Morgunblaðið - 08.04.2020, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.04.2020, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020 Streymisfundur meðBjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, verður í hádeginu í dag, miðvikudaginn 8. apríl kl. 12:00. Streymt verður frá fundinum á Facebook-síðunni: Sjálf- stæðisflokkurinn í Suðvesturkjördæmi og sendamá Bjarna spurningar á meðan fundinum stendur. Streymisfundur meðBjarna SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN Í SUÐVESTURKJÖRDÆMI Guðni Einarsson Ragnhildur Þrastardóttir Næstu dagar munu skera úr um það hvort toppi kórónuveirufaraldursins hafi verið náð hérlendis, en óvenju fáir einstaklingar greindust smitaðir af veirunni síðasta sólarhringinn, eða 24. Þetta sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á blaðamannafundi almannavarna í gær. „Það væri óskandi ef svo væri,“ sagði Þórólfur, sem bætti því við að miklu fleirum hefði batnað undanfar- ið en hefðu smitast. Síðasta sólar- hring voru nokkuð færri sýni tekin en dagana á undan, en þau voru um 1.100 talsins. Virk smit í samfélaginu eru nú rúmlega 1.000 en um 5% þjóðarinnar eru í sóttkví eða hafa verið í sóttkví, sem Þórólfur sagði í raun ótrúlegar tölur. „Við fylgjum spálíkani háskólans mjög vel eftir. Við erum meira að segja undir bestu spá nema hvað varðar spá um innlagnir á gjörgæslu, þar erum við yfir bestu spá og höfum verið nálægt verstu spá,“ sagði Þór- ólfur. Enn á toppur í innlögnum á gjörgæslu eftir að koma fram en í gær voru 13 á gjörgæslu samkvæmt vefnum covid.is. 27 gjörgæslurými eru á Landspítala og fimm á Sjúkra- húsinu á Akureyri. Sjúklingar sem berjast nú við COVID-19 liggja í um 40% gjörgæslurýma á landsvísu. Aðrar bjargir kannaðar Alma Möller landlæknir sagði á blaðamannafundinum í gær að áætl- anagerð væri þó í mótun sem lyti að því að horfa á aðrar bjargir. Hún sagði í samtali við Morgun- blaðið í lok mars að verið væri að skoða húsnæði sem gæti tekið við sjúklingum ef til þess kæmi að heil- brigðisstofnanir réðu ekki við fjölda sjúklinga. Það færi eftir því hvaða sjúklingar ættu að dvelja þar hversu vel húsnæðið þyrfti að vera búið sér- fræðibúnaði. Þá sagði Alma sömuleiðis að bæði gæti skortur á mannafla og húsnæði sett strik í reikninginn þegar kæmi að því að aðstoða veika. Afléttingaráætlun eftir páska Vinna vegna afléttingar sam- komubanns og annarra takmarkana á daglegu lífi fólks er enn í gangi og verður áætlun um slíkt kynnt eftir páska. Þórólfur sagði að sömuleiðis þyrfti að skipuleggja það hvernig við ætluðum að standa að komu ferða- manna hingað til lands. „Tilgangurinn er náttúrlega að tryggja það að við fáum ekki aftur faraldur hér í sumar eða haust,“ sagði Þórólfur, en erlendis hefur far- aldurinn sums staðar sprottið upp eftir að takmörkunum hefur verið af- létt. Smit í Eyjum orðin samtals 103 Heildarfjöldi kórónuveirusmit- aðra sem tengjast Vestmannaeyjum var í gær 103. Skimunarátaki Ís- lenskrar erfðagreiningar í Vest- mannaeyjum lauk um síðustu helgi. Um 1.500 Eyjamenn voru skimaðir. Í gær var eftir að fá niðurstöðu úr fjór- um af sýnunum. „Það var mikill munur að fá að- komu Íslenskrar erfðagreiningar að þessari skimun,“ sagði Hjörtur Kristjánsson, umdæmislæknir sótt- varna á Suðurlandi. Hann sagði að áfram yrði haldið sýnatökum á Heil- brigðisstofnun Suðurlands (HSU) í Eyjum þegar þörf væri á eins og ver- ið hefði. Búið var að útskrifa 29 Eyjamenn í gær sem höfðu veikst af kórónu- veiru. Þá voru 213 í sóttkví. Hjörtur sagði að mun færri bættust nú í hóp þeirra sem færu í sóttkví en í upphafi faraldursins. „Fólk er hálfpartinn búið að hólfa sig af og umgengst færri en áður,“ sagði Hjörtur. Tveir sjúklingar úr Eyjum hafa verið lagð- ir inn á Landspítala vegna Covid-19 en eru báðir útskrifaðir og komnir til Vestmannaeyja aftur. Hæg stígandi á Suðurlandi Staðan annars staðar á Suðurlandi varðandi kórónuveirufaraldurinn er nokkuð góð, að sögn Hjartar. „Það er hæg stígandi í fjölda tilfella og ekki mikill fjöldi á hverjum stað. Það hef- ur ekki verið mikið álag á heilbrigð- iskerfið annars staðar en í Vest- mannaeyjum varðandi staðfest smit,“ sagði Hjörtur. Talsverður fjöldi fór í sóttkví í tengslum við smit í tveimur skólum en nú eru allir út- skrifaðir. Tilfelli sem hafa kallað á einangrun eða sóttkví hafa komið upp í öllum sýslum Suðurlands og flestum sveitarfélögum. Hjörtur sagði það vera í takti við íbúafjölda á hverjum stað en útbreidd smit hafi ekki komið upp annars staðar á Suðurlandi en í Vestmannaeyjum. Hann sagði að Rauði krossinn hefði unnið frábært starf við að halda utan um fólk í sóttkví og einangrun og fylgjast með því og högum þess. Fjöldi eftir landshlutum Óstaðsett 45 613 Útlönd 0 0 Austurland 6 44 Höfuðborgarsvæði 1.143 2.557 Suðurnes 72 193 Norðurland vestra 35 38 Norðurland eystra 43 173 Suðurland 166 364 Vestfirðir 47 319 Vesturland 29 106 Smit Sóttkví Uppruni smits Innanlands Óþekktur Erlendis 28.991 sýni hafa verið tekin 559 einstaklingar hafa náð bata 6 einstaklingar eru látnir 39 eru á sjúkrahúsi 13 á gjör-gæslu 1.021 eru í einangrun Fjöldi smita frá 28. febrúar til 6. apríl Heimild: covid.is og landspitali.is 1.586 smit voru staðfest í gær kl. 13.00 1.586 1.027 28. 29. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29. 30. 31. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 1.500 1.250 1.000 750 500 250 þeirra sem hafa greinst voru í sóttkví 73% 53% 11,9% sýna tekin hjá LSH voru jákvæð og 0,84% sýna tekin hjá ÍE 13.531 hafa lokið sóttkví4.407 manns eru í sóttkví Staðfest smit Virk smit Óvenjufáir greindust smitaðir  Næstu dagar skera úr um hvort toppi faraldursins er náð  Áform um afléttingu kynnt eftir páska  Áætlun í mótun um fleiri bjargir  Alls hafa 103 kórónuveirusmit greinst í Vestmannaeyjum Ljósmynd/Lögreglan Upplýsingafundur F.v. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, Alma D. Möller landlæknir og Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Þau sátu fyrir svörum í gær. Mótefna- prófanir munu ekki hefjast hér fyrr en far- aldurinn er farinn að réna. Það gæti verið um miðjan apríl, að sögn Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. Um er að ræða blóðpróf sem sýna hvort einstaklingar hafi bú- ið til mótefni gegn veirunni. „Við viljum helst sjá farald- urinn fara aðeins niður. Það er ekki mjög marktækt að mæla þetta of snemma. Þegar farald- urinn er farinn að réna er kominn tími í mínum huga til að mæla þetta. Það verður kannski um eða upp úr miðjum apríl.“ Í Þýskalandi hafa vottorð verið gefin út fyrir þá sem hafa fengið veiruna og myndað mótefni. Þór- ólfur segir að það sé til skoðunar að veita slík vottorð hérlendis. „Það er nokkuð sem kemur bæði til skoðunar fyrir Íslendinga sem eru að ferðast erlendis og eins gæti það komið til álita varðandi ferðamenn sem eru að koma hingað. Það er eitt af því sem ég held að gæti þurft að skoða.“ Þórólfur sagði að mikið væri um að aðilar byðu upp á svona próf til sölu til heimabrúks eða inni á rannsóknarstofu. Hann varaði fólk við að kaupa slík próf þar sem þau yrðu að vera örugg og áreiðanleg. ragnhildur@mbl.is Er til skoð- unar hér VOTTORÐ UM VIÐNÁM Þórólfur Guðnason „Það er mikilvægt að hafa í huga að börn á ofbeldisheimilum hafa ekkert val,“ sagði Sigþrúður Guðmunds- dóttir, framkvæmdastýra Kvenna- athvarfsins, á blaðamannafundi al- mannavarna í gær. Hún fór þar yfir það hvernig þolendur og gerendur heimilisofbeldis geti leitað sér að- stoðar en hætta er á að heimilisofbeldi verði bæði tíðara og hættulegra á tím- um sem þessum. Konur sem koma í Kvennaathvarfið standa oftast í þeirri trú að börn þeirra verði ekki fyrir áhrifum af því ofbeldi sem þær verða fyrir innan heimilisins ef það beinist ekki að barninu sjálfu. „Oft er það kannski eins og það sé það verkefni sem foreldrar í ofbeldis- samböndum hafi leyst í bestu samein- ingu, að telja sér trú um að börnin verði ekki fyrir áhrifum af ofbeldinu ef ofbeldið beinist ekki að þeim sjálfum. Þessi trú er röng,“ sagði Sigþrúður. Fjölmargar rannsóknir sýna fram á að það að alast upp á ofbeldisheimilum hafi gríðarleg áhrif á börnin. „Ekki bara í nútíð […] heldur sýna gríðarmargar rannsóknir að börn sem alast upp á ofbeldisheimilum eru miklu líklegri til að lenda í erfiðum að- stæðum síðar á lífsleiðinni en þau börn sem alast ekki upp á slíkum heim- ilum,“ sagði Sigþrúður. Ýmislegt getur hjálpað börnum að halda sig á beinu brautinni en þar ber helst að nefna það að þau hafi ein- hvern að leita til sem þau treysta. Eins og ástandið er núna hafa börn færri til að leita til. „Það mikilvægasta sem við getum gert er að gera allt sem við getum til að koma í veg fyrir það að börn dvelji á ofbeldisheimilum,“ sagði Sigþrúður. Kvennaathvarfið er opið nú eins og alltaf og síminn opinn allan sólar- hringinn. Starfsfólk heldur húsnæð- inu opnu, hreinu og smitfríu, eins og fram kom í stöðuskýrslu almanna- varna í gær. Áætlun er til ef skipta þarf hópnum upp vegna smits eða ef finna þarf annað húsnæði. Börn á ofbeldisheimilum eiga ekkert val og líða fyrir ofbeldið  Hætt er við að heimilisofbeldi aukist á tímum sem þessum  Foreldrar telja oft að börn finni ekki fyrir heimilisofbeldi KÓRÓNUVEIRUSMIT Á ÍSLANDI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.