, Hrafnkell Hugi og Úlfur Júlíusson. Náð í þara Hér er Óskar Dagur Marteinsson að ná í þara til að nýta í matargerðina. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.