Morgunblaðið - 08.04.2020, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020
Hrein raunávöxtun
samtryggingardeildar
Aðalfundur og rafrænt stjórnarkjör
Lífsverks lífeyrissjóðs
Aðalfundur Engjateigi 9 – Reykjavík – þriðjudaginn 19.maí kl. 17.00
Engjateigur 9 105 Reykjavík
www.lífsverk.is
Rafrænt stjórnarkjör 8. til 17. apríl
Rafrænt stjórnarkjör fer fram á vef sjóðfélaga á www.lifsverk.is
dagana 8. – 17. apríl. Samkvæmt samþykktum sjóðsins skal kjósa
um tvö laus stjórnarsæti, karls og konu, til þriggja ára. Margrét
Arnardóttir, núverandi stjórnarmaður, sóttist eftir endurkjöri
og er hún sjálfkjörin í stjórn. Kjósa þarf um stjórnarsæti karls.
Í framboði eru Agnar Kofoed-Hansen, Arnar Ingi Einarsson,
Baldvin Ingi Sigurðsson, Bjarni Gnýr Hjarðar, Jóhann Þór
Jóhannsson, Sverrir Kári Karlsson og Þorbergur Steinn Leifsson.
Kynningar frambjóðenda eru á vefsvæði sjóðsins. Allir sjóðfélagar
njóta kosningaréttar og á það einnig við um elli- og örorkulífeyris-
þega. Eru sjóðfélagar hvattir til að nýta kosningarétt sinn.
Aðalfundur þriðjudaginn 19. maí kl. 17.00
Aðalfundi sjóðsins sem halda átti í apríl hefur verið frestað til
þriðjudagsins 19. maí kl. 17.00. Fundurinn verður haldinn að
Engjateigi 9, kjallara.
9,0%
8,0%
7,0%
6,0%
5,0%
4,0%
3,0%
2,0%
1,0%
0,0%
2015 2016 2017 2018 2019
10,0%
Um Lífsverk lífeyrissjóð:
Lífsverk er opinn lífeyrissjóður fyrir háskólamenntaða en allir
geta greitt til séreignardeilda sjóðsins. Sérstaða sjóðsins er m.a.
• Sjóðfélagalýðræði • Rafrænt stjórnarkjör
• Góð réttindaávinnsla • Hagstæð sjóðfélagalán
Hrein eign til greiðslu lífeyris í árslok 2019 var samtals 104,6
milljarðar kr. og hækkaði um 15,7 milljarða kr. á árinu. Hrein
eign í samtryggingardeild var 86,0 milljarðar kr. og hækkaði um
11,6 milljarða kr. á árinu. Heildartryggingarfræðileg staða
samtryggingardeildar var jákvæð um 0,1%. Meðaltal hreinnar
raunávöxtunar er 4,9% sl. 5 ár og 3,8% sl. 10 ár.
Hrein nafnávöxtun Hrein raunávöxtun
Samtryggingardeild 11,7% 9,0%
Lífsverk 1 15,9% 12,9%
Lífsverk 2 12,8% 9,9%
Lífsverk 3 5,4% 2,7%
Ávöxtun 2019:
5 ára meðaltal 10 ára meðaltal
Hrein raunávöxtun – Samtryggingardeild
Undanfarið höfum við heyrtráðleggingar úr ýmsumáttum sem snúa að því aðviðhalda heilbrigðum
venjum sem snúa að hreyfingu, mat-
aræði og svefni á þessum óvenjulegu
tímum. Þetta eru verndandi þættir
fyrir ónæmiskerfið og stuðla um leið
að andlegu heilbrigði.
Skipuleggja dagana
Að halda skipulagi eða rútínu er
krefjandi þegar vinna, skóli, félags-
starf og skipulagðar frístundir eru
ekki lengur fyrir
hendi eða með
breyttu sniði frá
því áður. Freist-
andi er að setja allt
á bið þar til hlut-
irnir detta í svipað
far og áður. Þegar
hversdagsleg rút-
ína er svo farin úr skorðum getur það
valdið streitu, kvíða, depurð, sam-
viskubiti og áhugaleysi.
Það getur hjálpað að búa til skipu-
lag fyrir næsta dag eða nokkra daga
fram í tímann. Það getur dregið úr
þeirri óvissu og óöryggistilfinningu
sem skiljanlega fylgir þessu tímabili.
Þó þarf að passa að ætla sér ekki of
mikið og setja upp einfalt og raunhæft
plan.
Gott er að setja inn í slíkt daglegt
skipulag athafnir sem snúa að ábyrgð
og skyldum (til dæmis vinna og heim-
ilisverk), athafnir sem snúa að per-
sónulegri umhirðu (svo sem klæða sig
og fara í sturtu), athafnir með öðru
fólki (sérstaklega nýta tölvu og síma)
og ánægjulegar athafnir. Daglegt
jafnvægi milli þessara athafna er talið
stuðla að betri líðan og lund.
Fjölga ánægjulegum athöfnum
Þegar erfiðir tímar fara í hönd er
fólk hvatt til að fjölga ánægjulegum
athöfnum í slíku skipulagi og hafa
þær að lágmarki 2-4 á dag. Hér þarf
ekki að fara út í stórar aðgerðir eða
leggja út mikinn kostnað. Aðalatriðið
er að finna það sem hentar hverjum
og einum.
Við höfum hér safnað saman
nokkrum hugmyndum um ánægju-
legar athafnir sem hægt er að setja
inn í skipulagið. Allar rúmast innan
þeirra takmarkana sem við öll búum
tímabundið við og margar henta líka í
sóttkví þegar takmarkanir sem fólk
býr við eru ennþá meiri. Listinn mið-
ast við fullorðna en sumar athafnir
passa auðvitað fyrir alla aldurshópa –
og eru góð skemmtun.
