Morgunblaðið - 08.04.2020, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is |
Opið alla virka daga kl. 10-17
Passamyndir
Tímapantanir
í síma 568 0150
eða á rut@rut.is
Tryggjum
tveggja metra fjarlægð
og gætum ítrustu
ráðstafana.
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Glæsileg borðstofuhúsgögnum
frá CASÖ í Danmörku
FRÉTTASKÝRING
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Íslensk ferðaþjónusta er í algjörri
óvissu vegna veirunnar sem nú herj-
ar á heimsbyggðina. Einn geiri
hennar er þjónusta við skemmti-
ferðaskip. Spáð hafði verið metsumri
2020 en nú eru
blikur á lofti.
Flestallar út-
gerðir skemmti-
ferðaskipa hafa
aflýst ferðum út
maímánuð og
ætla að meta
stöðuna í næsta
mánuði. „Það lít-
ur út fyrir að apr-
íl og maí séu al-
veg tapaðir og mikil óvissa að öðru
leyti með sumarið,“ segir Gísli Gísla-
son, hafnarstjóri Faxaflóahafna og
formaður Hafnasambands Íslands.
Þetta verður þungt högg fyrir
hafnir landsins og sérstaklega
Reykjavík, Akureyri og Ísafjörð,
sem tekið hafa á móti flestum skip-
um. Í gær var búið að afbóka 26 ferð-
ir hjá Faxaflóahöfnum en enn standa
163. Hver talan verður á endanum
veit svo enginn. Búið er að afbóka
allar skipakomur til Reykjavíkur
fram að 21. maí.
„Hins vegar virðist enn mikill
áhugi á pöntunum fyrir árið 2021 og
með haustinu verður óskað eftir
staðfestingu á þeim,“ segir Gísli.
Könnun sem samtökin Cruise Ice-
land létu gera árið 2018 sýndi að
koma skemmtiferðaskipa skapaði
920 störf í landinu og 16,4 milljarða
tekjur. Tekjurnar voru ennþá meiri í
fyrra vegna fjölgunar skipa og
stefndu í enn hærri tölur í sumar, áð-
ur en veiran stakk sér niður. Sömu-
leiðis hefði störfum fjölgað yfir 1.000,
enda mikil vinna fólgin í því að þjón-
usta meira en tvær milljónir ferða-
manna, sem koma með skipunum.
Koma skemmtiferðaskipa hafa því
ótvírætt mikil áhrif á efnahag lands-
ins.
Könnunin var unnin í samstarfi við
Hafnasamband Íslands. Breska
fyrirtækið GP Wild (International)
and Business Research & Economic
Advisors vann verkið.
Ferðamennirnir eyddu rúmum
18 þúsund krónum í hverri höfn
Könnunin var gerð um borð í skip-
um sem höfðu viðdvöl á Ísafirði, Ak-
ureyri og í Reykjavík á tímabilinu
júní til ágúst 2018. Alls voru 2.259
farþegar spurðir. Megintilgangur
könnunarinnar var að leiða í ljós
hverjar beinar og óbeinar tekjur
væru af neyslu farþega skemmti-
ferðaskipa ásamt útgjöldum skipa-
félaga í höfnum.
Í ljós kom að meðaltal neyslu
hvers viðkomuferðamanns 2018
reyndist vera um 18.050 krónur (145
evrur) í hverri höfn. Þorri aðspurðra
farþega (92%) sagðist fara í land á
viðkomustöðum á Íslandi og tæp
40% af áhöfnum skipanna. Það sam-
svarar því að um 427.500 farþegar
hafi stigið í land á öllu landinu og um
79.900 skipverjar. Hin beinu efna-
hagslegu áhrif af komu gesta með
skemmtiferðaskipum mælast 70,6
milljónir evra eða um 8,8 milljarðar
króna. Þegar óbein áhrif eru reiknuð
til viðbótar má ætla að þjóðhags-
legur ávinningur af komu skemmti-
ferðaskipanna nemi 16,4 milljörðum
króna.
