Morgunblaðið - 08.04.2020, Page 39
Dökkhærð Sunneva Eir Einarsdóttir, einkaþjálfari og áhrifavaldur,
setti litanæringu frá Davines í hárið á sér. Eins og sést á myndinni
kemur það vel út og klæðir hana vel.
Ekki hreyfa þig Þú getur ekki
ferðast um húsið á meðan þú ert í
plastsokkunum frá Baby Foot. Lestu
bók eða hringdu í vin á meðan.
Marta María
mm@mbl.is
Ef þú ert með ljósar strípur í hárinu
sem eru farnar að vaxa úr mæli ég
ekki með því að þú aflitir á þér
rótina. Hárgreiðslufólk varar við
slíkum aðgerðum og er best fyrir alla
að þeim fyrirmælum sé hlýtt. Það er
ekki að ástæðulausu að varað sé við
þessu því hárgreiðslufólk hefur ýmsa
fjöruna sopið. Eftir að hafa séð alls-
konar útgáfur af hryllilegum heima-
litunum veit fagfólk í hárgreiðslu-
heiminum hvað það syngur. Þótt ég
hlýði Víði þá er ég samt alls ekki
sammála því að fólk verði bara að
vera með ljótt hár í þessu samkomu-
banni. Það að hugsa vel um hárið,
húðina og allt það ber vott um sjálfs-
virðingu. Ég mæli með því að fólk
haldi áfram að þrífa sig, þvo á sér
hárið, setja á sig andlitskrem, serum
og allt það.
Ef þú vilt prófa þig áfram þá eru
Alcemic-vörurnar frá Davines mjög
góðar. Áhrifavaldurinn Sunneva Eir
Einarsdóttir prófaði þessa litanær-
ingu á dögunum með góðum árangri.
Hárið varð karamellulitað og ansi
hreint fínt og þannig losnaði hún við
rótina.
Alchemic-vörurnar eru hannaðar
til þess að bæði hressa við og skerpa
hárlitinn og þar með lengja endingu
litarins eða til þess að breyta um lit
tímabundið. Efnið hentar bæði í litað
og ólitað hár. Alchemic-línan er 100%
vegan og kemur sjampóið í sex mis-
munandi litatónum og næringin í 11
mismunandi litatónum. Það að setja í
sig litanæringu og litasjampó er frá-
bær leið til að lífga aðeins upp á hárið
á meðan fólk bíður eftir að komast á
hárgreiðslustofu.
Heima-háreyðing!
Nú, svo eru það blessuð líkams-
hárin sem vaxa eins og arfi þessa
dagana. Ef þú ert vön að fara í vax og
vilt ekki vera í náttúrulegum gam-
mósíum þá eru nokkrar leiðir í boði.
Þú getur náttúrlega rakað á þér
lappirnar. Ekki stelast samt í rakvél
eiginmannsins heldur keyptu þér
þína eigin og sótthreinsaðu hana á
milli aðgerða.
Ef þú vilt ekki raka á þér
lappirnar á er gamla góða
háreyðingarkremið frá Veet
alltaf klassískt. Þú berð það á
þig, á fótleggi og undir hendur
og bíður í þrjár mínútur eftir
að efnið virki svo þú getir skaf-
ið hárin í burtu. Þegar hárin
eru farin burt er nauðsynlegt
að fara í sturtu og skrúbba
kroppinn hátt og lágt.
Harðir hælar!
Þið ykkar sem eruð vön að
fara á snyrtistofu eruð kannski
ekkert sérlega góð í að skrapa
siggið af hælunum en þið þurf-
ið ekki að örvænta. Baby Foot
Easy Pack kemur til bjargar á
tímum sem þessum. Um er að
ræða djúpvirka fótameðferð
sem losar þig við dauðar húð-
frumur á einfaldan og árang-
ursríkan hátt. Pakkinn inn-
heldur sokka sem þú klæðir
þig í eftir að hafa þvegið fæt-
urna. Þú ert í sokkunum í
klukkustund og þværð þér svo
aftur með sápu og vatni. Eftir 2-7
daga byrja dauðu húðfrumurnar að
flagna af á náttúrulegan hátt og fæt-
urnir á þér verða mjúkir eins og á
litlu barni.
Baby Foot hefur verið þróað þann-
ig að blandan ræðst á dauðar húð-
frumur sem valda okkur óþægindum.
Þökk sé 17 náttúrulegum kjörnum
fjarlægir Baby Foot ekki bara
dauðar húðfrumur, heldur nærir
fæturna og veitir þeim fallegri
áferð. Helstu innihaldsefni
Baby Foot er ávaxtasýra
(mjólkursýra, Glycolic sýra,
eplasýra og sítrónusýra sem
eru fengnar úr ávöxtum).
Það eina sem þú þarft að passa
er að hreyfa þig ekki neitt þenn-
an klukkutíma sem þú ert í plast-
sokkunum því það er eiginlega
ekki hægt að ganga í þeim.
Komdu þér rólega fyrir með
hljóðbók eða haltu sauma-
klúbb í tölvunni í gegnum
Teams.
Daginn eftir er svo ekki úr
vegi að snyrta táneglurnar
vel og lakka þær með Day-
dream 735 frá Chanel eða
Mirage 739. Hann er aðeins
dekkri með bláum undirtón.
Svo getur þú lakkað negl-
urnar á höndunum líka ef þú
ert í rosalegu stuði.
Svona frískar þú upp
á þig í samkomubanninu
Fyrstu vikuna í samkomubanninu var fólk nokkuð „peppað“ og upplifði ævintýri við það að flytja vinnuna heim til sín. Sumum fannst
mikil lífsgæði fólgin í því að geta unnið heima á sloppnum, geta hellt sér upp á sitt eigið kaffi og bakað kannski köku með sítrónu-
glassúr í hádeginu. En eftir nokkrar vikur í heimavinnu þar sem jafnvel börn og makar eru líka heima þykknar upp. Hárið orðið úr sér
gengið, fótleggirnir komnir í náttúrulegar gammósíur og siggið farið að gera vart við sig á hælunum.
Háreyðingar-
krem Þetta
krem er vinur
í raun í sam-
komubanni
og fæst til
dæmis í
Lyfju.
Unsplash
Náttúrulegar gammósíur
Vaxa hárin eins og arfi á
fótleggjunum?
Unsplash
Sniðugt Litasjampó og
hárnæring frá Davines
kemur í fjölmörgum litum.
Toppaðu þig Þetta
naglalakk er úr
sumarlínu Chanel
og fer ansi vel á
tánöglum. Ljós-
ari liturinn er
númer 735 og
dekkri í 739.
Þetta virkar Plastokkarnir
frá Baby Foot virka sérlega
vel. Það er svo alger veisla
þegar skinnið fer að
skrælna af eftir viku eða
svo. Þar að segja ef þér
finnst gaman að plokka
dauðar húðfrumur.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. APRÍL 2020