Morgunblaðið - 08.04.2020, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 08.04.2020, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Passamyndir Tímapantanir í síma 568 0150 eða á rut@rut.is Tryggjum tveggja metra fjarlægð og gætum ítrustu ráðstafana. N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Glæsileg borðstofuhúsgögnum frá CASÖ í Danmörku FRÉTTASKÝRING Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Íslensk ferðaþjónusta er í algjörri óvissu vegna veirunnar sem nú herj- ar á heimsbyggðina. Einn geiri hennar er þjónusta við skemmti- ferðaskip. Spáð hafði verið metsumri 2020 en nú eru blikur á lofti. Flestallar út- gerðir skemmti- ferðaskipa hafa aflýst ferðum út maímánuð og ætla að meta stöðuna í næsta mánuði. „Það lít- ur út fyrir að apr- íl og maí séu al- veg tapaðir og mikil óvissa að öðru leyti með sumarið,“ segir Gísli Gísla- son, hafnarstjóri Faxaflóahafna og formaður Hafnasambands Íslands. Þetta verður þungt högg fyrir hafnir landsins og sérstaklega Reykjavík, Akureyri og Ísafjörð, sem tekið hafa á móti flestum skip- um. Í gær var búið að afbóka 26 ferð- ir hjá Faxaflóahöfnum en enn standa 163. Hver talan verður á endanum veit svo enginn. Búið er að afbóka allar skipakomur til Reykjavíkur fram að 21. maí. „Hins vegar virðist enn mikill áhugi á pöntunum fyrir árið 2021 og með haustinu verður óskað eftir staðfestingu á þeim,“ segir Gísli. Könnun sem samtökin Cruise Ice- land létu gera árið 2018 sýndi að koma skemmtiferðaskipa skapaði 920 störf í landinu og 16,4 milljarða tekjur. Tekjurnar voru ennþá meiri í fyrra vegna fjölgunar skipa og stefndu í enn hærri tölur í sumar, áð- ur en veiran stakk sér niður. Sömu- leiðis hefði störfum fjölgað yfir 1.000, enda mikil vinna fólgin í því að þjón- usta meira en tvær milljónir ferða- manna, sem koma með skipunum. Koma skemmtiferðaskipa hafa því ótvírætt mikil áhrif á efnahag lands- ins. Könnunin var unnin í samstarfi við Hafnasamband Íslands. Breska fyrirtækið GP Wild (International) and Business Research & Economic Advisors vann verkið. Ferðamennirnir eyddu rúmum 18 þúsund krónum í hverri höfn Könnunin var gerð um borð í skip- um sem höfðu viðdvöl á Ísafirði, Ak- ureyri og í Reykjavík á tímabilinu júní til ágúst 2018. Alls voru 2.259 farþegar spurðir. Megintilgangur könnunarinnar var að leiða í ljós hverjar beinar og óbeinar tekjur væru af neyslu farþega skemmti- ferðaskipa ásamt útgjöldum skipa- félaga í höfnum. Í ljós kom að meðaltal neyslu hvers viðkomuferðamanns 2018 reyndist vera um 18.050 krónur (145 evrur) í hverri höfn. Þorri aðspurðra farþega (92%) sagðist fara í land á viðkomustöðum á Íslandi og tæp 40% af áhöfnum skipanna. Það sam- svarar því að um 427.500 farþegar hafi stigið í land á öllu landinu og um 79.900 skipverjar. Hin beinu efna- hagslegu áhrif af komu gesta með skemmtiferðaskipum mælast 70,6 milljónir evra eða um 8,8 milljarðar króna. Þegar óbein áhrif eru reiknuð til viðbótar má ætla að þjóðhags- legur ávinningur af komu skemmti- ferðaskipanna nemi 16,4 milljörðum króna. Þessi könnun mældi hvernig neysla farþega skemmtiferðaskipa eykur íslenska hagsæld. Ýmis önnur bein áhrif koma til viðbótar þegar skemmtiferðaskip hafa viðdvöl í ís- lenskum höfnum. Þar má nefna hafn- argjöld, vistir, skatta og umboð- stekjur. Áætlað er að skipafélögin hafi greitt rúmlega milljarð króna (8,3 m. evra) í hafnargjöld. „Það er einsýnt að það verður tekjufall hjá Faxaflóahöfnum, spurn- ingin er bara hversu mikið,“ segir Gísli Gíslason. Beinar tekjur í fyrra af þessum skipum voru um 600 millj- ónir króna og reiknað var með ein- hverri aukningu í ár. „Við erum að setja upp mismunandi sviðsmyndir um hvað getur gerst, meðal annars hvað gerist ef enginn kemur.“ Heildartekjur hafna á Íslandi voru alls 10 milljarðar 2018. Fimmtán hafnarsjóðir höfðu tekjur af komu skemmtiferðaskipa á árinu 2018, alls 1.051 m.kr. sem er 10,4% af tekjum hafnarsjóða í heild. Morgunblaðið/Hari Siglt inn Sundin Óvissa ríkir um það hve mörg skemmtiferðaskip koma. Risaskipið Celebrity Reflection hefur áður komið hingað og það er bókað 21. maí með yfir 4.300 manns. En kemur það? Mikið í húfi fyrir hafnirnar  Mikil óvissa um komu skemmtiferðaskipa í sumar  Skapa yfir 1.000 störf og milljarða tekjur fyrir þjóðarbúið  Hjá Faxaflóahöfnum er búið að aflýsa 26 ferðum en 163 ferðir eru enn skráðar Gísli Gíslason Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn- ir hefur boðað að setja þurfi mun stífari reglur um komur ferða- manna með skemmtiferðaskipum. Þetta er skiljanlegt með það í huga að veiran getur borist um heiminn í marga mánuði enn. Gísli Gíslason kveðst eiga von á að heyra fljótlega frá Þórólfi og í framhaldinu verði sest yfir málið. Gríðarlegur fjöldi er um boð í stærstu skemmtiferðaskipunum sem hingað koma. Skipið, sem bók- að er 21. maí nk., heitir Celebrity Reflection og er rúmlega 125 þús- und brúttótonn. Skipið getur tekið 3.046 farþega og í áhöfn eru um 1.270 manns. Þetta eru því í heild- ina rúmlega 4.300 manns, eða eins og heilt samfélag í landi. Aðeins eitt skemmtiferðaskip hefur komið í ár, Magellan, með 1.452. Þegar menn komu þaðan í land 9. mars sl., var gengið úr skugga um að enginn þeirra væri með kórónuveiruna. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Koma Magellan Farþegarnir ganga í land á Skarfabakka í Sundahöfn. Herða þarf reglur um komur farþega Öll raforku- vinnsla Lands- virkjunar, á fimm starfssvæðum fyrirtækisins, gengur eftir áætl- un. Landsvirkjun hefur gripið til ýmissa ráðstaf- ana vegna kór- ónuveirunnar, með það að leiðarljósi að tryggja samtímis öryggi starfsmanna sinna og áfallalausan rekstur, segir á heimasíðu fyrirtækisins. Landsvirkjun rekur 15 vatnsafls- stöðvar, þrjár jarðvarmastöðvar og tvær vindmyllur á fimm starfs- stöðvum víðs vegar um landið. Ekki er farið í heimsókn í aflstöðvar nema brýna nauðsyn beri til. Skrifstofurn- ar eru nánast mannlauasr og starfs- menn vinna störfin heima hjá sér. Vinnslan er á áætlun Fljótsdalsstöð
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.