Morgunblaðið - 08.04.2020, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 08.04.2020, Blaðsíða 42
Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is „Við ætlum að telja í aftur og gera föstudaginn langa aðeins styttri,“ segir Páll Óskar í samtali við K100.is en hann ætlar að hertaka stúdíó K100 í annað sinn og halda Pallaball í beinni klukkan 20.00 á föstudaginn langa. „Þetta verður auðvitað stór- skrýtin páskahelgi og við verðum bara að leita allra leiða til að ná að halda páskana hátíðlega,“ bætir hann við. Endurtekur Páll Óskar leikinn frá því síðustu helgina í mars en þá var svo mikil aðsókn á Pallaballið á K100 að netþjónninn hreinlega hrundi. Viðtökurnar komu á óvart „Ég held að ekkert okkar hafi átt von á þessum viðtökum en nú er búið að ganga úr skugga um að netþjónn- inn geti staðist og höndlað svona álag þannig að fólk geti fylgst með í beinni bæði á netinu, í Sjónvarpi símans og svo auðvitað í útvarpinu á K100,“ segir Páll. „Við ætlum að stilla þessu upp ná- kvæmlega eins og við gerðum þetta síðast. Ég verð í stúdíóinu á K100 og massa þetta bara beint framan í myndavélina,“ segir hann. Segir Páll að honum hafi þótt sér- staklega vænt um þau viðbrögð sem hann hafi fengið eftir síðasta Palla- ball. Fær klapp í gegnum samfélagsmiðla „Mér fannst gríðarlega fallegt að sjá viðbrögðin í gegnum samfélags- miðlana. Það er pínu „fríkað“ fyrir mig að troða upp með svona „stuðprógramm“ með engum áhorf- endum og fá ekkert klapp. Þannig að ég bað þá sem væru að fylgjast með að láta vita af sér og klappa fyrir mér í gegnum samfélagsmiðla. Það var svakalega fallegt að sjá við- brögðin. Ég sá þau auðvitað ekki fyrr en eftir að útsendingu lauk en þá var mitt „Instagramstory“ og skilaboðin á Instagram og á Face- book drekkhlaðin af litlum mynd- bandsbrotum af heilu fjölskyldunum að hoppa og öskra og syngja með sjónvarpinu,“ segir Páll. „Svo var svo fallegt að sjá hvað þetta var breiður aldur. Þetta voru litlir krakkar og amma þeirra með. Þetta var svakalega fallegt,“ segir tónlistarmaðurinn. „Ég lofa bara skemmtilegasta föstudeginum langa sem þið hafið nokkurn tímann upplifað.“ Stilltu á K100 í útvarpinu, í sjón- varpinu á Rás 9 í sjónvarpi Símans eða á netinu og skelltu upp alvöru Pallaballi heima hjá þér á föstudag- inn langa kl. 20.00. Lofar skemmtilegasta föstudeginum langa sem þú hefur upplifað Páll Óskar styttir föstudaginn langa með Pallaballi Ljósmynd/K100 Pallaball Páll Óskar lofar skemmtilegasta föstudeginum langa sem fólk hefur nokkurn tímann upplifað. Síðast var það mikil aðsókn að netþjónn mbl.is átti erfitt með að höndla álagið. Páll Óskar endurtekur leikinn frá því fyrr í sam- komubanninu, hertekur stúdíó K100 á föstudaginn langa og heldur alvöru Pallaball fyrir landsmenn í beinni útsendingu. Hann mætir vopnaður míkrófóni og mun syngja öll sín bestu lög í heilar 90 mínútur. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020 www.danco.is Heildsöludreifing Fullt af nýjungum í grænmetis- og vegan vörulínunni okkar Verslanir • Mötuneyti Kynntu þér málið og pantaðu á vefverslun okkar www.danco.is Dóra Júlía dorajulia@k100.is Nú þegar allir halda sig heima eins og þeir geta hefur þörf fyrir góða símavini sjaldan verið meiri. Það gerir dagana mína alltaf miklu skemmtilegri að hringja í vini og vandamenn og ræða um lífið og tilveruna. Þetta getur takmarkað það að við séum að kynnast nýju fólki en það þarf þó ekki endilega alltaf að vera. Ég rakst á svo ótrúlega krúttlegt „tíst“ á samfélagsmiðl- inum Twitter þar sem amma sem er í einangrun hringdi óvart í vit- laust símanúmer. Á hinum endanum var kona sem var líka í einangrun og spjöll- uðu þær í 20 mínútur um líf hvor annarrar. Í kjölfar þessara mis- taka skiptust þær svo á símanúm- erum svo þær gætu haldið sam- bandi og hist þegar ástandinu lýkur. Það er svo fallegt að fólk í svipuðum aðstæðum geti náð saman og orðið vinir! Ljósi punkturinn með dj Dóru Júlíu Öldruð kona í einangrun eignaðist óvart vinkonu Dj Dóra Júlía finnur ljósa punktinn í tilver- unni og flytur góðar fréttir reglulega yfir daginn á K100 í út- varpinu og á vefnum. Ljósmynd/Unsplash Vinkona Öldruð kona sem var í einangrun vegna útbreiðslu kór- ónuveirunnar eignaðist óvart vin- konu eftir að hafa hringt í vit- laust númer.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.