Gera slökunar- eða núvitundaræf-
ingar, hægt að nota öpp
Kortleggja ættartréð sitt
Gera heimaæfingar, t.d. styrktar-
eða þrekæfingar og jóga
Leggja kapal
Spila skrafl á netinu
Umpotta plöntum
Fylgjast með tónleikum og öðrum
menningarviðburðum á netinu
Sá fræjum að blómum og mat-
jurtum
Nota hópmyndspjall til að hitta vini
og ættingja
Hlusta á gamlar plötur sem þú hef-
ur ekki hlustað á í langan tíma
Hringja í vini og athuga hvaða bók-
um eða kvikmyndum þau mæla með
Horfa á tónlistarmyndbönd og
upptökur af tónleikum
Búa til spilunarlista af tónlist
Gera lista af kvikmyndum sem
mann langar að horfa á
Útbúa gjöf eða glaðning handa ein-
hverjum
Prófa nýja uppskrift
Búa til klippimyndir úr gömlum
tímaritum
Elda eða baka
Prófa ný öpp í símanum
Spila leiki í síma eða tölvu
Föndra minningabók
Lesa ljóðabækur
Skrifa bréf eða tölvupóst
Halda þakklætisdagbók, skrifa nið-
ur 1-3 þakkarverð atriði á hverjum
degi
Taka ljósmyndir í göngutúr
Spila eða læra á hljóðfæri
Fara í freyðibað
Teikna, lita eða mála
Flokka myndir í tölvunni / albúmum
Horfa á heimildamyndir eða nátt-
úrulífsmyndir
Fara í göngutúr á nýjan stað eða
fara nýja leið
Skrifa í dagbók
Lesa upphátt fyrir einhvern
Leyfa sér að dreyma dagdrauma
Syngja í sturtu
Hringja í gamla vini eða ættingja
sem maður hefur ekki heyrt í lengi
Skipuleggja tónlistarsafnið uppi í
hillu eða í tölvunni
Vinna í garðinum
Prófa nýjan tölvuleik
Setja sameiginleg markmið um
hreyfingu með vini og veita stuðning
úr fjarlægð
Búa til æfingaprógramm eða finna
tilbúið á netinu
Skipuleggja geymsluna
Taka með kíki í göngutúr og skoða
fugla
Taka til og þrífa, t.d. fyrir eitt her-
bergi í einu
Horfa á uppáhaldsbíómyndirnar
sínar.
Lesa aftur bók sem manni fannst
skemmtileg
Hlusta á nýjar hljómsveitir eða
plötur
Skoða gömul myndaalbúm, sér-
staklega þau sem vekja góðar minn-
ingar
Horfa á íþróttir
Semja ljóð eða texta við lög
Senda fyndin myndbönd, tónlist
eða myndir til vina
Læra ný dansspor
Fara í göngutúr og hlusta á tónlist
eða hljóðbók á meðan
Sinna viðhaldi, t.d. mála eða gera
við ef eitthvað er bilað
Fara í göngutúr í núvitund með at-
hygli á öllum skilningarvitum
Lesa og fá lánaðar bækur
Læra að prjóna eða hekla
Gera lista af bókum sem mann
langar að lesa
Hlusta á hljóðbækur, hlaðvörp og
útvarpsþætti
Nota myndbönd til að læra eitt-
hvað nýtt, t.d. skrautskrift, hár-
greiðslu eða gera við þvottavél
Endurraða húsgögnum
Endurskipuleggja fataskápinn
Ánægjulegar athafnir í samkomubanni
Morgunblaðið/Ómar
Útivera Göngutúr er góður fyrir bæði líkamann og sálina eða þá að fara út með sjónauka og fylgjast með fuglum sem nú flykkjast til Íslands handan um höf.
Heilsuráð
Höfundar eru starfsmenn í geð-
heilsuteymi Heilsugæslu höfuðborg-
arsvæðisins – vesturhluta.
Unnið í samstarfi við Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gítar Gott að nota tímann nú og
reyna fyrir sér í tónlistarnámi
Athöfnum í Fríkirkjunni í Hafnarfirði
á föstudaginn langa og páskadag
verður steymt á facebooksíðunni Frí-
kirkjan í Hafnarfirði. Vegna
samkomubanns liggur hefðbundið
safnaðarstarf niðri rétt eins og ann-
að félagslíf í landinu. Boðun með nýj-
um leiðum hefur hins vegar fengið
góðar viðtökur, segir séra Sigurvin
Lárus Jónsson, prestur við kirkjuna.
„Við höfum fundið mikið þakklæti
og sterk viðbrögð utan af akrinum.
Þar nefni ég til dæmis frá íbúum á
Hrafnistuheimilinu hér í Hafnarfirði,
sem eru í heimsóknabanni aðstæðna
vegna í samfélaginu. Reynslan af
þessu helgihaldi er mjög góð,“ segir
Sigurvin sem annst athafnir þessar
með Einari Eyjólfssyni safn-
aðarpresti.
Alls sáu um 7.000 manns fyrstu
athöfnina í Fríkirkjunni sem streymt
var á netinu og hefur áhorfendum
fjölgað jafnt og þétt síðan. Athöfnin
á föstudaginn langa verður kl. 21 og
páskadagsmessan öllum hefðum
samkvæmt kl. 8 að morgni.
Fríkirkja á Facebook
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hafnarfjörður Fríkirkjan fer nýja leið.
Helgihaldið
er nú á netinu