Morgunblaðið - 08.04.2020, Blaðsíða 28
Auðnalóa Þessi gæti verið komin langt að, jafnvel alla leið frá Asíu. Hún
sást við Hvalsnes 22. júlí í fyrra og er þarna í góðum félagsskap lóuþræla.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Háleggur, tígultáti, klettasvala, kol-
önd, fjalllóa og svölustelkur eru heiti
á fuglum, sem Guðmundur Falk,
fuglaljósmyndari í Reykjanesbæ, hef-
ur á hraðbergi. Hann sinnir fugla-
skoðun, myndatökum og merkingum
af fuglum af krafti og á síðasta ári sá
hann alls 180 tegundir fugla, sem
mun vera Íslandsmet.
Þar af sá hann 27 fugla í fyrsta
skipti og hefur siglt hratt inn á topp
20 lista fuglaskoðara sem flesta fugla
hafa séð á Íslandi. Guðmundur hefur
alls séð 243 fuglategundir, en sjö þeir
fuglaflestu státa af yfr 300 fuglum á
sínum lista. Þangað segist Guð-
mundur stefna ótrauður. Óhætt er að
segja að vel hafi gengið í vetur því á
tímabilinu frá 1. desember til loka
febrúar sá hann alls 89 tegundir.
Guðmundur segir fuglaskoðun og
leitina að nýjum fuglum vera spenn-
andi áhugamál. Hann hefur þó ekki
alltaf verið sérstakur áhugamaður
um fugla, en segist alltaf hafa fylgst
vel með þeim og lærði sem krakki í
Keflavík að þekkja ólík egg fuglanna
á Miðnesheiði og Hafnaheiði á
Reykjanesi.
Tekur nýja sportið með trompi
Síðustu ár hefur orðið breyting á
og alvaran við fuglaskoðunina tekið
við.
„Ég er þannig dellukarl að þegar
ég hendi einni dellunni verður sú
næsta enn ágengari,“ segir Guð-
mundur. „Ég fæ ástríðu fyrir öllu
sem ég tek mér fyrir hendur og fer þá
alla leið. Hér áður fyrr var ég mikill
veiðimaður, en svo kom að því ég
veiddi yfir mig og lagði veiðistöng-
inni. Í staðinn fór ég yfir í fugla-
skoðun og myndatökur og hef síðustu
árin lifað fyrir þessa ástríðu. Ég
hreinlega safna fuglum og þeim mun
fágætari sem þeir eru þeim mun glað-
ari verður þessi gamli veiðimaður.“
Hann hefur tekið nýja sportið sitt
með trompi og eins og þeir hörðustu í
þessari grein ferðast hann um landið
með myndavélina að vopni ef ein-
hvers staðar fréttist af flækingi, sem
sjaldan eða jafnvel aldrei hefur sést á
landinu áður.
„Ég kolféll fyrir þessu árið 2014,“
segir Guðmundur. „Þá sá ég fyrsta
flækinginn minn og þar með var þetta
ráðið. Þetta var trjámáfur, en ég var
ekki klárari en svo að ég hélt að ég
væri að horfa á venjulegan hettumáf.
Mér var bent á að þetta væri merki-
legur fugl sem verpir við vötn í barr-
Tígultáti Fannst í Sólbrekku 7. október 2019,
þriðji fugl á Íslandi, annar sem finnst á lífi.
Amerískur víxlnefur Fannst í Sólbrekku 14
nóvember 2017, sá fyrsti sem finnst í Evrópu.
Trjástelkur Þessi evrópski fugl fannst á Fitja-
tjörn 15. maí í fyrra, níundi fuglinn hérlendis.
Ástríðufullur fuglaskoðari
Þegar ég hendi einni dellu verður sú næsta enn ágengari, segir Guðmundur Falk fuglaljósmyndari
Safnar og myndar sjaldgæfa fugla Á einni viku í haust fékk hann næturgala og tígultáta í fuglanet
Ljósmyndir/Guðmundur Falk
Háleggur Fuglinn sá Guðmundur á Miðhúsasíki 20. apríl 2017 og var það í fyrsta skipti sem hann fannst hérlendis.
Svölustelkur Fannst á Sandgerðistjörn 5.
maí 2018, fimmti fugl þessarar tegundar.
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020
Pantanir í s. 558 0000 & info@matarkjallarinn.is
Aðalstræti 2, 101 Rvk. |www.matarkjallarinn.is
MATARPAKKI 1
Koníaksbætt humar- og kóngakrabbasúpa
m/steiktum humar og kryddjurtarjóma
Grilluð nautalund
m/piparsósu, tvíbakaðri kartöflu,
steiktum villisveppum og rótargrænmeti
Súkkulaði ganache
m/hindberjum, heslihnetum og saltkaramellu
4.990 á mann fyrir 2 rétti
5.990 á mann fyrir 3 rétti
MATARPAKKI 2
Nauta carpaccio
m/trufflu majónesi og reyktummöndlum
Hægeldað andarlæri
m/heimagerðu rauðkáli, tvíbakaðri kartöflu,
steiktum villisveppum og rótargrænmeti
Súkkulaði ganache
m/hindberjum, heslihnetum og saltkaramellu
4.990 á mann fyrir 2 rétti
5.990 á mann fyrir 3 rétti
Matarpakkar heim að dyrum
Alls sá Guðmundur Falk 27
nýjar tegundir á síðasta ári
fyrir utan að sjá ýmsa aðra
sjaldgæfa fugla sem hann
hafði séð áður. Suma þessara
fugla fann hann sjálfur, en
aðra eftir ábendingar frá öðr-
um fuglaáhugamönnum.
Nýjar tegundir á lista Guð-
mundar í fyrra voru: trjástelk-
ur, lyngstelkur, flóastelkur,
dvergsvanur, mjallgæs, hrók-
önd, svaltrosi, fjalllóa, blá-
hegri, fjallvákur, gjóður,
klapparmáfur, beltaþyrill,
bláþyrill, sönglævirki, brand-
svala, klettasvala, trjátitt-
lingur, næturgali, tígultáti,
mánaþröstur, þorraþröstur,
síkjasöngvari, skopsöngvari,
grásvarri, grákráka og orm-
skríkja.
27 nýjar teg-
undir í fyrra
STÖÐUG LEIT AÐ FUGLUM
Ástríða Guðmundur Falk hefur
sinnt fuglaskoðun, myndatökum og
merkingum af kappi síðustu ár.