Þessi könnun mældi hvernig
neysla farþega skemmtiferðaskipa
eykur íslenska hagsæld. Ýmis önnur
bein áhrif koma til viðbótar þegar
skemmtiferðaskip hafa viðdvöl í ís-
lenskum höfnum. Þar má nefna hafn-
argjöld, vistir, skatta og umboð-
stekjur. Áætlað er að skipafélögin
hafi greitt rúmlega milljarð króna
(8,3 m. evra) í hafnargjöld.
„Það er einsýnt að það verður
tekjufall hjá Faxaflóahöfnum, spurn-
ingin er bara hversu mikið,“ segir
Gísli Gíslason. Beinar tekjur í fyrra
af þessum skipum voru um 600 millj-
ónir króna og reiknað var með ein-
hverri aukningu í ár. „Við erum að
setja upp mismunandi sviðsmyndir
um hvað getur gerst, meðal annars
hvað gerist ef enginn kemur.“
Heildartekjur hafna á Íslandi voru
alls 10 milljarðar 2018. Fimmtán
hafnarsjóðir höfðu tekjur af komu
skemmtiferðaskipa á árinu 2018, alls
1.051 m.kr. sem er 10,4% af tekjum
hafnarsjóða í heild.
Morgunblaðið/Hari
Siglt inn Sundin Óvissa ríkir um það hve mörg skemmtiferðaskip koma. Risaskipið Celebrity Reflection hefur áður komið hingað og það er bókað 21. maí með yfir 4.300 manns. En kemur það?
Mikið í húfi fyrir hafnirnar
Mikil óvissa um komu skemmtiferðaskipa í sumar Skapa yfir 1.000 störf og milljarða tekjur
fyrir þjóðarbúið Hjá Faxaflóahöfnum er búið að aflýsa 26 ferðum en 163 ferðir eru enn skráðar
Gísli Gíslason
Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn-
ir hefur boðað að setja þurfi mun
stífari reglur um komur ferða-
manna með skemmtiferðaskipum.
Þetta er skiljanlegt með það í huga
að veiran getur borist um heiminn í
marga mánuði enn.
Gísli Gíslason kveðst eiga von á
að heyra fljótlega frá Þórólfi og í
framhaldinu verði sest yfir málið.
Gríðarlegur fjöldi er um boð í
stærstu skemmtiferðaskipunum
sem hingað koma. Skipið, sem bók-
að er 21. maí nk., heitir Celebrity
Reflection og er rúmlega 125 þús-
und brúttótonn. Skipið getur tekið
3.046 farþega og í áhöfn eru um
1.270 manns. Þetta eru því í heild-
ina rúmlega 4.300 manns, eða eins
og heilt samfélag í landi.
Aðeins eitt skemmtiferðaskip
hefur komið í ár, Magellan, með
1.452. Þegar menn komu þaðan í
land 9. mars sl., var gengið úr
skugga um að enginn þeirra væri
með kórónuveiruna.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Koma Magellan Farþegarnir ganga í land á Skarfabakka í Sundahöfn.
Herða þarf reglur
um komur farþega
Öll raforku-
vinnsla Lands-
virkjunar, á fimm
starfssvæðum
fyrirtækisins,
gengur eftir áætl-
un. Landsvirkjun
hefur gripið til
ýmissa ráðstaf-
ana vegna kór-
ónuveirunnar,
með það að leiðarljósi að tryggja
samtímis öryggi starfsmanna sinna
og áfallalausan rekstur, segir á
heimasíðu fyrirtækisins.
Landsvirkjun rekur 15 vatnsafls-
stöðvar, þrjár jarðvarmastöðvar og
tvær vindmyllur á fimm starfs-
stöðvum víðs vegar um landið. Ekki
er farið í heimsókn í aflstöðvar nema
brýna nauðsyn beri til. Skrifstofurn-
ar eru nánast mannlauasr og starfs-
menn vinna störfin heima hjá sér.
Vinnslan
er á áætlun
Fljótsdalsstöð